Fréttablaðið - 30.05.2006, Side 40
12 ■■■■ { norðurland } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
Listalífið fyrir norðan hefur aldrei
verið öflugra en nú. Vinnustofan
Svartfugl og hvítspói, var opnuð
fyrir rúmu einu og hálfu ári í
bakhúsi í Brekkugötu 3a, og hafa
eigendurnir, Sveinbjörg Hallgríms-
dóttir og Anna Gunnarsdóttir, ekki
látið sitt eftir liggja til að gera
Akureyri að einum fremsta menn-
ingarbæ landsins.
Að sögn Önnu hefur starfsemin
gengið mjög vel síðan þær Svein-
björg opnuðu. „Þar sem þetta er
opin vinnustofa, erum við aðallega
með verk eftir okkur sjálfar,“ segir
Anna. „Við hlið vinnustofunnar er
salur þar sem verkin eru höfð til
sýnis. Sveinbjörg, sem er menntuð
í grafík úr Myndlista- og handíða-
skólanum, sýnir tré- og koparristur
eftir sig. Svo er ég sjálf að vinna
með ýmis efni, svo sem ull, silki,
leður og roð. Þetta er fatnaður og
ljósskúlptúrar, en ég lauk námi á
hönnunar- og textílbraut frá Verk-
menntaskólanum á Akureyri og fór
þaðan í nám til Danmerkur, eins
og Sveinbjörg gerði. Kosturinn við
að hafa vinnustofu og sal í sama
húsnæði er sá að fólk getur bæði
komið til að skoða verkin okkar og
séð hvernig þau verða til,“ bætir
hún við. Anna segir að þótt þær
Sveinbjörg hafi vinnustofuna við
hlið sýningarsalsins, þá sýni þær
öðru hverja eftir aðra listamenn.
„Björg Eiríksdóttir var til að mynda
með sýningu á olíumálverkum hjá
okkur um daginn sem tókst vel
til í alla staði. En eins og ég segi
þá einblínum við aðallega á eigin
verk og Sveinbjörg, sem var kosin
bæjarlistamaður, hélt mjög vel
heppnaða einkasýningu í húsinu,“
bætir hún við í lokin.
Svartfugl og hvítspói
Sveinbjörg Hallgrímsdóttir og Anna Gunnarsdóttir bjóða gestum og gangandi að sjá
hvernig list verður til.
Svartfugl og hvítspói er skemmtileg vinnustofa og sýningarsalur þar sem gestir geta
skyggnst inn í veröld listamanna. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIDA.IS
Mikið af fallegum verkum eru til sýnis á stofunni í Brekkugötu 3a og ljóst að þær Anna og
Sveinbjörg hafa auðgað bæinn með list sinni. FRÉTTABLADID/HEIDA.IS
Sumir hlutanna sem eru til sýnis eru
skemmtilega skrítnir í útliti, réttnefnt
augnakonfekt. FRÉTTABLADID/HEIDA.IS
Þessi mynd sýnir með skemmtilegum hætti
hversu stutt er á milli listköpunar, saman-
ber tvinnana til hægri, og listaverksins, það
er „eggsins“, í Svartfugli og hvítspóa.
FRÉTTABLADID/HEIDA.IS
N† VÖRU- OG fiJÓNUSTUSKRÁ Á VISIR.IS/ALLT
... sem flig vantar til
a› hefja n‡tt líf
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
Hringdu í 550 5000 ef blaðið berst ekki
- mest lesið
N† VÖRU- OG fiJÓNUSTU-
SKRÁ Á VISIR.IS/ALLT
... sem flig vantar í
n‡ja húsnæ›i›