Fréttablaðið - 30.05.2006, Side 51
Um er að ræða nýlegt hús sem byggt var árið 2003 og hefur verið
notað sem þvottastöð fyrir fiskeldispoka. Húsið er stálgrindarhús og
er skráð hjá Fasteignamatinu 722 m2 að stærð. Grunnflötur hússins er
633 m2 og lofthæð í mæni 8 m. Starfsmanna og skrifstofuaðstaða,
61 m² er á millilofti í enda hússins. 28,4 m² viðbygging er við húsið
sem notuð er sem vélaklefi. Húsið er á 5.483,8 m² lóð sem er
grófjöfnuð. Húsinu er skipt endilangt í tvennt með millivegg og er
upphaflega innréttað sem þvottastöð og netaverkstæði, en einfalt er að
aðlaga það að annarri starfsemi. Tvær bílgengar hurðir (4x4,5m og
4x4,4m) eru á húsinu, ein á hvorum enda. Upphitun er með raf-
mangsblásurum, einnig eru vatnslagnir í gólfi fyrir vatnshita.
Fullkomið brunaöryggiskerfi er í húsinu og lýsing er góð. Húsið er vel
staðsett á iðnaðarsvæði við höfnina á Reyðarfirði.
Upplýsingar veitir Ásmundur sölum. í símum 475 8000 og 894 0559
Fasteignasalan Hóll Reyðarfirði Austurvegi 20,
Ágúst Benidiktsson löggildur fasteignasali.
Nesbraut 7, 730 Reyðarfirði
Sandskeið 6, 620 Dalvík
Um er að ræða stálgrindarhús með við byggingu, samtals 383 m2.
Aðalbyggingin er 303 m2 og viðbyggingin sem er eldri er 77m2.
Bílskúrshúrshurð er á annari hliðinni og er þar fyrir framan malbikað
bílastæði. Gluggar eru á báðum hliðum og er mjög bjart í húsinu. Loft
er álklætt og einangrað að innan. Í aðalbyggingunni er kaffistofa,
salerni, skrifstofa og fataherbergi. Lofthæð er mest um 5,5 m. Stærð
lóðar er samtals 1.244 m2.
Upplýsingar gefur Vilhelm í síma 461 2010 og 891 8363
Fasteignasalan Hóll Akureyri:
Ármann Sverrisson viðskiptafræðingur og löggildur fasteignasali
www.holl.is
Hóll fasteignasala
Franz Jezorski lögg.fasteignasali
Skúlagata 17
101 Reykjavík
FR
U
M