Fréttablaðið - 30.05.2006, Page 54

Fréttablaðið - 30.05.2006, Page 54
 30. maí 2006 ÞRIÐJUDAGUR22 timamot@frettabladid.is Tilkynningar um merkisatburði, stórafmæli, andlát og jarðar- farir í smáletursdálkinn hér að ofan má senda á netfangið timamot@frettabladid.is. Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is eða hringja í síma 550 5000. MERKISATBURÐIR 1431 Jóhanna af Örk er brennd á báli í Rúðuborg í Frakklandi fyrir villutrú. 1593 Breska leikskáldið Christ- opher Marlow er drepinn á krá vegna deilna um borgun á reikningi. 1768 Eggert Ólafsson, náttúru- fræðingur og skáld, drukkn- ar á Breiðafirði við áttunda mann. 1851 Jón Sigurðsson er kosinn forseti Kaupmannahafn- ardeildar Hins íslenska bókmenntafélags. Forseta- titillinn festist við Jón. 1981 Forseti Bangladess, Zia Rah- man, er ráðinn af dögum. 1984 Staðfest eru stjórnskipun- arlög sem fjölga alþingis- mönnum úr 60 í 63. Þennan dag árið 1990 bönnuðu frönsk yfirvöld allan innflutning á bresku nautakjöti og lifandi naut- gripum af ótta við kúariðu. Frakkland var stærsti inn- flytjandi bresks nautakjöts og kom þetta sér því mjög illa fyrir breska bændur. Einnig kom þetta sér illa fyrir bresk yfirvöld sem höfðu þráfaldlega reynt að sannfæra almenning um að öruggt væri að neyta nautakjöts. Fáum dögum síðar bönnuðu Þýskaland og Ítalía innflutning á nautakjöti. Banninu var aflétt nokkru síðar eftir miklar samningaviðræður í Brussel. Kúariðukreppan náði síðan hámarki 20. mars árið 1996 þegar bresk yfirvöld viðurkenndu að tengsl væru milli kúariðu og Creutzfeldt-Jakob-sjúk- dómsins, mannlegri útgáfu hrörnunarsjúkdómsins sem hafði fyrst fundist í bresk- um kúm tíu árum áður. Viku síðar var algert bann við útflutningi á bresku nautakjöti sett á. Banninu var aflétt í öllum löndum nema Frakklandi árið 1999 en eftir að Evrópusambandið hótaði stórum fjársektum var banninu einnig aflétt í þar í október árið 2002. ÞETTA GERÐIST: 30. MAÍ 1990 Frakkar banna breskt nautakjötALEXANDER POPE (1688-1744), LÉST ÞENNAN DAG. „Hreinskilinn maður er göfugasta sköpunarverk guðs.“ Ljóðskáldið Alexander Pope skildi eftir sig mikinn fjölda spakmæla. Á fimmtudaginn heldur iðjuþjálfun geðdeildarinnar við Hringbraut árleg- an sumarmarkað. Markaðurinn er stór dagur fyrir geðdeildina enda eru þar til sölu munir úr vetrarstarfinu og rennur ágóðinn til góðs málefnis. „Sumarmarkaðurinn er alltaf mjög skemmtilegur dagur og tilbreyting fyrir geðdeildina og fólkið sem er hérna í prógramminu,“ segir Sonja Gústafsdóttir, iðjuþjálfi á geðdeild- inni. Tveir markaðir eru haldnir á hverju ári, um jól og í sumarbyrjun, og hafa þeir tekist vel hingað til. „Ávinninginn setjum við í sjóð sem úthlutar styrkjum tvisvar á ári. Fólk sem er hérna hjá okkur getur sótt um styrkina til að byggja sjálft sig upp, til dæmis ef það vill fara í skóla eða stunda íþróttir. Hluti peninganna fer síðan í það að gera eitthvað félagslegt með fólkinu sem er í prógramminu. Þá greiðum við til dæmis niður ferð í leikhús eða á jólahlaðborð vegna þess að það er auðvitað mikil þjálfun í því að vera innan um fólk.“ Til sölu er mikið af fallegum munum og eru þar meðal annars saumavörur, smíðaðir hlutir og leir- munir. „Markmiðið með iðjuþjálfun- inni er að sjálfsögðu ekki að föndra heldur er það bara útkoman úr starf- inu. Við erum að æfa einbeitingu, úthald, samvinnu og samskipti með það að takmarki að fólk komist aftur í vinnu, skóla eða geti sinnt heimilinu sínu.“ Sólveig segir að mikill árangur sjáist af endurhæfingarvinnunnni þó hún taki vissulega langan tíma. „Til að ná árangri í endurhæfingunni þarf að sýna þolinmæði og fagna litlu sigrun- um en ekki bara að horfa á heildina. Við sjáum vel að því lengur sem fólk helst í endurhæfingunni því betur gengur því að fóta sig. Einnig eru minni líkur á endurinnlagningu og þær eru að jafnaði styttri hjá þeim sem hafa klárað prógrammið hjá okkur.“ Iðjuþjálfunardeildin hefur dálitla sérstöðu innan geðdeildarinnar og segir Sólveig að þar ríki sérstaklega góður andi. „Við erum ekki klædd í hvítt svo fólki finnst oft ekki eins og það sé inni á spítala. Allir sem eru hérna koma af fúsum og frjálsum vilja og vilja gera eitthvað í sínum málum.“ Allir eru velkomnir á sumarmark- aðinn sem er, eins og áður sagði, hald- inn fimmtudaginn fyrsta maí milli klukkan 12 og 15.30 í anddyri geð- sjúkrahúss LHS við Hringbraut. IÐJUÞJÁLFUN Á GEÐDEILD LHS HRINGBRAUT: HELDUR SUMARMARKAÐ Föndrið er bara afurð Systir okkar og föðursystir Sóley Þorsteinsdóttir Álfaskeiði 64b, Hafnarfirði, lést á Landspítalanum við Hringbraut 22. maí sl. Útför hennar fer fram frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði fimmtudaginn 1. júní kl. 15.00. F.h. aðstandenda Guðrún Ó. Hafberg Guðjón Kristinn Einarsson Ingólfur Einarsson Einar Þórir Dagbjartsson Okkar ástkæra Soffía Arinbjarnar lést á Landspítalanum í Fossvogi, föstudaginn 26. maí. Útförin verður auglýst síðar. Kristján Stefánsson Hildur Betty Kristjánsdóttir Guðmundur Óli Hilmisson Laufey Dögg Kristjánsdóttir Arthur Vilhelm Jóhannesson Vilborg Arinbjarnar og barnabörn. Elskulegur sonur minn og bróðir okkar Haraldur Elías Waage Hafnarbraut 23, Kópavogi, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 31. maí kl. 15.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakk- aðir en þeim sem vildu minnast hans er bent á líknar- stofnanir. Arnbjörg Jónsdóttir Waage Guðbjörg Hallfríður Waage Ágústa Waage Ingólfur Tryggvason Guðný Waage Arnbjörg Kristín og Markús Helgi Guðleif Jóhannsdóttir frá Siglufirði lést á heimili sínu í Grimsby þann 19. apríl 2006. Útförin fór fram 26. apríl í Grimsby. Jóhannes Jónsson Sigríður Einarsdóttir Carol Ann Robertsson Vivien Evelyn Burkett Hafdís Eyland Gísladóttir Árni Haraldsson Sverrir Eyland Gíslason Sigurrós Sveinsdóttir barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn. SONJA GÚSTAFSDÓTTIR IÐJUÞJÁLFI Á GEÐDEILD LHS Í iðjuþjálfuninni klæðast starfsmenn ekki í hvítt og ríkir þar sérstaklega góður andi. Fólk sem kemur á deildina kemur til að þjálfa upp einbeitingu og samskipti í því skyni að komast í vinnu, skóla eða geta sinnt heimilinu. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA AFMÆLI Jónas Ingimundar- son píanóleikari er 62 ára. Ólafur Sigurðsson fyrrverandi frétta- maður er sjötugur. JARÐARFARIR 13.00 Björk Arngrímsdóttir, Kirkjuteigi 19, Reykjavík, verður jarðsungin frá Laugar- neskirkju. 14.00 Friðrik Ársæll Magnússon frá Höskuldarkoti, fyrrverandi forstjóri Steypustöðvar Suð- urnesja, Grundarvegi 2, Ytri- Njarðvík, verður jarðsunginn frá Ytri-Njarðvíkurkirkju. 14.00 Pétur Þorvarðarson, Ártröð 3, Egilsstöðum, verður jarð- sunginn frá Egilsstaðakirkju. Sent verður út frá athöfninni í íþróttahúsið á Egilsstöðum. 15.00 Berta Björg Friðfinnsdóttir verður jarðsungin frá Foss- vogskirkju. 15.00 Guðmundur Hafsteinn Friðriksson fyrrverandi atvinnubílstjóri, Grensásvegi 56, Reykjavík, verður jarð- sunginn frá Grensáskirkju. EINN Í HEIMINUM Allir Íranarnir á þessari mynd biðja hér föstudags- bænirnar sínar í takt ef frá er talinn einn sem greinilega hefur orðið aðeins of seinn. FRÉTTABLAÐIÐ/AP ANDLÁT Guðný Soffía Tryggvadóttir, Skólabraut 3, Seltjarnarnesi, lést á gjörgæsludeild Landspítala Foss- vogi laugardaginn 20. maí. Útför fór fram í kyrrþey. Kristín Jónsdóttir, Freyjugötu 21, Sauðárkróki, lést á heimili sínu laugardaginn 27. maí. Rodolphe Giess, Hátröð 4, Kópa- vogi, lést í Frakklandi laugardaginn 13. maí. William E. Wood, 5306 Rainy Avenue, Orange Park, FLA, lést 9. maí. Útför fór fram í Orange Park. Þórey Ólafsdóttir, Háagerði 51, Reykjavík, lést á Hjúkrunarheimil- inu Eir laugardaginn 27. maí. Þorgerður Gunnarsdóttir, fædd 4.6 1930, til heimilis í Hörðalandi 10, Reykjavík, lést miðvikudaginn 24 maí.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.