Fréttablaðið - 30.05.2006, Qupperneq 58
30. maí 2006 ÞRIÐJUDAGUR26
menning@frettabladid.is
Kl. 19.00
Fyrsta Viðeyjarganga sumarsins.
Félagsmenn úr Myndhöggvarafé-
lagi Reykjavíkur leiða göngufólk
um sýninguna Site-Actions sem
opnuð var í eynni síðasta fimmtu-
dag í tengslum við Listahátíð.
Gangan er ókeypis utan ferjutolls
og tekur hún rúma tvo tíma.
> Ekki missa af...
ókeypis aðgangi í Þjóð-
minjasafnið út maímánuð.
Síðustu forvöð að nýta sér
þetta kjaraboð.
yfirlitssýningum Birgis
Andréssonar og Steingríms
Eyfjörð í Listasafni Íslands.
Sýningin er hluti af Lista-
hátíð í Reykjavík.
óperunni Galdraskytt-
unni sem verður sýnd á
Listahátíð um helgina.
Örfáar sýningar á þessari
mögnuðu óperu, konfekt
fyrir augu og eyru.
Sudoku-æðið kann að vera að renna
af fólki en nú er komin önnur japönsk
rökþraut sem vísast getur fengið menn
til að brjóta heilann og ófáa blýanta.
Fyrsta Kakuro-þrautin birtist í bresku
dagblaði haustið 2005 og hafa nú
sífellt fleiri heillast af gátunum og er
fyrsta þrautabókin komin núna út á
íslensku. „Bókin um Kakuro og hvernig
hún er leyst“ inniheldur 100 gátur auk
leiðbeininga og lausna svo áhugasamir
geta heldur betur hugsað sér gott til
glóðarinnar.
Höfundur Kakuro-gátanna í bókinni,
Dr. Gareth Moore, varði doktorsritgerð
sína um gervigreind véla við háskólann
í Cambridge á Englandi en gátunum
mætti líkja við krossgátu með
tölum en þær reyna á rökhugsun og einfalda reikn-
ishæfileika, það eina sem fólk þarf að kunna til
þess að ráða gáturnar er einföld sam-
lagning. Nafnið Kakuro er samsetning á
japanska orðinu yfir „samlagningu“ og
japönskum framburði á enska orðinu
„cross“.
Kakuro-gáturnar eru misstórar en
eins að öllu öðru leyti. Hver gáta hefur
„vísbendingareiti“ og auða reiti fyrir
„lausnartölur“ sem mynda „lausn-
arlínur“, ýmist lóðréttar eða láréttar.
Aðrir reitir eru svertir og ekki notaðir.
Vísbendingartala hverrar lausnarlínu
er jöfn öllum lausnartölum línunnar
samanlögðum. Ólíkt Suduko má ekki
nota hverja tölu nema einu sinni í
hverri lausnarlínu og allar tölur línunn-
ar samanlagðar verða að vera jafnar
vísbendingartölu línunnar. Þá er bara
að ydda blýantinn. Lárus Jón Guðmundsson þýddi
og staðfærði en Hugall ehf. gefur bókina út.
Glímt við talnaþrautir
EINFALDAR GÁTUR
FYRIR ALLA Heilabrot
fyrir byrjendur og len-
grakomna sem halda
sellunum við efnið.
Leikhópurinn Sokkabandið
frumsýnir Ritskoðarann
eftir skoska leikskáldið
Anthony Neilson á morgun.
Verkið kannar samband
milli listamanns og gagn-
rýnanda og tengslin milli
ástar og kynlífs.
Elma Lísa Gunnarsdóttir, leikkona
og annar forsprakki Sokkabands-
ins, heillaðist af vinnu Neilsons
þegar hún sá verk hans Penetrator
sett upp hjá Reykvíska listaleik-
húsinu í Klink og Bank í fyrra.
„Hann er ótrúlega spennandi og
djarfur höfundur sem skrifar verk
sem fjalla um allt aðra hluti en
almennt er verið að fjalla um í
leikhúsi. Hann skrifar öll verkin
upp úr spuna og leikstýrir þeim
sjálfur, samtölin í verkunum verða
til dæmis mjög eðileg,“ útskýrir
Elma Lísa.
Verkið fjallar um mann sem
vinnur við kvikmyndaeftirlit og
samskipti hans við konu sem leitar
til hans og vill fá leyfi fyrir mynd
sem hún er að gera. „Hún þarf að
koma myndinni í gegnum eftirlit
og hann þarf að ritskoða myndina.
Verkið fjallar síðan um þeirra
samband og svo kemur eiginkona
mannsins einnig við sögu,“ segir
Elma Lísa. Í leikritinu er varpað
fram áleitnum spurningum um
kenndir og þrár, listfengi og klám
og hvort kynlíf og ást geti farið
saman í heimi þar sem líkaminn er
söluvara og ef svo er hvort ástin
lifi það af?
„Þessar spurningar eru mjög
aðkallandi í dag, til dæmis vegna
klámvæðingarinnar sem tröllríður
öllu – hvenær förum við yfir strik-
ið? Hvað er rétt og rangt?“ spyr
Elma Lísa. „Hvernig kemst nútíma-
maðurinn af í samfélagi sem upp-
hefur tækifærissiðgæði?“
Verkið er stranglega bannað
börnum en það hlaut á sínum tíma
góðar viðtökur hjá áhorfendum í
Bretlandi þótt verkið væri umdeilt
fyrir opinskáa umfjöllun sína um
kynferðismál og nokkrir hefðu
sopið hveljur á sýningunum.
Aðeins fimm sýningar eru fyr-
irhugaðar á verkinu en þær fara
fram í sal Sjóminjasafnsins við
Grandagarð 8 í Reykjavík. „Þetta
er mjög hrátt rými sem hentar
þessu verki mjög vel því að sagan
gerist í óttalegri skítaholu. En það
komast bara þrjátíu áhorfendur
fyrir á hverri sýningu og nálægðin
er mjög mikil. Ég er persónulega
mjög hrifin af svona stuttum og
kraftmiklum sýningum,“ segir
Elma Lísa.
Sokkabandið setur verkið upp
með liðsinni Hafnarfjarðarleik-
hússins en leikstjóri þess er Jón
Páll Eyjólfsson en auk Elmu Lísu
leika Stefán Hallur Stefánsson og
Arndís Hrönn Egilsdóttir í sýning-
unni. Hljóðmynd sýningarinnar
semur Hallur Ingólfsson en leik-
hópurinn hannar leikmyndina.
Stefán Hallur þýddi verkið í félagi
við Vigni Rafn Valþórsson.
Nánari upplýsingar um sýning-
una og leikhópinn má finna á
heimasíðunni ritskodarinn.blogs-
pot.com en sími midasölunnar er
821-6013. -kristrun@frettabladid.is
Klám á tímum tækifæranna
STEFÁN HALLUR STEFÁNSSON OG ELMA LÍSA GUNNARSDÓTTIR Sokkabandið setur upp Ritskoðarann, kraftmikið og ögrandi leikverk eftir
leikskáldið Anthony Neilson.
!
��������������������������������� �����������������������������������������������������
�� ����������������������������������������� ���������� ������������������������������
������������ �������������� �� �����������
�������������� �������� ��������
����������������������������������
������������������
������ �������������
����������������������������������� ��������
��������������� �������� ������������������
������������� �������� ���������
������������� �������� ���������
������������������������ ���������
������������� �������� ���������
Sími 581 1281 • gitarskoli@gitarskoli.is
www.gitarskoli.is
Gítarnámskeið hefst 6. júní
4 vikur, 8 einkatímar
Fullt hús
ævintýra
Við opnum 2. júní
www.sturta.is
allan sólarhringinn!
Sími: 565-5566R
e
yk
ja
ví
k
u
rv
e
g
u
r
6
4
,
H
a
fn
a
rf
jö
rð
u
r.
Ó
tr
ú
le
g
ve
rð
!!
!!
Sumarnámskeið
Laugarneskirkju
í Júní
Fyrir börn
fædd 1994-1999
Skráning stendur yfir til 2. júní
Upplýsingar og skráning:
Sr. Hildur Eir
s: 863-1504
hildurbo@simnet.is
Andri Bjarnason
s: 694-7083
andribja@hi.is