Fréttablaðið - 30.05.2006, Page 64

Fréttablaðið - 30.05.2006, Page 64
32 30. maí 2006 ÞRIÐJUDAGUR sport@frettabladid.is Fylkir, handknattleiksdeild leitar eftir áhugasömum þjálfurum til að taka þátt í uppbyggingu yngri flokka félagsins. Umsóknir sendist á fylkirhandbolti@hotmail.com Nánari upplýsingar veitir Sigurður í 695-8843. Ólafur Jóhannesson, þjálfari FH, var ekki sáttur í viðtölum við fjölmiðla eftir leikinn gegn Fylki í Árbænum á sunnu- daginn. Hann sagði að það hefðu komið skilaboð frá varamannabekk Fylkis um að slátra sínum mönnum. Það var þó ekki þjálfarinn Leifur Garðarsson sem var þar að verki heldur markvörðurinn Bjarni Þórður Halldórsson sem sat á bekknum í þessum leik en hann er að jafna sig af nárameiðslum. „Það er ýmislegt sem er látið flakka í hita leiksins og ég viðurkenni það alveg að ég öskraði eitthvað inn á völlinn í þessum leik. Mér finnst það samt mikið blásið upp, þetta var ekkert verra en margt annað sem sagt er,“ sagði Bjarni Þórður. „Það hefði aldrei verið gert svona mikið út úr þessu ef þetta hefði verið öfugt. FH-ingar voru sjálfir ekkert rólegir á bekknum og létu ýmislegt út úr sér. Það er of mikil virðing borin fyrir þessum mönnum,“ Bjarni segir fáránlegt að halda því fram að þessi öskur hans hafi orðið til þess að einhverjar tæklingar hafi átt sér stað. „Ég kallaði inn á völlinn „slátrið þeim“, en ég var ekkert með neinar morðhótanir. Þessi frasi er notaður yfir marga hluti í leiknum og það er hægt að slátra andstæðingnum með því að gera betur en hann í ýmsum hlutum,“ sagði Bjarni sem vildi ekki meina að hans orð hafi verið eitthvað harðari en mörg önnur sem fá að fjúka í leikjum hér í deildinni. Ólafur Jóhannesson var þó allt annað en sáttur við þessi orð Bjarna Þórs og fannst sumar tæklingar Árbæjarliðsins fara yfir strikið. Hann vildi til dæmis sjá Sævar Þór Gíslason fá rautt spjald fyrir að fara í markvörðinn Daða Lárusson undir lok leiksins. „Sævar setti sól- ann beint í Daða og það átti að reka hann út af fyrir það,“ sagði Ólafur. BJARNI ÞÓRÐUR HALLDÓRSSON: LÉT ÝMISLEGT FLAKKA AF BEKKNUM Í LEIK GEGN FH Of mikil virðing borin fyrir FH-ingum Golfmót Þróttar 2006 Verður á Garðavelli Akranesi föstudaginn 2. júní. Mæting kl. 13.15, ræst út kl. 14.00. Dregið í ráshópa. Nánar á www.trottur.is eða mótaskrá www.golf.is Skráning: Gunnar Árnason (garnason@vis.is) eða Haukur Nikulásson (haukur@mtt.is) HANDBOLTI Einar Örn flaug frá Spáni yfir til Þýskalands á sunnu- dag og gærdagurinn fór í hinar ýmsu skoðanir hjá læknum félags- ins. Hann fór svo aftur til Spánar í morgun og bíður niðurstaðna úr skoðuninni en ljóst er að Einar verður ekki lengur í herbúðum Torrevieja. Læknar Minden vilja skoða Einar vel og vera þess fullvissir að hann sé heill heilsu enda gekkst Einar undir aðgerð á hné í lok febrúar en hann hefur spilað og æft síðustu sex vikur án þess að kenna sér meins. „Læknar Minden vilja skoða allar myndirnar vel og fá frekari upplýsingar frá lækninum á Spáni sem skar mig upp,“ sagði Einar Örn í gær en Minden lenti í því með Patrek Jóhannesson á sínum tíma að hann reyndist verr meidd- ur á hné en talið var í fyrstu og því eru læknisskoðanir leikmanna með hnémein mun ítarlegri nú en þær voru. „Ég finn ekkert til í hnénu en ég skil vel að þeir vilji skoða hnéð gaumgæfilega. Ég vil líka sjálfur fá úrskurð um stöðuna á hnénu því ef eitthvað alvarlegt finnst þá er ég ekkert hrifinn af því að rústa á mér hnénu. Ég vil geta gengið eftir að handboltaferlinum lýkur,“ sagði Einar Örn en hann var nýkominn úr læknisskoðuninni þegar Fréttablaðið náði í hann. „Lokahnykkurinn á skoðuninni tók klukkutíma en fyrr í dag fór ég í blóðprufur og hjartaskoðanir.“ Minden er svo gott sem búið að tryggja sæti sitt í þýsku úrvals- deildinni þegar ein umferð er eftir af mótinu. Með liðinu leikur miðju- maður íslenska landsliðsins, Snorri Steinn Guðjónsson. Einar Örn á ekki von á því að það verði mikið vandamál að ganga frá per- sónulegum kjörum verði niður- staðan úr læknisskoðuninni jákvæð. „Umboðsmaðurinn minn sér eiginlega um það mál en ég hef ekki heyrt annað á honum en að það gangi allt saman upp. Ég er bara jákvæður og vona það besta,“ sagði Einar Örn Jónsson. henry@frettabladid.is Niðurstaða á næstu dögum Handknattleiksmaðurinn Einar Örn Jónsson fór í læknisskoðun hjá þýska úr- valsdeildarfélaginu Minden í gær. Niðurstöður verða ljósar á næstu dögum og verði þær jákvæðar þá gengur hann í raðir liðsins frá Torrevieja. Á LEIÐ Í NÝJAN BÚNING? Einar Örn mátar hér brasilíska landsliðsbúninginn á ÓL í Aþenu. Hann gæti skipt um félag á næstu dögum. FRÉTTABLAÐIÐ/TEITUR HANDBOLTI Það er fátt sem bendir til annars en að dómstóll HSÍ þurfi að útkljá mál Fram og mark- varðarins Egidijusar Petkevici- us. Fram ákvað að framlengja ekki viðaukasamningi (launa- samningi) Petkeviciusar við félagið en krefst greiðslu fyrir hann þar sem leikmannasamn- ingur markvarðarins við félagið rennur ekki út fyrr en næsta sumar. Þetta sættir Petkevicius sig ekki við og segist tilbúinn að fara langt með málið láti Fram ekki af kröfunni. Í reglum HSÍ um leik- mannasamninga kemur skýrt fram að leikmanna- og viðauka- samningur skuli hafa sömu tíma- mörk en þar stendur einnig að ef gildistími er ekki sá sami þá gildi tímamörk leikmannasamnings- ins. „Nú þekki ég þetta mál ekki þar sem það er ekki komið inn á okkar borð en ég get þó sagt að í lögum og reglum HSÍ er ætlast til þess að það sé sami gildistími á þessum samningum. Menn eiga ekki að gera neitt annað en að hafa hlutina þannig. Það eru okkar leiðbeiningar og við ætl- umst til þess að eftir þeim sé farið,“ sagði Einar Þorvarðarson, framkvæmdastjóri HSÍ. Þessu máli svipar mjög til máls landa Petkeviciusar, Robert- as Pauzuolis, er hann gekk í raðir Hauka frá Selfossi. Selfyssingar riftu samningi Litháans við félag- ið en fóru síðan fram á greiðslu fyrir hann þegar Pauzuolis samdi við Hauka. Það mál fór í gegnum bæði dómsstig HSÍ og hafði Pauz- uolis betur og því greiddu Hauk- ar ekkert fyrir hann. Stóri mun- urinn á þessum tveim málum virðist vera sá að Selfyssingar fóru eftir leiðbeiningum HSÍ og höfðu sama tíma á samningunum tveimur en því er ekki fyrir að fara í máli Fram og Petkevicius- ar. - hbg Mál Fram og Egidijusar Petkevicius ekki alveg án fordæma: Svipar til máls Robertas Pauzuolis EGIDIJUS PETKEVICIUS Tilbúinn að berjast gegn Frömurum standi þeir fast á því að krefjast greiðslu fyrir hann. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR FÓTBOLTI Varnarmaðurinn Grétar Sigfinnur Sigurðsson í Víkingi þurfti að fara af velli þegar um hálftími var eftir af leik liðsins gegn ÍBV í Vestmannaeyjum á sunnudag. „Það var stuggað við mér, ég missti jafnvægið og lenti illa. Ég missteig mig í lendingu en tæklingin sjálf var alls ekki gróf. Ökklinn er bólginn og ég bað um skiptingu strax og þetta atvik kom fyrir. Ég trúi því samt ekki að þetta sé eitthvað alvarlegt, maður hefur oft misstígið sig og vona að þetta sé ekki eitthvað alvarlegra en áður,“ sagði Grétar. Víkingur vann leikinn í Eyjum 1-0 og hefur því unnið tvo leiki í röð. Grétar spilaði með Valsmönn- um í fyrra en næsti leikur Víkinga er einmitt gegn Val. Grétar er ákveðinn í að taka þátt í þeim leik. „Ég ætla mér að ná leiknum gegn Val, það kemur ekkert annað til greina. Ég spila á hækjum ef þess þarf,“ sagði Grétar. - egm Grétar Sigfinnur Sigurðsson: Ákveðinn í að leika gegn Val GRÉTAR Harður nagli. > Dönsk meiðsli hjá FH Ólafur Jóhannesson þjálfari FH-inga býst við að Danirnir þrír verði allir orðnir heilir fyrir næsta leik liðsins í Landsbankadeild- inni sem verður gegn Keflavík á mánu- dag. Allan Dyring fór meiddur af velli er þeir léku við Fylki en þau meiðsli eru ekki talin alvarleg. Þá var engin áhætta tekin með Tommy Nielsen sem átti við smávægileg meiðsli að stríða og var ekki teflt fram í Árbænum. Athygli hefur vakið að varnarmaðurinn Peter Matzen hefur engin tækifæri fengið það sem af er Íslandsmóti en Ólafur segir að það sé vegna nárameiðsla, hann ætti þó að vera orðinn góður á mánudag. FÓTBOLTI Ruud Van Nistelrooy, sóknarmaður Manchester United, er efstur á óskalista AC Milan til að fylla skarð Andriys Shevchenko sem er á leið til Chelsea. Talsmað- ur ítalska liðsins lét hafa eftir sér í dagblaði þar í landi að Nistelrooy væri einn af sárafáum leikmönn- um sem gæti fyllt skarð Shev- chenkos. United er tilbúið til að hlusta á tilboð í Nistelrooy en hann er ekki í náðinni á Old Trafford í augna- blikinu og þurfti talsvert að verma varamannabekkinn undir lok síð- asta tímabils. Hann hefur skorað 150 mörk í 200 leikjum fyrir Unit- ed en hann hefur verið hjá félag- inu í fimm ár. Nistelrooy skoraði sigurmark Hollendinga sem lögðu Kamerúna 1-0 í æfingaleik á sunnudag en hann verður í eldlínunni á HM í Þýskalandi. - egm Leitað arftaka Shevchenko: Nistelrooy á óskalista Milan TIL ÍTALÍU? AC Milan vill fá Ruud van Nistelrooy. NORDICPHOTOS/AFP Allir á völlinn Heil umferð fer fram í Landsbankadeild kvenna í kvöld. KR tekur á móti Keflavík, FH sækir Breiðablik heim, Fylkir fær Val í Árbæinn og Þór/KA tekur á móti Stjörnunni.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.