Fréttablaðið - 30.05.2006, Page 66
30. maí 2006 ÞRIÐJUDAGUR34
2-3
Kópavogsvöllur. Áhorf: 1050 Einar Örn Daníelsson (8)
0-1 Óli Stefán Flóventsson (19.)
1-1 Marel Baldvinsson (vsp. 43.)
2-1 Marel Baldvinsson (vsp. 70.)
2-2 Óskar Örn Hauksson (83.)
2-3 Óskar Örn Hauksson (85.)
Breiðablik Grindavík
TÖLFRÆÐIN
Skot (á mark) 15–10 (6–4)
Varin skot Hjörvar 3 – Colin 4
Horn 7–4
Aukaspyrnur fengnar 14–10
Rangstöður 1–2
GRINDAV. 4–4–2
Colin Stewart 7
Kristján Vald. 6
(62. Ahandour 5)
Óðinn Árnason 6
David Hannah 6
Paul McShane 7
Óli Stefán 7
Guðmundur 5
(46. Ray Anthony 4)
Eysteinn Húni 6
*Óskar Örn 7
Jóhann Þ. 7
(73. Guðm. Atli -)
Sinisa Kekic 7
*Maður leiksins
BREIÐA. 4–5–1
Hjörvar 4
Árni Kristinn 7
Guðmann 4
Srdjan Gasic 6
Stig Haaland 6
Gunnar Örn 5
(83. Ragnar -)
Magnús Páll 5
(74. Olgeir -)
Petr Podzemsky 4
Oliver Risser 6
Steinþór 6
Marel 7
STAÐAN Í LANDSBANKADEILDINNI
1. FH 4 4 0 0 9-2 12
2. KEFLAVÍK 4 2 1 1 6-3 7
3. GRINDAVÍK 4 2 1 1 8-7 7
4. FYLKIR 4 2 0 2 5-4 6
5. BREIÐABLIK 4 2 0 2 9-9 6
6. VALUR 4 2 0 2 6-5 6
7. VÍKINGUR 4 2 0 2 6-5 6
8. KR 4 2 0 2 3-7 6
9. ÍBV 4 1 0 3 3-9 3
10. ÍA 4 0 0 4 5-9 0
2-1
Laugardalsvöllur. Áhorf: 1204 Jóhannes Valgeirsson (6)
0-1 Igor Pesic (40.)
1-1 Sigurbjörn Hreiðarsson (49.)
2-1 Garðar Gunnlaugsson (85.)
Valur ÍA
TÖLFRÆÐIN
Skot (á mark) 24–9 (15–4)
Varin skot Kjartan 3 – Bjarki 11
Horn 10–3
Aukaspyrnur fengnar 8–19
Rangstöður 4–2
ÍA 4–3–3
Bjarki Freyr 9
Kári Steinn 4
Heimir Einars. 7
Bjarni Guðjóns. 7
Guðjón Heiðar 4
Igor Pesic 4
Pálmi Haraldss. 3
Þórður Guðjónss. 3
(63. Jón Vilhelm 5)
Ellert Jón 5
(46. Hafþór Ægir 3)
Hjörtur 3
(77. Andri Júl. -)
Dean Martin 6
*Maður leiksins
VALUR 4–4–2
Kjartan 7
Steinþór 7
Valur Fannar 7
Atli Sveinn 7
Birkir Már 8
Kristinn 5
(54. Örn Kató 5)
Pálmi Rafn 7
Sigurbjörn 7
(80. Ari Freyr -)
Matthías 5
(22. Baldur 8)
Guðmundur 8
* Garðar 9
FÓTBOLTI Hótel í Weggis í Sviss
stóð fyrir uppboði á netinu þar
sem hægt var að bóka sömu her-
bergi og leikmenn brasilíska
landsliðsins gista á fyrir HM.
Brasilíska liðið er nú í Sviss við
æfingar og þeir sem buðu hæst
geta fengið herbergið afhent
aðfararnótt 3. júní, aðeins
nokkrum klukkustundum eftir að
brasilíska liðið yfirgefur hótelið
og heldur til Þýskalands eftir
tveggja vikna dvöl.
Athygli vekur að herbergi
sóknarmannsins Ronaldos hjá
Real Madrid var bókað á mestan
pening eða 1.010 svissneska
franka sem eru rúmar sextíu þús-
und íslenskar krónur. „Það kemur
á óvart að hæsta boðið hafi verið
í herbergi Ronaldos,“ sagði
Philipp Musshafen, aðstoðar-
framkvæmdastjóri hótelsins.
Herbergi Ronaldinho fór á 850
franka en þar á eftir var borgað
mest fyrir að gista í sömu rúmum
og Kaka, Adriano og Roberto
Carlos.
Hæstbjóðendurnir fá ekki
bara að gista eina nótt í sömu her-
bergjum og stjörnurnar heldur
fá þeir einnig áritaðan landsliðs-
búning Brasilíu.
Brasilíska landsliðið er í riðli
með Króatíu, Ástralíu og Japan á
HM og á fyrsta leik gegn Króatíu
í Berlín þann 13. júní. Liðið er
talið eitt það alla sigurstrangleg-
asta í keppninni. - egm
Hótel í Sviss stóð fyrir uppboði á hótelherbergjum:
Mest borgað fyrir herbergi Ronaldo
Í SVISS Ronaldinho og Ronaldo við æfingar
í Sviss. Mest var borgað fyrir herbergi þess-
ara tveggja leikmanna á uppboði
NORDICPHOTOS/AFP
KÖRFUBOLTI Dallas Mavericks bar
sigurorð af Phoenix Suns 95-88 á
útivelli í úrslitakeppni NBA deild-
arinnar í fyrrinótt. Það var fyrst
og fremst frábær varnarleikur
sem var lykillinn að sigri Dallas
sem leiðir nú einvígið 2-1. Undir
lok leiksins hirti Dallas hvert
sóknarfrákastið á fætur öðru og
gerði þar með út um leikinn.
Þjóðverjinn Dirk Nowitzki átti
frábæran leik hjá Dallas og skor-
aði 28 stig auk þess að taka sautj-
án fráköst en Josh Howard skor-
aði 22 stig og hirti 12 fráköst. Liðið
hefur ekki tapað leik þar sem
Howard hefur náð að skora yfir
tuttugu stig. Steve Nash skoraði
21 stig fyrir Suns og gaf sjö stoð-
sendingar. Næsta viðureign lið-
anna verður í Phoenix. - egm
NBA körfuboltinn:
Dallas er yfir
HEITUR Tim Thomas kemur hér engum
vörnum við þegar Dirk Nowitzki skýtur að
körfunni.
FÓTBOLTI Sóknarmaðurinn Andy
Johnson er á leiðinni í ensku
úrvalsdeildina á ný en Everton
hefur keypt hann á 8,5 milljónir
punda. Þessi 25 ára leikmaður er
aukamaður hjá enska landsliðinu
fyrir HM og æfir nú með liðinu,
viðbúinn því að vera kallaður inn í
hópinn ef einhver meiðsli koma
upp. Johnson skoraði grimmt fyrir
Crystal Palace í úrvalsdeildinni en
liðið féll niður í 1. deild og tókst
ekki að komast upp á nýafstöðnu
tímabili.
„Framtíð mín er hjá Everton,
ég vil ná að afreka eitthvað með
liðinu og vinna mér inn sæti í
landsliðinu,“ sagði Johnson en
hann mun skrifa undir fjögurra
ára samning við félagið. Þá vildi
hann þakka Wigan og Bolton en
þau lið voru einnig með í barátt-
unni um að fá hann í sínar raðir.
- egm
Andy Johnson á förum:
Skrifar undir
hjá Everton
Á MERSEYSIDE Andy Johnson er á leið til
Everton. NORDICPHOTOS/AFP
FÓTBOLTI Fyrsta færi leiksins kom
strax á sjöttu mínútu þegar Guð-
mundur sendi fína sendingu á
Garðar sem var í úrvalsfæri en
slakur skalli Garðars fór beint á
Bjarka. Leikurinn var tilþrifalítill
framan af en það var aftur á móti
mikið líf í Garðari sem fór illa
með Kára Stein og litlu mátti
muna að hann skoraði á 18. mín-
útu en skot hans datt ofan á slána.
Guðmundur Benediktsson fékk
síðan besta færi ársins á 29. mín-
útu er hann stóð einn fyrir framan
opið mark ÍA. Guðmundur gerðist
kærulaus, var ekki nógu einbeitt-
ur og skaut boltanum fram hjá á
ótrúlegan hátt.
Það var þvert gegn gangi leiks-
ins að Igor Pesic skoraði síðan
fyrir Skagamenn fimm mínútum
fyrir hlé. Hann fékk fína stungu-
sendingu frá Dean Martin, sólaði
Kjartan markvörð og lagði bolt-
ann í netið. Reyndar verður að
segjast að hann var grunsamlega
nálægt því að vera rangstæður. Ef
ekki þá var Valsvörnin að bíta
gras því enginn varnarmaður
Vals var nálægt Pesic.
Valur fékk fleiri úrvalsfæri
fyrir hlé en leikmenn liðsins voru
klaufar uppi við markið og Bjarki
þar að auki vel á tánum. Valsmenn
byrjuðu síðari hálfleik eins og
þeir luku hinum fyrri – með mikl-
um látum. Eftir aðeins fjögurra
mínútna leik í síðari hálfleik skor-
aði Sigurbjörn með góðu skoti
utan teigs eftir laglegt þríhyrn-
ingsspil við Guðmund.
Valsmenn réðu algjörlega ferð-
inni í leiknum og léku Skagamenn
sundur og saman. Stórleikur
Bjarka í markinu bjargaði ÍA hvað
eftir annað.
Pressa Vals var í raun stöðug
allan leikinn og eitthvað hlaut
undan að láta. Það gerðist loks á
85.mínútu þegar Ari Freyr skeið-
aði upp vinstri vænginn, gaf fyrir
á Garðar sem fann loksins leiðina
framhjá Bjarka. 2-1 og fullkom-
lega verðskulduð staða og að
lokum sigur.
Valur lék frábæran fótbolta í
þessum leik og undirritaður hefur
ekki séð slíka yfirburði í háa
herrans tíð hér á Íslandi. Skaga-
liðið var í einu orði sagt ömurlegt
og leikmenn og þjálfari liðsins
verða að líta í eigin barm. Ekki
skrítið að Ólafur þjálfari skyldi
gefa í skyn að hann væri að spá í
að hætta enda virðist hann ekki
ná til leikmanna liðsins lengur.
Valur sýndi og sannaði að hann
er með hörkulið. Stórkostlegar
fréttir fyrir liðið að Garðar og
Baldur séu farnir að leika af eðli-
legri getu sem og Guðmundur
Benediktsson. Ef liðið heldur
svona áfram fer það langt í sumar.
Það er klárt mál.
„Ég er hjartanlega sammála
þér, við vorum bara lélegir. Ef ég
vissi af hverju, þá væri ég löngu
búinn að leysa það. Vörnin var
eins og gatasigti hjá okkur í dag
og við máttum þakka fyrir að þeir
skyldu ekki skora meira,“ sagði
Ólafur Þórðarson í viðtali við Sýn
eftir leikinn, þegar Arnar Björns-
son tjáði honum að lið hans hefði
hreinlega átt lélegan dag.
Aðspurður hvort hann væri
orðinn þreyttur á þessu, lá ekki á
svörunum hjá Ólafi. „Það vottar
fyrir því að það sé komin þreyta á
að stýra þessu liði þegar svona
gengur. Ég get ekki neitað því að
ég hef velt fyrir mér að hætta
þessu, það hef ég gert í fullri
alvöru,“ sagði Ólafur, bráðvondur
eftir leikinn. henry@frettabladid.is
Valsmenn eru vaknaðir
Valur sýndi mátt sinn og megin gegn ömurlegu Skagaliði í Laugardal í gær.
2-1 voru lokatölurnar í leik sem Valur hefði getað unnið með enn meiri mun.
BJARGAÐ Bjarki Freyr Guðmundsson átti frábæran dag fyrir ÍA í gær, en því miður fyrir
hann var það ekki nóg. Bjarki varði yfir tug skota í leiknum. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
BROT? Dean Martin er hér felldur í leiknum
í gærkvöldi. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL