Fréttablaðið - 30.05.2006, Page 72

Fréttablaðið - 30.05.2006, Page 72
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000 AUGL†SINGASÍMI 550 5000 FYLGIR FRÉTTABLA‹INU ALLA MI‹VIKUDAGA ���������� ����������������������������� Frá landnámi og fram á síðustu öld bjuggu kynslóðirnar gjarn- an undir sama þaki. Þetta var ekki tilviljun heldur útspekúlerað plott sem gekk fullkomlega upp. Allir höfðu praktískt hlutverk trúi ég, til dæmis gátu afinn og amman dillað börnunum á meðan foreldr- arnir voru úti á engi. ÞEIM sem lögðu þetta ágæta kerfi niður hefur varla verið sjálfrátt, að minnsta kosti er viljugri ömm- unni ætíð tekið fagnandi á mínu heimili. Einhver sagði að amma nútímans hafi tekið við hlutverki þarfasta þjónsins en móðir mín kvartar aldrei yfir hlutskipti sínu. Á þannig kannski eitthvað sameig- inlegt með klárnum sem leitar þangað sem hann er kvaldastur, að minnsta kosti er full vinna að heimsækja okkur. Litlu dæturnar vilja absolútt láta sinna sér við- stöðulaust svo hverjum sem til mín villast er umsvifalaust rétt smábarn. Þá get ég á meðan sinnt einhverju sem þarf tvær hendur til. SENNILEGA mun ég síðar sjá þetta annasama tímabil ævinnar í rómantísku ljósi en akkúrat núna vantar mig helst þriðju höndina. Hún kæmi í góðar þarfir við ýmsar aðstæður. Til dæmis þegar ég kem heim með tvö gargandi börn, fimm innkaupapoka og fæ ekkert bíla- stæði. Rogast geðvond í slagveðri upp tröppurnar, kötturinn þvælist mjálmandi fyrir fótunum á mér á meðan ég reyni að gramsa eftir húslyklunum á víðáttumiklum töskubotninum. Einmitt þá sár- vantar mig þriðju höndina. LÍKA þegar ég spóla um heimilið og geng frá í snatri því sem liggur tvist og bast. Nýti ferðalagið á klósettið og til baka til að tína upp kubb, dúkku og skeið og held allt í einu líka á dagblaði, nærbol og hárugri karamellu. Eða þegar mata skal þrjá í einu. Þá væri upp- lagt að hafa þriðju höndina. EINMITT þegar ég barma mér yfir öllum þessum önnum og finnst enginn hafa jafnmikið að gera rifj- ast upp blaðaviðtal við stúlku fyrir nokkrum árum. Hún hafði áður lent í slysi og misst annan hand- legginn en var samt bara kát með lífið. Sinnti öllu sínu með hinni hendinni, þar á meðal hvítvoðungi. Sagði að þetta væri ekkert mál en henni fyndist tilhugsunin um tvo handleggi hreinn munaður. ÞÁ man ég loksins eftir að þakka fyrir báða mína. Þriðja höndin SIMPLY CLEVER SkodaOctavia Terno Vegna hagstæðra samninga við Skoda verksmiðjurnar getum við núna boðið takmarkað magn Octavia Terno með 1,6 lítra vél, áfelgum, ABS hemlalæsivörn, rafmagni í rúðum, ASR spólvörn, aksturstölvu, hita í speglum o.fl. á aðeins 1.690.000 kr. H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA - 4 09 8 RUGLVERÐ 1.690.000 kr. Takmarkað magn! FASTEIGNALÁN Í MYNTKÖRFU Nánari upplýsingar veita lánafulltrúar Frjálsa og á www.frjalsi.is Miðað við myntkörfu 3, Libor vextir 3.4.2006

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.