Fréttablaðið - 24.07.2006, Qupperneq 4
4 24. júlí 2006 MÁNUDAGUR
GENGIÐ
GENGI GJALDMIÐLA 21.7.2006
Bandaríkjadalur 73,68 74,04
Sterlingspund 136,80 137,46
Evra 93,36 93,88
Dönsk króna 12,512 12,586
Norsk króna 11,767 11,837
Sænsk króna 10,101 10,161
Japanskt jen 0,6343 0,6381
SDR 108,83 1089,47
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
KAUP
1289,3089
Gengisvísitala krónunnar
MS drykkjarvörur í útileguna
MS mjólkurdrykkirnir eru prótein- og kalkríkir og stútfullir
af næringarefnum. Veldu þér ískaldan mjólkurdrykk í
handhægum umbúðum í næstu verslun.
Eldur í Flókadal Eldur kom upp í
íbúðarhúsi á Hrísum í Flókadal á sjötta
tímanum í fyrrinótt. Skemmdir urðu í
risi og á jarðhæð vegna vatns, sóts og
elds, en slökkvistarf gekk vel. Ein kona á
fimmtugsaldri var í húsinu og slapp hún
út af sjálfsdáðum. Talið er að kviknað
hafi í út frá rafmagni.
LÖGREGLUFRÉTTIR
LÖGREGLUFRÉTTIR Eldur kom upp í
rusli bakdyramegin við geymslu á
Sogavegi í gærmorgun. Allt bend-
ir til að um íkveikju hafi verið að
ræða.
Eldurinn var talinn meiri í
fyrstu en hann reyndist loks vera
og komu fimm bílar frá lögreglu,
alls tíu til fimmtán manns. Tals-
verður fjöldi slökkvibíla var send-
ur á staðinn og gekk auðveldlega
að slökkva eldinn.
Litlar sem engar skemmdir
urðu vegna eldsins, en reyk-
skemmdir gætu þó verið nokkr-
ar. - sgj
Slökkvistarf gekk vel:
Eldur í húsi
við Sogaveg
JARÐSKJÁLFTAR Nokkrir jarðskjálft-
ar urðu við Grímsey í fyrrinótt og
fram undir morgun. Stærsti
skjálftinn var 3,2 á Richter-kvarða
og varð hann klukkan 37 mínútur
yfir miðnætti. Nokkrir smærri
skjálftar komu í kjölfarið.
Tíu mínútur yfir tíu í gærmorg-
un varð svo skjálfti upp á 2,7 á
Richter nálægt Grímsey. - sgj
Jarðskjálftar við Grímsey:
Sá stærsti 3,2 á
Richter-kvarða
Stal sælgæti Maður var handtekinn
fyrir innbrot í verslun 11-11 í Skipholti
í fyrrinótt. Þegar lögregla skipaði
manninum að vera kyrr hrundi undan
klæðum hans nokkuð magn sælgætis-
og snakkpoka. Maðurinn var ölvaður og
ekki lítur út fyrir að hann hafi stolið öðru
en góðgætinu.
SKIPULAGSMÁL Borgarráð Reykja-
víkur samþykkti á fundi síðastlið-
inn fimmtudag að stofna verkefnis-
stjórn, sem skal láta athuga
framtíðarstaðsetningu olíubirgða-
stöðvarinnar í Örfirisey. Í kjölfar-
ið verði svo athugað hvort betra
væri að hafa stöðina í Hvalfirði
eða á Grundartanga. Einnig verð-
ur skoðað hvort henti að flytja olíu
svo langa leið frá nýrri stöð inn í
höfuðborgina.
Gísli Marteinn Baldursson, sem
situr í borgarráði, segir hugmynd-
ina hafa verið lengi uppi á borðinu.
„Þessi tillaga sem við lögðum fram
núna miðar að því að finna aðrar
lausnir og komast að því hvar ann-
ars staðar þessir olíugeymar geta
verið,“ segir Gísli.
Gísli segir ástæðuna fyrir þessu
vera fyrirhugaða fimm til tíuþús-
und manna íbúðabyggð í Örfirisey.
„Olíubirgðastöð fer ekki saman
við þær áætlanir. Það þarf að keyra
mörg tonn af eldsneyti gegnum
miðborgina, sem er ekki gott fyrir
neinn. Þessi byggð mun þó ekki
rísa á næstunni, fyrst verður byggt
á Geldinganesinu, en Örfirisey er
gott byggingaland og þetta yrði
mikill áfangi í þéttingu byggðar.“
Verkefnisstjórnin mun skila til-
lögum um verklag og tímaáætlun
til borgarráðs fyrir 15. september.
- sgj
Borgarráð lætur skoða hvort henti að flytja olíubirgðastöð burt úr miðbænum:
Rýmt verði fyrir íbúðabyggð
OLÍUTANKARNIR Í ÖRFIRISEY Meirihlutinn
í borginni telur Örfirisey vera áhugaverðan
kost fyrir íbúðabyggð. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
HEILBRIGÐISMÁL Elín Ebba
Ásmundsdóttir hefur starfað við
geðdeild Landspítalans í tæp 25 ár
og gegnir nú stöðu forstöðuiðju-
þjálfa við deildina. Elín er ósátt
við stefnu spítalans í meðferðar-
úrræðum fyrir geðsjúka og vill
sjá breytingar. Elín er nú í náms-
leyfi og í tengslum við námið vann
hún úr notendarannsókn meðal
geðsjúkra þar sem kemur í ljós að
engin ein leið er sú rétta í átt að
bata og engin ein stétt sem ætti að
hafa forræðið þegar kemur að
meðferðarúrræðum fyrir geð-
sjúka.
„Ég vil minnka umsvif geð-
deildar LSH og færa þjónustuna
sem mest í nærumhverfi fólks þar
sem unnið er út frá styrkleikum
og þátttöku í samfélaginu og því
að gera fólk betur í stakk búið að
komast aftur út í samfélagið. Það
vinnst svo takmarkaður árangur
með því að taka fólk út úr samfé-
laginu til að lækna það eins og gert
er á geðdeild LSH.“
Elín lýsir ánægju með tilrauna-
verkefnið Ný leið fyrir unglinga í
vanda sem hleypt var af stokkun-
um nú um helgina og vill sjá sams
konar úrræði fyrir geðsjúka.
Elín er enn fremur mjög ósátt
við þá stéttaskiptingu sem er við
lýði á geðdeild Landspítalans en
þar spila læknar og hjúkrunar-
fræðingar stærsta hlutverkið. „Í
nýju stjórnskipulagi var sú leið
farin að setja hjúkrunarfræðing
og lækni yfir flest svið á LSH og
sú breyting gerð að nýskipaðir
yfirmenn fengu aukin völd og bera
þeir nú alfarið ábyrgð á fjárhag og
starfsemi deildanna.“
Elín segist hafa litla trú á því
stjórnarfyrirkomulagi sem ríki
innan LSH og segir tilkomu
hátæknisjúkrahúss engu bæta þar
um. „Þrátt fyrir innihaldsfagra
starfsmannastefnu spítalans er
það staðreynd að starfsfólk hans
er mismikils metið og hefur mis-
mikil áhrif.“ Elín hefur háð launa-
baráttu við LSH og finnur sárlega
til þess að sitja ekki við sama borð
og aðrir hærra settir í valda-
pýramída spítalans. „Ég hef ekki
sama bakland og yfirlæknar LSH,
sem hafa töluvert hærri tekjur en
ég og hafa þar af leiðandi efni á að
ráða sér lögfræðing ef þeim finnst
á sér brotið og fara með málið til
Hæstaréttar.“
Elín segir að í seinni tíð sé það
orðin lenska að starfsfólk LSH
annað hvort yfirgefi spítalann eða
fari í mál því lítið rúm sé fyrir
skiptar skoðanir og lítið sé hlustað
á raddir starfsfólks sem séu á
skjön við ríkjandi fyrirkomulag.
Elín segir að lokum mikilvægt að
fólk láti í ljós skoðanir sínar á
starfsemi LSH, ekki síst í ljósi
þess að spítalinn sé í eigu allra
landsmanna. hugrun@frettabladid.is
Meðferðarúrræði
úr takt við tímann
Endurskipuleggja þarf meðferð fyrir geðsjúka, að mati Elínar Ebbu Ásmunds-
dóttur, meðlims Hugarafls. Hún er þeirrar skoðunar að skerða eigi þá starfsemi
sem nú er í höndum geðdeildar LSH og byggja upp önnur úrræði fyrir geðsjúka.
ELÍN EBBA ÁSMUNDSDÓTTIR Meðlimur
Hugarafls.
BRÁÐAMÓTTAKA GEÐ-
DEILDAR LANDSPÍTALANS
Elín Ebba vill minnka
umsvif geðeildarinnar og
færa þjónustuna í nær-
umhverfi fólks.
Amfetamín á Húsavík Lögreglan á
Húsavík lagði hald á fimm grömm af
ætluðu amfetamíni í gær. Hún hafði
fengið vísbendingu um efnið í bíl á leið
til bæjarins og reyndist vísbendingin
rétt. Ekki er talið að efnið hafi verið
ætlað til sölu. Málið telst nú upplýst.
Tekinn með amfetamín Karlmaður
var tekinn í fyrrinótt í Kópavogi með
amfetamín í fórum sínum, en bíll sem
hann var farþegi í var stöðvaður við
reglubundið eftirlit. Málið telst upplýst.
LÖGREGLUFRÉTTIR
NÝJA-DELÍ, AP Litlum dreng var
bjargað úr átján metra djúpri holu
á Indlandi í gær. Drengurinn hafði
mátt dúsa í holunni í tæpar fimm-
tíu klukkustundir eða síðan á
föstudaginn.
Atvikið vakti mikla athygli um
víða veröld þar sem indversk sjón-
varpsstöð kom myndavél niður í
holuna og var með beina útsend-
ingu af ástandi drengsins og björg-
unaraðgerðum allan sólarhring-
inn.
Til að tryggja að holan félli ekki
saman og drengurinn græfist
inni handgrófu indverskir her-
menn nýja holu og tengdu hana
við þá fyrri með neðanjarðargöng-
um.
Samkvæmt indversku sjón-
varpsstöðinni Zee var dagur frels-
unarinnar einnig fimm ára
afmælisdagur piltsins. - kóþ
Lítill drengur á Indlandi:
Bjargað eftir
fimmtíu tíma
AFTUR OFANJARÐAR Drengurinn Prins sést
hér borinn í burtu frá átján metra djúpri
holunni. NORDICPHOTOS/AFP
SÓMALÍA, AP Hundruð eþíópískra
hermanna fóru í fyrradag inn í sinn
annan bæ í Sómalíu til að styðja
stjórn stríðsherra í landinu. Eþíóp-
ísk stjórnvöld neita að hafa sent
herlið inn í landið en íbúar og
starfsmenn Sameinuðu þjóðanna
eru á öðru máli. Auk þess sveima
herþyrlur um svæðið, en engin slík
er í eigu sómalska hersins.
Herinn hóf innreið sína síðast-
liðinn fimmtudag og í kjölfarið
lauk friðarviðræðum stjórnar
stríðsherranna við íslamska bók-
stafstrúarmenn. Múslimarnir
gengu út af fundinum og sögðu
vopnahlé hafa verið rofið með inn-
rás hers Eþíópíu. - sgj
Eþíópíski herinn neitar innrás:
Hafa tekið tvo
bæi í Sómalíu