Fréttablaðið - 24.07.2006, Blaðsíða 10
10 24. júlí 2006 MÁNUDAGUR
1.390.000,- Bílumst!
Nýr, fallegri og miklu
betri Opel.
��� �����������������������������������������������������������������
��� ��������������������������������������������������������
�������������������������� ���������
����������������������������� ��� �����
������ �����������������
����������������� ������������������������ ���������
����������������� ���������� �
����� ����������� ����������������������
ATVINNUMÁL Breskur maður var
boðaður í starfsviðtal hjá veitinga-
húsi í Reykjavík eftir að hann
svaraði atvinnuauglýsingu. Í
framhaldi var hann beðinn um að
vinna eina vakt á veitingahúsinu, í
sjö tíma, til reynslu, án þess að fá
greitt fyrir.
Manninum, sem heitir David
Anderson, var tjáð á mánudag að
hann ætti að mæta komandi mið-
vikudag til reynslu. „Ég spurði um
leið hvort ég fengi greitt fyrir
vaktina og sagði þá maðurinn að
hann teldi svo vera, en hann þyrfti
að spyrja yfirmann sinn,“ segir
David. „Svo þegar ég mætti til
vinnu á miðvikudaginn spurði ég
aftur hvort ég fengi greitt og þá
sagði maðurinn að svo væri ekki,
svo ég afþakkaði boðið.“
Stéttarfélagið Efling segir
svona atvik kolólögleg en alls ekki
ný af nálinni. „Við þekkjum nokk-
ur dæmi þess að fólk er beðið um
að vinna til reynslu án þess að fá
borgað og er meira að segja látið
vinna yfirvinnu. Svo er hringt í
það daginn eftir og því tjáð að það
fái ekki vinnuna,“ segir Ágúst Þor-
láksson, þjónustufulltrúi hjá stétt-
arfélaginu Eflingu.
Ágúst segir stéttarfélagið
aðstoða fólk sem er beitt slíkum
órétti. „Ef svona mál kemur inn til
okkar er það sett beint í lögfræði-
innheimtu og þarf þá atvinnuveit-
andinn að borga auka fimmtán
þúsund krónur fyrir það eitt að fá
bréf frá lögfræðingi. Atvinnurek-
endur kjósa yfirleitt að borga ef
þeir telja að viðkomandi ætli að
gera veður út af svona,“ segir
Ágúst.
Að sögn Guðmundar Hilmars-
sonar hjá Alþýðusambandi Íslands
eru fá viðurlög við slíku hátterni
hjá atvinnurekendum. „Það eru
engin viðurlög til í sjálfu sér, nema
að þeir komast ekki upp með
svona,“ segir Guðmundur. Hann
segir að ef menn séu beðnir munn-
lega um að koma í einn dag til
vinnu verði atvinnurekendur að
virða uppsagnarfrestinn. Enginn
geti unnið án þess að vera beðinn
og beiðnin jafngildi ráðningar-
samningi. „Menn verða að virða
uppsagnarfrestinn, sem er mis-
munandi eftir kjarasamningum.
Það skiptir engu hvort um munn-
legan eða skriflegan ráðningar-
samning er að ræða því þeir hafa
sama gildi.“ aegir@frettabladid.is
Látinn vinna
launalaust
Veitingahús í Reykjavík auglýsti eftir starfskröftum
á dögunum. Maður sem sótti um starf var beðinn
að vinna einn vinnudag til reynslu og fá ekkert
greitt fyrir. Kolólöglegt athæfi, segja stéttarfélögin.
VANN KAUPLAUST David Anderson var beðinn að vinna einn dag til reynslu á veitingastað í
borginni. Hann fékk ekki greitt fyrir vaktina. Myndin er úr safni.
DÓMSMÁL Tveir karlmenn á þrí-
tugsaldri voru í Héraðsdómi
Reykjaness dæmdir í sektir og
fangelsi fyrir líkamsárás, eigna-
spjöll og þjófnaði.
Mennirnir tveir réðust í júní í
fyrra að ómerktum lögreglubíl í
Hafnarfirði eftir að hafa veitt
honum eftirför og króað hann af.
Þeir brutu báðar fremri hliðarrúð-
ur bílsins þannig að glerbrotum
rigndi yfir óeinkennisklæddu lög-
reglumennina tvo sem í bílnum
sátu, en lögreglumennirnir hlutu
af því skurði og rispur. Mennirnir
höfðu ætlað að aðstoða kunningja
sinn við að endurheimta farsíma
sem tekinn hafði verið upp í fíkni-
efnaskuld en rugluðust á bílum og
réðust á lögreglumennina. Annar
árásarmannanna hlaut hundrað
þúsund króna fjársekt fyrir athæf-
ið.
Hinn maðurinn var einnig sak-
felldur fyrir fjögur innbrot og
þjófnaði, þar sem hann stal pen-
ingum og ýmsu góssi að verðmæti
tæpar fimm hundruð þúsund krón-
ur. Sá hlaut níu mánaða fangelsis-
dóm, þar af átta mánuði skilorðs-
bundna til þriggja ára, auk
fjársekta til handa ríkisins og
þeirra sem hann rændi, samtals
tæpar sex hundruð þúsund krón-
ur. Báðir mennirnir hafa marg-
sinnis komist í kast við lögin.
Annar hefur frá árinu 1997 hlotið
þrettán dóma og verið dæmdur í
35 mánaða fangelsi samanlagt.
Hinn hefur frá árinu 1998 hlotið
átta dóma og samtals 24 mánuði í
fangelsi. - sh
Tveir menn hafa verið dæmdir fyrir að brjóta rúður á ómerktum lögreglubíl:
Töldu lögreglumenn vera farsímaþjófa
HÉRAÐSDÓMUR REYKJANESS Báðir hafa mennirnir margsinnis komist í kast við lögin og
var annar maðurinn einnig dæmdur fyrir fjóra þjófnaði á síðasta ári.
ARGENTÍNA, AP Fríversl-
unarsamtök rómönsku
Ameríku, Mercosur,
bættu Venesúela form-
lega í sinn hóp á fundi í
Argentínu í síðustu
viku. Þetta er ein mesta
stækkun samtakanna
frá stofnun þeirra árið
1991 og eru nú þrjú
stærstu hagkerfi Suður-
Ameríku; Brasilía, Arg-
entína og Venesúela,
saman komin í þeim.
Hugo Chávez, for-
seti Venesúela, sagði í ræðu að
þetta markaði nýtt tímabil í sögu
Mercosur: að samtökin „ættu að
reisa að húni gunnfána baráttunn-
ar gegn félagslegu mis-
rétti, fátækt og atvinnu-
leysi.“
Fundinn sátu flestir
lykiláhrifamenn álfunn-
ar, til dæmis forsetar
Brasilíu, Bólivíu og
Chile. Mesta athygli
vakti þó koma Fídels
Kastró, sem mætti í
grænum hermannabún-
ingi. Með komu hans
var saman kominn á
fundinum bróðurhluti
þeirra leiðtoga í álfunni
sem mest hafa staðið uppi í hári
ráðamanna í Washington, að
funda um efnahagslega sam-
vinnu. - kóþ
Venesúela í Mercosur-fríverslunarsamtökin:
Barist gegn
félagslegu misrétti
FÍDEL KASTRÓ
SVEITARSTJÓRNARMÁL Tólf umsóknir
bárust um embætti sveitarstjóra í
Norðurþingi. Norðurþing varð til
við sameiningu Raufarhafnar-
hrepps, Öxarfjarðarhrepps, Keldu-
neshrepps og Húsavíkurbæjar.
Umsækjendur eru Arinbjörn
Kúld viðskiptafræðingur, Ásmund-
ur Richardsson viðskiptafræðing-
ur. Friðfinnur Hermannssson
framkvæmdastjóri, Garðar
Jóhannesson framkvæmdastjóri,
Guðmundur Rúnar Svavarsson
framkvæmdastjóri, Helgi S.
Harrýsson framkvæmdastjóri,
Jón Óskar Þórhallsson skrifstofu-
stjóri, Óskar Marinó Sigurjónsson
bílstjóri, Róbert Trausti Árnason
rekstrarráðgjafi, Sigríður Hrönn
Elíasdóttir ráðgjafi, Sigurjón
Benediktsson tannlæknir og
Veturliði Þór Stefánsson sendi-
ráðsritari. - öhö
Sveitarstjóri Norðurþings:
Tólf sækja um
embættið
ÞJÓÐDANSARI Í KONGÓ Þessi þjóðdansari
sjænaði sig til fyrr í mánuðinum í tilefni af
danshátíð til heiðurs Joseph Kabila, forseta
landsins, í Kinshasa. NORDICPHOTOS/AFP