Fréttablaðið - 24.07.2006, Side 16
24. júlí 2006 MÁNUDAGUR16
fréttir og fróðleikur
Svona erum við
FRÉTTASKÝRING
SIGRÍÐUR D. GUÐMUNDSD.
sdg@frettabladid.is
TRYGGÐU ÞÉR BLAÐIÐ
Í ÁSKRIFT MEÐ
30% AFSLÆTTI
Á AÐEINS 489 KR.
EINTAKIÐ OG FÁÐU
VEGLEGA GJÖF
Í KAUPBÆTI
GLÆNÝTT
VEGGFÓÐUR ER KOMIÐ ÚT
ÁSKRIFTARSÍMI 550 5000 | WWW.VISIR.IS
• Draumahús íslenskra hjóna í Hollandi
• Fjörupikknikk Áslaugar Snorradóttur
• Rómantískt heimili Fjölnis Elvarssonar
og Rósu Svövudóttur
• Dagar Magnúsar Scheving fullir af tækifærum
> Fjöldi brautskráðra með meistara-
gráðu á Íslandi
Mávar eru farnir að gera mörgum
íbúuum höfuðborgarsvæðisins lífið
leitt og hafa sumir borgarfulltrúar
skorið upp herör gegn mávunum.
Guðmundur Björnsson er rekstrarstjóri
meindýravarna hjá Reykjavíkurborg.
Hversu mikið er af mávum í borg-
inni?
Síðustu tölur frá 1990 herma að stofn-
inn á landinu telji um 110 þúsund
fugla. Ég hef heyrt að í borginni séu í
kringum 3000 stykki.
Hefur fuglunum fjölgað undan-
farið?
Það eru ekki til tölur um það. Mín
tilfinning er að það séu færri fuglar í
vörpunum en hefur verið.
Eru svona mávavandamál þekkt
erlendis?
Menn hafa lent í svona og tekið á
þeim málum á sama hátt og hér er
gert, og meira að segja með svefnlyfj-
um líka.
SPURT & SVARAÐ
MÁVAVANDINN
Meindýraeyðar
skjóta máva
Þó að margir stjórnmálamenn telji það auðvelt
hafa fræðimenn ekki náð samstöðu um hver
getur talist hryðjuverkamaður. Vandinn felst
aðallega í því að erfitt er að skilgreina hver sé
munurinn á hermanni, skæruliða og hryðju-
verkamanni. Slíkt mat getur farið eftir pólitísk-
um tilgangi þess sem skilgreinir eða hugsun-
argangi á hverjum tíma, að sögn Vísindavefs
Háskóla Íslands.
Hvað er hryðjuverkamaður?
Í kjölfar hryðjuverkanna í Bandaríkjunum
11. september 2001 hefur verið erfiðara að
skilgreina hugtakið „hryðjuverkamaður”, því
margir valdhafar hafa notað hugtakið eftir
hentugleika. Hryðjuverkamenn vinna í hópum
sem fara leynt og ráðast á saklausa borgara í
pólitískum tilgangi. Hins vegar eru hermenn
merktir og berjast fyrir opnum tjöldum gegn
öðrum hermönnum. Þeim er bannað að ráðast
á borgara. Munurinn er því eðli skotmarka.
Skæruliði er svo annað hugtak, en skæruliðar
berjast fyrir stjórnarskiptum eða byltingum og
getur barátta þeirra jafnvel verið samþykkt af
alþjóðasamfélaginu.
Hvenær hefur almenningsálit breytt skil-
greiningunni?
Dæmi eru um það að álit á aðilum hefur breyst
í takt við tíðarandann. Til dæmis var Nelson
Mandela úthrópaður sem hryðjuverkamaður
fyrir baráttu sína gegn aðskilnaðarstefnunni í
Suður-Afríku. Það breyttist allt eftir að aðskiln-
aðarstefnunni lauk, hann varð forseti og hlaut
friðarverðlaun Nóbels.
Hvað er hryðjuverk?
Orðið hryðjuverk var fyrst notað um stjórnar-
athafnir ógnarstjórnar Jakobína í Frakklandi
undir lok 18. aldar, þegar fjölmargir pólitískir
andstæðingar þeirra voru sendir í fallöxina. Nú
á dögum er orðið notað á annan
hátt. Verknaðir öfgahópa
og andspyrnuafla eru
kallaðir hryðju-
verk, en aðgerðir
stjórnvalda og herja
eitthvað annað.
Árásir ríkisstjórna á
eigin þegna eru kölluð
mannréttindabrot,
en árásir gegn
þegnum
annarra ríkja
eru kallaðar
stríðsglæpir.
FBL GREINING: HRYÐJUVERKAMAÐUR
Huglægt hver er hryðjuverkamaður
Meginmarkmið rannsóknar-
áætlunarinnar, sem felur í sér
veiðar á 200 hrefnum, er að afla
grunnþekkingar á fæðuvistfræði
hrefnu hér við land en auk rann-
sókna á fæðusamsetningu með
greiningu magainnihalds verður
aflað annarra gagna sem nauð-
synleg eru til að meta afrán teg-
undarinnar á hinum ýmsu fæðu-
tegundum.
Sýnatökur hófust í ágúst 2003
og voru 37 hrefnur veiddar á veiði-
tímabilinu það árið. Árið 2004
voru 25 hrefnur veiddar og árið
2005 veiddust 39 hrefnur. Sjávar-
útvegsráðuneytið gaf leyfi fyrir
veiðum á 50 hrefnum á veiðitíma-
bilinu í ár og hafa 28 hrefnur verið
veiddar af þeim kvóta. Veiðitíma-
bilinu í ár átti að ljúka 4. ágúst en
sökum mikillar brælu í sumar var
ákveðið að lengja tímabilið til 18.
ágúst.
Hafrannsóknastofnunin gerði
verktakasamning við Félag
hrefnuveiðimanna vegna vísinda-
veiðanna en enginn annar leyfi til
að veiða hér hrefnur. Á vef Haf-
rannsóknastofnunarinnar er tekið
fram að vísindaveiðarnar séu ekki
dulbúnar atvinnuveiðar þar sem
tryggt sé að allur hugsanlegur
ágóði af sölu afurða renni til rann-
sóknanna. Áður en veiðar hófust
var gerð kostnaðaráætlun sem tók
meðal annars til launa og reksturs
skipa og í lok veiðitímabils er bók-
hald veiðimanna yfirfarið af
endurskoðendum.
Eftirspurn eftir hrefnukjöti
Að sögn Gunnars Bergmanns
Jónssonar, framkvæmdastjóra
Félags hrefnuveiðimanna, hefur
sala á hrefnukjöti gengið vonum
framar í ár. „Við byrjuðum á
ákveðinni markaðssetningu í fyrra
sem er að skila sér núna. Miðað
við þá eftirspurn sem við erum að
sjá er ekki hægt að segja að það sé
ekki markaður fyrir hrefnukjöt á
Íslandi.“ Gunnar segir að erlendir
ferðamenn séu einna æstastir í að
kaupa hrefnukjötið en hörð gagn-
rýni á hvalveiðar hefur undanfar-
in ár komið frá einum geira í
ferðaþjónustu, fulltrúum hvala-
skoðunarskipa.
Hvalaskoðun og hvalveiðar
Hvalaskoðun hófst við strendur
Íslands árið 1995 og hefur verið
sívaxandi iðnaður síðan. Sam-
kvæmt úttekt auðlindasérfræð-
ings sem gerð var árið 2003 eru
beinar og óbeinar tekjur í kring-
um milljarð að sögn Ásbjörns
Björgvinssonar, formanns Hvala-
skoðunarsamtakanna. „Aðalsölu-
varan okkar er gæfustu og for-
vitnustu dýrin sem koma upp á
bátunum. Það er því verið að skaða
okkur með beinum hætti með veið-
um þar sem þetta eru dýrin sem
hrefnuveiðimenn skjóta helst.“
Ásbjörn segir að þegar ákveðið
hafi verið að hefja vísindaveiðar
hafi sjávarútvegsráðherra lofað
að ekki yrði veitt á skilgreindum
hvalaskoðunarsvæðum. „Þegar
það var ekki að ganga eftir kvört-
uðum við yfir því við sjávar-
útvegsráðuneytið og sýndum
hvaða svæði það væru sem við
hefðum verið að sigla um. Yfir-
maður hvaladeildar Hafrann-
sóknastofnunarinnar sagði þá að
þeir hefðu ekki áttað sig á því á
hvaða svæði hvalaskoðunarskipin
væru að sigla á og vildi ekki sam-
þykkja þau.“
Gísli Víkingsson, hvalasér-
fræðingur hjá Hafrannsókna-
stofnuninni, segir að vissulega sé
ágreiningur um skilgreiningu á
svæðum. „En við höfum notað þá
reglu að fara ekki inn á þau svæði
við vísindaveiðarnar þar sem
hvalaskoðunarfyrirtækin eru í
reglulegum ferðum. En sum fyrir-
tækin vildu skilgreina stærra
hvalaskoðunarsvæði en við gátum
samþykkt. Til dæmis er Faxafló-
inn langþéttasta hrefnusvæði
landsins og það myndi skekkja
sýnatöku ef við værum útilokaðir
þaðan.“ Gísli segir að Hafrann-
sóknastofnunin hafi ekki viljað
beita sér fyrir því að svæðin yrðu
skilgreind nákvæmlega þar sem
um takmarkaða rannsókn sé að
ræða. „Líkur eru á að atvinnuveið-
ar hefjist síðar og við vildum því
ekki setja fordæmi núna.“
Hafrannsóknastofnunin hefur
mælt með veiðum á hrefnu af líf-
fræðilegum ástæðum á allt að 400
dýrum undanfarin ár. Um 44 þús-
und hrefnur eru á landgrunni
Íslands samkvæmt síðustu mæl-
ingu, sem fór fram árið 2001.
Næsta mæling verður gerð eftir
ár.
Atvinnuveiðar rökrétt framhald
Ekki hafa verið teknar neinar
pólitískar ákvarðanir um hvað
tekur við þegar vísindaveiðum
lýkur, að sögn Einars K. Guðfinns-
sonar sjávarútvegsráðherra. „En
ég tel rökrétt framhald að við
stundum hvalveiðar í atvinnu-
skyni. Allar líffræðilegar forsend-
ur eru til staðar og það er orðið
óumdeilt að takmarkaðar veiðar
munu ekki hafa nein neikvæð
áhrif á hvalastofna nema síður sé.
Og þjóðréttarlega séð höfum við
allan rétt okkar megin.“ Einar
segir þó að þetta þurfi að vega og
meta út frá öllum hliðum. „Menn
hafa talað um það að hvalveiðar
myndu trufla aðra atvinnustarf-
semi á borð við ferðaþjónustu. Nú
höfum við stundað hvalveiðar í
þrjú ár sem hefur ekki haft nein
slæm áhrif á ferðaþjónustu nema
síður sé. Reynslan hefur því sýnt
að ótti manna var ástæðulaus.“
Spurður hvort ekki þurfi að
skilgreina nánar svæði hvalaskoð-
unar annars vegar og hvalveiða
hins vegar segir Einar það engan
vanda. „Það má skilgreina svæði
sem hvalveiðar fara ekki fram á
til þess að koma til móts við hags-
muni hvalaskoðunarfyrirtækja.
Hafsvæðið í kringum Ísland er
nægilega stórt til að bera hvoru-
tveggja hvalveiðar og hvalaskoð-
un.“
Atvinnuveiðar á hrefnu
hefjast hugsanlega á næsta ári
VAXANDI ATVINNUGREIN Hvalaskoðun hófst við strendur Íslands
árið 1995 og hefur verið sívaxandi atvinnugrein síðan.
Vísindaveiðum á hrefnu við Íslandsstrendur lýkur á næsta
ári og vonast Félag hrefnuveiðimanna til þess að atvinnu-
veiðar taki þá við. Sjávarútvegsráðherra telur atvinnuveið-
ar rökrétt framhald af vísindaveiðunum.
VÍSINDAVEIÐAR Árið 2003 hófust hvalveiðar í
vísindaskyni.
VIÐ REYKJAVÍKURHÖFN Hvalveiðiskipin hafa verið bundin við
bryggju síðan árið 1989.
GUÐMUNDUR BJÖRNSSON
21
7
28
6
10
2
Heimild: www.hi.is
2000 2002 2004