Fréttablaðið - 24.07.2006, Side 19
ER ÞÍN EIGN AUGLÝST HÉR? MEST LESNA FASTEIGNABLAÐ LANDSINS
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík 4.08 13.34 22.58
Akureyri 4.08 13.34 22.58
Heimild: Almanak Háskólans
Smáauglýsingasími
550 5000
Auglýsingasími Allt
550 5880
Þú getur pantað
smáauglýsingar á visir.is
Fasteignasalan 101 Reykjavík hefur
til sölu gullfallegt 208 fermetra
einbýlishús við Grundarstíg með 41
fermetra bílskúr.
Húsið, sem er byggt 1913 og endurbyggt
1943, er úr timbri og steini. Húsið stendur á
419 fermetra eignarlóð. Garðurinn er afgirt-
ur og einstaklega fallegur með gosbrunni,
hellulögðum stígum, fjölbreyttum gróðri og
tveimur sólpöllum.
Gengið er inn á miðhæð hússins. Komið
er inn í forstofu með fatahengi og flísum.
Þar inni af er gangur með innbyggðu fata-
herbergi. Eldhúsið er mjög rúmgott með
fallegri viðarinnréttingu, tengi fyrir upp-
þvottavél og borðkrók með útsýni yfir garð-
inn. Gengið er frá borðkrók út á sólríka ver-
önd með skjólveggjum.
Stofa og borðstofa eru rúmgóðar með
parketti á gólfi, sem og gott herbergi sem er
á hæðinni. Gengið er upp teppalagðan stiga
á efri hæðina og komið upp á stigapall með
útgangi út á suðursvalir. Gott hjónaherbergi
með skápum og parketti er á hæðinni, gang-
ur með innbyggðum skáp, baðherbergi með
baðkari og tvö rúmgóð herbergi, annað með
innbyggðum skáp.
Í kjallara er rúmgott herbergi með stórri
geymslu inni af, þvottahús með sturtuað-
stöðu og vaski, salerni og rúmgóð geymsla
með hillum. Bílskúrinn er mikið endurnýj-
aður og í honum eru rafmagns- og vatns-
lagnir.
Skipulags- og byggingarsvið Reykjavíkur-
borgar hefur samþykkt að byggja megi ris-
hæð ofan á húsið. Búið er að skipta um alla
glugga og gler í húsinu. Ásett verð er 67
milljónir.
Glæsileg eign í
hjarta Reykjavíkur
Húsið er á tveimur hæðum, auk kjallara og bílskúrs. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Iðnaðarlóðir eftirsóttar
IÐNAÐARLÓÐIR Í ÞORLÁKSHÖFN ERU EFTIRSÓTTAR UM ÞESSAR
MUNDIR.
Bæjarstjórinn í Þorlákshöfn, Ólafur Áki Ragnarsson, lét hafa
það eftir sér í nýlegu viðtali við Viðskiptablaðið að sveitafélagið
hefði upp á mikið að bjóða hvað iðnaðarlóðum viðkæmi, bæði
vegna þess hve mikið er af landi á svæðinu og skipulagðar
lóðir fyrir iðnaðarhúsnæði upp á 150.000 fermetra. Ólafur sagði
landið jafnframt henta undir iðnað, vegna þess hve ódýrt væri
að gera grunna. Þetta væri því alveg einstakt atvinnutækifæri
fyrir fyrirtæki. Að auki væri ekki langt frá Þorlákshöfn til
höfuðborgarinnar. - rve
Þorlákshöfn hefur upp á margt að bjóða fyrir iðnfyrirtæki.
GÓÐAN DAG!
Í dag er mánudagurinn
24. júlí, 205. dagur ársins
2006.
GOSBRUNNUR Í
GARÐINN
Hvern dreymir ekki um að
heyra róandi nið vatns í
garðinum? Sjaldan hefur
úrval tilbúinna gosbrunna
verið meira en nú.
HÚS 4
FASTEIGNASÖLUR
101 Reykjavík 6-7
Árborgir 21
Ás 18-20
Ásbyrgi 5
Draumahús 12-13
Eignastýring 17
Eignaumboðið 16
Fasteingafélag Austurl. 16
Fasteingafélagið Stoðir 9
Fasteingamiðlunin Múli 9
Fyrirtækjasalan 21
Lyngvík 8
Lundur 10-11
Nýtt heimili 15
S.L.I ehf 15