Fréttablaðið - 24.07.2006, Síða 20
[ ]
Tindur Hafsteinsson, sölustjóri
hjá Creditinfo, og Anna S.
Kristjánsdóttir hjá KB banka
eru að breyta húsi sínu til að
skapa fjölskylduvænna um-
hverfi.
„Við erum að búa til griðastað fyrir
fjölskylduna, þar sem hægt verður
að borða saman, spjalla, læra, horfa
á sjónvarpið og fara í leiki,“ segir
Tindur um stækkun sem verið er að
gera út frá eldhúsinu á húsi þeirra
Önnu og áætlað er að ljúki í haust.
Tindur segir það ekki koma að
sök þótt gólfflötur hússins stækki
um 35 fermetra á kostnað garðsins,
þar sem sá hluti garðsins sem hverfi
sé hvort eð er dimmur og leiðinleg-
ur og því lítið sem ekkert notaður.
Ekki er nóg með að verið sé að
breyta húsi Tinds og Önnu heldur
er verið að endurhanna lóðina. „Við
erum búin að reisa nýjan vegg á
milli lóða, þar sem sá gamli lá undir
skemmdum af völdum trjágróð-
urs,“ segir Tindur. „Við bróðir minn
vorum önnum kafnir við vinnu á
veggnum frá því um páska, en nú á
bara eftir að mála hann.“
Að sögn Tinds hefur líka verið
skipt um jarðveg umhverfis heitan
pott í garðinum, sem er sérstakur
fyrir þær sakir að vera búinn til úr
stuðlabergi. „Okkur Önnu langaði í
heitan pott, þó ekki þennan dæmi-
gerða plastpott sem upplitast oft
með tímanum og lítil prýði er af.
Við vildum frekar búa til pott sem
félli vel að umhverfinu og fannst
stuðlaberg kjörinn efniviður. Hug-
myndin kviknaði þegar við sáum
pott umkringdan stuðlabergi í
Seljalandslaug. Við tókum hana
skrefinu lengra með því að steypa
botninn.“
Leifar af stuðlaberginu voru
settar fyrir framan nýja vegginn.
Fyrir utan að það brjóti upp garðinn
segist Tindur ætla að setja upp grill
og útiarinn þar á bak við. „Við
ætlum svo að leggja antíkflísar frá
BM Vallá framan við veginn, bæði
vegna flottheita og svo er nóg af
grasi í garðinum sem þarf að slá,“
bætir Tindur við og hlær. „Mark-
miðið er að gera umhverfið eins
viðhaldsfrítt og unnt er svo sam-
verustundum fjölskyldunnar
fjölgi.“ roald@frettabladid.is
Heitur pottur úr stuðlabergi
Í garðinum er gott rými fyrir útileiki barnanna, en Tindi og Önnu finnst mikilvægt að börnin
fái gott svigrúm til að athafna sig. Hér sést yngsta dóttirin Snæfríður Blær, 5 ára, taka á
sprett á meðan Ragnheiður Sóllilja fylgist með.
Tindur með dóttur sinni, Ragnheiði Sólilju,
og tíkinni Frigg. Hann segir hvergi betra
að vera en í Garðabæ, meðal annars
vegna þess hversu rólegt og veðursælt sé í
hverfinu þar sem fjölskyldan býr. Svo finnst
honum bæjarþjónustan til fyrirmyndar.
Þessi myndarlegi veggur var reistur til að
aðskilja lóð fjölskyldunnar og nágrann-
anna, en tímabært var orðið að fjarlægja
þann gamla sem lá undir skemmdum.
Bræður Tinds hjálpuðu til við frágang á undirlagi og lagnakerfi fyrir pottinn. Grafa var síðan
notuð til að raða steinunum eins og sólúri, fúað var á milli þeirra og potturinn sjálfur
steyptur. Þótt töluverð vinna hafi farið í að koma pottinum upp tók það ekki nema þrjá
daga að raða stuðlaberginu.
Þessi glæsilegi pottur, sem er hvorki meira né minna en sautján tonna þungur, setur
skemmtilegan svip á garðinn. Ekki er annað að sjá en að dætur Tinds og Önnu, Ragnheiður
Sóllilja, 7 ára, og Margrét Mist, 10 ára, og vinkona þeirra Þórdís Hulda Árnadóttir skemmti
sér vel enda tilvalið að bussla í vatninu á góðum sumardegi. FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR
Góð moppa er gulli betri. Maður nennir ekki að þrífa nema
græjurnar séu í lagi.
ÁRMÚLA 42 - SÍMI 553 4236
BÍLSKÚRS OG IÐNAÐARHURÐIR
• Hurðir til á lager • Smíðað eftir máli
• Eldvarnarhurðir • Öryggishurðir
����������������
��������������������
���������������������������
���������������������
������������������������������
������������������������
�����������������������
����������������������
����������������������
��������������� ���������