Fréttablaðið - 24.07.2006, Side 46
24. júlí 2006 MÁNUDAGUR28
– Mest lesið
Þetta gæti tekið tíma
Er fasteignin þín ekki í mest lesna fasteignablaðinu?
Þegar hægist um á fasteignamarkaði er mikilvægara en nokkru sinni að auglýsa
á besta staðnum. Samkvæmt nýjustu könnun Gallup* lesa 40% fleiri Íslendingar á
aldrinum 25–49 ára Allt-fasteignir en Fasteignablað Morgunblaðsins. Vertu viss
um að eignin þín nái athygli sem flestra!
*Samkvæmt könnun Gallup, maí 2006
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
„Ég myndi vilja eiga hús einhvers staðar við Miðjarðarhafið með
aldingarði þar sem ég myndi rækta alls kyns ávexti, grænmeti
og kryddjurtir. Það væri alltaf ferskt grænmeti í salatinu, ferskir
ávextir með morgunmatnum og tilraunir með kryddjurtirnar í
eldhúsinu. Síðan væri ég með blómarækt, lítinn gosbrunn og
sundlaug í bakgarðinum,“ segir Álfrún og bætir við að það sé
mikilvægt að hafa nóg pláss fyrir alla gestina.
„Húsið yrði að vera mjög rúmgott og stofan notaleg, ekki með of
mörgum húsgögnum en samt nóg af stórum og mjúkum sófum
þannig að það sé sæti fyrir alla. Það væru opnanlegar hurðir út í
garðinn þar sem væri pallur og þar yrði slegið upp stórum matar-
veislum. Inni í húsinu væru húsgögn í antíkstíl, marmari á gólfum
og hlýleg marokkósk teppi til að hafa þetta svolítið huggulegra.“
Álfrún myndi ekki búa í húsinu allt árið um kring. „Maður ætti
góða íbúð í Reykjavík og eina í New York en dvelja í draumahús-
inu í fríum og svona. Síðan myndi ég dvelja þarna í ellinni,“ segir
Álfrún að lokum.
DRAUMAHÚSIÐ MITT: ÁLFRÚN ÖRNÓLFSDÓTTIR LEIKKONA
Gestir ávallt velkomnir
Álfrún Örnólfsdóttir leikkona myndi vilja búa við Miðjarðarhafið.
Háskóli Íslands var stofnaður árið 1911. Fyrstu árin var hann starfræktur í
Alþingishúsinu við Austurvöll en árið 1940 fluttist hann á núverandi stað.
Aðalbyggingu Háskóla Íslands og lóðina framan við hana skipulagði Guðjón
Samúelsson á árunum 1936 til 1940. Byggingin er í klassískum byggingarstíl
og er framhliðin samhverf um miðju. Eftir aðalálmunni endilangri er gangur
með skólastofum og skrifstofum til hvorrar handar en fyrir miðju húsinu er
glæsilegur forsalur þaðan sem stigar liggja upp á efri hæðir hússins. Innviðir
hússins eru hinir glæsilegustu, gólf forsalarins er lagt hellum úr Öskjuhlíð,
loftið er klætt silfurbergi og súlur framan við hátíðarsalinn eru úr hrafntinnu.
HÁSKÓLI ÍSLANDS
Í febrúar síðastliðnum hófu
Íslenskir aðalverktakar byggingu
á glæsilegu fjölbýlishúsi við
Lindargötu 27 í Reykjavík.
Húsið er á átta hæðum, með 21
íbúð og sex bílskúrum, í hæsta
gæðaflokki. Fjórar íbúðir eru á
hverri hæð á fyrstu fimm hæðum
hússins, tvær íbúðir á þeirri sjöttu
og sjöundu og þakíbúð á efstu
hæðinni.
Með byggingu húsnæðisins er
verið að svara vaxandi eftirpurn
eftir lúxusíbúðum í miðbæ Reykja-
víkur, enda er það á frábærum
stað.
Hver íbúð kemur fullbúin með
parketti og gólfflísum á eldhúsi og
baðherbergi, en sér þvottaher-
bergi fylgir hverri íbúð ásamt
góðu geymslurými í kjallara.
Húsið er klætt að utan og glugg-
ar álkæddir viðargluggar og því
þarfnast það lítils viðhalds. Þá er
búið að ganga frá lóð og sameign
hússins.
Heiðurinn að hönnun húsnæð-
isins eiga Hornsteinar arkitektar,
en hugmyndin að baki hönnuninni
var að tengja saman nýbyggingar,
sem eru austan megin við húsnæð-
ið, við gömlu byggðina, sem er
vestur af því. Með það í huga var
ákveðið að klæða bygginguna með
dumbrauðri sléttri álklæðningu
og báraðri zinkklæðningu, auk
þess sem byggingin er lægri á
vesturendanum af tilliti við gömlu
byggðina.
Framkvæmdir ganga vel, en
um þessar mundir er verið að
steypa fimmtu hæðina. Áætlað er
að íbúðirnar verði tilbúnar til
afhendingar í júní 2007. - rve
Lúxusíbúðir
í miðbænum
Glæsilegt fjölbýlishús rís í
hjarta borgarinnar.
MYND/ONNO
SELDAR EIGNIR Á
HÖFUÐBORGARSVÆÐINU*
*þinglýstir kaupsamningar, heimild Fasteignamat ríkisins.
300
250
200
150
100
50
0
FJÖLDI
2/6-
8/6
112
9/6-
15/6
120
16/6-
22/6
202
23/6-
29/6
117
30/6-
6/7
121
7/7-
13/7
116