Fréttablaðið - 24.07.2006, Page 48
24. júlí 2006 MÁNUDAGUR20
timamot@frettabladid.is
Tilkynningar um merkis-
atburði, stórafmæli og
útfarir í smáletursdálkinn
hér til hliðar má
senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á
auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma
550 5000.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
Hermanía Kristín
Þórarinsdóttir
Skálagerði 11, Reykjavík,
verður jarðsungin frá Grensáskirkju mánudaginn
24. júlí kl. 13.00.
Andrea Danielssen Páll Ragnarsson
Sigurþór Charles Málfríður Sjöfn
Guðmundsson Hilmarsdóttir
Bjarni Ólafur Guðmundsson Martina Guðmundsson
Þórarinn Guðmundsson Guðbjörg Ívarsdóttir
barnabörn og barnabarnabarn
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
Ragnheiður Daníelsdóttir
Gnoðarvogi 38, Reykjavík,
lést á Hjúkrunarheimilinu Skjóli sunnudaginn 16. júlí.
Útförin fer fram frá Fossvogskirkju fimmtudaginn
27. júlí kl. 15.00.
Árni Sigurðsson
Sigurður Árnason Bryndís Alda Jónsdóttir
Ingunn Árnadóttir Sighvatur Arnarsson
Helgi Árnason Sigurlína Jóhannesdóttir
Daníel Árnason Sigurhanna Sigfúsdóttir
Gylfi Árnason Guðrún Vala Elísdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
MERKISATBURÐIR
1923 Lausanne-samkomulagið
sem markaði landamæri
Tyrklands er undirritað
af Grikklandi og Búlgaríu
ásamt öðrum þátttakendum
fyrri heimsstyrjaldarinnar.
1933 Ferðafélag Íslands fer í
fyrstu Þórsmerkurferð sína.
1956 Ríkisstjórn Hermanns Jónas-
sonar tekur við völdum og
situr í rúm tvö ár.
1974 Hæstiréttur Bandaríkjanna
úrskurðar að Richard
Nixon forseta beri skylda
til þess að afhenda spólur
með samtölum úr Hvíta
húsinu vegna rannsóknar á
Watergate-málinu.
2005 Lance Armstrong vinnur
Tour de France í sjöunda
sinn.
PETER SELLERS (1925-1980) LÉST ÞENNAN DAG.
„Það er enginn ég. Ég er ekki til. Ég
var einu sinni til en ég lét fjarlægja
mig með skurðaðgerð.“
Peter Sellers var enskur gamanleikari.
AFMÆLI
Ástrós Gunnars-
dóttir dansari er
42 ára.
Bryndís Hólm er
41 árs.
Birkir Jón Jóns-
son alþingismað-
ur er 27 ára.
Húsavíkurhátíð hefst í dag
en í ár verður Mærudögum
og Sænskum dögum í fyrsta
sinn splæst saman. Hátíðin
stendur í viku og er boðið
upp á veglega menningar-
og skemmtidagskrá sem er
ætlað að höfða til allrar fjöl-
skyldunnar. Þórunn Harðar-
dóttir, einn skipuleggjenda
hátíðarinnar, segir að Mæru-
dagar hafi fyrst verið haldn-
ir árið 1997 en að Sænskir
dagar hafi verið haldnir í
fyrsta sinn í fyrra.
„Mærudagar eru fjöl-
skylduhátíð fyrir Húsvík-
inga, bæði fyrir þá sem búa
hér og brottflutta. Það eru
margir gamlir Húsvíkingar
sem koma heim og heilsa
upp á vini og ættingja og
síðan er þetta líka fyrir
íslenskar fjölskyldur sem
eru á ferðinni og erlenda
ferðamenn,“ segir Þórunn.
Hugmyndin að Sænskum
dögum kviknaði árið 1998
þegar Húsvíkingar héldu
upp á dag Garðars Svavars-
sonar en hann var sænskur
víkingur sem kom hingað til
lands árið 870.
„Við höfum alltaf haft
mikinn áhuga á að styrkja
menningartengls á milli
Íslands og Svíþjóðar í
tengslum við þá stórmerki-
legu sögu sem við eigum
um Garðar Svavarsson og
Náttfara. Garðar Svavars-
son kom frá Svíþjóð og var
fyrstur til að uppgötva að
Ísland var eyja og hafði hér
vetursetu. Náttfari dvaldi
hér áfram og var í rauninni
fyrsti landnámsmaðurinn,“
segir Þórunn en það var
síðan Ingólfur Arnarson
sem fékk heiðurinn af því
að vera fyrsti landnáms-
maðurinn. „Við höfum unnið
mjög náið með sænska
sendiráðinu í þessu og erum
líka að vinna að sýningu um
Garðar Svavarson sem heit-
ir Garðarshólm,“ en það
nafn gaf Garðar landinu
þegar hann kom hingað til
lands.
Meðal viðburða á hátíð-
inni eru siglinganámskeið
fyrir börn og unglinga, golf-
mót, bílasýning, tónleikar,
tívolí, fjölskylduskemmtun
og sirkusnámskeið en
sænskur sirkus ætlar að
mæta á svæðið. Einnig
verður boðið upp á fyrir-
lestra, glerlistasýningu og
brennu. „Síðan verður
sænskur matseðill á veit-
ingastaðnum Gamla bauk
og það er kokkurinn úr
sendiráðinu sem ætlar að
elda sænskan mat,“ segir
Þórunn en sendiherra Sví-
þjóðar á Íslandi, Madeleine
Ströje-Wilkens, ætlar að
koma til Húsavíkur og
ávarpa gesti hátíðarinnar.
Það er ókeypis inn á
hátíðina en það kostar inn á
einstaka viðburði eins og
tónleikana, leiksýningarnar
og böllin sem haldin verða á
laugardagskvöldið. Á tjald-
stæðinu þarf aðeins að
borga fyrir fyrstu nóttina
en eftir það geta gestir
dvalið þar sér að kostnaðar-
lausu.
gudrun@frettabladid.is
HÚSAVÍKURHÁTIÐ: HEFST Í DAG
Góð stemning í bænum
FRÁ HÁTÍÐARHÖLDUNUM Í HÚSAVÍK Í FYRRA Í ár verða Mærudagar og Sænskir dagar í fyrsta sinn haldnir saman en
sendiherra Svíþjóðar, forseti Íslands og utanríkisráðherra munu öll heiðra hátíðargesti með nærveru sinni.
ÚTFARIR
13.00 Hermanía Kristín Þórar-
insdóttir, Skálagerði 11, Reykjavík,
verður jarðsungin frá Grensás-
kirkju.
13.00 Ragnar Marnó Bjarnason,
rafvirkjameistari, Háagerði 31,
verður jarðsunginn frá Fossvogs-
kapellu.
15.00 Sæmundur Björnsson,
Hrafnistu, Reykjavík, verður jarð-
sunginn frá Fossvogskirkju
Á þessum degi árið 1911
enduruppgötvaði Hiram Bing-
ham hina fornu borg Inka,
Macchu Picchu. Borgin er um
80 kílómetra norðvestur af
Cuzco í Andesfjöllunum í Perú
og er í 2.350 metra hæð yfir
sjávarmáli. Hiram Bingham,
prófessor við Yale-háskólann
í Bandaríkjunum, var leiddur
til Macchu Picchu af heimamanninum Melchor
Arteaga. Þrátt fyrir að umheimurinn hafi ekki vitað af
tilvist borgarinnar gerðu heimamenn það.
Talið er að borgin hafi verið byggð af Sapa Inca
Pachacuti um 1440 en þar var búið til ársins 1532
þegar Spánverjar réðust inn í Perú og náðu landinu
á sitt vald. Borgin var ekki hefðbundin Inkaborg
heldur er talið að þangað hafi þeir farið til þess að
hvíla sig frá ys og þys stærri
borganna. Yfir háannatímann
hafi búið þar um 750 manns
en mun færri á meðan á regn-
tímanum stóð.
Macchu Picchu er einn frægasti
minnisvarði um veldi Inkana en
það var stærsta veldi Ameríku
fyrir tíma Kólumbusar. Árið
1983 var Macchu Picchu sett á
heimsminjaskrá UNESCO, Menningarmálastofnunar
Sameinuðu þjóðanna. Þangað kemur mikill fjöldi
ferðamanna á hverju ári en margir óttast þó of
mikinn ágang þeirra um svæðið.
Macchu Picchu er mikilvægasti ferðamannastaður
Perú og hafa stjórnvöld þar í landi barist fyrir að fá
til baka þá muni sem Bingham tók með sér til Yale
á sínum tíma.
ÞETTA GERÐIST 24. JÚLÍ 1911.
Macchu Picchu finnst
Á þessum degi í New York
árið 1956 skemmtu þeir
Dean Martin og Jerry Lewis
í síðasta sinn saman á Copa-
cabana-klúbbnum en þar
höfðu þeir staðið fyrir
skemmtunum í tíu ár.
Dean Martin var leikari
og söngvari og vinsæll
skemmtikraftur í Banda-
ríkjunum um miðja síðustu
öld. Hann hitti Lewis á
næturklúbbi þar sem þeir
voru báðir að skemmta og
með þeim tókst vinátta og
síðar samvinna. Þeir hófu
samstarf sitt árið 1946 í Atl-
anta og urðu fljótlega mjög
vinsælir en samstarf þeirra
brast árið 1956. Lewis gekk
vel að fá störf í Hollywood
en Martin átti erfiðara upp-
dráttar. Martin var hins
vegar mjög vinsæll
skemmtikraftur og árið
1965 fékk hann sinn eigin
sjónvarpsþátt á NBC-sjón-
varpsstöðinni sem hét The
Dean Martin Show. Hann
var einnig vinsæll söngvari
og var hluti af Rottugeng-
inu ásamt þeim Frank Sin-
atra, Sammy Davis Jr.,
Peter Lawford og Joey
Bishop. Hann lést árið 1995,
þá 78 ára gamall.
Martin og Lewis
skemmta í síðasta sinn
Þessi skrautlegi stuðningsmaður
var mættur á fóboltaleik á Green
Point-vellinum í Höfðaborg í Suður-
Afríku. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
DEAN MARTIN