Fréttablaðið - 24.07.2006, Page 52
24. júlí 2006 MÁNUDAGUR24
Fimmtudaginn 19. lögðum við af stað
frá Hvolsvelli eftir góðar móttökur á
Hlíðarenda. Guðjón ákvað að koma við
á Heilsugæslustöðinni sökum sárinda í
ökkla. Þegar elskulegar starfskonurnar
komust að því að við værum að hjóla
,,fyrir börnin hans Njarðar’’, þá hlúðu
þær að sárum hans endurgjaldlaust og
skrifuðu upp á bólgueyðandi lyf sem
hann gleypti í sig. Drengirnir voru við
það að gefast upp þegar þeir komu að
Seljalandsfossi, en þar lagðist Dagbjartur
niður og kallaði hástöfum á móður sína.
Á meðan þeir veinuðu og streittust á
móti vindi kom ég dóti okkar fyrir á
Hótel Lundi í Vík í Mýrdal. Ég hjólaði
svo á móti þeim og ekki var ástandið
betra þegar við mættumst. Nú var hnéð
á Guðjóni að gefa sig og ég dró því upp
hitakremið sem fékk að smjúga inn að
aumum vöðva. Við komum til Víkur rétt
fyrir níu og þegar ég kom brunandi inn í
bæinn náði ég í fyrsta sinn þeim merka
áfanga að fara yfir hámarkshraða (50
km/klst.) á reiðhjóli.
Guðjón fór strax á Halldórskaffi svo að
hann gæti borðað í snarhasti og spilað,
á meðan eldaði Dagbjartur dýrindis
máltið á Hótel Lundi undir ljúfum
tónum Rásar 1. Þegar þetta er skrifað sit
ég í góðum félagsskap Ólafs Björgvins-
sonar trésmiðs úr Reykjavík á Halldórs-
kaffi. Hann vill ólmur veita vel af víni
og smáaur í baukinn enda eru Össur
og Njörður sko hans menn! Biður hann
kærlega að heilsa Össuri.
Eins og ávallt taka þjónustustúlkurnar
vel á móti okkur og þennan pistil fékk
ég að senda hjá Fríðu á Hótel Lundi. Hér
geng ég bara inn í ólæst hús og geri mig
heimakominn eins og ekkert sé. Næsti
viðkomustaður er Geirland á Kirkjubæjar-
klaustri þar sem móttökurnar verða ekki
síðri. Vonandi verður þetta svona það
sem eftir er ferðar... hversu mikið sem
það nú verður?
RÚNTAÐ UM LANDIÐ FYRIR SPES: GÍSLI HVANNDAL SKRIFAR FRÁ HRINGFERÐINNI
Ókeypis fyrir börnin hans Njarðar
GÍSLI Í GÓÐUM FÉLAGSSKAP Ólafur Björgvinsson var sáttur við framtak þeirra stráka enda
eru Össur og Njörður mennirnir hans.
Stjórn á
blóðþrýstingi
LH inniheldur náttúruleg
lífvirk peptíð sem geta
hjálpað til við stjórn
á blóðþrýstingi
LH-drykkurinn er gerður úr
undanrennu og er því fitulaus.
Auk peptíðanna inniheldur
hann í ríkum mæli kalk,
kalíum og magníum en
rannsóknir benda til að þessi
steinefni hafi einnig jákvæð
áhrif á blóðþrýsting.
Fjöllistamaðurinn Hugleik-
ur Dagsson hélt ljósmynda-
sýningu í húsakynnum
KronKron verslunarinnnar.
Hugleikur hefur verið áber-
andi í bókmenntalífi land-
ans auk þess að vera valinn
leikskáld ársins á Grím-
unni. Honum er því greini-
lega margt til lista lagt eins
og gestir ljósmyndasýning-
arinnar gátu borið vitni um.
Ljósmyndir Hugleiks til sýnis
ÁNÆGÐAR Þær Helga og Sissa voru
ánægðar með það sem fyrir augum bar og
nutu þess að skoða skemmtilegar myndir
Hugleiks.
LJÓSMYNDARINN Hugleikur var stoltur af verkum sínum sem voru til sýnis.
LJÓSMYNDIRNAR Hugleikur hefur sýnt það
að undanförnu að honum er margt til lista
lagt og er ljósmyndasýningin bara enn ein
rósin í hnappagatið fyrir þennan snjalla
rithöfund.
MÆTTU Í KRONKRON Þær Sigga og Hugrún
létu sig ekki vanta á ljósmyndasýningu
Hugleiks.
GLAÐIR Í BRAGÐI Þeir Hjörtur og Mistik var
ánægðir með verk Hugleiks.
GÓÐIR SAMAN Þeir Mundi og Stefán Svan voru meðal þeirra fjöl-
mörgu gesta sem litu inn í KronKron.
Í GÓÐRA VINA HÓPI Þau Palli, Davíð Örn og Ástríður voru mætt og
létu fara vel um sig á ljósmyndasýningunni.
Glæsileg tískusýning var
haldin á veitingastaðnum
Vegamótum á laugardaginn.
Ungir íslenskir hönnuðir
sýndu þar afrakstur sinn
og lögðu fjölmargir tísku-
fíklar leið sína þangað til að
sjá hvað væri það nýjasta í
íslenskri tísku.
Tískusýning í góða veðrinu
FLOTT Þessi fyrirsæta skartaði þessum
glæsilega sumarkjól á Vegamótum.
GLÆSILEG HÖNNUN Kjóllinn vakti mikla
athygli á Vegamótum þar sem ungir
íslenskir hönnuðir létu ljós sitt skína.
SÉRSTAKUR Strákatískan var mjög sérstök
og skrautleg á köflum.
Í GÓÐU STUÐI Þrátt fyrir að einhverjir muni
varla láta sjá sig í þessum fötum gefa þau
einhverja hugmynd um það sem koma
skal.