Fréttablaðið


Fréttablaðið - 24.07.2006, Qupperneq 62

Fréttablaðið - 24.07.2006, Qupperneq 62
 24. júlí 2006 MÁNUDAGUR34 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 VEISTU SVARIÐ Svör við spurningum á bls. 8 1 Íslandsvinir. 2 Fjórða sætið. 3 Njörður. LÁRÉTT 2 dræsa 6 tveir eins 8 því næst 9 fæða 11 hreyfing 12 stuttur 14 trufla 16 skóli 17 niður 18 kærleikur 20 guð 21 viðlag. LÓÐRÉTT 1 ætla 3 í röð 4 vanvirkur 5 soðning- ur 7 ljúka 10 temja 13 suss 15 hástétt 16 blástur 19 drykkur. LAUSN Steinunni Jóhannesdóttur rit- höfundi barst á dögunum skrifleg fyrirspurn frá Hollandi um hvort hægt væri að færa sönnur á að hol- lenski listamaðurinn Rembrandt van Rjin hefði málað mynd af Guð- ríði Símonardóttur, eiginkonu Hall- gríms Péturssonar, og hvort mögu- lega væri hægt að hafa uppi á mál- verkinu. Málavextir eru þeir að Hollend- ingur einn hafði lesið þýska þýðingu á Reisubók Guðríðar Símonardóttur, sögulegri skáldsögu eftir Steinunni sem hún byggir á ævi Guðríðar. Þar segir meðal annars frá vikudvöl hennar í Amsterdam í ágúst árið 1636. „Þar leiddi ég Guðríði til fundar við hinn unga Rembrandt og Saskiu konu hans,“ segir Steinunn. „Saskia sat reglulega fyrir hjá manni sínum en í skáldsögunni hleypur Guðríður í skarðið fyrir hana brot úr degi og fær skissuna að launum.“ Bréfritarinn áttaði sig ekki á að um skáld- skap var að ræða og veðraðist svo mikið upp við lestur bókar- innar að skissan varð að málverki. Hann hafði rakleiðis sam- band við forstöðu- mann bókasafns Rembrandts-hússins í Amsterdam, sem varð ekki minna upprifinn þegar hann heyrði tíðindin en mikil hátíðarhöld eru í Hollandi um þessar mundir í tilefni þess að 400 ár eru liðin frá fæðingu Rembrandts. Hófst þá mikil fjársjóðsleit þar sem forstöðumaðurinn og hjálparsveinn hans einsettu sér að finna meistaraverkið og settu sig því í samband við Steinunni. „Getirðu sannað að þetta málverk hafi verið til væru það mikil tíðindi, jafnvel þótt það sé glatað,“ stendur meðal annars í bréf- inu til hennar. „Ég varð því miður að hryggja þá með því að segja þeim að þessi saga væri bara uppspuni af minni hálfu,“ segir Steinunn. „En ég bætti við að sjálf hefði ég ákveðnar hugmyndir um hvenær skissan glataðist, hefði hún verið til, en það var þegar bær Guðríðar og Hallgríms í Saurbæ brann til kaldra kola í ágúst árið 1662. Þá er næsta víst að skissan hefði orðið eyðileggingunni að bráð en þeim er vitaskuld velkomið að koma hingað og leita.“ - bs Myndar eftir Rembrandt leitað á Íslandi STEINUNN JÓHANNESDÓTTIR Olli usla í Amsterdam með sögulegri skáldsögu. REMBRANDT OG SASKIA Þessa mynd málaði Rembrandt af sér og eiginkonu sinni árið 1641. Hinn 22 ára gamli Sigurgeir Þór Helgason vann nýlega æsispenn- andi hæfileikakeppni meðal starfs- manna ÍTR en eins ótrúlega og það hljómar þá getur hann blístrað lag með augunum. Sigurgeir framkall- ar blístrið með því að halda fyrir nef sér og blása út um augun. „Ég hef getað gert þetta síðan ég var smá krakki. Amma getur þetta líka þannig að þetta er greinilega ein- hver ættarhæfileiki,“ segir Sigur- geir, nokkuð ánægður með sigur- inn sem færði honum bikar til eignar. Sigurgeir flautaði lagið Atti katti nóa í keppninni og gekk það ágætlega. „Sumum finnst þetta merkilegt en öðrum finnst þetta bara ógeðslegt,“ segir Sigurgeir, sem hefur heyrt um fleiri sem geta gert þetta og telur þetta ekki vera svo óalgengt þó ekki geti allir gert þetta. „Þetta er ekkert vont, ekki nema ég sé að leika einhverjar sin- fóníur. Ég tárast aðeins við þetta.“ Í sumar vinnur Sigurgeir sem leið- beinandi á leikjanámskeiði en hann segist ekki hafa sýnt krökkunum þennan hæfileika sinn. „Ég hef bara verið að sýna vinum mínum þetta en það er aldrei að vita nema ég taki sýningu fyrir krakkana við tækifæri.“ - snæ Getur flautað með augunum Vígtennur eins og þær sem varúlfar og vampírur skarta eru í hugum flestra eitthvað sem á bara heima í kvikmyndum en hér á landi er staddur sérfræðingur í vígtanna- gerð að nafni Nash og geta áhuga- samir kynnt sér verk hans hjá húð- flúrastofunni Stúdíó 54 þar sem Fjölnir Bragason ræður ríkjum. Reyndar er þetta ákaflega við- kunnalegur náungi sem býr rétt fyrir utan New York. Hann talar hratt en hefur augljóslega gaman af því að vera hér á Íslandi. „Ég er hér til að kynna vígtennur sem líkamsskraut,“ segir Nash en viðurkennir að þetta sé ekki jafn vinsælt og götun eða húðflúr. „Þetta hefur samt sem áður verið að ryðja sér rúms og er orðið nokkuð vin- sælt á alþjóðavísu,“ bætir Nash við og segir að varúlfstennurnar séu eftirsóttastar. Nash hefur verið á ferðalagi að undanförnu og meðal annars komið við í Ástralíu auk þess að hafa staldrað við í flestum ríkjum Banda- ríkjanna. Reyndar hófst þetta tann- ævintýri Nash fyrir algjöra slysni því hann segist fyrst og fremst vera tónlistamaður. „Ég var með langar tennur þegar ég var yngri og fór til tannlækna sem reyndu að laga þær. Þegar ég var síðan að spila á tón- leikum sá ég strák með svona tenn- ur og fór til tannlæknis sem útbjó svona handa mér. Móður minni var svo illa við þær að hún eyðilagði þær eina nóttina. Það stöðvaði mig þó ekki, ég fékk efnið hjá tannlækni og ég bjó bara til nýjar. Vinum mínum fannst þetta töff og svo byrjaði boltinn að rúlla,“ útskýrir Nash og segir að fjölskyldunni sinni hafi ekkert litist á þessa atvinnu- grein hans til að byrja með. „Þau voru skíthrædd við allt þetta brjál- aða fólk sem ég kynni að komast í tæri við,“ segir Nash en að gefnu tilefni skal tekið fram að tennurnar eru gerðar úr plasti og því þurfa viðskiptavinirnir ekki að hafa áhyggjur af því að þeir verði með vampírutennur til eilífðar. Nash er orðinn nokkuð þekktur fyrir handbragð sitt og hafa kvik- myndaframleiðendur haft samband við hann þegar gera á vampíru- myndir. „Það eru aðallega tækni- brellumeistararnir sem koma að máli við mig og vilja fá ráð,“ útskýr- ir Nash en vill þó sem minnst gera úr þessu sambandi sínu við Holly- wood. Nash fer héðan á þriðjudaginn en er staðráðinn í að koma aftur hingað enda segist hann kunna ákaflega vel við land og þjóð. „Ég er hvorki giftur né á börn en held að ég hafi fundið rétta staðinn til að leita.“ -fgg VAMPÍRAN NASH: HANNAR VÍGTENNUR FYRIR ÍSLENDINGA Fjölskyldan hrædd við brjálæðinga KATE BECKINSALE Nash fékk símtal frá brellusérfræðing- um kvikmyndarinnar Underworld og hann ráðlagði þeim með tennurnar sem Kate Beckinsale var með. NASH Heitir réttu nafni Jonathan Miller og vissi að Leifur Eiríksson hefði fundið Ameríku. Hann heimtaði því að fá myndina af sér tekna fyrir framan kappann hjá Hallgríms- kirkju. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR MEÐ ÓVENJULEGAN HÆFILEIKA Sigurgeir getur flautað lag með augunum og vann nýlega hæfi- leikakeppni meðal starfsmanna ÍTR út á þann hæfileika. LÁRÉTT: 2 drós, 6 kk, 8 svo, 9 ala, 11 ið, 12 lágur, 14 raska, 16 ma, 17 suð, 18 ást, 20 ra, 21 stef. LÓÐRÉTT: 1 skal, 3 rs, 4 óvirkur, 5 soð, 7 klárast, 10 aga, 13 uss, 15 aðal, 16 más, 19 te. �������� ��� ��� ��� ��� ��� ��� �� ��� ��� ������ ����� �� ��� � �� �� �� �� �� �� �� �� �� � ��������� � � �� ��������� � � HRÓSIÐ FÆR Kristinn Jakobsson knattspyrnu- dómari, en að mati leikmanna á Íslandsmótinu í knattspyrnu er hann skilningsríkasti dómarinn.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.