Tíminn - 10.01.1978, Side 3

Tíminn - 10.01.1978, Side 3
Þriöjudagur 10. janúar 1978 3 Björgúlfur Guðmundsson: Mun ekki gegna trúnaðarstörfum — meðan þáttur fyrirtækja hans í Landsbankamálinu er í rannsókn Selfoss, kaupstaöur f náinni framtlö. GV — Máliö er I athugun.ég veit ekkert meira um þaö en hver annar, svaraöi Björgólfur Guö- mundsson þeirri spurningu blaöamanns um hvort honum fyndist þaö fulikomlega eölilegt aö bankastarfsmaöur láni innan bankans af eigin fé, en þau voru viöskipti Björgdlfs fyrir hönd fyrirtœkja sinna viö Hauk Heiöar fyrrverandi deildarstjöra ábyrgöardeildar Landsbankans. — Ég gegni ekki trúnaðarstörf- um á meöan mál minna fyrir- tækja er i athugun og er þetta ákvöröun sem ég tek einn og óháöur, sagði Björgólfur. Björg- ólfur sagöi aö þess heföi veriö vænzt aö athugun á þætti fyrir- tækjanna í málinu lyki á skömm- um tima en svo virtist nú sem rannsókn málsins ætlaöi aö veröa tafsamari og liggja nú ekki fyrir niöurstööur. • — Þar sem vænta má þess aö máliö veröi áfram notaö i póli- tiskum tilgangi ekki sizt vegna Alþingis- og sveitarstjórnar- kosninganna í ár, hef ég kosiö aö gegna ekki, aö svo komnu máli, trúnaöarstörfum fyrir Sjálf- stæöisflokkinn. Þess vegna tel ég rétt aö varamenn gegni trúnaöar- störfum þar til máliö skýrist, sagöi Björgólfur aö lokum. Varaformaöur Landsmála- félagsins Varöar er Edgar Guö- mundsson verkfræöingur og mun hann gegna formannsstörfum þar á næstunni. I gær var ákveöiö aö Valgarö Briem hrl. muni taka viö formannsstörfum af Björgólfi Guömundssyni I kjömefnd Sjálf- stæöisfélaganna i Reykjavik. Kaupstaðarkosningar á Selfossi: Ekki á einu máli um kosningarúrslitin KEJ — t almennum kosningum, sem fram fóru á Selfossi um helg- ina, samþykktu Ibúar kauptúns- ins meö 7S1 atkvæöi gegn 278 aö Selfoss yröi framvegis kaupstaö- ur. Veröur þvi liklega lagt fram á Alþingi frumvarp til laga þess efnis nú á næstunni. Hrepps- nefndarmenn Selfosshrepps voru þó ekki sammála um fylgi Sel- fyssinga viö kaupstaöarréttindin þegar Timinn átti tal viö tvo þeirra I gærdag, þá Eggert Jó- hannesson húsasmiöameistara og Hafstein Þorvaldsson, forstööu- mann sjúkrahússins á Selfossi. Hafsteinn Þorvaldsson taldi aö kosningarnar gæfu nokkuö rétta mynd af vilja fólksins, og einkum þeir hafi mætt sem haröastir voru meö og á móti. A kjörskrá voru 1944, en aöeins 1045 greiddu at- kvæði eöa rúm 53%. Taldi Haf- steinn aö léleg kjörsókn hafi m.a. byggzt á þvi, aö pólitfskur áróöur var ekki haföur i frammi og margir hafi veriö beggja blands I málinu. I Arblaöinu hafi birzt umsagnir allra hreppsnefndar- manna á málinu, og á kjördag hafi siöan áhugamannasamtök, menn úr öllum flokkum, haft opna kosningaskrifstofu til stuön- ings kaupstaöarréttindunum. Þó sagöi Hafsteinn, aö hann teldi aö smölun heföi engin átt sér staö. Hafsteinn sagöi aö lokum, aö niöurstaöan i málum sem þessum veröi væntanlega alltaf um- deilanleg. Einmitt þessvegna hafi hreppsnefnd fremur kosiö aö af- greiöa máliö þannig meö almenn- um kosningum, enda þótt fyrir þvi hafi vafalaust veriö mikill meirihluti i hreppsnefndinni. Eggert Jóhannesson hrepps- nefndarmaöur sagöi I samtali viö Timann, aö úrslit kosninganna sönnuöu fremur en hitt, aö enn væri minnihluti Selfyssinga þvi fylgjandi aö Selfoss geröist kaup- staöur. Hann benti á, aö and- stæöingar breytinganna hafi ekk- ert hafzt aö fyrir kosningar, en hiö sama yröi ekki sagt um þá sem málinu voru fylgjandi. Þeir heföu bæöi staöiö fyrir kosninga- skrifstofu á kjördegi, þar sem jafnvel hreppsnefndarmenn störfuðu og fyrir kosningar hafi þeir staöiö fyrir einlitum og ýkt- um málflutningi. Þá benti Eggert á, aö aöeins 53,76% þeirra, sem á kjörskrá voru, hafi kosiö. Hins vegar þegar kosningar fóru fram áriö 1973 þar sem jafnframt yar kosiö I hinu svokallaöa Votmúlamáli hafi kjörsókn verið 88% og þá aöeins 32% meö þvi aö Selfoss geröist kaupstaöur. Þetta hlutfall hefbi greinilega hækkaö nokkuö, en hann kvaöst telja aö eftir sem áö- ur væri meirihlutinn ekki enn hlynntur kaupstaöarhugmynd- inni. Prófkjör Framsckn- armanna í Keflavík AÞ — Um helgina var prófkjör framsóknarmanna I Kcflavik. Hilmar Pétursson skrifstofu- maöur hlaut flest atkvæöi eöa samtals 556. t ööru sæti er Guö- jón Stefánsson skrifstofutjóri meö 509atkvæöi. 1 þriöja sæti er Siguröur Þorkelsson skóla- stjóri. Hann hlaut 503 atkvæöi. Hilmar fékk 326 atkvæöi I fyrsta sætiö, 121 atkvæöi i annaö sæti, 55 atkvæöi i þriöja sæti, 35 atkvæöi I fjóröa sæti og 19 at- kvæöi I fimmta sæti. Samsvar- andi tölur fyrir Guöjón eru: 113, 248, 73, 47 og 28. Siguröur fékk 32, 104, 211, 91 og 65. BOLUNGAVIK: Nýr skuttogari bætist í flotann G.S. Isafj. —Nýr skuttogari hefur nú bætzt viö skipaflota Bolvfk- inga. Hann hlaut nafniö Heiörún ts-4, og var afhentur eigendum sinum, fyrirtækinu Völusteini siöastliöinn laugardag og tók Guöfinnur Einarsson viö skipinu fyrir hönd eigenda. Við athöfnina flutti Guömundur Marsellusson framkv.stj. ræöu, þar sem hann rakti smíöasögu skipsins og kom þar m.a. fram aö byrjaö var aö smiöa skipiö i árs- byrjun ’75. Gunnar Orn Gunnars- son skipatæknifræöingur lýsti byggingu og öllum útbúnaöi þess. Skipiö er 294 lestir og búiö öllum fullkomnustu tækjum til fiskleitar og veiða. Auk þess aö vera skut- togari er hægt að stunda llnu og nótaveiðar á Heiörúnu. Frh. á bls. 2 3 Atvinnumál Þórshafnarbúa: Von til að úr rætist innan skamms SSt — Nú eru likur til aö ástandiö I atvinnumálum Þórs- hafnarbúa fari aö lagast, þvi aö togari þeirra, Fontur,sem hefur veriö bilaöur undanfariö.er nú kominn I lag og er vonazt til aö hann fari á veiöar innan skamms. Togarinn sem er eitt helzta atvinnutæki Þórshafnar- búa, landaöi siöast um mánaba- mótin ágúst — september og hafa aö jafnaöi um 40-50 manns atvinnu sina af aö vinna afia, sem hann leggur upp á Þórshöfn en auk hans eru nokkrir linu- og netabátar sem leggja afla upp á Þórshöfn og skapa þannig at- vinnu. Að sögn óla Halldórssonar fréttaritara Tlmans á Þórshöfn, eru menn þar nú vongóðir um aö næg atvinna veröi þegar togar- inn kemst I gang.þvl aö flestir þar hafa atvinnu sina af fisk- vinnu. — Eins og kunnugt er brann vélaverkstæöi á Þórshöfn fyrir skömmu og varö þar mikiö tjón og misstu þá 6-8 manns at- vinnu slna um stundarsakir. Nú hefur vélaverkstæöiö fengiö inni I bráöabirgöahúsnæöi, þar sem verið hefur áöur sements- geymsla þannig aö hægt er nú aö hafa þar þá þjónustu sem verkstæðið veitti og koma einnig I veg fyrir, aö þeir sem þar vinna, veröi atvinnulausir um einhvern tima. Frá afhendingu Heiörúnar ts-4. Ljósm.: Vestfirzka fréttablaöiö. Blaðamaður Ú tlits teiknari Tíminn óskar að ráða blaðamann og útlitsteiknara. Þeir, sem áhuga kunna að hafa á þessum störf um, eru beðnir að senda sem fyrst inn umsóknir og til- greina aldur, menntun og fyrri störf sín. Ritstjórn Timans, Siðumúla 15.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.