Tíminn - 20.01.1978, Blaðsíða 1

Tíminn - 20.01.1978, Blaðsíða 1
Fyrsta loðnan komin til Reykjavíkur GV — Myndin er tekin i gær er verið var að dæla loðnu úr dansk/is- lenzka skipinu isafold. Vikingur AK og isafold voru fyrst skipa á ver- tiðinni til að sigla með aflann til Reykjavikur þar sem þrær verksmiðj- anna við norðurströndina voru óðum að fyllast eftir afiahrotu siðastlið- inna sólarhringa. Víkingur landaði 1200 lestum og isafold landaði 350 lestum. Alls öfluðu 36 skip 11.890 tonna siðastliðinn sólarhring. Timamynd: Róbert. Heildaraflinn metárið 1977: Rúmlega 1365 þúsund lestir GV — Heildaraflinn á árinu 1977 varð 1.365.194 lestir, en árið þar áður var heildaraflinn alls 985.663 lestir, að þvi er segir I bráða- birgðaskýrslu Fiskifélags is- lands, sem blaðinu barst I gær. Mestu munar um loönuaflann sem var 809 þúsund tonn á árinu, en árið 1976 var hann 458.731 lest- ir. Þá jókst kolmunnaaflinn til muna og segja bráðabirgðatölur Fiskifélagsins, að hann hafi verið 14.064 lestir, en árið áður var afl- að 569 tonna af kolmunna. Spær- lingsaflinn minnkaöi þó nokkuð frá því sem var árið áður eða úr 35.470 lestum i 23.721 lestir árið 1977. Botnfiskaflinn jókst nokkuö mikið á árinu, var 471.379 lestir áriö 1977, en 440.761 lestir árið 1976. Bátaaflinn minnkaði úr rúmlega 237 lesum i rúmlega 233 lestir, en togaraaflinn jókst úr 203.027 lestum i 238.259 lestir árið 1977. 1 skýrslu Fiskifélagsins um heildarafla desembermánaðar kemur fram að hann hefur þrátt fyrir þorskveiðibann aukist um 22 þúsund lestir, úr 37.967 lestum i 52.829 lestir. Mestu munar sem fyrr um loðnuaflann, sem voru tæpar 35 þúsund lestir i desember ’77 en á sama tima i fyrra var afl- að tæplega 14 þúsund lesta af loðnu. Einnig hefur rækjuaflinn i des- ember aukist var 319árið 1976, en nú var hann 839 lestir. Botnfiskaflinn hafði heldur aukist I desember s.l. miðað við dessember árið áður. Var 22.145 lestir i desember ’76,1 desember ’77 var hann 22.381 lestir. N orglobal liggur innan við Hrisey — afkastar 1560 tonnum á sólarhring GV —Siödegis i gær sigldi norska loðnubræðsluskipið Norglobal inn Eyjafjörð, eftir sólarhrings sigl- ingu frá Seyöisfiröi. Skipið liggur nú innan við Hrisey og hóf að taka á móti loðnu i nótt. Að sögn Jóns Ingvarssonar framkvæmdastjóra tsbjarnarins, er afkastageta þe ssarar fljótandi verksmiðju 1560 tonn á sólarhring, og getur skipið tekiö á móti 3600 tonnum i einu. Á skipinu starfa 50—60 manns. Tækjabúnaður skipsins hefur verið bættur mikið frá þvi aö það var hér siðast á leigu á árunum 1974 og 1975, og má þvi búast viö að mjölnýtingarprósentan bætist mikið frá þvi sem var þá. Leiga skipsins kostar 130 þús. 'norskár á sólarhring og miðað við núver- andi gengi eru það rúmlega 5 milljónir islenzkar krónur. Á6 sögn Jóns Ingvarssonar miöast leiguverðið við að mjölnýting bræösluskipsins sé 16%. Sólar- hringsleigan lækkar um 15 þús- und krónur norskar við hvert pró- sentustigsem fer niður fyrir þetta Frh. á bls. 9 REGNBOGINN: Skipulagsnefnd Reykja víkur var sniðgengin FI — Bygging kvikmyndahússins Regnbogans að Hverfisgötu 54 hefur talsvert verið til umræðu I blöðum og þá helzt verið haft á Stórborgarbragurinn I Reykjavik er dýrt keyptur. Nýtt kvikmyndahús er byggt við Hverfisgötu en engin bilastæöi. Illt er að þurfa aö bægja bílum frá Ibúðarhúsum með trégrindum. orði að I næsta nágrenni þess séu engin bllastæði sjáanleg. Biógest- ir neyðast til þess að leggja bilum slnum upp á gangstéttir og jafn- vel á heilagar biðstöðvar strætis- vagna. Þetta sé til óþæginda fyrir blógesti og ibúa á Hverfisgötu. Allirgeta veriö sammála um þaö. En hvernig stendur á þvi, að leyfi fæst fyrir kvikmyndahúsi á þess- um staö? Hvað segir skipulags- nefnd borgarinnar t.d. um stað- setninguna? Helgi Hjálmarsson arkitekt, en hann á sæti i nefnd þeirri, sem endurskoðað hefur aðalskipulag Reykjavikurborgar, sagöi i samtali við blaðið að hann hefði aldrei haft neitt um málið að segja, þvi, að væntanleg bygging kvikmyndahússins héfði aidrei komið fyrir skipulagsnefnd. — Min skoðun er sú, sagði Helgi, aö þarna hafistór hlekkur brugöizt i keðjunni og ómerkari mál en þetta biómál höfum við i skipu- lagsnefnd fengiö til umfjöllunar. Égfagna aö visu öllu, sem getur orðið til þess aö lifga upp á gamla bæinn, en ég er ekki sammála þessum vinnubrögðum. Ef málið kom ekki fyrir skipu- lagsnefnd, hvemig fór það þá i gegnum borgarstjórn? Hjá borgarstjórnanum Birgi Isleifi Gunnarssyni fengum við þær upplýsingar, að málið hefði feng- ið eðlilega afgreiðslu i borgar- stjórn. Þaðkom borgarstjóranum reyndar nokkuð á óvart, að skipu- lagsnefnd hefði ekki fengið málið til umfjöllunar eins og reglur segja fyrir um og fengust ekki frekari skýringar á þvi. Bókarnir sýna, aö mál þetta hefur varið afgreitt á methraða og ef til vill ekki undarlegt, þótt skipulagsnefnd hafi verið sniö- gengin. Beðið er um heimild til þess að reka kvikmyndahús á Hverfisgötu 54 þann 30. sept. sl. Fjórða október er málið tekið fyr- ir I borgarráði og samþykkt, en óskað umsagnar umferðarnefnd- ar. Sú gefur samþykki sitt 17. okt. og þann 18. er leyfið um kvik- myndahússrekstur samþykkt einróma I borgarráði að uppfyilt- um skilyrðum bygginganefndar, heilbrigðisráös og eldvarnar- nefndar. Alit skipulagsnefndar viröist ekki áriðandi og opnun hússins fer fram á annan i jólum. — Mál þetta hefur verið afgreitt á undarlegan hátt og sýnist helzt hafa fengið pólitiska umfjöllun, sagði Guðmundur G Þórarinsson verkfræðingur i samtali við Tim- ann. — Ekkert var leitað til fag- manna skipulagsneínöarog Ibúar i nágrenni biósins áttu sér einskis von. Slik málsmeðferð er auðvit- að fyrir meöan allar hellur. Kelduhverfi og Mývatnssveit stækka stöðugt AÞ— Við vitum ekki hve mikið Þingeyjarsýslurnar hafa stækk- að, en I umbrotunum fyrir tveimur árum gliðnaði land út I sjó og suður fyrir byggðina I Kelduhverfi um einn og hálfan metra. Gliðnunin átti sér Stað á um fimmtán kilómetra kafla, sem jafngildir um tveimur hekturum. Núna virðist gliðn- unin vera öllu meiri. Fréttir hafa borizt um að það hafi þurft að bæta tveimur metrum I simalinuna og einhverju I rafmagnslinuna. Þannig komst Eysteinn Tryggvason jaröeðhsfræöingur að oröi, er rætt var við hann i gær. Hannsagði aö fyrir um það Frh. á bls.9

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.