Tíminn - 20.01.1978, Page 2

Tíminn - 20.01.1978, Page 2
2 Föstudagur 20. janúar 1978 U ggvænlegar horfur í Mið- austurlöndum — Begin flytur reiðilestur, Sadat virðist svartsýnn Andreotti falið að reyna myndun nýrrar stjornar Róm/Reuter. Giovanni Leone forseti fór þess á leit i gærkvöldi að fráfarandi forsætisráðherra, Giulio Andreotti, reyndi að mynda nýja ríkisstjórn, að þvi er áreiðanlegaar heimildir herma. Stjórn Andreottis afsal- aði sér völdum á mánudag, en i gær varð Andreotti að taka sér ferð á hendur til forsetahallar- innar til að þiggja heimboð for- setans. Búizt er við að ýmis vandkvæði verði á stjórnar- myndun, þar sem kommúnistar fara fram á sæti i bráðabirgða- stjórninni, en flokkur Andreott- is, Kristilegir demókratar eru þvi ákaflega mótfallnir, Andre- otti hefur þó fallist á að reyna stjórnarmyndun. N apalmsprengj um beitt í bar dögunum um Massawa Skæruliöar Frelsishreyfingar Erftreu fagna velgengninni Massawa, E rit rea / R euter. Eþfóplumenn nota sovézkar MIG þotur við að varpa napalm á skæruliöana, sem hertekiö hafa hafnarborgina Massawa, i Eritreu. A hafi úti, átta kilómetra fyrir utan borgina liggja sex her- skíþ , sum keypt frá Bandarikjun- um á sjötta aratugnum, en önnur talin komin frá Sovétrikjunum. Frá skipum þessum er sprengj- um varpað á birgðaflutningaleiö- ir eritriskra skæruliða. 1 Moskvu hefur opinbera frétta- stofan Tass, neitað þvi að herskip og flugvélar frá Sovétrikjunum taki þátt i bardögum, en tilkynnti jafnframt að Sovétmenn veiti Eþiópiumönnum „hentugan tækjabúnaö og tæknilega aöstoö”. Sprengjum ervarpað á borgina af landi og sjó allan liðlangan daginn, en sprengingarnar, sem eru dreifðar og tilviljunarkennd- ar, eyöa borginni hægt og bitandi. Bardagarnir um borgina hafa nú staðið i þrjátiu og fimm daga, og hafa skæruliðar Frelsishreyf- ingar Eritreu 3/4 hluta borgar- innar á sinu valdi. Fremstu skot- grafir skæruliða eru i 50 metra fjarlægð frá stöðvum Eþiópiu- hers. 6.000 eþiópiskir hermenn, sjómenn og vopnaðir bændur eru i herstöðinni i Masowa. Lang- flestir óbreyttir borgarar, sem heimili áttu i Massawa, hafa flúið til nágrannaþorpa og flótta- mannabúöa i nágrenni hennar. Aður en bardagar hófust bjuggu 50.000 manns i Massawa. Eþiópiska setuliöið hefur þegar tapað tveim orrustum við skæru- liða Frelsishreyfingarinnar, og virðist nú biða þess að þeim ber- ist nýjar birgðir vopna frá Sovét- rikjunum, i von um að takast megi að snúa dæminu við. Eritreumenn, sem nú berjast sextánda árið i röð fyrir frelsi lands sins undan stjórn Eþiópiu, beita vopnum sem þeir hafa her- tekiö af andstæðingunum i bardögunum. „Við munum aldrei gefastupp,” sagöieinn afforingj- um skæruliða, ,,en við munum ekki gera árás fyrr en við erum vissir um að vinna fullan sigur”. 130 kilómetra inni i landinu, i borginni Keren, sem skæruliöar Frelsishreyfingar Eritreu náðu á sitt vald fyrir ári, er sextán ára- Kairó, Jerúsalem, Beirut/Reut- er. t gær bundu Egyptar allar vonir um frið í Miðausturlöndum viö Bandarikjamenn, en mögu- legt er að taka upp þráðinn I Jerú- salem að nýju ef bandarískum striðið enn I fullum gangi, þó að borgin liggi nú langt aö baki fremstu viglinu skæruliðanna. Eþi'ópiskar þotur gera enn árásir á Keren, og að sögn skæruliða, einkum á húsnæði óbreyttra borgara, t.d. sjúkrahús. Einn af leiðtogum frelsishreyfingarinnar sagði: „Þetta er sama aðferð og Bandarikjamenn beittu undir lok Víetnamstriðsins”. ráðamönnum tekst að fá tsraels- menn til að gefa enn frekar eftir i friðartillögunum. t Kairó var sagt að Sadat kynni að boða Begin og Carter til fundar. A þeim fundi yrði reynt að leysa deiluna sem sprottin er af þvi, að Sadat krefst þess að tsraelsmenn skili öllu landi er hertekið var 1967. Sadat ræddi við Kamel ut- anrikisráðherra I gær. Ekki er talið útilokað að Sadat muni lýsa þvi yfir að friðarviðræðurnar við ísraelsmenn hafi farið út um þúf- ur. Hann hefur virzt svartsýnni með hverjum deginum sem liðið hefur, og i gær sagði hann i sim- tali við Carter, að israelsmenn sæktust eftir landi, en ekki friði. Menachem Begin réðst harka- lega á viðhorf Egypta til friðar i ræðu i gær, á meðan israelskir leiðtogar reyna að finna lausn á Framhald á bls. 23 erlendar f réttir Spánn: Þingið hlynnt auknu frjáls- lyndi í kyn- ferðismálum Madrid/Reuter. Hórdómur og frillulifnaöur verða brátt ekki taldir glæpir á Spáni samkvæmt frumvarpi, sem samþykkt var I dómsmálanefnd þingsins I gær. Frumvarpiö, sem fer nú til um- ræðu I þinginu. verður aö hljóta samþykki meirihluta þingmanna, áður en það gengur í gildi sem lög. Samkvæmt núgildandi lögum á Spáni er hægt að dæma menn I allt að sex ára fángelsi fyrir hórdómsbrot. Isiöasta mánuði ákvað stjórnin að innleiða lög, sem leyfa notkun og sölu getnaðarvarna I hinu rammkaþólska landi. Þessar að- geröir eru liður i þeirri viðleitni stjórnarinnar að afnema mestu afturhaldslögin, er giltu i stjórnartiö Francos. Kínverjar hyggjast semja við Efnahags- bandalagið BrUssel, Peking/Reuter. Fulltrú- ar Efnahagsbandalags Evrópu og sendimenn Kfnverja munu hefja sam ningaviðræöur varöandi fyrsta viðskiptasamninginn milli þessara aðila i lok janúar. Samn- ingurinn mun koma I stað samn- inga Kinverja við einstakar aðildarþjóðir EBE. Aöildarþjóöir EBE eru næststærsti viðskipta- aöili Kfnverja, næstir á eftir Japönum I röðinni. Af kom múnistaþjóöum eru það aðeins Kfnverjar og Júgóslavar sem viöurkenna Efnahagsbanda- lagið. Franski forsætisráöherrann, Raymond Barre, er nú í opinberri fimm daga heimsókn i Klna. t ræöu I gærkvöldi sagði Teng Hsiao-Ping formaöur, aö Kin- verjar vonuðust til að hagur Ef nahagsbandalagsins héldi áfram að vaxa. Teng sagöi aö með tilliti til ágengni heims- valdasinna væri sameinaður styrkur Evrópu til hagsbóta fyrir þjóðir álfunnar. Indira lögsótt á næstu dögum? mánaða fangelsi. 1 fyrsta lagi verður Indira kærð fyrir að neita að sverja eið að framburði sinum og I öðru lagi fyrir að neita að gefa eiðsvarnar yfirlýs- ingar. Gandhi mætti við yfirheyrslur nefndarinnar, en neitaði að taka sér sæti i vitnastúkunni. Hún svaraði þrábeiðni yfirmanns rannsóknarnefndarinnar og sagðist ekki svara frekari spurningum. Hún hefur einnig neitað að sverja eið og segist ekki lögskyld til þess. Gandhi hefur verið beðin að svara spurningum varðandi aðstæður sem leiddu til þess að neyðarlög voru sett i gildi i júni, 1975. Indira og stuðningsmenn við komuna til motmælafundar I þinginu á nýársdag Indira var handtekin i október siðastliðnum, vegna ákæru um spillingu og valdniðslu, en látin laus eftir að hafa verið einn dag i fangelsi, vegna þess aö ekki lágu nægar sannanir fyrir um sekt hennar. Nýja Delhi/Reuter. Opinber nefnd lagði i gær til að fyrrver- andi forsætisráðherra landsins, Indira Gandhi, verði lögsótt fyrir að neita að bera vitni viö rannsókn á meintri misbeitingu valds i stjórnartið hennar. Gandhi hefur tvivegis hunzað boð nefndarinnar um að henni séskyltað mæta i vitnastúkuna, Formaður nefndarinnar, J.C. Shan hefur nú lagt til aö Indira verði lögsótt fyrir tvö sakarefni, sem hvort um sig varðar sex

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.