Tíminn - 20.01.1978, Qupperneq 10

Tíminn - 20.01.1978, Qupperneq 10
10 Föstudagur 20. janúar 1978 borgarmál borgarmál borgarmál borgarmál borgarmál borgarmál borgar Mengunarvanda verði mætt með viðeigandi aðgerðum Framsóknarmenn leggja fram tillögur um vernd gegn mengun, uppgræðslu lands og breytingar á f j árhagsáætlun Tómlæti varðandi skólplagnir Borgarstjórn leggur áherzlu á, að þess verði gætt i hvivetna, að skaðleg efni frá verksmiðj- um, vinnslustöðvum eöa nær- liggjandi byggð valdi ekki of- mengun vatns, sjávar og and- rúmslofts. Þá áréttar borgarstjórnin fyrri samþykktir sínar um nauðsyn þess að koma frá- rennslismálum borgarinnar i betra horf en nú er, þar sem út- rásir liggja viðast skemmstu leið út fyrir sjávarkambinn og sums staðar i misjafnlega góðar rotþrær inni i byggðinni sjálfri. Telur borgarstjórnin, að allt of mikils tómlætis hafi gætt að undanförnu varðandi úrbætur i frárennslismálum og ekki verði til langframa unað þvi ástandi, sem nú er. Borgarlandið verði grætt Um leið og borgarstjórnin lýs- ir ánægju sinni með þær fram- kvæmdir, sem I gangi hafa verið undanfarin sumur að efla gróð- ur á upplandi borgarinnarj einkum Hólmsheiðinni, leggur hún áherzlu á, að unnið verði markvisst að þvi að stöðva gróðureyðingu á Nesjavöllum og græða upp það land þar, sem beear er orðiö örfoka. Breytingar á fjárhags- áætlun í frumvarpi aö fjárhagsáætl- un Reykjavikurborgar árið 1978 eru tekjur áætlaðar röskar 14.7 milljarðar króna. Eru þá allir tekjumöguleikar nýttir að fullu nema fasteignagjöldin, sem gætu gefið um 300 millj. króna meira, og aðstöðugjöld, sem nýta á meðsama hættiog s.l. ár, en þar mætti láta verzlunina greiða nokkuð meira, eöa um 200 millj. króna. 1 reynd er þó ráðstöfunarfé Reykjavikurborgar all-miklu meira en að framan greinir, þar sem greiðslur frá nágranna- sveitarfélögum vegna starf- semi, sem Reykjavik annast fyrir þau, svo og ýmsar greiðsl- ur frá rlkinu, bæöi vegna rekst- urs og fjárfestingar, eru færðar til frádráttar á útgjaldaliðum og koma ekki fram á heildaryfir- liti. Við gerum þvi að tillögu okk- ar, að við gerö næstu fjárhags- áætlunar fyrir Reykjavikurborg veröi gerðar eftirfarandi breytingar: 1. Allar ráöstöfunartekjur komi fram á yfirliti. 2. Hætt verði að eignfæra fram- lög til S.V.R. 3. Gerð verði timasett áætlun um sjóðsstreymi. GEHÐ VERÐI HEILDARÚTTEKT Á HEKSTHI OG STARFSSKIPULAGI BORGARINNAR Tillaga frá borgarfulltrúum Alþýðubandalags, Alþýðuflokks og Framsóknarflokks: Borgarstjórn samþykkir aö láta gera heildarúttekt á öllum rekstri og öllu skipulagi i starf- semi borgarinnar. Til að framkvæma þetta verði ráðnir utanaðkomandi aðilar, erlendir eða innlendir, sem viðurkenndir eru sem sér- fræðingar i stjórnunar- og skipulagsmálum. Stefnt veröi að þvi að ljúka þessu verki á þessu ári, þannig að niöurstöður og tillögur liggi fyrir við gerð næstu fjárhags- áætlunar. Greinargerð: Eitt hið mikilvægasta I stjórn- un og rekstri fyrirtækja og stofnana er að fylgjast vel með tækninýjungum og sparnaði i rekstrinum. Ekki hvað sizt ber nauðsyn til að leggja áherzlu á þessi atriði, þegar um er að ræða opinbera aðila, sem eru að ráðstafa fjármunum almenn- ings. „Nýir vendir sópa bezt” segir máltækiö. Oft er það svo, að breytingar og nýjungar koma meö nýjum stjórnendum. Stjórnendur Reykjavikurborgar hafa i reynd verið hinir sömu mjög lengi svo sem kunnugt er. Stjórnkerfi borgarinnar hefur þvi farið á mis viö nýju vendina. Þeir, sem þar hafa ráöið, hafa skilið, að öllum breytingum fylgir umstang og fyrirhöfn og þvi verið fastheldnir á forna stjórnarhætti og litlar breyting- ar. Það er þvi meira en timabært, að gerð verði rækileg úttekt hlutlausra aðila á rekstri borgarinnar i heild. Slik úttekt verður hins vegar kák eitt, ef núverandi stjórnendur eiga að annast hana svo sem allir hljóta að sjá og skilja. Þeir borgarfulltrúar, sem skipað hafa minni hlutann i borgarstjórn á undanförnum árum og áratugum, hafa vissu- lega gert sitt til aö benda á það, sem betur mætti fara i rekstrin- um. Um það bera tillögur þeirra órækt vitni. Þær tillögur hafa hins vegar flestar verið svæfðar svefninum langa. Aætlaðar tekjur borgarsjóðs á þessu ári eru um 14.7 milljarö- ar. Það gefur auga leið, að miklu skiptir fyrir alla Reyk- vikinga, að vel sé farið með þetta fé og stór hluti þess fari ekki I að halda gangandi úreltu og stöðnuðu stjórnkerfi. „Þorradægur þykja löng þegar hann blæs að norðan“ GV- Þegar vantar varmaföng vist og heyjaforðann, þorradægur þykja löng þegar hann blæs aö norOan, segir I gamalli húsgangsvisu, og lýsir hún vel þeirri merkingu sem þorrinnhafði fyrir Islenzkt alþýðufólk fyrr á öldum á löng- um, hörðum vetri. En fýrir nú- tima Islending merkir þorra- byrjun þaö helztað nú muni timi þorrablótanna vera runninn upp. Þorrabyrjun, bóndadag, ber nú upp á 20. janúar, en að fornislenzku timatali er þorrinn fjórði mánuöur vetrar og hefst á föstudegi I 13. viku vetrar, þe.a.s. á timabilinu 19.-25. janú- ar. 1 bók Arna Björnssonar þjóð- háttafræöings, Saga daganna, segir um þorra og þorrablót: „JónArnason (þjóðsagnaritari) nefnir að mannfagnaður á fyrsta degi þorra væri enn kall- aður þorrablót. Það orð kemur að fornu aðeins fyrir I Flateyj- arbók, seint á 14. öld, þar sem segirfráfornkonungnum Þorra, sem var blótmaður mikill og haföi hvert ár blót á miöjum vetri. Það kölluöu þeir þorra- blót. Dóttir Þorra hét Góa, en Þorramatur I trogi. Þaö er tiltölulega nýr siöur aö boröa þorramat á þorrablótum. Til forna voru þorrablótin haldin til aö bliöka veöurguöina, en þaö er þvi fjarri aö fólki séu guöir í hug þegar þaö kýlir vömbina á góöum súrmat á þorrablótum. annað konungafólk, sem fyrir kemur i þessari frásögn, heitir t.d. Ægir, Logi, Kári, Frosti og Snær. Ljóst má þvi vera að hér eru höfuðskepnurnar og önnur náttúrufyrirbrigöi persónugerð. 1 þvi samfloti sýnist eðlilegast aölltaá Þorra sem e.k. vetrar- vætti eöa veðurguð.” Siöan greinir Arni frá þvi aö þorra- blótin muni upphaflega hafa veriö haldin til að bliðka veöur- guðina. í bókinni Saga daganna segir frá þvi aö Hafnarstúdentar hafi endurvakiö þann sið að halda þorrablót á fyrsta degi þorra, bóndadegi og haldið fyrsta þorrablótið i nýjum sið, sem vit- að er um I Kaupmannahöfn 24. janúar 1873. Akureyringar tóku þennan sið upp árið eftir, og þar hefur siðurinn haldizt óslitið siðan. í Reykjavik er ekki getið um þorrablót fyrr en árið 1880 og það á vegum Fornleifafé- lagsins sem þá var nýstofnað. 1 blaðinu Norðanfara 1881 birtist frásögn af þorrablóti Fornleifa- félagsins og var salur i stærsta veitingahúsi bæjarins búinn að fornum sið og drukkin full hinna fornu guða og margt fleira haft til skemmtunar. Oti i sveitum er fyrst haldið þorrablót á Fljótsdalshéraöi á árunum 1896-97 og síðan i Eyja- firði laust eftir aldamót og breiðist siðurinn siðan smám- saman út. Nú á dögum eru haldin þorra- blót I hverri sveit og kaupstað, og er þá hafður á boröum is- lenzkursúrmatur, ogvar byrjaö á þessu á árunum i kringum 1960. Þá kemur til sögunnar orð- ið þorramat.ur yfir þann mat sem framreiddur er á sllkum samkomum, entalið er að oröið hafi ekki sézt á prenti fyrr en árið 1958.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.