Tíminn - 20.01.1978, Side 15

Tíminn - 20.01.1978, Side 15
Föstudagur 20. janúar 1978 15 síu fyrir pianó og hljómsveit op. 111 eftir Fauré: Rafael Fruhbeck de Burgos stj. / Sinfóniuhljómsveit Lund- vlna leikur Sinfóniu nr. 2 eft- ir William Walton: André Previn stj. 12.00 Dagskráin. Tónleikar. . Tilkynningar. 12.25 Veðurfregnir og fréttir. Tilkynningar. Við vinnuna: Tónleikar. 14.30 Miðdegissagan: „A skönsunum” eftir Pál Hall- björnsson Höfundur les (17) . 15.00 Miðdegistónleikar Sin- fóniuhljómsveit Utvarpsins I Baden-Baden leikur Sin- fóniu I d-moll eftir Anton Bruckner: Lucas Vis stjórn- ar. 15.45 Lesin dagskrá næstu viku. 16.00 Fréttir. Tilkynningar. (16.15 Veðurfregnir). 16.20 Popp. 17.30 titvarpssaga barnanna: „Hottabych” eftir Lazar Lagin.Oddný Thorsteinsson lýkur lestri þýöingar sinnar (18) . 17.50 Tónleikar. Tilkynning- ar. 18.45 Veöurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til- kynningar. 19.35 Viðfangsefni þjóðfélags- fræðaDr. Svanur Kristjáns- son lektor flytur erindi um rannsóknir á Islenzkum st jórnmálaflokkum. 20.00 Beethoventónleikar finnska Utvarpsins I september s.l. a. „Promet- heus”, forleikur op. 43. b. Pianókonsert nr. 5 I Es-dUr op. 73. Emil Gilels leikur með Fllharmonlusveitinni I Helsinki: Paavo Berglund stjórnar. 20.50 Gestagluggi Hulda Val- týsdóttir stjórnar þætti um listir og menningarmál. 21.40 Kórsöngur.Hollenski Ut- varpskórinn syngur lög eftir » Brahms, Hauptmann, Gade o.fl. Stjórnenaur: Anton Krelage og Franz Muller. 22.05 Kvöldsagan: „Sagan af Dibs litla” eftir Virginiu M. Alexine bórir S. Guðbergs- son les þýðingu slna (2). 22.30 Veðurfregnir. Fréttir. 22.50 Afangar Umsjónar- menn: Asmundur Jónsson og Guðni Agnarsson. 23.40 Fréttir. Dagskrárlok. sjónvarp Föstudagur 20. janúar 20.00 Fréttir og veöur 20.25 Auglýsingar og dagskrá 20.30 Vorfiugan og silungurinn Bresk fræðslumynd um llfrlki árinnar. Myndin er að nokkru leyti tekin neðan vatnsborðs og lýsir lifn- aðarháttum silungsins, og fleiri dýr koma við sögu. Þýðandi og þulur Guðbjörn Björgólfsson. 20.55 Kastljós (L) Þáttur um innlend málefni. Umsjónar maður Helgi E. Helgason. 21.55 Háski á hádegi (High Noon) Einn frægasti „vestri allra tlma, gerður árið 1952. Leikstjóri Fred Zinnemann. Aðalhlutverk Gary Cooper og Grace Kelly. Myndin gerist 1 smábænum Hedley- ville árið 1870. Lögreglu- stjórinn er nýkvæntur og ætlar að halda á brott ásamt brúði sinni. Þá berast hon- um þau boð, að misindis- maðurinn Frank Miller, sem þykist eiga lögreglu- stjóra grátt að gjalda, sé laus úr fangelsi og væntan- legur til bæjarins með hádegislestinni. Þýðandi Jón Thor Haraldsson. 23.15 Dagskrárlok. ('bavid Graham PhiHips: ) 119 SUSANNÁ LENOX G JónHelgason rj&L — Þú munt sanna það, að þetta er auðvelt starf. Og það eru góðir húsbændur, sem við eigum, sér í lagi Jeffries. Náttúrlega er ekki alltaf gott að gera þeim til hæfis, en þeireru góðir húsbændur — af ríkum mönnum að vera. Svafstu illa? — Já, það þeld ég. — Ég mátti ekki vera að þvi að líta inn til þín í gær- kvöldi. Ég var með einum viðskiptavininum. Hvernig leizt þér á húsmóðurina? — Þetta er gæðakona — er ekki svo? Hún nær sér aldrei á strik. Hún þrælar og þjarkar — en ekki fyrir sjálfa sig. Maður verður alltaf að hugsa fyrst og fremst um sjálfan sig í þessum heimi. Þær komu nokkrum mínútum áður en vinnan skyldi hefjast, og María notaði tímann til frekari samræðna, meðan þær biðu þess, að herbergið, þar sem Súsanna átti að búa, væri opnað. — Ég kallaði þig ungfrú Sackville, sagði hún. En þú ert gift kona — eða hvað? — Jú. — Þetta sé ég alltaf — að minnsta kosti sé ég alltaf strax, hvort stúlkur hafa lent í ástaklandri eða ekki. Ég • hef nú eiginlega aldrei verið gift, og ég hef ekki heldur hugsað mér að giftast, nema eitthvað sérstakt bjóðist mér. Heldurðu kannski, að ég fari að giftast einhverjum af þessum skrifstof uþrælum? María svaraði spurningu sinni sjálf með því að hnussa fyrirlitlega. — Þeir vinna varla f yrir sjálf um sér. Og menn, sem eitthvað er við — þeir vilja fá f ínar konur, sem geta hjálpað þeim til þess að koma ár sinni fyrir borð — ekki stúlkur, sem hafa orðiðað vinna. Auðvitað eru undantekningar á þessu. En venjulega verða stúlkur af okkar tagi annað hvort að sætta sig við að vera ógiftar eða taka niður fyrir sig — giftast iðnaðarmanni eða einhverjum slíkum, ó-já. En ég er hvorki svo löt né gráðug í að láta aðra vinna f yrir mér, aðég vilji vinna það til að verða þvottakerling eða elda- buska — eða eitthvað ennþá verra — hjá trésmið eða múrara. Mig langar ekki til þess — eftir að hafa verið boðskona fínustu viðskiptavinanna hérna. Ég get ekki umborið ruddalega menn — menn í ruddalegum fötum, með ruddalegar hendur og ruddalega framkomu. Gætir þú það? Súsanna sneri snögglega undan, svo að María sá ekki framan í hana. — Ég skal ábyrgjast, að það hefir ekki verið fátækur maður, sem þú varst gift. — Ég vil helztekki tala um sjálfa mig, sagði Súsanna með erf iðismunum. — Mér er það ekki að skapi. Hún vísaði vingjarnlegri spurningu Maríu þannig á bug, að hún þykktist ekkert við. Það vakti aðeins meðaumkun hinnar lifsreyndu konu. Hún hélt áfram. — Ojá. Ég vorkenni hverri einustu stúlku, sem neyðist til þess að vinna. Það er svo sem hlutskipti f lestra — og það, sem verra er heldur en vinna í búðum og verk- smiðjum. En ef milli þess er að velja að þræla fyrir venjulegan, skítugan verkamann eða vinna í verksmiðju — ja, þá kýs ég heldur verksmiðjuna. Já, ég vil heldur einhverja sjálfstæða vinnu, hvað lítilfjör leg sem hún er. Ó, ég hata verkafólk! Ég elska allt, sem er fínt. í gærkvöldi borðaði ég humar og drakk vín og þóttist vera f ín stúlka — og, ó hvað ég vár hamingjusöm. Nú voru vörugeymslurnar opnaðar. Súsanna var látin fara i aðskorinn, gljáandi slopp, sem var sérstaklega til þess fallinn að leiða í Ijós hverja línu vaxtarlagsins. María og konan, sem hafði yfirumsjón með birgðunum, aðstoðuðu hana. En það skein ekki sama aðdáun úr svip hennar eins og hinna tveggja, þegar hún leit í einn langa spegilinn í næsta sýningarherbergi. Þessi gljáandi sloppur var andstyggilegur. Henni fannst hún standa þarna nakin — nei, henni fannst hún standa þarna nakin og einhver glápti á hana gegnum rif u eða skráargat. — Þú venst þessu strax, sagði María Hinkle. — Og þú kemst f Ijótt upp á lag með að sýna eins og bezt verður á kosið". Hún rak upp stuttan hlátur. — Þú veizt auðvitað, að viðskiptavinir okkar eru karlmenn. Drottinn minn dýri! Hvílíkt fjandans rusl, sem við prökkum stundum út! Þeir sjá ekki kjólana, heldur stúlkuna, sem í honum er. Og þú ert svo Ijómandi fallega vaxin, Lorna — ein af þeim, sem ég yrði vitlaus eftir, ef ég væri karlmaður. En þó held ég — og nú virti hún sjálfa sig fyrir sér í speglinum — að f lestir karlmenn vilji heldur stúlkur með mínu vaxtarlagi. Er það ekki Simonía? Konan, sem hafði yfirumsjón með vörubirgðunum ók feitum herðunum hirðuleysislega. — Þeir taka það, sem er hendi hæst, — það er mín reynsla. Fyrsti viðskiptavinurinn kom, þegar klukkan var orðin hálf-níu — og það var einmitt Gideon. Hann gekk á milli vöruhúsannattil þess að kaupa varning handa geysilega miklu verzlunarfyrirtæki í Chicago, sem greiddi honum fimmtán þúsund dali á ári, auk ferðapeninga. Hann hafði látið sér fátt um það f innast, sem Jeff ries & Jones höfðu á boðstólum um veturinn, og hrósað hástöfum varningi aðalkeppinauta þeirra. Þeir voru ekki vissir um, hvort hann myndi heldur ætla að hætta alveg að skipta við þá, eða hvort hann var að þreifa fyrir sér um lægra v§rð. Jef f ries kom æðandi inn í herbergið, þar sem Súsanna beið. Flatt andlitið á honum skalf af geðs- hræringu. — Gideon er kominn! hvíslaði hann hásum rómi. — Flýtið ykkur, f lýtið ykkur. Við skulum láta ung- frú Sackville reyna við hann. Og hann snerist sjálf ur eins og snælda meðan Súsanna var færð í Ijósgráan kjól og látin setja upp stóran Ijós- gráan hatt með f jaðraskrauti. Það var búið að segja Súsönnu, hvað hún ætti að gera, svo að hún gat farið beint á fund Gideons, þegar búið var að færa hana i skartið. Jeffries Ijómaði allur, þegar hann sá, hve tígu- leg hún var i fasi. — Hún er alveg eins og drottning, hrópaði hann. — Ég vildi, að ég gæti kennt dætrum mínum svona limaburð. Gideon sat makindalega í hægindastól og reykti vindil. Hann var um fertugt, grannur vexti. Föt hans voru splunkuný. En hann hafði auðsjáanlega látið gamminn geisa síðustu dagana. Magurt, tekið og fýlulegt andlitið minnti á úfinn jagúar, sem búið hefir við nauman kost í heila viku. — Hvað er að? rumdi hann, þegar hann sá að hurðin hreyfðist. — Ég kæri mig ekki um að bíða hér lengi. Frekjulegt og önuglegt augnaráð Gideons blíðkaðist strax og hann sá Súsönnu. „U-hu!" rumdi hann. Hann sat kyrr og hélt vindlinum á lofti milli langra, hvitra fingranna, en Súsanna spígsporaði fram og aftur fyrir f raman hann og sýndi honum kjólinn að f raman og aftan og frá báðum hliðum, og Jeffries hrósaði honurh hástöf um. — Hættið þessu málæði, Jeff ries, sagði hann af þeirri óskammfeilni, sem sá einn gat leyft sér, er mikið átti undir sér. — Ég er dómbær um þetta sjálf ur. — Já, það efar víst enginn, sagði Jef f ries og hló, — en ég get bara ekki á mér setið að tala um þennan kjól, Gideon. Hann er svo bráðsnotur. Kænleg augun í Jeffries Ijómuðu af ánægju, þegar Gideon reis á fætur og fór að þukla á Súsönnu undir því yfirskyni, að hann væri að skoða efnið í kjólnum.------ „Hvers vegna biöur þú hann ekki bara afsökunar, kona góö? Þaö væri miklu ódýrara en aö láta okkur brjóta upp dyrnar.” DENNI DÆMALAUSI

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.