Tíminn - 20.01.1978, Side 23
Föstudagur 20. janúar 1978
23
flokksstarfið
Prófkjör
Utankjörstaðakosning vegna prófkjörs
Framsóknarflokksins i Reykjavik fyrir
væntanlegar alþingis- og borgarstjórnarkosn-
ingar hefst miðvikudaginn 11. janúar og stend-
ur yfir til 21. janúar.
Kosið verður á skrifstofu flokksins að
Rauðarárstig 18 alla virka daga kl. 9.00-17.00,
laugardaga og sunnudaga kl. 13.00-17.00.
Þátttökurétt hafa allir flokksbundnir Fram-
sóknarmenn i Reykjavik, 16 ára og eldri, svo
og aðrir stuðningsmenn flokksins á kosninga-
aldri.
‘Sjálfboðaliðar
Sjálfboðaliðar óskast til starfa i kjördeildum vegna væntan-
legs prófkjörs sem haldið verður 21. og 22. janúar.
Hafið samband við skrifstofuna að Hauðarárstig 18 sem fyrst
og látið skrá ykkur. Simi 24480.
Framsóknarfélag Húsavíkur
Framvegis verður skrifstofan opin á miðvikudögum kl. 18.00-
19.00 og laugardaga kl. 17.00-19.00.
Bæjarfulltrúar verða á skrifstofunni á miðvikudögum og svara
fyrirspurnum.
Hveragerði
Alþingismenningir Þórarinn Sigurjónsson og Jón Helgason
verða til viðtals i kaffistofunni Bláskógum kl. 21.00 þriðjudaginn
24. janúar.
Kópavogur
Framsóknarfélögin i Kópavogi halda sitt árlega Þorrablót
laugardaginn 4. feb. n.k. Nánar auglyst siðar. Stjórnin.
Þorrablót
Þorrablót Framsóknarfélaganna i Reykjavik verður haldið i
Þórscafé fimmtudaginn 2. febrúar kl. 19.00.
Nánari upplýsingar o'g miðapantanir á skrifstofunni Rauðarár-
stig 18. Simi 24480.
Framsóknarfélag Húsavíkur
efnirtil Framsóknarvistar i Vikurbæ sunnudagana 22. og 29. jan-
úar og hefst spilakeppnin kl. 20.30.
Góð verðlaun.
Aðalfundur
Framsóknarfélags Garða- og Bessastaðahrepps verður haldinn
fimmtudaginn 26. janúar kl. 8.30.
Fundarstaður: Gagnfræðaskólinn við Lyngás.
Fundarefni:
Venjúleg aðalfundarstörf.
Kosningarnar i vor.
Inntaka nýrra félaga.
Félagsmenn fjölmennið. Stjórnin
Jólahappdrætti
Framsóknarflokksins 1977
Dregið 23. desember
Ferðavinningar:
1. nr. 18970 til Grikklands 2 fars.
2. nr. 33452 til Grikklands 2fars.
3. nr. 5846 til Costa del Sol 2fars.
4. nr. 6302 til Kanada 2fars.
5. nr. 33470 til Kanada 2frs.
6. nr. 11602 til Las Palmas 2 fars.
7. nr. 20179 til Las Palmas 2 fars.
8. nr. 8802 til Kanarieyja 2fars.
9. nr. 18163 til Costa Brava 2 fars.
10. nr. 10857 til Mallorca 2 fars.
11. nr. 9995 til Mallorca 2 fars.
12. nr. 7009tilTenerife2fars.
samt. 200 þús.
samt. 200 þús.
samt. 160 þús.
samt. 160 þús.
samt. 160 þús.
samt. 160 þús.
samt. 160 þús.
samt. 160 þús.
samt. 160 þús.
samt. 160 þús.
satm. 160 þús.
samt. 160 þús.
Vinningum skal framvisa til Stefáns Guðmundssonar, skrifstofu
Framsóknarflokksins, Rauöarárstig 18. Simi: 24483
Iðnaðardeild 0
um, að sagði Bergþór að við gæt-
um haft meiri hagnað af þvi að
flytja bandið úr landi og láta
vinna úr þvi flikur þar sem ódýrt
vinnuafl er að hafa. Þetta sagði
hann, þýðir þó ekki að þjóðhags-
lega sé hagkvæmt að fara þannig
að hlutunum. Ég veit svo ekki
hvað við getum lengi haldið uppi
þjóðhagslega hagkvæmri stefnu á
meðan hálfopinbert fyrirtæki
flytur út vélprjónaband, sem er-
lendis er notað til að framleiða
fullkomnar stælingar á vörum
sem við höfum mikið fyrir að
vinna markað fyrir. Þetta er
kannski framtiðin, agði Bergþór
að lokum, að flytja ullina til
vinnslu erlendis.
U ggvæ nlegar Q
þeirri ráðgátu hvers vegna Sadat
kallaði Kamel heim I fyrrakvöld.
1 ræðu sinni sagði Begin að Isra-
elsmenn myndu ekki skila svæð-
um þar sem Gyðingar hafa tekið
sér bólfestu i Sinai, og þeir myndu
aldrei leyfa stofnun rikis
Palestinumanna á vesturbakka
Jórdan. Hann sagði, að egypzki
utanrikisráðherrann hefði „gefið
fáránlegri yfirlýsingu en nokkur
gestur fyrr i sögunni” við komuna
til Jerúsalem.
Begin ræddi um það, er Kamel
krafðist þess að Israelsmenn skil-
uðu Aröbum austurhluta Jerúsal-
em, og sagði, að Jerúsalem yrði
um alla eilifð höfuðborg Gyðinga.
Israelskir ráðamenn telja að
þeir hafi ekki móðgað Sadat,
heldur hafi honum veriö farið að
leiðast þófið og þótt Israelsmenn
seinir til tilslakana. Hann hafi þvi
ákveðið að kalla utanrikisráð-
herrann heim.
Ýmsir leiðtogar Arabaþjóða
óttast nú að koma muni til nýs
striðs I Miðausturlöndum eftir að
Sadat dró snögglega að sér hönd-
ina i fyrradag, að þvi er sagði i
fréttum frá Beirut. Sagt er að
Sýrlendingar búi sig undir árás
ísraelsmanna i S-LIbanon og Gol-
anhæðum seinna á þessu ári. Von
er á miklum vopnaflutningum frá
Sovétrikjunum til Sýrlands siðar i
þessum mánuði.
Keflavík
Óskum eftir blaðburðarfólki
Upplýsingar í síma 1373
Húsavík
til sölu
3ja herbergja ibúð á Garðarsbraut 32, til
sölu.
Upplýsingar i sima (96)4-15-07.
YOKOHAMA
ATLAS &
FULDA
snjóhjólbarðar
Mioa haqstætt verð
. „ JLBi
BORGARTÚNI 29
SÍMAR 16740 OG 38900
AUGLÝSING
UM INNLAUSN
VERÐTRYGGÐRA SPARISKÍRTEINA
í 2.FL. 1965
OG NÝJA ÚTGÁFU
SPARISKÍRTEINA í 1.FL.1978
Lokagjalddagi verðtryggöra spariskírteina í 2.fl. 1965 er 20. jan. 1978 cg
bera skírteinin hvorki vexti né bæta við sig verðbótum frá þeim degi.
Fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs hefur á grundvelli fjárlaga þessa árs ákveðið
útgáfu á verðtryggðum spariskírteinum í 1.fl. 1978 að fjárhæð 1000 millj. kr.
Athygli handhafa spariskírteina frá 1965 er vakin á þessari útgáfu með tilliti
til.kaupa á nýjum spariskírteinum, en sala þeirra hefst 14. febrúar n.k. Handhafar
skírteina frá 1965geta hins vegar fráog með 20. þ.m. afhent skírteini sín til Seðlabank-
ans, Hafnarstræti 10, gegn kvittun, sem bankinn gefur út á nafn og nafnnúmer og
staðfestir þar með rétt viðkomandi til að fá ný skírteini fyrir innlausnarandvirði hinna
eldri skírteina.
Bankar og sparisjóðir geta haft milligöngu um þessi skipti til 14. n.m. auk
þess sem nýir kaupendur geta látið skrifa sig fyrir skírteinum hjá venjulegum umboðs-
aðilum til sama tíma.
Er fyrirvari settur um að færa niður pantanir, ef eftirspurn fer fram úr
væntanlegri útboðsfjárhæð.
Kjör hinna nýju skírteina verða þau sömu og skírteina í 2.fl. 1977. Þau eru
bundin fyrstu 5 árin. Meðaltalsvextir eru um 3,5% á ári; innlausnarverð skírteina
tvöfaldast á lánstímanum, sem er 20 ár, en viö það bætast verðbætur, sem miðastvið
þá vísitölu byggingarkostnaðar, sem tekur gildi 1. apríl 1978.
20. janúar 1978
SEÐLABANKI ÍSLANDS