Tíminn - 27.01.1978, Blaðsíða 24

Tíminn - 27.01.1978, Blaðsíða 24
18-300 Auglýsingadeild Tímans. HREVFILL Sfmi 8 55 22 Sýrð éik er sigild eign HU Cilf Út TRÉSMIDJAN MÉIDUR SÍÐUMÚLA 30 • SÍMI: 86822 Starfsmenn Akureyrarbæjar voru I óðaönn aö hreinsa ofan af niöurföllum I Hafnarstræti, er Karl tók þessa mynd. Þessi fyrirhyggja kom sér líka vel, þvidaginn eftir var komin asahláka. Almenningi gefið ráðrúm til að kynna sér skipu- lagstillögur — og rökstuðning að baki þeirra samkvæmt lögum GV — Um nýtt deiliskipuiag á svæðinu viö Hallærisplanið i Reykjavik segir i reglugerð skipulagslaga, að gildi sömu regl- ur og eru i skipulagslögum um formlega auglýsingu aðalskipu- lags. Þetta kom fram á blaða- mannafundi sem haldinn var með stjórn Tórfusamtakanna i gær. Nánar segir um þetta atriði i fréttatilkynningu Torfusamtak- anna: ,,Skv. V. kafla skipulagslaga nr. 19/ 1964 á að auglýsa aðal- skipulagstillögu formlega eftir að borgarstjórn hefur gengið frá henni og skipulagsstjórn rikisins fallist á framlagningu. Tillagan á siðan að liggja frammi almenn- ingi til sýnis skv. sérstakri aug- Tillögur frystideildar Verðjöfnunarsjóðs: FJALLA UM VÆNTANLEGA HÆKKUN VIÐMIÐUNARVERÐS GV — A föstudag verður haldinn fyrsti fundur i frysti- og saltfisk- deildum Veröjöfnunarsjóðs og verða i framhaldi af þvi væntan- lega lagðar fram tillögur um hækkun viðmiðunarverðs til að Vegurinn við Hliðargerði: Ofaníburður hverfur strax SST — Hér er allt svo að segja meö svipuöu móti og veriö hefur undanfarna daga. Þab mælast um 30-50 kippir á klukkustund, allir frekar smáir og upptökin eru i Gjástykki eins og áður tjáöi, sr.' Sigurvin Eliasson á Skinnastaö blaöinu I gær um jarðhræringarn- ar i Kelduhverfi. Vegir hér eru auövitað orðnir illa farnir, en stöðugt er ekið i sprungurnar ofaniburði til að halda þeim opnum og hefur það tekizt hingað til. Hins vegar er nú svo komiö að nær tilgangslaust er aö setja ofaniburð i sprungur á veginum að Hliðargerði, og eru menn að gefast upp á þvi: ofaniburöurinn hverfur alltaf jafnóðum, sagði Sigurvin að lok- um. rekstur fiskvinnslufyrirtækjanna geti gengið áfallalaus. En það er svo ákvörðun rikisstjórnarinnar hvernig þaö verður fjármagnab* sagði Arni Benediktsson for- maður Sambands frystihúsanna i viðtali við blaðið. Arni á sæti i stjórn Verðjöfnunarsjóðs. Eftir að yfirnefnd Verölagsráðs hefur nú ákveðið 13% hækkun fiskverðs verður verð það, sem miða á við fram á vor, ákveðið fyrir hverja fisktegund og fyrir hvern gæðaflokk i frysti- og salt- fiskdeild Verðjöfnunarsjóðs, að þvi er Jón Sigurösson forstjóri Þjóðhagsstofnunar tjáði blaöinu i gær. — Málið er algjörlega óleysan- legt fyrir fiskkaupendur á þessu stígi.sagði Arni Benediktsson.þeir hafa ekki völd til aö gera neitt. Það er nú efst i mönnum, að ef ekki kemur skjótt til aðgerða muni koma til uppsagna starfs- fólks í frystihúsunum. Hér þurfa býsna háar upphæöir að koma til en ég hef engar spurnir haft af að- gerðum stjórnvalda i þessu sam- bandi. Ú tflutningur jókst1977um rúmlega 25% — en innflutningur um tæplega 28 af hundraði JS — Utflutningur landsmanna jókst á siðastliönu ári um 25.5 af hundraði frá árinu áður, miðað við sambærilegt gengi íslenzkrar krónu bæði árin, að þvl er Hag- stofa tslands hefur reiknað út. A hinn bóginn jókst innflutningur til landsins. samtals um 27.8 af hundraðiá sama tima, og munar þar mestu um verömæti inn- fluttra skipa og flugvéla. Inn- flutningur þeirra jókst á árinu um 121.4%, en á sama tima dró úr innflutningi á vegum Lands- virkjunar um ein 56.6 af hundraði. A siðara helmingi ársins 1977 voru fluttir inn tveir skuttogarar frá Noregi, og tveir frá Frakk- landi, en eitt fiskiskip annað frá Færeyjum. Á sama tima voru fimm vöruflutningaskip keypt til landsins. Alls námu skipakaup Is- lendinga á siöara hluta ársins 1977 rúmum sex milljörðum króna. 1 samanburði miltí áranna 1976 og 1977 er gert ráð fyrir 10.5% hækkun gengis erlendrar myntar miðað við islenzku krónuna á milli áranna. Bílainnflutn- ingsmálið: Mikil vinna eftir — segir Erla Jónsdóttir SSt — „Þetta er mun viöa- meira mál en útlit var fyrir i fyrstu og rannsókn þess krafð- ist, að gæzluvarðhaldsvist inn- flytjandans yrði framlengd”, sagöi Erla Jónsdóttir hjá Rannsóknarlögreglu rikisins i samtali viö Timann i gær. Erla vildi ekki tilgreina frekar um hvað rannsóknin snerist einkum þessa dagana, en eins og kunnugt er var gæzluvaröhaldsvist innflytj- andans i bilainnflutningsmál- inu svonefnda framlengd i fyrradag um fjórar vikur. Fyrir rúmri viku lauk hins vegar gæzluvaröhaldsvist bif- reiðaeftirlitsmannsins i Hafnarfirði, sem einnig sat i gæzluvaröhaldi og er viðriðinn málið. Erla sagðist vonast til, að takast mætti að komast langt meö rannsóknina á þessum fjórum vikum, þótt liklegt væri, aö ekki yrðu þá öll kurl komin til grafar. SagöiErla, að flest öll gögn varöandi mál- ið lægju nú fyrir, en mikil vinna væri eftir við úrvinnslu þessara gagna. Eins væru stöðugar yfirheyrslur i gangi, en fleiri aðilar tengdust þó ekki málinu, sagði Erla að lokum. lýsingu sem a.m.k. á að birtast i Lögbirtingarblaði, bæði upp- drættir og greinargerö i 6 vikur, þannig að menn eigi kost á þvi á þeim tima og tveim vikum betur að koma á framfæri athugasemd um við tillöguna. Um þær athuga- semdir þarf borgarstjórn siðan að fjalla,taka til greina eða hafna meö rökstuöningi. Siðan fer máliö á ný til skipulagsstjórnar rikisins sem metur þá.hvort hún mælir með þvi við félagsmálaráðherra að hann staðfesti skipulagstillög- una. Þegar búið er að staðfesta hana á að birta hana i Stjórnar- tiðindum. Þá — og þá fyrst hefur hin nýja tillaga öðlast gildi. Deiliskipulagstillaga eins og hér er um að ræða, það er um Hallærisplanið, á siðan að vera innan þess ramma, sem aðal- skipulagið setur skv. 9 gr. reglu- gerðarnr. 217/1966og þarf a.m.k. þegar um er að ræða land i einka- eign aö fá samskonar meðferð og aðalskipulag þ.e. auglýsingu og staöfestingu. Af þessu sést að skipulagslögin ganga út frá þvi aö almenningi gefist i tvigang i sliku tilfelli sem hér um ræöir gott ráðrúm til aö Framhaid á bls. 23 Mikill vodki lítil mjólk Moskva-Reuter. Vinnustúlkur á Sudnikovsky samyrkjubúinu eiga við vandamál að striða. t þær fer of mikill vodkiog frá kúnum á bú- inu kemur of litil mjólk. Stúlkurn- ar hafa hallað sér að flöskunni með þeim afleiðingum að nyt kúnna datt niöur úr öllu valdi, enda var umhiröa stúlknanna heldur litil á kúnum þegar Bakkus var annars vegar. Leninskoye Znamya sem er dagblað kom upp um stúlkurnar eftir að það hafði fengið fjölda nafnlausra simtala. Sá sem talaði upplýsti blaðið um næstum þvi „dagleg hneyksli”. Ung vinnustúlka sagöi að hún drykki af þvi að henni hundleidd- ist: „Mig langar til þess að dansa og skemmta mér, en það erenginn klúbbur i nágrenninu”, sagöi hún. Eldri vinnustúlkan ■ sagði, að konurnar væru einfaldlega aö slökkva þorsta sinum eftir aö hafa handleikiö kúaspena allan daginn. BMlHirior íólk óskast Timann vantar fólk til blaðburðar i eftirtalin hverfi: Hátún Miðtún Háteigsvegur fjr SÍMI 86-300

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.