Tíminn - 27.01.1978, Blaðsíða 6

Tíminn - 27.01.1978, Blaðsíða 6
Lög um öryggis- búnað smábáta Pálmi Jónsson (S) mælti i gær fyrir eigin tillögu til þings- ályktunar um öryggisbúnaö smábáta og er tillögugreinin svohljóöandi: „Alþingi ályktar aö skora á ríkisstjórnina aö beita sér fyrir því aö þegar verði settar reglur um öryggis- útbúnaö og eftirlit meö opnum smábátum Framsaga Pálma var efnis- lega samhljóöa greinargerö meö tillögunni og fer hún hér á eftir: „Engar lágmarkskröfur hafa enn verið geröar af hálfu opin- berra aöila um flothæfni og öryggisbúnað þeirra báta sem eru 6 metra langir milli stafna eða minni. Ofan þeirra stæröar- marka eru skip og bátar á hinn bóginn skoöunarskyld sam- kvæmtlögum um Siglingamála- stofnunun rikisins. Bátaraf þeirri stærö sem ekki eru skoðunarskyldir hafa alla tið verið notaöir af okkar þjóð á sjó, ám og vötnum i margvis- legum tilgangi. Sú notkun virðist fremur fara vaxandi hin siðustu ár, ekki sizt á þann veg að bátarnir eru notaðir sem leiktæki, gjarnan meö mjög kraftmiklum vélum. Einnig tið- kast nú stofnun sérstakra siglingaklúbba á vegum ungs fólks, þar sem smábátar eru notaðir og má búast við að slik starfsemi fari vaxandi. A sama tima hefur það gerst að trébát- um fer fækkandi en plastbátar koma i staðinn. Plastbátar eru þægilegir i notkun,léttir og með- færilegir, en þeir eru kvikir i hreyfingum., hálir þegar þeir blotna og afsleppir ef út af ber. A undanförnum árum hafa orðið hörmuleg slys hvað eftir annað af smábátum, bæði á sjó og vötnum. Margir hafa þó bjargazt og sumir nauðuglega þegar óhöpp hafa orðið. Ætla má, að slysin hefðu orðið færri og óhöppin ekki eins alvarleg, ef meira öryggis heföi verið gætt I búnaði bátanna. Skal þó öryggisbúnaöi bátsverja sjálfra ekki gleymt. Þessimál hafa orðið mörgum umhugsunarefni á undanförn- um árum. Þau hafa t.d. komið til umræðu hvað eftir annað á þingum Slysavarnafélags ís- lands. A 17. landsþingi Slysa- varnafélags Islands 1976 var m.a. samþykkt svofelld álykt- un: „17. landsþing SVFl haldið i Reykjavik 30.4-2.5. 1976, itrekar fyrri áskoranir sinar til stjórn- valda um setningu sérstakrar reglugerðar fyriropna smábáta 6 metra og styttri. Þingið telur mál þetta hafa dregist úr hömlu og óskar tafar- lausra aögerða i þvi”. Með tillögunni fylgdi eftirfar- andi greinargerð: „Á undanförnum árum hafa mörgslysoröiö ásjó og vötnum, þar sem rekja hefur mátt orsak- ir þeirra til þess að öryggi bát- anna hefur verið ábótavant, enda af opinberri hálfu engar kröfur gerðar til flothæfni þeirra, traustleika eða búnaðar. Þarf þvi nauðsynlega að setja reglur þar um. Aukin smábáta- eign gerir málið enn brýnna, þannig aö vart er sæmandi annað en settar verði reglur um slika báta og notkun þeirra eins og farið er að gera i nágranna- löndum okkar.” Samþykkt samhljóða. íviðtali við dagblaðið Timann 23. ágúst s.l. ræöir Hannes Haf- stein framkvæmdastjóri Slysa- varnafélagsins þessi mál en þetta viðtal er birt sem fylgi- skjal með þessari þings- ályktunartillögu. Siglingamálastjóri hefur að undanförnu unniö aö þvi að kynna sér reglur sem gilda á Norðurlöndum um öryggis- búnað og f lothæfni skemmtibáta i þvi skyni aö þær verði uppi- staða i sambærilegum reglum hér á landi. Þetta ætti að flýta fyrir framgangi þessa nauðsynjamáls sem dregist hefur óhæfilega lengi. Nauðsyn- legt er þó aö þessar reglur nái ekki einvörðungu til skemmti- báta heldur einnig og ekki siður til báta sem notaðir eru i at- vinnuskyni og ekki eru skoðunarskyldir. Þýðingarmik- ið er einnig að reglur af þessu tagi séu ekki of þungar i vöfum og ekki of kostnaöarsamar i reynd, eigi þær aö verða virkar. 1 ábendingu Hannesar Haf- steins sbr. fylgiskjal hér á eftir kemur fram að á plastbátum er nauðsyn að hafa liflinu við bæöi borð ásamt lengri linum til þess að snúa bátnum eða vega sig eftir á kjöl ef honum hvolfir: enn fremur að smábátar yfir- leitt séu búnir talstöðvum og málaðir áberandi litum sem auðvelt er að koma auga á. Þessi atriði eru naumast svo kostnaðarsöm að ofviða séu nokkrum þeim sem eiga að nota báta af þessu tagi á óstæðu vatni. treglum þeim sem hér er lagt til að settar veröi þurfa að vera ákvæði um framkvæmd þeirra oghvernig eftirliti verði háttað. Við fyrstu sýn kann að virðast eðlilegt að sá þáttur málsins sé i höndum Siglingamálastofnunar rikisins. En sé betur að gáð má telja liklegt að af þvi mundi hljótast óhóflegur kostnaður. Þess vegna þarf að finna ódýr- ari lausn. Hugsanlegt er að fela hinum almennu löggæslumönn- um þetta eftirlit og gera þeim jafnframt kleift aö beita viður- lögum, jafnvel taka báta i sina vörzlu, sé fyrirmælum reglu- gerðar ekki hlýtt. Þau atriði þarfnast nánari athugunar, m.a. viðræðna við lögregluyfir- völd. Að ööru leyti sýnist eðli- legt að reglur þessar séu settar i nánu samráði við Slysavarna- félag Islands og Siglingamála- stofnun rikisins. Ég legg mikla áherzlu á að þetta mál má ekki dragast. Slys sem orðið hafa verða ekki bætt. En ef við getum með tiltölulega einföldum reglum og viðráðan- legum kostnaði komið i veg fyrir eitthvað af slysum af þess- um toga i framtiðinni, þá er óverjandi að koma ekki slikum reglum fram.” Föstudagur 27. janúar 1978. [ Ný þingmál: Um velfarnað sjómanna Lögöhefurverið fram á Alþingi tillaga til þingsályktunar um vel- farnað sjómanna á siglingu og i eriendum höfnum. Flutnings- maður tiliögunnar er Benedikt Gröndal (A). Tillögugreinin hljóðar svo: „Alþingi ályktar að fela rikis- stjórninni að skipa þriggja manna nefnd til að gera tillögur um ráðstafanir til að auka vel- farnað islenzkra sjómanna á sigl- ingu og i erlendum höfnum. Nefndin skal sérstaklega at- huga eftirtalin atriöi: 1) Hvernig tryggja megi, að i is- lenzkum skipum verði ekki að- eins sjónvarp, heldur og myndsegulbandstæki. 2) Hvernig unnt veröi að láta festa á segulbönd islenzkt efni, þar á meðal sjónvarpsdag- skrár, og lána böndin til skipa. 3) Hvort ísland getur með þvi að gerast aðili að norrænum eða alþjóðlegum samtökum tryggt sjómönnum þjónustu, þ.á m. lán á kvikmyndum og segul- böndum, i erlendum höfnum. Nefndin skal skipuð þannig, að Sjómannasamband Islands til- nefni einn mann, Farmanna- og fiskimannasamband Islands ann- an, en hinn þriöji sé skipaður af ráðherra án tilnefningar.” Ríkisstjórnin geri útekt á orkubúskap Benedikt Gröndal (A) og Egg- ert G. Þorsteinsson (A) lögöu i gær fram á þingi þingsályktunar- tillögu um orkusparnað og feist i henni ályktun þess efnis aö rikis- stjórninni skuli faliö aö láta gera úttekt á orkubúskap Islendinga og hefja markvissar aögerðir I þvi skyni aö auka hagkvæmni i orkunotkun þjóöarinnar og draga úr henni, þar sem þess er kostur. 1 greinargerö með tillögunni segir m.a.: „Þjóðir heims leggja nú sivaxandi áherzlu á orku- sparnað sem eina af þeim leiðum, sem fara veröur til þess að mæta áhrifum orkukreppunnar. Hafa margvislegar aðgerðir til orku- sparnaðar fengið forgangsröð hjá rikisstjórnum Vesturlanda. Hér á landi er ekki siður ástæða til þess að hefja samræmdar að- gerðir til orkusparnaöar. Með þvi að skera niður orkunotkun sina getur þjóðin bæði minnkað inn- flutning á eldsneyti og eins dregiö úr þörf fyrir stöðugt nýjar virkjanir og stækkun orkuflutn- ingskerfa. Stjórnvöld eiga og verða að hafa virka forustu um aðgerðir til orkusparnaðar.” Stjórnar- frumvarp Lúðviks Lúövik Jósepsson (Abl) hefur nú lagt fram á þingi frumvarp til laga um viö- skiptabanka i eigu ríkisins en áöur var frumvarpiö lagt fram i marz 1974 og þá sem stjórnarfrumvarp, en náöi ekki fram aö ganga. 1 frumvarpinu felst m.a. fækkun viöskiptabankanna úr 3 i 2 meö sameiningu tlt- vegsbankans og Búnaöar- bankans. Sett veröi sam- ræmd löggjöf um viöskipta- bankana og gert ráö fyrir formlegu samstarfi milli rikisviðskiptabankanna. Alþjóðleg gistingar- og ferðamálasamtök: N emendur kynna sér ferðamál í hnotskurn á íslandi GV — Þaö er orðinn árviss at- burður að hingað komi nemendur um miðjan janúar úr hótel- og feröamálaskólum i Bandaríkjun- um til að kynna sér hótelreksturs- og ferðamál á íslandi. Skólar þessir eru reknir af alþjóölegum gistingar- og ferðamálasamtök- um, eninnan vébanda þeirra eru um 5þúsund meðlimir (1000 nem- endur) i 91 landi. David C. Dorf er fræðslustjóri þessara samtaka, og það er hans hugmynd að Island varð fyrir valinu. Og hversvegna ísland og það um hávetur? kynni einhver aðspyrja, en Dorf á svar viö þvi. Hér er hægt að kynnast ferðamál- um og hótelrekstri i hnotskurn. Fargjöld hingað eru ódýrari á vetrum, og mikið er til á prenti um ferðamannalandið Island. Hótel- og ferðamálafólk hefur meiri tima á vetrum til að sinna þessu fólki, svara spurningum þess, sem eru margar og kenna þvi sitt af hverju um þessi mál á tslandi. Þetta er fimmta árið sem þess- ar námsferöir eru farnar og færri 1 BW * Í 1 f j B II ■ Nemendur og kennarar fyrir utan Loftleiöahóteliö. Óhætt er aö vera léttklæddur, en þaö kemur útlend- ingum spánskt fyrir sjónir, aö ekki þurfi aö kappklæöa sig um hávetur ilandi noröur undir pól. komast en vilja. Að þessu sinni var hópurinn litið eitt frábrugðinn þvi sem verið hefur, þvi nú voru jarðfræðinemendur og kennarar með i förinni. I hópnum i ár voru 45 manns og átta þeirra hafa komiðhingað áöur. Nemendurnir snúa svo heim með þessa ný- fengnu reynslu sina og miðla af henni, og ekki er það verra að ferðin er metin inn i námið. Dorf hafði orð á þvi. að vart væru til betri auglýsingar en ferðasaga sem sögð er vinum og kunningj- um, og vist er nokkuð til i þvi. Hver kannast ekki við það, að þegar hann heyrir ferðasögu, vildi hann að hann hefði verið þarna lika? Og ef aðstæðurnar eru hagstæðar, kemur að þvi einn góðan veðurdag, að hann upplifir sömu reynsíu.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.