Tíminn - 02.02.1978, Blaðsíða 20
Fimmtudagur
2. febriiar 1978
^ 18-300
Auglýsingadeild
Tímans.
HREVFILL
Slmi 8 55 22
GiKl
TRÉSMIDJAN MEIDUR
\ SÍÐUMÚLA 30 • SÍMl: 86822
Sýrö éik
er sigild
eign
20% hækkun við-
miðunarverðs
á freðfiski
GV —A fundi stjórnar Veröjöfn-
unarsjóös i gær var ákveðin 20%
hækkun viðmiðunarverðs á freð-
fiski. 1 dag veröur fundaö um við-
miðunarverð saltfisks, og er von
á að ákvörðun liggi fyrir i dag, að
þvi er Arni Benediktsson formaö-
ur Sambands frystihúsa og
stjórnarmeðlimur Verðjöfnunar-
sjóðs tjáði blaðinu i gær. — Ég á
ekki von á að hækkun viðmiðun-
arverðs á saltfiski verði meiri, en
Arni Benediktsson.
það má segja að meö þessum
tveim ákvörðunum sé búið að af-
greiða sjávarútveginn, sagði
Arni.
Mönnum er nú kunnugt að
Veröjöfnunarsjóður frystideildar
er nú tómur. — Rikisstjórnin tek-
ur ábyrgð á viðmiðunarverðun-
um þannig að hún á að sjá til þess
aö afla fjár til að standa undir
þessum skuldbindingum. beir
töluðu um þrjár leiðir i sjón-
varpsþætti i fyrradag, uppfærslu-
leið, millifærsluleið og niður-
færsluleið, en fjórða leiðin er til,
sem er undanfærsluleiö, sagði
Arni.
Svo og sagði Arni að þessi
ákvörðun út af fyrir sig væri ekki
fullnægjandi fyrir fiskvinnsluna,
þó að ekki munaði mjög miklu.
Þar að auki munu menn verða i
miklum vanda, vegna þess tap-
reksturs, sem verið hefur á fisk-
vinnslunni sl. ár. — Að sögn bæj-
arstjóra Keflavikur mun helm-
ingur frystihúsa á Suðurlandi
vera lokaður, og telst það vart til
frétta lengur. En stærri frystihús-
in eru öll gangandi á einhvern
hátt, menn hafa lifað á þvi að
safna skuldum, sagði Arni að lok-
um.
Þann 21. febrúar veröur önnur vélasamstæða Kröfluvirkjunar væntanlega komin i gagnið og virkj-
unin farin að framleiöa fimm megavött.
Vélasamstæóan við Kröflu
gangsett á morgun
frestun um einn dag
F1 — Gangsetningu vélasam-
stæðunnar við Kröflu hefur ver-
ið frestað þar til á morgun, en
upphaflega var ráö gert fyrir
þvi að hjólin færu að snúast i
dag. Að sögn Einars Tjörva Eli-
assonar, verkfræöings Kröflu-
nefndar, er það ekkert stór-
vægilegt, sem veldur frestun-
inni, prófanir undanfarið hafa
gengið vel, en óhreinindi i gufu-
rörum hafa nokkuð tafið undir-
búningsvinnuna.
Einar Tjörvi kvað mælingar
Orkustofnunar sýna fram á
þurra gufu og góða samkvæmt
þeim forsendum, sem þeir hefðu
gefið sér við hönnunina. Aætlað
væri.að gera afltilraunir á vél-
unum þann 5. febrúar og þann
21. ætti Kröfluvirkjun aö geta
fariö að framleiða um fimm
megavött.
Þrir fulltrúar vélaframleið-
enda frá Japan eru 'komnir til
landsins til þess að vera við-
staddir gangsetninguna. Einnig
hönnuðirfrá Roger Engineering
og Sigurði Thoroddsen.
— Ég get ekki annað sagt en
að þetta liti vel út, sagði Einar
Tjörvi, og ég segi, eins og ég hef
áður sagt, að betra er litið af
góðri gufu en mikið af vondri.
Blönduvirkj un:
Ekki rétt að málinu staðið
— sagöi Pórarinn Þórarinsson
Virkjunin ótímabær og
fráleit — sagði Páll Pétursson
KEJ —Allveruleggagnryni kom i
gær fram á stjórnarfrumvarp um
virkjun Blöndu frá tveimur þing-
mönnum Framsóknarflokksins
við framhald fyrstu umræðu i
neðri deild alþingis. Páll Péturs-
son mælti alfarið á móti frum-
varpinu en Þórarinn Þórarinsson
gagnrýndi einkum vinnubrögö
ráðherra og þings varðandi efni
og meðferð frumvarpsins.
Páll Pétursson talaði fyrstur
við umræðurnar og kvaöst álita
að efnahagsvanda þjóðarinnar
mætti að nokkru leyti rekja til
málefna iðnaöarráðuneytis. Hann
minnti á Kröflu, stækkun álvers,
járnblendiverksmiðju og nú ætti
að bæta á afrekalistann Blöndu-
virkjun. Virkjunin væri það stór
og fjárfrek, taldi hann, að hún
gæti ekki miðazt við annað en
stóriðjuframkvæmdir. Hann
benti á ósamkvæmni i orkuspám,
en ef gert væri ráð fyrir 4% aukn-
ingu orkunotkunar á ári fram til
aldamótanna, mætti gera ráð
fyrir að þá yrði nýtanleg vatns-
orka fullnýtt. Það sannaði hversu
fráleitt væri að halda áfram
virkjunarframkvæmdum fyrir
útlendinga hér á landi.
Kvaðst Páll álfta að við ættum
að miða virkjunarframkvæmdir
nú við vel viðráðanlega áfanga
sem væru i einhverju sæmilegu
hlutfalli við orkuþörf og fjárráö
þjóöarinnar.
Frumvarpið um Blönduvirkjun
gerði auk þess ráð fyrir að ein-
hverjum blómlegustu og fegurstu
afréttum landsins yrði sökkt und-
irvatn. Vatnið yrði þriðja stærsta
vatn á landinu og mundi þekja
meira landssvæði en öll ræktuö
tún I Húnavatnssýslu.
Þórarinn Þórarinsson kvað
orðróm um að vinnubrögð alþing-
Bréf rannsóknar-
lögreglustjóra og
Landsbankas tj ór nar
lagt fyrir alþingi í dag
GV — Gert var ráð fyrir þvi i gær
að bréf bankastjórnar Lands-
bankans og bréf rannsóknarlög-
reglustjóra yrði lagt fyrir alþingi
i dag. 1 bréfunum eru þær upplýs-
ingar bankans og rannsóknaraö-
ila, sem hægt er að gefa á þessu
stigi málsins um gang fjársvika-
málsins i ábyrgðardeild Lands-
bankans, sem kært var til rann-
sóknarlögreglunnar skömmu fyr-
ir jól.
A þriðjudag i fyrri viku sendi
viðskiptaráðherra, ólafur Jó-
hannesson, bréf til bankastjórn-
arinnar, þar sem hann óskaði
upplýsinga um gang málsins.
Bréf bankastjórnarinnar barst
ráðuneytinu nú eftir helgi, og á
grundvelli þess, sendi ráðherrann
bréf til rannsóknarlögreglustjóra
sl. þriðjudag og óskaði þeirra
upplýsinga, sem hægt væri að
gefa á þessu stigi málsins um
gang rannsóknarinnar. Að sögn
Eiriks Tómassonar aðstoðar-
manns dómsmálaráðherra var
von á svarbréfi rannsóknarlög-
reglustjóra Hallvarðs Einvarðs-
sonar i dag.
Þórarinn Þórarinsson.
Páil Pétursson.
is væru i afturför sannan aö þvi
leyti, að þingið væri mun fúsara
nú en áður til þess að veita
heimild til ýmissa framkvæmda
sem ekki hefði verið gerð nægileg
grein fýrir. Kröfluvirkjun væri
frægt dæmi um einmitt þetta, og
núverandi iðnaðarráðherra virt-
ist þvi miður hafa tekið sér til
fyrirmyndar þau vinnubrögð sem
voru viðhöfð er heimildar til
byggingar hennar var aflað á
þingi. Frumvarpið um Kröflu-
virkjun, sagði Þórarinn, var
samþykkt af þingmönnum án
þess að fyrir lægju fullnaöarrann-
sóknir og án þess að i frumvarp-
inu væri ákvarðað hverjir mundu
hafa umsjón meö framkvæmd
verksins.
Framkomið frumvarp um
Blönduvirkjun bæri þessi sömu
einkenni sagði Þórarinn, og hann
gæti þvi ekki samþykkt það
oDreytt. Mælti hann með, aö i
fyrsta áfanga yrði rikisstjórninni
falið að vinna áfram að hönnun
Blönduvirkjunar og rannsóknum
i þvi sambandi. Þegar þessu yröi
lokiðogfyrir lægi hverjir ættu að
annast framkvæmdir við bygg-
ingu virkjunarinnar,væri hægt aö
samþykkja málið i heild á
alþingi.
Þá minnti Þórarinn á, að það
samrýmdist ekki stefnu
Framsóknarflokksi ns, að
Norðurlandsvirkjun, sem enn er
ekki til, yrði falin framkvæmd
verksins, og ennþá siður Blöndu-
nefnd, sniðin eftir Kröflunefnd.
Réttara væri að Landsvirkjun
yrði falin framkvæmdin á meðan
enn hefði ekki verið stofnað eitt
fyrirtæki sem annist allar virkj-
unarframkvæmdir og rekstur
virkjana i landinu, eins og þing-
menn Framsóknarflokksins hafa
margsinnis lagt til.
Stjórn Blaðamannafélagsins:
Fer fram á heimild
til verkfallsboðunar
SJ — I gær var sáttafundur i
kjaradeiiu blaðamanna og útgef-
enda. A fundinum voru auk sátta-
semjara Torfa Hjartarsonar,
fulltrúar beggja deiluaðila.
Blaðamenn lögðu kröfur sinar
fyrir sáttasemjar’a. Fundurinn
stóð i 2 1/2 klst.
f dag er fundur i Blaöamanna-
félagi Islands. Rætt veröur um
horfur i kjaradeilunni. Stjórnin
mun farafram á heimild til verk-
fallsboðunar.