Tíminn - 08.02.1978, Síða 2
2
Miðvikudagur 8. febrúar 1978
Emanuel Swedenborg
Sweden-
borgs á
uppboð
London/Reuter.Hauskúpan af
Emanuel Swedenborg, sænska
18. aldar visindamanninum,
dulspekingnum og heim-
spekingnum verður boðin upp
hjá Sothesby i London 6. marz.
talið er að söluverð haus-
kúpunnar verði milli 800 og
1.600 hundruö þúsund isl.
krónur. Hauskúpunni fylgir
skjal sem sanna á að hún sé
ósvikin.
Skýrslan sem fylgir haus-
kúpunni var samin að tilhlut-
an konunglega visindafélags-
ins i Uppsölum 1960 og niður-
staða hennar er, að telja megi
fullsannað að hauskúpa þessi
hafi setið í banakringlu
Swedenborgs. Hjá Sothesby’s
er gefin sú lýsing á haus-
kúpunni aö hún sé „óvenju-
lega langleit, mjóleit og beri
dökkan filabeinslit.” Sagt er
að hauskúpan sé i alla staði
eigulegur gripur, þrátt fyrir
að kjálkabein vanti og hún
beri merki sýnatöku frá þvi að
á henni voru gerðar aldurs-.
ákvarðanir.
Swedenborg lézt i London
1772, en hugmyndir hans og
trúarskoðanir höfðu áhrif á
mörg mikilsverð skáld og má
þar nefna Yeats, Honore de
Balzac, Charles Baudelaire og
Ralph Waldo Emerson.
Ródesía:
Viðræður
hvítra og
þeldökkra
enn án
árangnrs
— aukin harka á
landamærum
Zambíu og
Ródesíu
Lusaka, Salisbury/Reuter. Við-
ræður svartraog hvitra leiðtoga i
Ródesiu hófust aö nýju eftir fimm
daga hlé. Ekkert viröist þó miða i
samkomulagsátt, en hvorki hefur
gengið né rekið í viðræðunum sið-
ustu tvær vikur. Mestu valda nú
deilur milli þeldökku leiðtoganna,
en mikill skoöanamunur virðist
milli Abels Muzorewa, leiötoga
Sameinaða afriska þjóðíarráösins
UANC, og hinna blökkumann-
anna þriggja, er þátt taka i við-
ræöunum fyrir hönd samtaka
sinna.
„Staðan er enn hin sama. —
Þeir deilaenn” sagöi i heimildum
hvitra manna i gær, „þeir eru að
rifast, en enn er timi til stefnu”.
Talsmenn þjóðernissinna sögðu
hins vegar, að ekki hefði miðaö i
samkomulagsátt i viðræöunum i
gær, og leiðtogar UANC virtust
ráðvilltir.
Ródesiski herinn gerði árás inn
i Zambiu I gær, og taliö er að 50
ródesiskir skæruliöar, er bæki-
Framhald i bls. 8 j
Eþíópíumenn í
Ifclsm
stöðugri sókn
— Dayan viðurkennir vopnasölu til Eþíópíu
Nairobi/Reuter. Sómalskir her-
menn flýja nú undan eþiópiska
hernum yfir Ogaden eyðimörkina
aö þvi er sagði I Utvarpinu i Addis
Ababa. Nýju sókninni lýsa
eþiópiskir frammámenn i
höfuðborginni sem „samræmd-
um aðgerðum... til að reka
Sómaliumenn af landssvæðinu”.
Fréttum frá Addis Ababa og er-
lendum sendimönnum i
Mogadishu i Sómaliu ber saman
um að mikil sókn Eþiópiumanna
sé I aðsigi, og er talið að mikill
liösauki frá Kúbu sé nú á leiðinni
til eþiópisku hafnarborgarinnar
Assad við Rauðahafið.
Sovézk herflutningaskip eru á
leiðinni með hermennina en talið
er að þeir verði fluttir til vig-
stöðvanna i Ogaden innan fárra
vikna.
Talið er að gífurlegar árásir
flughers Eþíópiumanna á bæki-
stöðvar Sómaliumanna i Ogaden
séu aðeins forleikurinn að sókn I
landhersins. Upplýsingamála-
ráðherra Eþiópiu Baalu Girma
sagði fréttamönnum I Addis
Ababa i gær að „margir héldu nú
að Eþiópiumenn hyggðust fara |
yfir landamærin til Sómaliu en
það væri ekki rétt, Eþlópiumenn
hyggðust einungis endurheimta
landsvæði sem væri réttilega
þeirra”. „Við veröum að útkljá
þetta vandamál i eitt skipti fyrir
öll” sagði ráðherrann.
Talsmaður herráðsins i Addis
Ababa sagöi, að sigrar hefðu þeg-
ar verið unnir nærri fjallaborg-
inni Harar, sem er einn mikil-
vægasti staðurinn sem barizt er
um á austurvigstöðvum Eþiópiu.
Samkvæmt diplómatiskum
heimildum ertalið að um 3.000 til
6.000 kúbanskir hermenn séu nú á
leiðinni til Eþiópiu. Samkvæmt
bandarískum skýrslum eru 1.500
Sovétmenn þegar fyrir i landinu.
Þetta hefur ekki verið staðfest af
eþiópiskum yfirvöldum og tals-
maöur þeirra i Róm sagði i gær,
að Sovétmann hefðu sent 100
hernaðarráögjafa og lækna til að
aðstoða Eþíópiumenn i striðinu.
Moshe Dayan
Fjárhagsleg aöstoð Sovétmanna
og Kúbubúa hefur ekki farið yfir
eina milljón dollara, sagði tals-
maðurinn ennfremur.
Eþiópíustjórn hefur ekki viljað
telja sóknina i Ogadei) gagnsókn
en undirstrikað aö hér sé um
landvarnirað ræða. Fullvist er aö
sigrarnir sem Eþiópiumenn
vinna nú eru einvörðungu mögu-
legir vegna gifurlegra vopna-
sendinga frá Sovétrikjunum og
Kúbu.
Mörgum kom á óvart i fyrra-
kvöld er Moshe Dayan utanrikis-
ráðherra ísraels staðfesti, að
lsraelsmenn selji nú Eþiópiu-
mönnum vopn. Talsmaður utan-
rikisráðuneytisins sagði, að hér
værium litið magn vopna að ræða,
aðallegaskotfæri og lyf og tæki til
lækninga. Erlendir fréttamenn i
Jerúsalem telja að Israelsmenn
seiji Eþiópiumönnum eldflaugar
til loftvarna, sprengjur og
napalm. Starfsmaður utanrikis-
ráðuneytisins I Israel sagði.að þar
sem riki, sem væru fjandsamleg
Israelsmönnum styddu Eþiópiu-
menn.væri nokkur pólitisk áhætía
fólgin i þessari vopnasölu en talið
væri i Jerúsalem aö réttlætanlegt
væri að taka slika áhættu.
ÁTÖK MILLI SÝRLENDINGA
OG LÍBANA í BEIRUT f jölmargir særðir
Beirut/Reuter. Hermenn úr liði
Libana lentu i átökum við sýr-
lenzka friðargæzluhermenn, og
samkvæmt heimildum frá hægri-
mönnum munu niu manns hafa lát-
ið lifið. Samkvæmt heimildinni
kom til átakanna er libanskir for-
ingjar mótmæltu tilraun sýr-
ienzkra hermanna til að koma
fyrir nýjum vegatálmum nærri
bækistöðvum h'banska hersins i
úthverfi Beirut, Fayyadiya. Ali-
margir munu hafa særzt, sumir
mjög alvarlega.
Ekki var búiö að bera kennsl á
alla hina látnu, en talið var að,að
minnsta kosti tveir Sýrlendingar
hefðu látið lifið. 30.000 hermenn
úr friðargæzluliði Arababanda-
lagsins hafa haftaösetur I Liban-
on, frá lokum borgarastyrjaldar-
innar en megin hluti þeirra er
sýrlenzkur. Friðargæzluliðiö og
libanski herinn, sem sameinaður
hefur verið eftir sundrung
borgarastyrjaldarinnar, sendu i
gær frá sér stutta tilkynningu,
þar sem ekki var minnzt á þetta
atvik. Varnarmálaráðherra
Libanons, Fouad Boutros sendi
hins vegarfrá sér tilkynningu þar
xfomtex
Beirut er enn striðshrjáö borg þó heita eigi aö Sýrlendingar hafi komiö
þar á friöi.
sem hann kvaðst harma þennan
árekstur.
Lengra suður i Líbanon, skipt-
ast stórskotatið libanskra hægri-
sinna, sem studdir eru af ísraels-
mönnum, og palestinskra vinstri-
manna á skotum, en nokkuð
sljákkaði i þeim i gærmorgun.
Bardagar halda stöðugt áfram i
Suður-Lfbanon, vegna þess að
braelsmenn hafa tekið þvert fyr-
ir aö friðargæzlulið Araba komi
suður fyrir svokallaða „rauða
linu”, sem mun vera Litani-áin.
Atburðurinn i gær sýnir hversu
friðurinn, er Sýrlendingar komu á
i Lfbanon fyrir fjórtán mánuðum,
stendur völtum fótum. Það er
einnig ljóst að pólitisk og trúarleg
deilumál Libana eru enn óleyst,
þrátt fyrir að borgarastriðið 1975
til 1976 kræfist 60.000 mannslifa.
Bardaginn i Fayyadiya er
fyrsti meiriháttar áreksturinn
sem vitað er um milli sýrlenzkra
hermanna og libanska hersins,
sem nú er skipaöur mönnum, sem
hvergi voru framarlega i hinum
ýmsu klofningshópum hersins i
borgarastyrjöldinni.
Öryggisráðstefnan í Belgrad:
Lokaniðurstöður líta
enn ekki dagsins
— ráðstefnan framlengd um mánuð?
Belgrade/Reuter. Sendimenn frá
vesturlöndum á öryggisráöstefn-
unni i Belgrad virtust i gær von-
daufir um að nokkur verulegur
árangur verði af viðræðum á ráð-
stefnunni. Likurnar á gagnkvæm-
um tilslökunum minnkuöu eftir
aö Sovétmenn virtust ósveigjan-
legri en nokkrusinni fyrr,einkum
hvaö varðar mannréttindi. „Tim-
inn flýgur frá okkur og ekkert
miðar I átt til samkomulags”
sagði einn af aðalfulltrúunum á
ráöstefnunni. 35þjóöir eiga sendi-
menn á öryggisráðstefnunni i
Belgrade, og eyddu þeir öörum
deginum i röö til aö reyna að
koma saman lokayfirlýsingu eða
samþykkt.
Ráðstefnunni sem sumir eru nú
farnir að kalla Maraþon-ráð- I
stefnu, mun ljúka um miöjan
febrúar. Nú er talin hætta á að
ráöstefnunni verði slitið án þess
aö endanleg niöurstaöa náist.
Boðað var til ráðstefnunnar til að
endurskoöa þróun mála frá þvi að
öryggisráðstefnan var haldin i
, Helsinki 1975. Vesturveldin hafa !
alitaf lagt i.iegin áherslu á mann-
réttindi á ráðstefnunni i Belgrad
og málinu verið þurrlega tekið af
Sovétmönnum og bandamönnum
þeirra.
Er ráöstefnan kom saman til
lokafundar 17. janúar lagði aðal-
sendimaður Sovétrikjanna Yuli
Vorontsov fram þriggja blaðsiðna
uppkast að lokasamkomulagi,
þar sem aðeins var drepið stutt-
lega á mannréttindamál og
minnkun herafla i Evrópu. Full-
trúar NATO-rikja og niu efna-
ljós
hagsbandalagsþjóða hafa haldið
fundi til að semja samkomulags-
uppkast sem svar við tillögum
Sovétmanna.
Taliö er aö ráðstefnan verði
framlengd, fram i marz, reynist
Sovétmenn reiðubúnir að veita
einhverjar tilslakanir. Hlutlausar
þjóðir er sitja ráöstefnuna, Finn-
ar, Austurrikismenn, Sviss-
lendingar ogSviar hafa oröið við
þeirri beiöni að semja vinnuáætl-
un fyrir þann tima er ráðstefnan
verður framlengd.