Tíminn - 08.02.1978, Blaðsíða 5

Tíminn - 08.02.1978, Blaðsíða 5
MiAvikudagur 8. febrúar 1978 ta Hf einl iver L«ar el kki sl íák Enginn hamagangur i 3. umferðinni á Reykjavíkurskákmótinu... Friðrik og Hort vildu ekki tefla í tvísýnu... og sömdu um jafntefli eftir 25 leiki Þeir sem lögðu leið sina á Loftleiðahótelið á mánudagskvöldið hafá eflaust átt von á baráttuskákum i þriðju umferðinni og var fylgzt alveg sérstaklega með skák þeirra Horts og Friðriks. Þeim varð þó ekki að ósk sinni, þvi að flestar skákanna voru rólegar og menn urðu ekki vitni aðeins harkalegum atburðum á skákborðinu og I skák þeirra Friðriks og Larsen á sunnudag. Friðrik og Hort tefldu af varfærni og hvorugur þeirra fékk nokkra sóknarmöguleika, og friðsemdarskák þeirra lauk með jafntefli eftir 25 leiki. Greinilegt var að þarna tefidu menn sem stefna á efstu sætin i mótinu og vilja ekki tefla i tvisýnu. Ahorfendur áttu að sjálfsögðu erfitt með aö sætta sig við jafntefli I skák þeirra og fannst þetta andsk... ekkert tafi,en jafntefli varð staðreynd. Helgi Ólafsson lenti heldur bet- ur í klónum á Larsen sem yfir- spilaði Helga gersamlega og gafst Helgi upp i 31. leik.Miles og Polugaevsky gerðu stórmeistara- jafntefli og tók hvorugur neina „sjansa”, 25 leikir. Browne i stuði Það er siður en svo hægt að segja að Bandarikjamaðurinn Browne hafi byrjað mótið ama- lega. Hann hefur unnið fyrstu þrjár skákirnar og lagt að velli tvo stórmeistara. Á mánudags- kvöldið vann hann Margeir Pétursson i 28 leikjum. Svo viröist sem nýju timamörkin eigi vel við hann. Hann segist sjálfur leika vel i timahraki sem flestum skák- mönnum er afar illa við og reyna að forðast. Það er gaman að fylgjast með Browne við skák- borðið, hann er ýmist á iði eða rennir höndum i ákafa i gegnum þykkt „passiuhárið”. Þess á milli kjagar hann á meðal keppenda. Göngulag hans minnir óneitan- lega á margfrægt islenzkt göngu- lag, þó að ,,tempóið”sé hraðara hjá Browne en landanum. — Sjálfsagt hefur islenzkum áhorf- endum komið frammistaöa Browne i fyrstu umferðunum á óvart, og ekki búizt við að hann færi á stað með slikum „ele- gans”, þó kunnugir menn i skák- heiminum hafi búizt við þessu af honum og spái honum miklu gengi á þessu móti. Og nú er aö sjá hvort hann heldur, áfram á sömu braut. STAÐAN Staðan á Heykjavikurskákmót- inu eftir þrjár umferðir er nú þannig: 1. W. Browne 3 v. 2. -5. Friðrik Ólafsson 2v. 2.-5. V. Hort 2 v. 2.-5. B. Larsen 2v. 2.-6. Guðmundur Sigurjónsson 2 v. 7.-9. W. Lombardy 1,5 v. 7.-9. L. Polugaevsky 1,5 v. 7.-9. G. Kuzmin 1,5 v. 10.-14. Helgi Ólafsson 0,5 v. 10.-14. Margeir Pétursson 0,5v. 10.-14. Jón L. Arnason 0,5 v. 10.-14. J. Smejkal 0,5 + ein skák 10.-14. L. ögaard 0,5 + ein skák Browne sterkastur í timahraki — hefur komið skemmtilega á óvart 3. um- ferð URSLIT ögaard—Kuzmin 0-1 Larsen—Helgi Ólafsson 1-0 Miles — Polugaevsky 1/2-1 /2 Hort — Friörik Ólafsson 1/2-1 /2 Lombardy — Guðm. Sigurjónsson 0-1 Browne — Margeir Pétursson 1-0 Jón L. Árnason — Smejkal 1/2-1/2 — á mótinu, er það Hort ,,Það er nú of snemmt að fara að spá nokkru um úrslit á þessu mótí, sem er nýbyrjað. En ef ein- hver er liklegur til að tapa ekki skák á mótinu er það Hort, hann teflir m jög öruggt, sagði Jón Þor- steinsson, fyrrv. alþingismaður og skákskýrandi, er hann var gripinn glóðvolgur yfir kaffibolla i kaffiteriunni á Loftleiðahótelinu á mánudagskvöldið, þegar þriðja umferðin stóð sem hæst. „Þetta eru allt saman jafnir menn, og það má bóka harða baráttu undir lokin. Ungu mönn- unum hefur ekki vegnað vel til þessa, og virðast þeir ekki hafa mikið að segja i þrautþjálfaða at- vinnumennina, sem kannski er ekki von”, sagði Jón. Um nýja fyrirkomulagið sagði Jón: „Mér lizt vel á það og það hefur aug- ljósa kosti, það sparar biðskákir og hleypir lifi i tuskurnar, og ég er ekki svo viss um að gæði skák- Ekki varð skák þeirra Horts og Friðriks nein baráttuskák eins og margir fyrir báða. Hort virðir þarna fyrir sér áhorfendahópinn sem var til muna umferðunum en Friðrik er meö peð á lofti. Ungu strákarnir eiga er- fitt uppdráttar, Ungu strákarnir, þessir „titla- lausu” hafa enn ekki náð sér á strik enda ekki við nein smá- menni að etja á mótinu. Þeir hafa nú að loknum þrem umferðum allir hlotið hálfan vinning. Jón L. Árnason hefur teflt við þrjá stór- meistara i rennu og farið hallur úr tveim viðureignum. A mánu- dagskvöldið hafði hann sizt verri stöðu á móti Smejkal og svo lauk að hann náði jafntefli. 1 fyrstu umferðinni tefldi hann við Miles og hafði ekki verri stöðu en lenti f bullandi timahraki við 30 leikja mörkin og missti af réttu leiðinni. Helgi hefur tapað fyrir Lombardy og Larsen en jaíntefli varð i skák þeirra Helga og Guðmundar i fyrstu umferðinni. Margeir hefur lent i tveim stórmeisturum, þeim Hort og Browne og tapað fyrir báðum, en gerði jafntefli við Ogaard frá Noregi. Skák þeirra Guðmundar Sigur- jónssonar og Lombardys sem fór i bið á mánudagskvöldið var tefld áttu von á, enda mikiö f húfi fámennari en á fyrstu tveim Tímamynd Róbert. , i gærdag. Almennt voru menn á þvi að Guðmundur væri með unna stöðu sem þó yrði að tefla mjög nákvæmt. Guðmundur átti svo alls kostar við Lombardy i skák- inni sem varð um 10 leikir og Lombardy rétti fram höndina og þar með hafði Guðmundur unnið sina fyrstu skák á mótinu. SSt- Lízt ekki alltof vel á tímamörkin Timinn spjallaði stuttlega við Hort að lokinni skák þeirra Friðriks á mánudagskvöldið þar sem hann var á leið af keppnisstað með sérlegan einkavin sinn, kaffibrúsann, undir hendinni. Hortvar stutt- orður og vildi ekki láta hafa mikið eftir sér. Hann sagði aðeins : Ég get ekki sagt mikið eftir þær umferðir sem búnar eru. Ég er óvanur þessum nýju timamörkum og Uzt ekki sérlega vel á þau svona i byrj- un. En ég á vonandi eftír að venjast þeim. Meira get ég ekki sagt að svo stöddu — og var horfinn með það sama. Jón Þorsteinsson anna minnki svo mjög við þessa nýbreytni. Annars er ekki hægt að segja fyrir um hverjiig þetta reynist fyrr en að loknu mótinu, en þettaer allavega heiðarleg til- raun,” sagði Jón. Um skák þeirra Friðriks og Larsens á sunnudaginn sagði Jón: „Þessi skák varmjög góð af Friðriks hálfu og glæsilega tefld. Eftir þvi sem flestum sýnist hefði Larsen samt átt að geta varizt betur í lokin . Ég býst við að stór- meistarar eigi seinna meir eftir að skoða þessa skák ofan i kjöl- inn, og er alls ekki óliklegt að hún fái sinn sess i skákbókmenntun- um, því Friðrik fór þarna nýja og athyglisverða leiö i byrjun. SST- Róbert ljósmyndara Timans tókst að festa Browne á filmu I þetta sinn en það er varla heiglum hent að mynda þennan iðandi ameríkumann. Browne er nú efstur á mótinu.hefur unnið allar skákir sinar. „Dæmi- gerð skák” Jóhann Þ. Jónsson Frammi á gangi fyrir framan keppnissalinn á Loftleiðahótcli hittum við Jóhann Þ. Jónsson, þegar farið var aö liða á þriðju umferðina á mánudagskvöldið. Það er „vertið” nú hjá Jóhanni Þóri, sem er ritstjóri Skákar og heldur úti skákblaði um einvig- ið meö skýringum keppenda sjálfra og kemur mótsblaðið út eftir hverja umferö. Jóhann sagði um skák þeirra Horts og Friöriks, að hún væri dæmigerð að þvi leyti, að þarna tefldu menn, sem stefndu aö þvi aö verða ofarlega á mótinu og vildu ekki taka neina áhættu, það borgaði sig frekar aö tefla öruggt. Jóhann sagöi, að Brown væri frábær skákmaöur og sér hefði alls ekki komið á óvart frammi- staða hans til þessa. Hann væri nýbúinn að vinna sterkt mót i Bandarikjunum, og væri þvi til alls liklegur núna. SST-

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.