Tíminn - 08.02.1978, Síða 12
12
Miðvikudagur 8. febrúar 1978
í dag
Miðvikudagur 8. febrúar 1978
Lögregía. og slökkvilið
Reykjavik: Lögreglan slmi
11166, slökkviliðiö og sjúkra-
bifreið, slmi 11100.
Kópavogur: Lögreglan simi
41200, slökkviliðið og sjúkra-
bifreiö slmi 11100.
Haf narf jörður: Lögreglan
slmi 51166, slökkvilið simi
51100, sjúkrabifreið slmi 51100.
Heilsugæzla
Slysavarðstofan: Slmi 81200,
eftir skiptiborðslokun 81212.
Sjúkrabifreið: Reykjavík og
Kópavogur, simi 11100,
Hafnarfjörður, simi 51100.
Haf narf jörður — Garðabær:
Nætur- og helgidagagæzla:
Upplýsingar á Slökkvistöð-
inrfi, simi 51100.
Læknar:
Reykjavik — Kópavogur.
Dagvakt: Kl. 08:00-17:00
mánud.-föstudags, ef ekki
næst I heimilislækni, slmi
11510.
Kvöld-, nætur- og helgidaga-
varzla apóteka I Reykjavlk
vikuna 3. febr. til 9. febr. er i
Lyfjabúö Iðunnar og Garðs
Apótek. Það apótek sem fyrr
er nefnt, annast eitt vörslu á
sunnudögum helgidögum og
almennum fridögum.
Ilafnarbúðir.
Heimsóknartími kl. 14-17 og
19-20.
Heimsóknartimar á Landa-
kotsspitala: Mánudaga til
föstud. kl. 18.30 til 19.30.
Laugardag og sunnudag kl. 15
til 16. Barnadeild alia daga frá
kl. 15 til 17.
Kópavogs Apótek er opiö öll
kvöld til kl. 7 nema laugar-
daga er opiö kl. 9-12 og sunnu-
daga er lokaö.
Bilanatilkynningar
Rafmagn: i Reykjavik og
Kópavogi I sima 18230. 1
Hafnarfiröi i sima 51336.
Hitaveitubilanir kvörtunum
verður veitt móttaka i sim-
svaraþjónustu borgarstarfs-
manna 27311.
Vatnsveitubilanir simi 86577. .
Simabilanir simi 95.
Bilanavakt borgarstofnana.
Simi 27311 svarar alla virka
daga frá kl. 17 siðdegis til kl. 8
árdegis og á helgidögum er
svarað allan sólarhringinn.
Félagslíf
Kvenfélag Fríkirkjusafnaðar-
ins I Reykjavlk. Spilakvöld
félagsins veröur fimmtudag-
inn 9. febrúar kl. 8 s.d. I
Tjarnarbúð. Safnaöarfólk fjöl-
mennið og takið meö ykkur
gesti. Stjórnin.
Kvenféiag Grensássóknar
heldur aðalfund sinn mánu-
daginn 13. febr. kl. 20,30 I
Safnaðarheimilinu við Háa-
leitisbraut. Félagskonur eru
hvattar til aö mæta vel og
stundvislega. Stjórnin.
Miðvikudagur 8. febr. kl.
20.30.
Myndakvöld i Lindarbæ niöri.
Arni Reynisson og Jón Gauti.
Jónsson sýna myndir með
skýringum frá Ödáðahrauni,
og viðar.
Aðgangur ókeypis. Allir vel-
komnir meðan húsrúm leyfir.
Ferðafélag Islands.
Mæðraféiagskonur. Af óvíð-
aráðanlegur ástæðum verður
skemmtifundurinn, sem verða
átti 25. febr. færður til laugar-
dagsins 18. febr. — Stjórnin.
islenska ihugunarfélagið
heldur opinberan kynningar-
fyrirlestur um tæknina inn-
hverf ihugun, að Kjarvals-
stöðum fimmtudagskvöld 9.
feb. kl. 20.30 Allir velkomnir.
Föstud. 11/2 kl. 20
Geysir—Guiifoss Gengið á
Bjarnarfell eða Sandfell. Gist
að Geysi sundlaug. Fararstj.
Kristján M. Baldursson. Far-
seðlar á skrifst. Lækjarg. 6A
simi 14606
Einsdagsferð að Gullfossi á
sunnud.
Arshátlð tltivistar verður i
Skiðaskálnum 18/2 Pantið
timanlega. — Otivist
Átthagasamtök Héraðsmanna
minna á árshátið sina I Domus
Medica laugardaginn 11.
febrúar kl. 19.30.
Kirkjan
]
Frikirkjan I Reykjavik:
Föstumessai kvöld kl. 8.30. —
Séra Þorsteinn Björnsson
Haligrimskirkja: Föstumessa
I kvöld kl. 8.30. s.d. A föstunni
verða kvöldbænir og lestur
Passiusálma kl. 18.15 s.d. A
mánudögum, þriðjudögum,
fimmtudögum og föstudögum.
— Séra Ragnar Fjalar Lárus-
son
Áheit og gjafir
Aheit og gjafir til Styrktarfé-
lags vangefinna og dagheim-
ila þess mán. nóv.-des. ’77
ÞH kr. 2.000 SAP kr. 500, LP
kr. 500, RES kr. 500, Edda og
Jakob kr. 500, PA kr. 500, VP
kr. 500 Þakklát kona kr. 1.000,
Grethe Bendtsen kr. 2.400,
Högni Indriðason, Syðra-
Fjalli S~ Þing kr. 4.295, NN i
Bankastræti kr. 300, Velgjörð-
armaður kr. 5.000, ögurhrepp-
ur kr. 2.500, NN kr. 10.000, NN
kr. 2.000 Óskar Þórðarson,
Laugateigi 25, R. kr. 10.000,
NN kr. 400, NN á Laugavegi
kr. 400, Þakklát móðir kr.
3.000, Barði Ólafsson, Bugðu-
læk 3, R. kr. 2.000, Svanhildur
Jónsdóttir, Skeiðarvogi 32, R
kr. 1.000, NN kr. 400, Svavar
Sigurðsson kr. 20.000, Helga
Pálsdóttir og Björn Sigur-
björnsson kr. 8.800, NN. kr. -
500 Arnheiður Gislad. kr
10.000, SB og K kr. 3.000, Sig-
urgeir Sigfússon kr. 50.000, Jó-
hann Gunnar Sigurðsson kr.
100.000, NN I Austurstræti kr.
400, NN kr. 600, NN kr. 100,
Rúdólf Asgeirsson kr. 5.000,
Ólafur Lúðviksson kr.
9.400, VP kr. 500, SAP kr.
1.000,Bjarni Asmundsson kr.
100.000, JÞP kr. 500, Pétur
Arnason og frú kr. 2.000, Lilja
Pétursd. kr. 1.000 Sigriður
Guðmundsdóttir, Hringbraut
56, R kr. 2.500, Auðbjörg Al-
bertsdóttir, Arbraut 3.
Blönduósi kr. 5.000, Helga
ólafsdóttir, Höllustöðum,
Blönduósi kr. 10.000 Söfnun
barna með hlutaveltum nam
alls kr. 120.956. Stjórn
Styrktarfélags vangefinna
flytur gefendum beztu þakkir
og metur mikils þann hlýhug
sem gjafirnar sýna.
Minningarkort
Minningarspjöld Kvenfélags
Neskirkju fást á eftirtöldum
stöðum: Hjá kirkjuverði Nes-
kirkju, Bókabúð Vesturbæjar
Dunhaga 23.Verzl. Sunnuhvoli
Vlöimel 35.
krossgáta dagsins
2700.
Lárétl
1) Rakkana. 6) Stafur. 7) Dreg
úr. 9) Gerast. 11) Sex. 12) Lif-
ir. 13) Stelpa. 15) Leyfi. 16)
Þungbúin. 18) Meðala-
skammtur.
Lóðrétt
1) Helja. 2) Nót. 3) 550. 4)
Bors. 5) Alfa. 8) Stök. 10) ílát.
14) Beita. 15) Ómarga. 17)
Báðum megin viö ess.
Ráðning á gátu No. 2699
Lárétt
1) Alþingi. 6) Ala. 7) Dok. 9)
Mön. 11) Ok. 12) LL. 13) Rit.
15) MDI. 16) Una. 18) Af-
gangs.
Lóðrétt
1) Andorra. 2) Þak. 3) II. 4)
Nam. 5) Innlits. 8) Oki. 10)
öld. 14) Tug. 15) Man. 17) Na.
Irar
— Hvernig hefst blaðafrétt
um irska samkomu?
,,Meðai hinna ákærðu eru...”
—o—
,,Er kerlingin hans O’Briens
sterk?”
,,Sterk? — Hún getur
prjónað gaddavir með tveim
kúbeinum.”
i __J_
,,Má ekki bjóða þér sæti?”
sagði maður I neðanjarðar-
lest viö fallega Irska stúlku.
„Nei takk.ég er að fiýta
mér svo mikið”.
__J_
,,Þú ert f skrýtnum sokkum
O’Deily, annar er rauöur og
hinn grænn.”
„Þaðerennþá skrýtnara,”
sagði O’Delly, „að ég á
annaö par heima sem er al-
veg eins.”
„Er það satt að O’SuIlivan
sé orðinn grindhoraður?”
, ,Ekki segi ég að O’Sulli-
van sé mjór en þegar hann
setur upp rautt bindi litur
hann út eins og hitamælir.”
r
! David Graham Phillips:
3
134
SÚSANNA LENOX
G
Jón Helgason
Þær stóðu þarna hlið við hlið og horfðu út strætiö, þar sem hver
stórbyggingin gnæfði við aðra og ailt vitnaöi um sllkan auð, að það
var blátt áfram eins og það væri verið að hampa honum. Loks mælti
Súsanna:
— Dettur þér aldrei i hug að fyrirfara þér?
— Mér hefur dottið það i hug, svaraði hin, — en ég held, aö ég vilji
ekki gera það. Ailir vita, að þetta er voniaust, en samt heldur maður
áfram að vona. Ég er filhraust ennþá, og stundum gerist ýmislegt,
sem maður gleymir sér við. Þú ættir að dansa — og drekka. Þá vær-
irðu ekki alitaf döpur.
— Ég gerði það, ef ekki væri sólin sagöi Súsanna.
— Sólin? spurði Rósa.
— Það rigndi svo mikið heima, sagði Súsanna, og himininn var
hér um bil alltaf skýjaður. En hér i New York er svo oft sólskin. Ég
er oft alveg að örvilnast, en þegar sólin byrjar aö sklna, segi ég við
sjáifa mig: Ég held að ég geti þraukað eitthvað ennþá, ef sólin
hjálpar mér.
— Þetta hefur mér aldrei dottið i hug, sagði Rósa, en samt er sólin
blessuð náðargjöf.
Súsanna haföi varia bragðað mat siðustu vikurnar. Þegar hún bjó
forðum I fátækrahverfinu i Cincinnati, hafði henni fundizt maturinn
yfirleitt andstyggiiegur. En hún haföi ekki verið eins smámunasöm
þá og nú. Þann mat sem hún hafði efni á að kaupa, gat hún ekki lagt
sér til munns. Og sjálfsagt var það þessi viðurstyggð á matnum,
sem forðaði henni frá að sýkjast. En þrátt fyrir það fór kröftum
hennar hnignandi. Hver dagur saug til sin dálitið af llfsþrótti henn-
ar. Fátæktin sem forðum hafði gert henni gramt I geði, var nú eins
og sefandi eitur. Það var þetta eitur sem átti mestan þátt I þvl, að
hún gerði ekki uppreisn, og það var þetta eitur, sem á sök á deyfð-
inni og sinnuleysinu sem einkennir þá, er alizt hafa upp við fátækt
og eymd I leiguhverfunum. Þessi sjúkdómur sem kallaður er fátækt
er ekki æsandi hann sefar þvert á móti sársauka. Ef Súsanna heföi
fæðzt viö þessi skilyrði myndi hún hafa sætt sig við þetta llf. En eins
og öllu var háttað, sá hún eymd sina og þjáðist mikið — stundum
hræöilega —en sá þróttur sem þurfti til þess að risa upp gegn þessu
þvarr óðum.
Þegar hún hafði borðað kvöidmatinn þetta föstudagskvöld — hálf-
hráan maísgraut og te — byrjaði hún strax aö þvo föt sln-Frú Tucker
sat á tali við konu húsvarðarins þetta kvöld og kom ekki inn fyrr en
um miðnætti. Ilún var að vanda margs vlsari um eymd og volæöi
annarra — fólk sem rekið hafði verið frá starfi sinu, eitranir sjúk-
dóma, slys og dauðsföll — fréttir, sem ekki eru annað en sjáifsagð-
ur þáttur af lifinu i leiguhverfunum. Henni þótti gaman að geta fært
stallsystrum sinum þessi tiðindi sagt rækilega frá hverju einu og
vitnaö svo annað veifið til gæzku guðs við hana sjálfa. Súsanna lof-
aði henni venjulega að rausa eins og hana lysti — hún heyröi það
ekki einu sinni. En þetta kvöld gat hún það ekki. Hún varð aö hafa
hemil á sér til þess að skipa henni ekki að þegja, fór út og stóð lengi
við ganggluggann. Þegar hún kom inn aftur var frú Tucker háttuð
og hraut hátt. En það laðaði ekki aðra til svefns. Hún hafði ekki látiö
breytinguna á slg fá, heldur samið sig fúslega að siðum þess fólks,
sem hún var nú komin á meðal. Hún var orðin álika ruddaleg og á-
lika óþrifaleg og grannarnrnir, og hún vakti Súsönnu þann viðbjóð
að hún hefði alls ekki getað sofið i sama rúmi og hún, ef hún hefði
ekki verið of þreytt til þess að hiröa um þaö, þegar hún lagðist til
svefns.
Frú Tucker hraut allt hvað af tók, en Súsanna hélt áfram að
vinna. Hún gerði eins vel við hvert einasta fat sem hún átti og frek-
ast var unnt.
Um dögun vaknaði frú Tucker og rauk upp I rúminu. Hún nuddaði
stirurnar úr augunum með óhreinum kræklóttum og skorpnum
fingrunum —neglurnar voru sprungnar og upprifnar og skörðóttar
og sumar svartar af óhreinindum. Hvað? ertu komin á fætur? sagði
hún við Súsönnu.
— Ég hef ekki háttað, sagði Súsanna.
Konan teygði sig, reis upp og settist framan á. Hún svaf I öilum
fötunum, nema pilsinu, blússunni og skónum. Hún kraup á kné á
bcru gólfinu og las bæn og reis svo upp með Ijómandi ásjónu. — Æ,
„Sá scm er orðinn nógu gamall til
að honum geti orðið kalt, hlýtur
lika að vera nógu gamall til að fá
rafhitað teppi!”
DENNI
DÆMALAUSI