Tíminn - 08.02.1978, Page 20
3-300
Auglýsingadeild
Tímans.
Japönsk verðlaunamynd
flokkast undir klám að
islenzkum lögum
GV — I gær birtist i fjölmiölum
fréttatilkynning þess efnis aö
Framkvæmdastjórn Lista-
hátiöar heföi ákveöiö aö hætta
viö sýningar á japönsku verö-
launa kvikmyndinni „Veldi til-
finninganna”, vegna þess aö
rikissaksóknari og rannsóknar-
lögreglustjóri teldu opinberar
sýningar á myndinni varöa viö
210 gr. hegningarlaganna nr. 19
frá 1940. þar sem segir aö þaö
varði refsingu eöa sekt ,,að búa
til eöa flytja inn i útbreiöslu-
skyni selja, útbýta eöa dreifa á
annan hátt klámritum, klám-
myndum eða öörum slikum
hlutum eöa hafa þaö opinber-
lega til sýnis...”
Timinn haföi tal af Thor Vil-
hjálmssyni rithöfundi og Hrafni
Gunnlaugssyni rithöfundi, sem
báöir eiga sæti i undirbúnings-
nefnd Kvikmyndahátiðarinnar
og innti þá álits á þessari
ákvöröun rikissaksóknara.
Þetta er mynd sem hefur
veriö kosin af brezku kvik-
myndastofnuninni sem bezta
mynd ársins 1976 og auk þess
hefur hún verið sýnd á kvik-
myndahátiðinni i Cannes, sagöi
Thor Vilhjálmsson. Ég get ekki
fallistá það að banna fullorðnu
fólki að s já mynd,ef þaö kýs þaö
sjálfbsem fariö hefur sem lista-
verk um allan heim. Listin á aö
vera frjáls og slfkamynd eiga
lögreglumenn ekki aö slá föstu
um aö sé klám og segja þar meö
að allir þeir sérfræöingar i list
annars staöar hafi rangt fyrir
sér, sagöi Thor aö lokum.
Þaö hefur gleymst i þessari
umræðu, aö þaö er japönsk
menning.sem býr að baki þess-
arar myndar, sagöi Hrafn
Gunnlaugsson. „Þegar horft er
á mynd frá annarri menningu
eru það sum atriöi sem koma
manni ankannalega fyrir sjónir.
petta er þvi spurning um
menningarlegt mat. Og þaö er
furöulegt aö banna þessa mynd
ef maður hefur i huga aö
sýningar á myndum eins og
,,Járnkrossinn”eruleyföar, þar
sem bitiö er undan manni eöa á
þriðja flokks kvikmyndum eins
og Emmanuelle. Svo er það
annaö atriði sem ekki hefur
komiö fram aö kvikmynd sem
sýnd er I kvikmyndahUsum
fellur undir persónulegt mat
hvers og eins.en aftur á móti á
sjónvarpaö vera ihaldssamt aö
vissu marki i þessum efnum,
þar sem fariö er inn á hvert
heimili. Hins vegar er hér verið
að hafa vit fyrir fullorönu fólki
og striðir þaö gegn minni lifs-
skoðun. Þaö veröur aö treysta á
dómgreind fólks þvi annars
erum viö komin út i eitthvað á
við austantjaldseinræöi eöa
fasisma,” sagöi Hrafn.
Slæmt veiði-
veður hamlar
loðnuveiðum
GV — Slæmt veiðiveöur hefur
örugglega hamlaö veiöum frá þvi
að leiðangursmenn á r/s Bjarna
Sæmundssyni fundu loðnugöng-
una austur af Kolbeinsey, og það
virðist vera mikið magn af loðnu
á allstóru svæði fyrir Norður-
austurlandi, sagöi Guðjón Frið-
geirsson hjá loðnunefnd I viðtali
við Timann I gær,-
1 gær öfluöu 20 skip 7.670 tonn,
sem þykir rétt þokkalegt,miöaö
við þaöaöallurloönuflotinnsækir
nú á miöin. Aflanum var landaö i
svo aö segja öllum höfnum frá
Siglufirði austur til Eskifjarðar.
Banaslys á
loðnumiðunum
Flúðaselsmálið hjá
lögreglustj óraembætt-
inu siðan i nóvember
rannsókn enn á byrjunarstigi
FI — Athyglisvert prófmál var
sent til embættis lögreglustjóra
þann 1. nóv. sl., en það stóð f sam-
bandi við byggingu fjölbýlishúss-
ins að Flúöaseli 76 i Reykjavik.
öll meginatriði voru rakin á sin-
um tfma hér i blaðinu, en þau
voru á þá leiö, að kjallara fjöl-
býlishússins hafði verið breytt i
fbúðarhúsnæðiað hluta til án þess
að fyrir lægi samþykkt teikning.
sjöundu ibúðinni komið fyrir þar
og hún sfðan seld. Sala auka-
fbúðarinnar flækti málið enn
frekar og tókust ekki sættir milli
ibúa og byggingaraðUa, þrátt fyr-
ir tilraunir i þá átt. Málið var
kært fyrir bygginganefnd, en hún
saltaði máUð Ieitt ár, áöur en hún
sendi það lögreglustjóranum til
umfjöllunar. En hvað hefur siðan
gerzt?
Timinn haföi I gær samband viö
fulltrúa lögreglustjóra William
Th. Möller og var hann inntur eft-
ir gangi rannsóknarinnar.
William sagöi rannsóknina enn
á byrjunarstigi. Erfitt heföi veriö
um vik fyrir rannsóknardeildina
aö sinna svo umfangsmiklu máli,
sem þessu Flúöaselsmáli, —
mannekla væri i rannsóknar-
deildinni og fjöldi mála biöi af-
greiöslu. Alitsgeröar frá lög-
reglustjóra væri fyrst aö vænta
sföari hluta næsta mánaöar.
WUliam kvaö af og frá aö hann
myndi salta máliö i eitt ár eöa
svo, og kvaö rannsóknarmenn
sina komna i fullan gang.
SJ —Ifyrrinóttvarð banaslys um
borð I Eldborgu GK 13 á loðnu-
miöunum austur af Langanesi.
Skipverji áEldborgu hlaut höfuö-
högg og lézt skömmu siðar um
borö í rannsóknarskipinu Arna
Friörikssyni.
Slysavarnafélag Islands geröi
þegar f staö ráöstafanir til
sjúkraflugsút á miöin, en áöur en
til þess kom var hjálparbeiönin
afturkölluö þvi maðurinn var lát-
inn.
Maðurinn sem lést hét Garðar
Emilsson, til heimilis aö Hvanna-
lundi 9, Garöabæ. Garðar heitinn
lætur eftir sig konu, barn og
aldraðan föður.
Aukin nýting
allra hagur
HEI —Mikiö hefur verið talaö um
aö bæta þurfi nýtingu f fiskiðnaði
og má gera þaö á margan hátt.
Nú er greitt 12% hærra verð fyrir
fisk i kössum og sagt er aö þaö sé
hagkvæmt, þvi bæöi nýtist fiskur-
inn betur og meira af honum er
hægt aö framleiöa sem flök, sem
þá aftur seljast á hærra veröi.
Iheimsókn i frystihús Bæjarút-
gerðarinnar heyröi blaöamaöur,
hjá mörgum konum sem þar
vinna, áhuga á þvi aö notfæra sér
þá möguleika er gefast viö þær
breytingar, sem nú standa yfir, til
aö taka upp bónuskerfi viö launa-
greiðslur.
Þetta ætti að veröa hagkvæmt
fyrir báöa aöila, fyrirtækiö og
verkafólkiö. Verkafólkið ætti að
fá hærri laun fyrir styttri vinnu-
tima og fyrirtækiö betri nýtingu
hráefnisins, en sú hefur reynslan
veriö viöast hvar, enda byggjast
bónusgreiðslur fyrst og fremst á
nýtingu. Heyrzt hefur, aö fyrir
hvert % sem nýting hráefnis
batnaöi, i frystihúsi á stærö viö
B.Ú.R., ykjust tekjurnar um 10
milljónir. A þvi ættu allir aö
græða.
Fjölbýlishúsiö að Flúðaseli 76. Byggingameistarinn vék frá samþykkt-
um teikningum bygginganefndar.
Opinn fundur um
Framsóknarstefnuna
JS — Nú á laugardaginn verður
efnt til fundar á vegum Fram-
sóknarflokksins um drög aö yfir-
lýsingu um meginatriði Fram-
sóknarstefnunnar. Þessi drög
hafa veriö unnin af sérstakri
nefnd innan flokksins en með
þessum fundi er ætlunin að gefa
flokksmönnum sem áhuga hafa
og tök hafa á aö sækja fundinn,
tækifæri til aö fjalla um drögin
áöur engengiö veröur frá þeim til
endanlegrar afgreiöslu.
Fundurinn veröur haldinn i
kaffistofu Hótel Heklu,
Rauöarárstig 18 og hefst kl. 4 e.h.
1 upphafi fundarins flytur Stein-
grimur Hermannsson ávarp en
framsögu flytur Markús A.
Einarsson formaöur nefndarinn-
ar, sem unniö hefur aö málinu.
Undan farna mánuöi hefur
veriö starfandi innan Fram-
sóknarflokksins nefnd.sem unnið
hefur aö þvi aö taka saman yfir-
lýsingu um meginstefnu og hug-
sjónir Framsóknarmanna sem
stutt og aðgengilegt yfirlit um
meginþætti Framsóknarstefn-
unnar. Aflaö hefur veriö gagna og
rætt mjög ýtarlega um ýmis at-
riöi samfélagsþróunar og
þjóöfélagshátta eins og fram-
vindan hefur oröiö á slðari árum
og enn fremur um framtfðarhorf-
ur út frá grundvallarsjónar-
miðum félagshyggjumanna.
Endanleg drög nefndarinnar
veröa lögð fyrir flokksþingFram-
sóknarmanna i marzn.k. til um-
ræöu og afgreiöslu.
Hallarekstur
hiá B.Ú.
— söluverðmæti framleiðslu
hrekkur fyrir hráefnis-
og launakostnaði
HEI— Bæjarútgerð Reykjavik-
ur er meöal stærstu fyrirtækja á
landinu, starfa þar aö jafnaöi
450 manns.
Afli togara Bæjarútgeröar-
innar áriö 1977 var 15.343 tonn i
96 veiðiferöum, aflaverðmætiö
var um 1.1 milljaröur.
Greidd vinnulaun útgeröar-
innar voru920 milljónir til 1.700
launþega.
Söluverömæti framleiöslu
B.Ú.R. sama ár er um 2 mill-
jaröar.Séu þessar tölur bornar
saman veröur útkoman sú aö
framleiöslan dugar aöeins til
greiöslu hráefnis og launa.
Rekstrarreikningar B.Ú.R.
fyrir áriö 1977 eru ekki tilbúnir
ennþá en frá áramótum til
ágústloka er taliö aö tap á
togurunum hafi numiö 120
milljónum. Ljóst er aö stóru
togararnir eru mikið óhag-
kvæmari i rekstri. Afla þeir
nánast ekkertmeira þótt öll út-
gerö þeirra sé miklum mun
kostnaöarsamari og áhöfn fjöl-
mennari. Á siöasta ári var
m.a.s. minnsti togarinn meö
mestan afla.
Fyrirsvarsmenn Bæjarút-
geröarinnar telja þó ekki
ráðlegt aö reyna að fá minni
togara i skiptum fyrir þá stærri
þvi gott veröi aö hafa mikiö
lestarrými er fiskigengdin vex
aftur á miðunum. Aöeins er
óskandi aöþeir veröiekki orönir
að brotajárni fyrir þann tima.
A ferð i Bæjarútgerðinni snar-
stanzaði ljósmyndarinn er hann
sá unga stúlkunota kaffitfmann
tilað skrifa bréf.Sjaldgæft er að
rekast á slíkt og tslendingar
jafnvel heimsfrægir fyrir að
svara nánast aldrei bréfum sem
þeim berast. Kom lika á daginn
aðhér var dönsk stúlka að skrifa
heim og skulum við vona að hún
beriokkur ekki illa söguna.
Tfmamynd Gunnar.