Fréttablaðið - 13.08.2006, Blaðsíða 91

Fréttablaðið - 13.08.2006, Blaðsíða 91
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000 ������������������������������ ������������������������������ �������������� ������� ���������� ���� ������������ �������������� � Iceland Express, Grímsbæ, Efstalandi 26, Sími 5 500 600 Fullorðinsverð frá:7.995 kr. www.icelandexpress.is Iceland Express býður 2.000 flugsæti aðra leiðina á sérstöku tilboðsverði. Tilboðið gildir fyrir flug á alla áfangastaði okkar á tímabilinu 21. ágúst – 15. október. 2.000 FLUGSÆTI Lægsta verð, aðra leiðina með sköttum: 5.145 kr. Bókaðu á www.icelandexpress.is Um er að ræða valdar dagsetningar og takmarkað sætaframboð. Smelltu þér á www.icelandexpress.is og skutlaðu þér til London, Kaupmannahafnar, Stokkhólms, Gautaborgar, Berlínar, Frankfurt Hahn, Friedrichshafen eða Alicante á hlægilegu verði. Fyrstur bókar, fyrstur fær! SALA HEFST Á HÁDEGI Á MORGUN kl.12.00 Fyrir utan þær fréttir að hugsan-lega mun forysta Framsóknar- flokksins heita Jón, Jónína og Birk- ir Jón voru stærstu pólitísku tíðindi vikunnar sjálfsagt glæpsamlegar lundaveiðar Einars K. Guðfinns- sonar sjávarútvegsráðherra. VIÐ sem heima sátum supum hveljur þegar ráðherra gekk fram fyrir skjöldu og játaði í sjónvarpi að hafa veitt lunda í Grímsey á Ströndum án veiðikorts. Þegar þjarmað var að honum kom í ljós að þetta var síður en svo í fyrsta sinn sem Einar gerðist sekur um sama athæfi því árum saman hefur hann veitt fugla í trássi við lög. Talið er að fórnarlömbin hlaupi á hundruðum og eftir því sem næst verður komist hefur enginn ráð- herra í sögu lýðveldisins veitt jafn marga lunda í leyfisleysi. FULLUR iðrunar hafði ráðherra sér það til málsbóta að glæpurinn hefði ekki verið framinn af fólsku heldur fáfræði. Æðsta yfirmann einnar mikilvægustu auðlindar landsins grunaði hreinlega ekki að svipaðar reglur (þótt rýmri séu) giltu um fugla og um þorskinn. Þá vita kvótabraskarar til hvaða skýr- inga þeir grípa ef þeir verða gripn- ir glóðvolgir. NÚ skal alls ekki gert lítið úr alvöru þess að veiða lunda án veiði- korts en það er eitthvað svo dásam- lega íslenskt við þetta allt saman. Hneykslismál hér á landi eru oftar en ekki svo hjákátleg í hversdags- leika sínum; ráðherrafrú reynir að smygla skinku til landsins, þing- maður stelur gangstéttarhellum og starfsbræður hans tveir eru teknir fyrir ölvunarakstur. Hafskips- málið vakti litla athygli á sínum tíma þangað til Helgarpósturinn greindi frá því að forráðamenn Hafskips hefðu látið sérmerkja golfkúlurnar sínar. Þá hófst eitt mesta hitamál síðustu ára með þrasi tveggja manni um vínber! Og í þau skipti þar sem atburðarásin sjálf virðist ekki hjákátleg er séð til þess að nafngiftin á henni sé það. Hvar annar staðar væri jafn alvarlegur atburður og þegar forsætisráð- herra sakar auðkýfing um að reyna að múta sér með háum fjárhæðum kallað „bolludagsmálið“? ÓNEITANLEGA væri það meira spennandi en lundar, vínber og golf- kúlur ef upp um það kæmist að ríkisstjórnin hefði bruggað erlend- um þjóðhöfðingja launráð, héldi forsprakka stjórnarandstöðunnar í stofufangelsi eða eitthvað þaðan af kræsilegra. En þegar öllu er á botn- inn hvolft verðum við sjálfsagt að sætta okkur við að í reykmettuðu bakherbergjunum á Íslandi er lík- lega einhver ráðherrafrú að reykja skinkulæri. Stóra lundamálið ����������������������� ����������
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.