Fréttablaðið - 13.08.2006, Blaðsíða 2
2 13. ágúst 2006 SUNNUDAGUR
LÍBANON Öryggisráð Sameinuðu
þjóðanna hefur samþykkt álykt-
un þar sem krafist er að vopna-
hléi verði komið á í Líbanon. Ætl-
ast er til þess að ríkisstjórnir
Ísraels og Líbanon staðfesti
ályktunina, sem kveður á um
„algjöra stöðvun á hernaðarátök-
um“. Þetta kemur fram á frétta-
vef breska ríkissjónvarpsins,
BBC.
Í ályktunininni segir að liðs-
menn Hizbollah-samtakanna
skuli hætta öllum árásum og að
Ísrael hætti sókn sinni inn í Líb-
anon strax. Allt að fimmtán þús-
und friðargæsluliðar Sameinuðu
þjóðanna verði sendir til landa-
mæra Líbanons og Ísraels til
aðstoðar líbanska hernum við að
fylgja eftir vopnahléinu. Ísraels-
menn dragi her sinn til baka í
áföngum. Einnig eru Ísraelar
hvattir til að semja um lausn líb-
anskra fanga í Ísrael og þess
krafist að ísraelskum hermönn-
um í haldi Hizbollah verði
sleppt.
Ríkisstjórn Ísraels mun ræða
ályktun öryggisráðs Sameinuðu
þjóðanna í dag og kjósa um hvort
hernaðarátökum verði hætt. For-
sætisráðherra Ísraels, Ehud
Olmert, hefur beðið ríkisstjórn
sína um að staðfesta ályktunina,
hún sé jákvæð og viðunandi.
Forsætisráðherra Líbanons,
Fouad Siniora, gaf einnig í skyn
að vopnahléð yrði staðfest af Líb-
anon. Hann sagði ályktunina sýna
að allur heimurinn hafi staðið
með Líbanon. Samkvæmt leiðtoga
Hizbollah, Hassan Nasrallah,
ætla samtökin að virða vopna-
hléið. Þó sagði hann í sjónvarpsá-
varpi í gær að liðsmenn Hizbollah
myndu halda áfram að berjast
svo lengi sem ísraelskur her sé í
Líbanon.
Herafli Ísraela í suðurhluta
Líbanon heldur áfram að aukast.
Yfirmaður ísraelska hersins, Dan
Halutz, segir að ísraelskur her
verði í Líbanon þar til friðargæslu-
liðar Sameinuðu þjóðanna komi til
landsins.
Yfir eitt þúsund Líbanar og yfir
hundrað og tuttugu Ísraelar hafa
látist í átökunum sem hófust með
ráni skæruliða Hizbollah á tveim-
ur ísraelskum hermönnum hinn
12. júlí. salvar@frettabladid.is
LEIKSKÓLAMÁL Fjölda starfsmanna
vantar til starfa á leikskólum í
Kópavogi, að sögn Unnar Stefáns-
dóttur, leikskólastjóra á Urðar-
hóli.
„Um mánaðamótin erum við að
missa mikið út af sumarafleys-
ingafólki og fáir hafa sótt um þær
stöður sem auglýstar hafa verið.“
Í fyrrahaust þurfti að senda
börn heim úr leikskólum í Kópa-
vogi vegna manneklu með tilheyr-
andi óþægindum fyrir foreldr-
ana.
Sesselja Hauksdóttir, leik-
skólafulltrúi í Kópavogi, segir
stöðuna hafa breyst til batnaðar á
allra síðustu dögum og nú vanti
um fjörutíu manns til starfa. „Mér
sýnist staðan betri en í fyrra og
geri ekki ráð fyrir að hjá okkur
verði lausar stöður fram eftir
hausti eins og þá.“
Sesselja þakkar þessar breyt-
ingar að nokkru þeim lagfæring-
um sem gerðar voru á launakjör-
um starfsfólks leikskóla í
Kópavogi síðasta vetur.
Þrátt fyrir þetta segir Sesselja
skort á leikskólakennurum alltaf
jafn alvarlegan. „Þá vildi ég gjarn-
an sjá meira af umsóknum inn á
leikskólana til að geta valið úr
góðu fólki.“
Sesselja segir að þrátt fyrir
mannekluna hafi könnun sem
gerð var meðal starfsfólks leik-
skóla í Kópavogi sýnt að það sé
ánægt í starfi og líði vel á vinnu-
staðnum. - sdg/hs
Mannekla hjá leikskólum í Kópavogi:
Tugi starfsmanna vantar
LEIKSKÓLABÖRN Fáir hafa sótt um þær
stöður sem auglýstar hafa verið á leikskól-
um í Kópavogi.
Öryggisráð SÞ samþykkir
ályktun um vopnahlé
Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna hefur samþykkt vopnahlésályktun um átökin í Líbanon. Leiðtogi Hizbollah
segist ætla að virða vopnahléið fari Ísraelar frá Líbanon. Ísraelar sækja fram af auknum krafti í S-Líbanon.
ÍSRAELSKIR SKRIÐDREKAR Þrátt fyrir ályktun um vopnahlé heldur herafli Ísraela áfram að aukast í suðurhluta Líbanons. Yfirmaður hersins
segir ísraelskan her verða í landinu þangað til friðargæsluliðar komi. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
HVAÐ ÞARF AÐ GERAST TIL AÐ
VOPNAHLÉ KOMIST Á Í LÍBANON?
Hizbollah hætti árásum á Ísrael
Ísraelar hætti hernaðaraðgerðum í
Líbanon
Fimmtán þúsund friðargæsluliðar fram-
fylgi vopnahléi
Líbanskir hermenn sendir í suðurhluta
landsins
FLUG Flugfélag Íslands hefur tekið
tvær nýjar vélar í notkun. Þær
verða notaðar í ýmsum verkefn-
um fyrir félagið en verkefni í
Grænlandi hafa vaxið að undan-
förnu. Þetta kemur fram í tilkynn-
ingu frá félaginu.
Vélarnar, sem eru af tegund-
inni DASH 8, kosta um sjö hundr-
uð milljónir króna. Þær hafa ýmsa
eiginleika sem ekki hafa verið í
boði á íslenskum flugmarkaði, svo
sem að þurfa stutta flugbraut og
þola meiri krossvind en sambæri-
legar vélar. Flugfélagið hefur nú á
tíu flugvélum að skipa. Heildar-
farþegafjöldi félagsins á síðasta
ári var um 350 þúsund. - sþs
Floti Flugfélags Íslands stækkar:
Tekur í notkun
tvær flugvélar
NÝ FLUGVÉL Vélarnar þurfa stutta flugbraut
og þola meiri krossvind en sambærilegar
vélar.
SRÍ LANKA Átök milli Tamílatígra
og hersins á Srí Lanka fara harðn-
andi og eru nú þau mestu síðan
samið var um vopnahlé fyrir fjór-
um árum síðan.
Þorfinnur Ómarsson, talsmaður
íslenskra friðargæsluliða á Srí
Lanka, segir viðbúnaðarstig þeirra
hafi verið aukið en enginn hafi verið
kallaður burt enn sem komið er.
Átökin eru hvað mest í bæki-
stöðvum tígranna á Jaffna-
skaganum og flýðu þúsundir borg-
ara í kirkjur á meðan á átökum
stóð. Herinn segir 27 úr þeirra
liðum hafa látist og 80 særst í
átökum á svæðinu í gær. Þá áætlar
herinn að á milli 100-150 Tamíla-
tígrar liggi í valnum eftir átökin.
Jörundur Valtýsson hjá utan-
ríkisráðuneytinu segir framtíð
íslenskra friðargæsluliða verða
meðal þess sem til umræðu verði
á fundi utanríkisráðherra Íslands
og Noregs á morgun. Með norska
utanríkisráðherranum verður Jon
Hansen-Bauer, sem er sérlegur
sendifulltrúi Norðmanna á Srí
Lanka.
Jörundur segir að íslensk
stjórnvöld muni taka ákvörðun
um framtíð íslenskra friðargæslu-
liða á Srí Lanka í ágústmánuði.
- hs
Um 200 látnir í harðnandi átökum milli Tamílatígra og hersins á Srí Lanka:
Friðargæsla eykur viðbúnað
SRI LANKA Átökin milli Tamílatígra og hersins eru nú þau mestu í fjögur ár. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
SPURNING DAGSINS
Júlli, flaug fiskisagan til Dal-
víkur í gær?
„Nei, fiskisagan var skrifuð á Dalvík.”
Fiskidagurinn mikli var haldinn hátíðlegur
á Dalvík í gær. Þar var yfir hundrað þúsund
matarskömmtum sporðrennt af um þrjátíu
þúsund gestum. Júlíus Júlíusson er fram-
kvæmdastjóri hátíðarinnar.
LÖGREGLUMÁL Átján ára karlmað-
ur hefur verið ákærður af lög-
reglunni í Reykjavík fyrir að
hafa í vörslu sinni stolna skart-
gripi sem hann vissi að voru
þýfi.
Maðurinn hafði í geymslu, á
heimili foreldra sinna án þeirra
vitundar, fimm pör af eyrnalokk-
um, tvö úr, fimm armbömd, sjö
hálsfestar og nælu, samtals að
verðmæti um hálf milljón króna.
Mununum hafði verið stolið úr
íbúðarhúsnæði í Reykjavík í
október árið 2004.
Ákæruvaldið krefst refsingar
yfir manninum, en hann er fædd-
ur seint á árinu 1987. - æþe
Kærður fyrir hylmingu:
Var með stolna
skartgripi
Fanginn fundinn Hilmar Ragnarsson,
fanginn sem lögreglan í Reykjavík lýsti
eftir nú fyrir helgi, er kominn í leitirnar.
Hilmar er fangi á Litla-Hrauni en strauk
af læknastofu í Lágmúla síðastliðinn
þriðjudag.
LÖGREGLUFRÉTTIR
Fækkað í hernum Tyrkneski
herinn verður minnkaður um þrjátíu
prósent á næstu árum, að sögn æðsta
herforingja Tyrklands, Yasar Buyukanit.
Jafnframt verður útbúnaður hans gerður
nýtískulegri, svo í raun verður hann
áhrifaríkari, þótt færri hermenn muni
starfa í honum. Tyrkneski herinn er
annar stærsti herinn í NATO, á eftir þeim
bandaríska.
TYRKLAND