Fréttablaðið - 13.08.2006, Blaðsíða 34
ATVINNA
14 13. ágúst 2006 SUNNUDAGUR
Fá góða undirstöðu í
tæknigreinum og fræði-
greinum tengdum leiklist.
Starf leikarans er afar fjöl-
breytt. Hann tekur þátt í
uppsetningum á leikritum í
leikhúsi, ýmist sem leikari
eða leikstjóri, leikur í kvik-
myndum, sjónvarpsleikritum
og -myndum, auglýsingum,
söngleikjum, útvarps-
leikritum og tekur þátt í
margs konar annarri starf-
semi sem krefst þess að ein-
hver bregði sér í eitthvert
hlutverk.
Leikari kennir leiklist og
framkomu. Að auki talar
leikari inn á auglýsingar,
teiknimyndir og ýmsa sjón-
varpsþætti og segja má að
talsetningar skipi stóran
sess í starfi leikarans á
Íslandi. Helstu vinnustaðir
eru Þjóðleikhúsið, Borgar-
leikhúsið, Leikfélag Akur-
eyrar og sjálfstæðu leikhús-
in, sjónvarp og útvarp. Auk
þess vinna leikarar við kvik-
myndagerð og hjá talsetn-
ingarfyrirtækjum.
Um námið
Meginuppistaða námsins
er fólgin í leiktúlkunar-
kennslu. Að auki fær nem-
andinn góða undirstöðu í
tæknigreinum, til dæmis
Alexandertækni, raddbeit-
ingu, hljóðmótun, líkams-
þjálfun og söng svo og eftir-
töldum fræðigreinum:
Leiklistarsögu, heimspeki
og greiningu leikbók-
mennta.
Helstu námsgreinar
Leiklistardeild Listahá-
skóla Íslands býður upp á
nám í leiklist. Um er að
ræða 120 eininga nám til
B.F.A. gráðu. Megináhersla
er lögð á sjálfstæð vinnu-
brögð nemandans með það
fyrir augum að virkja sköp-
unarhæfileika hans og efla
þá eiginleika sem gera
honum kleift að verða góður
listamaður. Náminu lýkur
með B.A. ritgerð og þremur
lokaverkefnum í nemenda-
leikhúsi.
Inntökuskilyrði eru stúd-
entspróf en að auki þurfa
umsækjendur að þreyta
inntökupróf. Inntöku- próf-
ið er í fjórum áföngum og
eftir hvern áfanga er fækk-
að í hópi umsækjenda, fyrst
í um það bil 64, þá 32, síðan í
16 og loks eru 8 umsækj-
endur valdir úr til þess að
hefja námið. Námið er láns-
hæft hjá Lánasjóði íslenskra
námsmanna. Fjölmargir
erlendir skólar bjóða leik-
listarnám og margir Íslend-
ingar hafa stundað námið
erlendis.
Framhaldsmenntun
Fjölbreytt framhalds-
nám sem snýr að leiklist og
leikhúsfræðum er í boði við
ýmsa erlenda háskóla.
(Upplýsingar fengnar af www.idan.is)
Leiktúlkun og sjálfstæð vinnubrögð
Heilsaðu öllum með handabandi
og leggðu nöfn þeirra og starfs-
heiti á minnið. Taktu í hendina
á öllum, líka þeim sem tekur á
móti þér.
Mundu að allflestir eru
óstyrkir við þessar kringumstæð-
ur. Það á við um umsækjendur
og oft ekki síður þá sem taka
viðtölin.
Yfirleitt eru fleiri en einn aðili
úr fyrirtækinu sem taka viðtalið.
Láttu þá um að hefja samtalið.
Horfðu á þann sem talar og svar-
aðu þeim sem spyr. Hlustaðu
vel á spurningarnar og spurðu ef
eitthvað er óljóst.
Sýndu að þú hafir áhuga á
starfinu. Ekki tala niðrandi um
fyrri yfirmenn eða fyrri störf.
Oft er það þannig að þó
umsækjandi sé vel undirbúin
þarf ekki að vera að sá sem
tekur viðtalið sé það. Því má
búast við ýmsu, sumir tala mjög
mikið en aðrir eru rólegir.
Þegar viðtalinu er lokið er oft
spurt hvort þú hafir einhverj-
ar spurningar. Þú hefur að
sjálfsögðu leyfi til þess að spyrja
spurninga. Margir eru óvissir
hvort þeir eigi að spyrja um laun,
frí og slíka hluti í fyrsta viðtali.
Engin regla er til um þetta, en
þú skalt að minnsta kosti ekki
hafa þessar spurningar efstar
á listanum. En það getur verið
frekar jákvætt að spyrja að fyrra
bragði um starfið, starfsemina,
vinnuaðstæður, frítíma, yfirvinnu
og samstarfsfólk.
Fáðu uppgefið hvenær þú
megir hringja til þess að fá upp-
lýsingar um hvort þú hafir verið
ráðin/n. Mundu eftir að hringja á
þessum tíma.
Nefndu að ef þú fáir ekki
starfið hafir þú áhuga á að vera
á skrá áfram ef skyld störf losna.
Þakkaðu fyrir og kveddu alla
með handabandi.
(www.am.is)
Í atvinnuviðtali
... og verða mikilvægur hluti af sístækkandi, samhentum og skemmtilegum
hópi. Fyrirtæki ársins 2006 óskar nú eftir starfsmönnum í almenn lagerstörf í
mjög fullkomnum vöruhúsum í Skútuvogi og Draghálsi þar sem mikið er lagt í
aðbúnað starfsmanna.
Unnið er á vöktum sem skiptast þannig:
Vika 1: mán-fim 7:00-14:00 og föst 7:00-19:00.
Vika 2: mán-fim 14:00-24:00 og frí á föstudögum.
Reynsla af lagerstörfum og lyftarapróf er kostur.
Allt duglegt fólk, konur sem karlar er hvatt til að sækja um.
Nánari upplýsingar gefur Hafsteinn Ingibjörnsson í síma 580-6600 eða hi@danol.is sem jafnframt
tekur við umsóknum.
Umsóknarfrestur er til 21. ágúst.
Danól er stærsta fyrirtækið á sviði matvöruinnflutnings á Íslandi. Hjá fyrirtækinu starfa um 60
manns. Danól vill stuðla að því að starfsfólki líði vel og hafi tækifæri til að vaxa í starfi. Sölufólk
okkar heimsækir reglulega verslanir, fyrirtæki og veitingahús um allt land og er sölu- og dreifingark-
erfi Danól með því fullkomnasta sem gerist. Meðal þekktari vörumerkja Danól eru Nestlé, Merrild
kaffi, Burton’s, Daloon, Hatting, Findus, Göteborg’s kex, Oroblu, Duni, Haribo og Mentos. Danól er til
húsa við Skútuvog 3, þar sem 4500 palla vörulager okkar er staðsettur og Draghálsi 12.
Viltu vinna hjá
fyrirtæki ársins
www.toyota.is
Toyota á Íslandi
Nýbýlavegi 2 - 8
200 Kópavogur
Sími: 570-5070
Starfsmaður óskast í fullt starf
í Vefdeild Toyota á Íslandi
Starfssvið:
- Almenn vinna við að setja efni inn á vefi fyrirtækisins
- Myndvinnsla og uppsetning
- Önnur verkefni tengd vefumsjón
Hæfniskröfur:
- Þekking á HTML forritun
- Reynsla í notkun Photoshop og Macromedia Flash
- Færni til að læra á og nýta ýmis veftengd forrit
- Reynsla af vinnu við vefumsjónarkerfi er kostur
Toyota á Íslandi sækist eftir einstaklingi sem er
metnaðargjarn, samviskusamur, jákvæður og lipur í
mannlegum samskiptum.
Áhugasamir sendi umsókn á atvinna@toyota.is
merkt „Vefdeild“.
Umsóknarfrestur rennur út 21. ágúst.
Nánari upplýsingar veitir Fanný Bjarnadóttir
í síma 570-5070 eða á netfanginu fanny@toyota.is
Komdu og keyrðu með okkur
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
T
O
Y
33
72
0
8/
20
06
Toyota á Íslandi er innflytjandi
Toyota bifreiða, vara- og aukahluta.
Starfsmenn fyrirtækisins byggja
gildi sín og viðmið í starfi á The
Toyota Way: Stjórnunar-, þjónustu-
og mannauðsstefnu Toyota.
Gagnkvæm virðing og náin
samvinna eru hornsteinar í daglegri
starfsemi Toyota á Íslandi. Hverri
áskorun er tekið fagnandi hendi og
leita starfsmenn stöðugt leiða til að
tryggja áframhaldandi framfarir í
öllu því sem við kemur starfsemi
fyrirtækisins og þjónustu gagnvart
viðskiptavinum þess.
HVERNIG VERÐUR MAÐUR...
LEIKARI?