Tíminn - 31.03.1978, Síða 3
Föstudagur 31. marz 1978
3
ii.lliJ.il‘Lllt.
Framboðslisti Framsóknarflokksins
í Norðurlandskjördæmi vestra
A aukakjördæmisþingi i
Norðurlandskjörkæmi vestra,
sem haldið var i Miðgarði 23.
marz siðastliðinn, var framboðs-
listi Framsóknarflokksins í kjör-
dæminu fyrir alþingiskosning-
Ólafur Jóhannesson
Jón Ingi Ingvarsson
arnar 25 júni 1978 samþykktur
einróma, með öllum greiddum at-
kvæðum, enda hafði farið fram
prófkjör um 5 efstu sætin eins og
kunnugt er. Framboðslistinn er
þannig skipaöur:
Brynjólfur Sveinbergsson
1. Ólafur Jóhannesson, ráðherra,
Reykjavik.
2. Páll Pétursson, bóndi,
Höllustöðum.
3. Stefán Guðmundsson, fram-
kvæmdastj., Sauðárkróki.
Stefán Guðmundsson
Helga Kristjánsdóttir
4. Guðrún Benediktsdóttir, kenn-
ari, Hvammstanga.
5. Bogi Sigurbjörnsson, skattend-
urskoðandi, Siglufirði.
6. Jón Ingi Ingvarsson, rafv.
meistari, Skagaströnd.
Guðrún Benediktsdóttir
Sverrir Sveinsson
7. Brynjólfur Sveinbergsson
mjólkurbússtj. Hvammstanga.
8. Helga Kristjánsdóttir, húsfrú,
Silfrastöðum.
9. Sverrir Sveinsson, rafveitustj.,
Siglufirði.
10. Gunnar Oddsson, bóndi, Flat-
artungu.
Bogi Sigurbjörnsson
Gunnar Oddsson
Finnsk skáld
kona stödd hér
— i boði Norræna hússins
ESE Þessa dagana er stödd hér
á landi i boði Norræna hússins
finnska skáldkonan Eeva
Jovenpelto. Jovenpelto, sem er á
sextugsaldri, nýtur mikilla vin-
sælda i heimalandi sinu fyrir
skáldverk sin, en alls hefur hún
sent frá sér 18 skáldsögur, sem
flestar hafa verið þýddar á önnur
tungumál, s.s. Norðurlandamálin,
pólsku og tékknesku. A.m.k. ein
bóka hennar hefur verið þýdd á
islenzku, þ.e. Mærin gengur á
vatninu i þýðingu Njarðar P.
Njarðvik árið 1962, en fyrirhugað
mun vera að þýða fleiri verk eftir
hana og má i þvi sambandi geta
þess að Kristin Mantyla vinnur nú
að þýðingu einnar bókar hennar.
Yrkisefni Eevu Jovenpelto er
einkum sótt til þriðja áratugar
þessarar aldar, og eru henni eink-
um hugstæð hlutskipti og störf
verkamanna og þeirra sem yrkja
jörðina. Jovenpelto hefur lagt á
það rika áherzlu að fara rétt með
allar þjóðli'fslýsingar, og i þvi
sambandi hefur hún lagt stund á
lesturfræðirita,til þessaðfásem
bezta innsýn i það sem hún ritar
um á hverjum tima. Eitt sinn
þegar hún vann að bók, þar sem
maður sem vann við sútun skinna
kom við sögu, tók Jovenpelto sig
til og kynnti sér sútusarstarfið af
gaumgæfni til þess að engar
sögulegar né faglegar villur
kæmu fyrir i bókinni.
Eeva Jovenpelto mun dvelja
hér á landi fram á mánudag og
mun hún nota timann til þess að
sjá sig um i nágrenni Reykjavik-
ur. A morgun kl. 16 heldur hún
fyrirlestur i Norræna húsinu,
sem hún nefnir hinir Grýttu vegir
rithöfundarins.
,,Apríl gabb”
Sinfóníuhljómsveitar íslands
Svolátandi fréttatilkynning hefur
borizt frá Sinfóniuhljómsveit ts-
lands:
„Laugardaginn 1. april n.k.
heldur Sinfóniuhljómsveit Islands
aukatónleika i Háskólabiói og eru
þetta miðnæturtónleikar sem
hefjast kl. 23.30.
Tónleikar þessir eru með all-
nýstárlegu sniði meö tilliti til
dagsins 1. april. Viða um heim
eru haldnir tónleikar þennan dag
og hafaþeir verið kallaöir „April-
gabb”.
Sinfóniuhljómsveit tslands
hefur fengið 4 erlenda listamenn
til að stjórna og taka þátt i þess-
um tónleikum. Skal þar fyxstan
telja háðfuglinn og tónlistargagn-
rýnandann Denby Richards, en
hann hefur sviðsett svipaða tón-
leika og þessa þennan dag 12
sinnum i London við mikla hrifn-
ingu. Þá kemur einnig frá London
tónskáldið og stjórnandinn
Joseph Horovits, en hann stjórnar
hér tveimur verkum eftir sjálfan
sig, m.a. hinum fræga Jazz-kon-
sert fyrir pianó og hljómsveit, en
einieikari i þessu verki veröur
Rhondda Gillespie frá Astraliu.
Hún er mjög frægur pianisti og
hefur haldið tónleika viða um
heim.
Að lokum skal nefna enska tón-
skáldið Paul Patterson, en hann
stjórnar einu verki eftir sjálfan
sig er hann nefnir Rebecca. Að
ööru leyti er efnisskráin mjög létt
og mun hljómsveitin bregða á leik
I orðsins fyllstu merkingu. Auk
ofangreindra munu nokkrir is-
lenzkir einsöngvarar taka þátt.i
þessu spaugi.”
Eeva Jovenpelto
Skakþing UMFI:
Sveit Bolungar-
víkur sigurvegari
Arlegu skákþingi Ungmennafé-
lags Islands er nú lokið. Otslita-
keppni á skákþingi ársins 1977 fór
fram i Reykjavik 18. og 19. marz
sl. og voru sex sveitir frá aðildar-
félögum sambandsins mætta
til leiks.
Skákmeistari UMFt 1977 varð
sveit Ungmennafélags Bolungar-
vikurog hlaut hún 14 vinninga, en
röö hinna sveitanna varð sem hér
segir:
2. sveit Vikverja
3. sveit UMSK
4. sveitUSAH
5. sveit UMSE
ö.sveit UIA
111/2 v.
11 v.
9 v.
7 1/2 v.
7 v.
Skákþing UMFt hefur verið háö
árlega frá 1969 og hefur sveit
UMSK oftast borið sigur úr být-
um á þessum tima eða sex sinn-
um alls, HSKeinu sinni og UIA
einu sinni.
Verðlaunagripurinn, sem skák-
meistari UMFl hlytur hverju
sinni til varðveizlu, er haganlega
útskorinn skákriddari, sem á sin-
um tima var skorinn af Jóhanni
Björnssyni myndskera.
Undirbúningur fyrir skákþing
UMFt 1978 er þegar hafinn og fer
úrslitakeppnin fram á 16. lands-
móti UMFI sem haldiö verður á
Selfossi 21.-23. júli i sumar.
(Frétt frá UMFt).
Verða að segja
upp starfsfólki
í prjóna- og saumastofum norðanlands
JB— Ekki horfir vænlega fyrir
prjóna- og saumastofum á Norð-
urlandi og eiga þær i erfiðleikum
vegna verkerfnaskorts. Hefur
þetta komið niðurá starfsfólki, og
t.d.. hefur þurft að segja upp
fjórðungi starfsfólks hjá Pólar-
prjóni á Blönduósi.
—Það hefur verið mikiö óvissu-
ástand i þessari grein, þó litillega
hafi rætzt úr þvi. En það hefur !
dregið mjög úr verkefnum og litiö
verið að gera. Gátu sumar
prjónastofur t.d. ekki hafið fram-
leiðslu fyrr en i siðasta mánuði,-
sagði Zophonias Zoponiasson,
framkvæmdastjóri Pólarprjóns,
en hann er jafnframt formaður
samtaka prjóna- og saumastofa á
Norðurlandi, sem i eru fyrirtæki
m.a. á Hvammstanga, Siglufirði,
Sauðárskróki, Húsavik og Rauf-
arhöfn. Ein aöalorsök erfiðleik-
anna er að sögn Zophoniasar sú
að engir samningar hafa enn ver-
iðgerðir við Rússa um sölu. Það
mun hins vegar afleiðing þeirrar
verðlasgsþróunar, sem verið hef-
ur hér á landi að þvi er hann
sagði.
-Asiðasta ári, hækkaði hráefni
um 65% og laun um 60%. Þegar
gera þarfnýja samninga, verðum
við aö kynna viðskiptavinum okk-
ar verð, sem er 10-12% hærra en
það var i fyrra, en þeir eru bara
ekki reiðubúnir að kyngja þvi
svona strax. Við gerum okkur þó
vonir um að pantanir fari að ber-
ast og samningar náist við Rúss-
ana er liður á árið,- sagði
Zophonias. Þá vildi hann taka þaö
fram, að það hefur skabað isl.
prjóna- og saumaframleiðslu að
eftirlíkingar á islenzkum vörum
hafa komið á markaði erlendis
undanfarið. Hafa þær verið aug-
lýstar unnar úr islenzkri ull og
eru boðnar á allt að 30% lægra
verði. Kvað Zophonias þetta
ákaflega varhugaveröa þróun.