Tíminn - 31.03.1978, Qupperneq 14
14
Föstudagur 31. marz 1978
í dag
Föstudagur 31. marz 1978
Lögregla. og slökkvílið
Heilsugæzla
Slysavaröstofan: Slmi 81200,
eftir skiptiboröslokun 81212.
Sjúkrabifreiö: Reykjavfk og •
Kópavogur, simi 11100,
Hafnarfjörður, simi 51100.
Hafnarfjörður — Garöabær:
Nætur- og helgidagagæzla:
Upplýsingar á Slökkvistöö-
inni, simi 51100.
Læknar:
Reykjavik — Kópavogur.
Dagvakt: Kl. 08:00-17:00
mánud.-föstudags, ef ekki
næst i heimilislækni, slmi
11510.
Kvöld-, nætur- og helgidaga-
varzla apóteka I Reykjavik
vikuna 24. til 30. marz er i
Lyfjabúð Breiðholts og Apó-
teki Austurbæjar. Þaö apótek
sem fyrr er nefnt annast eitt
vörzlu á sunnudögum, helgi-
dögum og almennum fridög-
14-17 og
'Hafnarbúðir.
Heimsóknartimi kl.
19-20.
tleimsóknartimar á Landa-
kolsspitala: Mánudaga til
föstud. kl. 18.30 til 19.30.
Laugardag og sunnudag kl. 15
til 16. Barnadeild alla daga frá
kl. '.5 ti! 17.
Kópavogs Apótek er opið öll
kvöld til kl. 7 nema laugar-
daga er opiö kl. 9-12 og sunnu-
daga er lckað.
Bilanatilkynningar
Rafmagn: i Reykjavik og
Kópavogi i sima 18230. 1
Hafnarfirði i sima 51336.
Hitaveitubilanir: kvörtunum
veröur veitt móttaka i sim-
svaraþjónustu borgarstarfs-
manna 27311.
Vatnsveitubilanir simi '86577. .
Simabilanir simi 05.
Bilanavakt borgarstofnana.
Simi 27311 svarar alla virka
daga frá kl. 17 siödegis til kl. 8
árdegis og á helgidögum er
svaraö allan sólarhringinn.
Félagslíf ]
Reykjavik: Lögreglan simi'
11166, slökkviliðið og sjúkra-
bifreið, simi 11100.
Kopavogur: Lögreglan simi
41200, slökkviliöið og sjúkra-
bifreiö simi 11100.
Hafnarf jörður: Lögreglan
simi 51166, slökkvilið simi
51100, sjúkrabifreiðsimi 51100.
Fyrirlestur i MlR-salnum á
laugardag
Laugardaginn l.aprilkl. 15.00
ræðir Mikhail M. Bobrof,
sovéskur iþróttaþjálfari sem
hér starfar, um likamsrækt i
heimalandi sinu o.fl. Einnig
verður sýnd kvikmynd. —
öllum heimill aðgangur. —
MIR
Skagfiröingafélögin i Reykja-
vík halda hlutaveltu og flóa-
markað i Félagsheimilinu
Siðumúla 35 næstkomandi
laugardag 1. apríl kl. 14. Tekið
á móti munum á sama stað
kvöldið áöur eftir kl. 8 síðdeg-
Kvenfélag Laugarnessóknar
heldur afmælisfund mánu-
daginn 3. april n.k. kl. 20.30.
skemmtiefni. Stjórnin.
Á laugardag kl. 10.30 er
barnasamkoma i Vestur-
bæjarskólanum við öldugötu.
Séra Þórir Stephensen.
Kvenfélag Háteigssóknar:
Fundur verður haldinn 4. april
i Sjómannaskólanum kl. 8.30.
Guðrún Þórarinsdóttir fyrr-
verandi prófastsfrú flytur er-
indi, sem hún nefnir minning-
ar frá Saurbæ. Formaður
landsnefndar „Orlofs hús-
mæðra", Steinunn Finnboga-
dóttir ræðir um „Orlof hús-
mæðra” og framtið þess.
Nýjar félagskonur velkomnar.
Stjórnin.
Sunnudagur 2. april
1. kl. 10.00 Gönguferð og skiða-
gönguferð yfir Kjöl (787 m)
Gengiö frá Þrándarstöðum i
Kjós yfir Kjöl og komið niður
hjá Brúsastööum i Þingvalla-
sveit. Fararstjórar: Þorsteinn
Bjarnar og Magnús Guð-
mundsson.
2. kl. 13.00 Gengið á Búrfell i
Þingvallasveit (782 m)
3. kl. 13.00 Gengið um
Þjóðgarðinn m.a. komið að
öxarárfossi. Fararstjóri:
Sigurður Kristinsson. Farið
frá Umferðarmiðstöðinni að
austan verðu. — Ferðafélag
tslands.
Minningarspjöid liknarsjóðs
Dómkirkjunnar eru afgreidd
hjá kirkjuverði Dómkirkjunn-
ar og verzluninni öldugötu 29,
Valgerði, Grundarstig 6, simi
13498 og prestkonunum.simar
hjá þeim eru, Dagný 16406,
Elfsabet 18690 og Dagbjört
33687.
Viðkomustaðir
bókabílanna
Arbæjarhverfi
Versl. Rofabæ 39 þriðjud. kl.
1.30— 3.00.
Versl. Hraunbæ 102 þriðjud.
kl. 7.00—9.00.
Versl. Rofabæ 7—9 þriðjud. kl.
3.30— 6.00.
Breiöholt
Breiðholtskjör mánud. kl.
7.00—9.00, fimmtud. kl.
1.30— 3.30, föstud. kl.
3.30— 5.00.
Fellaskóli mánud. kl.
4.30— 6.00, miövikud. kl.
1.30— 3.30, föstud. kl.
5.30— 7.00.
Hólagaröur, Hólahverfi
mánud. kl. 1.30—2.30,
fimmtud. kl. 4.00—6.00.
Versl. Iðufell miðvikud. kl.
4.00—6.00, föstud. kl. 1.30—3.00
Versl. Kjöt og fiskur við Selja-
braut miðvikud. kl. 7.00—9.00,
föstud. kl. 1.30—2.30.
Versl. Straumnes mánud. kl.
3.00—4.00, fimmtud. kl.
7.00—9.00.
Háaleitishverfi
Alftamýrarskóli miövikud. kl.
1.30— 3.30.
Austurver, Háaleitisbraut
mánud. kl. 1.30—2.30.
Miðbær mánud. kl. 4.30—6.00,
fimmtud. kl. 1.30—2.30.
Holt — Hliðar
Háteigsvegur 2. þriðjud. kl.
1.30— 2.30.
Stakkahlið 17 mánud. kl.
3.00—4.00, miðvikud. kl.
7.00—9.00.
Æfingaskóli Kennara-
háskólans miðvikud. kl.
4.00—6.00.
Laugarás
Versl. viö Norðurbrún þriðjud.
kl. 4.30—6.00.
. Laugarneshverfi
Dalbraut/Kleppsvegur
þriðjud. kl. 7.00—9.00.
Laugalækur/Hrisateigur
föstud. kl. 3.00—5.00.
.Sund
Kleppsvegur 152 viö Holtaveg
föstud. kl. 5.30—7.00.
Tún.
Hátún 10 þriöjud. kl.
3.00—4.00.
Vesturbær
Versl. viö Dunhaga 20
fimmtud. kl. 4.30—6.00.
KR-heimilið fimmtud. kl.
7.00—9.00.
Sker jaf jöröur — Einarsnes
fimmtud. kl. 3.00—4.00.
Verslanir við Hjaröarhaga 47
mánud. kl. 7.00—9.00.
krossgáta dagsins
2732.
Lárétt
1) Aldinmauk 6) Komist 8)
Fljót 9) Rani 10) 451 11)
Landnámsmaður 12) Svif 13)
Veiöarfæri 15) Fuglinn.
Lóörétt
2) Táning 3) Féll 4) Leikfang
5) Org 7) Fiskar 14) Fæddi
X
Ráöning á gátu No. 2731
Lárétt
1) Spóla 6) Una 8) Son 9) Gas
10) Dul 11) Apa 12) Akk 13)
Rúu 15) Hirsi
Lóðrétt
2) Pundari 3) Ón 4) Laglaus 5)
Óskar 7) Osaka 14) Úr
i David Graham PhiIIips:
J
164
SUSANNA LENOX
---------------------j
^ Jón Helgason 'S\e}ýS^
.01
-J
að en fullnægja fýsnum sinum og girndum. Fólk hlakkaöi ekki tii
annars en næsta drykkjuhófs. Súsanna ói i brjósti ósk, sem stall-
systur hennar og grannar skildu ekki — löngunina til þess að
gleyma.
En hún gat ekki gleymt — ekki fullkomlega. Og sá, sem ekki getur
gleymt, hlýtur að muna — og sá, sem man, veröur að þrá, og af
þránni fæðist vonin.
Hún heyrði oft talaö um Fridda Palmer. Tvisvar rakst hún á nafn
hans i blööunum — hans var þar getiö I sambandi við málefni
borgarinnar. Annars heyröi hún nafn hans oftast I vinkránum, þar
sem karlar og konur söfnuðust saman. Og alltaf minntu þessar orð-
ræður manna hans á, hve fjarri hann var — hve örugg hún var. Einn
daginn gekk hún fram á mann, sem hún hafði oft séð með honum.
Hann virti hana vel fyrir sér. Hún stirönaði upp af skelfingu. En
hann hélt leiðar sinnar, án þess aðbera kennsl á hana.
Þrátt fyrir skeytingarleysi sitt komst hún vel af, enda var hún af
öðrum og hærri stigum en almenningur og vandaöi jafnan tii við-
skipta vinanna, jafnvel þegar hún var ölvuð. Þvi að jafnvel I þessum
borgarhluta var yfirstétt, efnaðir kaupmenn, húseigendur og
stjórnmálamenn, og synir þeirra sömdu sig vendilega aö siðum
heföarfólksins i veglegri hlutum borgarinnar um allt, sem snerti
klæðaburð, hátterni og fjáreyöslu, ef i boði voru þær lystisemdir,
sem ungir menn um heim alian þrá að njóta. Súsönnu fénaöist hér
um bil eins vel hér og hún hefði getaö gert sér vonir um I betri
borgarhlutum. Og undir eins og efni henni leyföu, flutti hún i hús,
þar sem eingöngu bjuggu vændiskonur, að undanteknum tveimur
sæmilega stæðum verkamannafjöiskyldum. Þetta húsnæði var
miklu hreinlegra, miklu betur viðhaldið og miklu betur búið að hús-
gögnum og þægindum heldur en þau hús, sem verkafólkið bjó I. Það
gat ekki veitt sér svona mikinn ibúrð.
Rjátl hennar um göturnar gaf af sér drjúgar tekjur, ef á það var
litiö, hversu örbirgð fólks á þessum slóðum var mikil. Stundum fékk
hún upp undir tuttugu dali á viku, sjaldan minna en tólf til fimmtán.
Og þrátt fyrir vinhneigð sina, örlæti við stallsystur, sem ekki urðu
eins fengsælar, og greiðasemi vð sambýlisfólkið, gekk hún oröið
með þrjátiu og einn dai I sokkbolnum sinum.
Hún forðaðist þá staöi, er voru miöstöðvar glæpafélaganna. Hún
var sjaidan ein á ferli úti við eftir aö nótt var kornin — enda vildi svo
heppilega til, að siðari hluti dagsins var bezti timinn, bæði hvað
snerti viðskiptin og öryggiö. Hún eignaðist ekki neina vini og þess
vegna ekki heldur neina óvini.
En eitt kvöid bar svo til, að hún sat fram eftir i baksölum
veitingahúss eins, er var skammt frá bústað hennar. Þegar hún var
komin inn I dimmt fordyrið i húsinu, sem hún bjó i, var gripið harka
lega fyrir kverkar henni og henni snaraö á gólfið. Hún vissi undir
eins, að hún hafði gengið i greipar einhverjum hinna óttaiegu
manna, sem allar konur fátækrahverfisins hræddust — föntunum,
sem lágu i ieyni i myrkrinu og réðust á einmana konur og rændu
þær. Hún reyndi að verjast — og hún var þó nokkuð sterk og ill
viðureignar. F.n hún gat engu hijóði upp komið, svo fast var haidiö
fyrir kverkar henni.
Verkamaður, sem kom fullur heim af félagsfundi i veitingahús-
inu, datt um hana og sparkaði I hana i reiði sinni. Við það vaknaöi
hún og rak upp lágt óp.
— Hugsaöu ekki um mig, sagði Súsanna. — Ég var bara með-
vitundariaus.
— Nú, ég hélt þú værir full.
— Nei, þjófur réðist á mig.
— Stai hann miklu?
— Eitthvaö þrjátiu og fimm dölum.
— Fjandi er að heyra þetta. A ég að kalla á lögregluna?
— Nei, svaraði Súsanna, sem nú hafði komiö fyrir sig fótunum. —
Það er gagnslaust.
— Ég skal hjálpa þér upp stigann.
— Nei, þakka yður, sagöi hún.
Hún ambraði upp stigann, en maöurinn beiö, unz hann heyrði, að
hún var komin alla leiö upp. Hún reikaöi inn i herbergi sitt, stauiaö-
ist að rúmi og hneig þar út af. 1 herbergi, sem var hinum megin við
ganginn, bjó stúlka, er hét Klara. Hún sat I hægindastól, las sögubók
„Er til meira hundakex svo að
Snati fái eitthvað Ifka?”
DENNI
DÆMALAUSI