Tíminn - 05.04.1978, Side 3
Miðvikudagur 5. aprll 1978
3
Konsert
Sauðár-
krókskirkju
ÁS.-Mælifelli 4/4 I gærkvöldi
efndi kirkjukórinn á Sauðárkróki
til söngskemmtunar i Sauöár-
krókskirkju. Söngstjóri, Jón
Björnsson tónskáld frá Hafsteins-
stöðum, hefur þaulæft kórinn og
bæði hann og kórfélagar sem eru
um 30 hafa lagt á sig afar miklar
æfingar og þjálfun sem auðfundið
var, þvi að söngurinn var með af-
brigðum fagurraddaður og enn
þjálfaðri og samstilltari en
nokkru sinni fyrr, þó að mikið orð
færi af kórnum siðastliðið ár.
Ahrifamestur var flutningur
tónverksins ,,Þú mikli eilifi andi”
eftir söngstjórann Jón Björnsson
tónskáld, en þetta viðhafnar-
mikla og glæsilega tónverk var
frumflutt i Sauðárkrókskirkju á
sl. ári, sem þá var frá sagt i blað-
inu.
Hlýtur það að teljast til mikilla
tónlistarviðburða með islenzkri
þjóð, er slikt stórverk eru samin
og flutt meö þeim glæsibrag, sem
hér var aun á. Þá var og sungiö
annað lag eftir Jón Björnsson
„Máttur söngsins”, með texta
Þuriðar Kristjánsdóttur frá
Stapa, rómað mjög i tvennum
skilningi, enda hátt stigið og
fagurlega sett og var þetta frum-
flutningur lagsins. Vakti söng-
ur þessa fallega lags þessa kunna
tónskálds sérstaka athygli, enda
má segja að Jón Björnsson komi
á óvart meö hverju nýju lagi, þvi
aðhans þjóðlegi tónstill sameinar
i töfrafullu spili hið gamla og nýja
i islenzkri þjóð.
Einsöngvarar i kirkjukórnum
eru Þorbergur Jósefsson smiður
og Sólborg Valdemarsdóttir hús-
frú. Var þessum báðum vel tekið
og Þorbergi þó sérstaklega þvi að
bassarödd hans má likja við vor-
kliðinn, ljúfa og hreina.
Söng kórinn 12 lög og mörg
endurtekin, en það starf sem hér
liggur að baki með ólaunuöu
áhugafólki er ómælt.
Kári Jónsson póstfulltrúi flutti
svo fallega ræðu i minningu gam-
alla daga á Sauðárkróki, að snert
mun hafa marga strengi. Hjálm-
týr Hjálmtýsson einsöngvari kom
fram. Mikil andagt var i kirkj-
unni er Haukur Guðlaugsson,
söngmálastjóri lék 3 fræg tónverk
á hið vandaða pipuorgel kirkj-
unnar. Nú sem fyrr var Haukur
aufusúgestur Norðlendinga.
Úti fyrir á eftir töldu margir,
minnugir tónleikanna I kirkjunni
fyrir ári, að hér væri lokið merk-
asta tónlistarviðburði ársins.
Ætli maður þurfi að skriða bæði
úti og inni? getur hann verið að
hugsa þessi, þar sem hann stend-
ur fyrir utan Ilótel Borg og skoðar
gluggaskreytingu. Timamynd:
Gunnar.
Frá fundinum I Selfossbiói á laugardag, Jón Helgason alþingismaður Ipontu.
Fjörugur fundur um vegamál á Selfossi:
MÓTMÆLIR HARÐLEGA
UMFRAMSKÖTTUN
A BÍLEIGENDUR
UM 6 MILJARÐA
P.Þ. SandhóIi/SSt —A laugardag
gekkst Félag islenzkra bifreiða-
eigenda fyrir almennum
borgarafundi um vegamál og
skattlagningu á bifreiðaeigendur.
Framsögumenn á fundinum voru
Jón Helgason alþingismaður og
Þór Hagaiin sveitarstjóri, en sér-
stakur gestur fundarins var Snæ-
björn Jónasson vegamálastjori.
Miklar og fjörugar umræður
urðu á fundinum og voru borin
fram kröftug mótmæli við þvi, að
rlkissjóður skuli i ár ætla að taka
um 15 milljarða með sérstakri
skattlagningu á bileigendur, en
veita aðeins um 9 milljörðum af
þeirri upphæð til vegamála. Kom
fram megn óánægja fundar-
manna um, að 6 milljarðar króna
fari til álmennra þarfa rlkissjóðs
enekkibeinttil vegamála, eins og
sjálfsagt verður að teljast, þar
sem þarna sé um sérsköttun á bil-
eigendur að ræða.
Meðal fundargesta var ólafur
G. Einarsson, alþingismaður og
stjórnarformaður Oliumalar h.f.,
og upplýsti hann, að á næstu dög-
um muni koma fram sameigin-
legt tilboð frá eftirtöldum fjórum
fyrirtækjum; Ollumöl h/f, Mið-
felli h/f, Véltækni h/f og Grettis-
taki h/f til Vegagerðar ríkisins
um að leggja slitlag á eftirtalda
vegi á þessu ári.
Þrengslaveg og Þorlákshafnar-
ver 22,6 km.
Suðurlandsveg frá Þjórsárbrú
að Hellu 17,4 km
Vegarkafla I Hvalfirði 30 km.
Þá kom fram á fundinum ein-
dreginn stuðningur við fram-
komna þingsályktunartillögu
þingmannanna Jóns Helgasonar
og Ólafs G. Einarssonar um lagn-
ingu bundins slitlags á þj„óvegi.
Þrír
bræður
með sama
dag
Tveir þekktir Þingeyingar,
tviburarnir Jón Jónsson, bóndi á
Fremstafelli i Kinn, og Páll H.
Jónsson frá Laugum, eiga
sjötugsafmæli i dag. Þriðji
bróðirinn, Askell söngkennari, á
einnig afmæli i dag, en ekki
merkisafmæli, sem kallaö er.
Þeir bræöur eru kynjaðir frá
Mýri i Bárðardal, og hefur Jón
dvalizt alla tið i grennd viö
bernskustöðvar sinar, þótt bú
hans standi i annarri sveit, og
Páll meginhluta ævi sinnar. Frið-
rika Kristjánsdóttir, kona Jóns,
ogRannveig Kristjánsdóttir, fyrri
kona Páls, voru systur.
Afmælisgrein um Pál birtist
annars staðar i blaðinu i dag.
Sjö sækja um
starf í Sements-
verksmiðjunni
JB —Frestur til aö skila umsókn-
um um stöðu viðskiptalegs fram-
kvæmdastjóra hjá Sementsverk-
smiðjum rikisins rann út þ. 3.
þessa mánaðar og höfðu þá sjö
menn sótt um starfið.
Eru það þeir Björgvin Sæ-
mundsson, bæjarstjóri, Gylfi
Þórðarson, viðskiptafræðingur,
Haraldur Gislason sveitarstjóri,
Haraldur Lindal hagfræðinemi,
Pétur Pétursson framkvæmda-
stjóri, Tómas H. Sveinsson við-
skiptafræöingur og Þorsteinn
Ólafsson framkvæmdastjóri.
Fundur verður haldinn i stjórn
Sementsverksmiðjunnar i næstu
viku þar sem umsóknirnar verða
teknar til umræöu.
Eins og að vori iaufi skrýðist iundur
Forskot á
sumarið í ferð
um Evrópu
HEI — Fulltrúaráð Framsóknar-
félaganna i Reykjavik er nú að
undirbúa vorferð til Evrópu, en
eins og mörgu framsóknarfólki er
kunnugt er það nánast orðin hefð
að Fulltrúaráðið gangist fyrir
ódýrum ferðum til Evrópu á
hverju vori, — fram að þessu
aðallega til Austurrikis.
Nú er fyrirhuguð 12 daga ferð.
Flogið verður til Hannover 24.
mai. Siðan verður farið i bilum
hringferð Berh'n, Prag, Köln og
flogið heim frá Hannover 4. júni.
Einnig sagði formaður Fulltrúa-
ráðsins, að i athugun væri að bæta
við fleiri viðkomustöðum. Til
greina hafa komið Leipzig, Salz-
burg og Munchen, en ekki er að
fullu frá þvi gengið ennþá. Af þvi
leiðir að ekki er komið fast verð á
ferðina, nema að flugið fram og
til baka kostar 49 þúsund á mann.
Verða trúlega margir til að nota
sér þessa ódýru ferð og ná með
þvi i forskot á sumarsæluna.
Ungur „rit-
stjóri” i starfs-
kynningu
SST — Það er ekki á hverjum
degi að ritstjórar koma i starfs-
kynningu á dagbiöðin, og við
fyrstu sýn virðist flestuin vlst
lltil þörf á þvi. Nú bregður hins
vegar svo við að hér á ritstjórn
Timans hefur undanfarna daga
verið ungurritstjórifrá Eyjum I
starfskynningu. Hann er reynd-
ar Utgefandi llka, — gefur út
fjórbiöðunginn „Atóm” með fé-
laga sinum. Piitur heitir Jón
Freyr Jóhannsson 16ára gamall
Eg hef áhuga á þessu starfi
og mig langaði einfaldlega að
sjá hvernig blað verður til. Svo
er aldrei að vita nema maður
leggi fyrir sig blaðamennsku
seinna meir, sagði Jón Freyr er
við spjölluðum við hann.
Og við spyrjum ritstjórann
hvernig sé að gefa út blað i Eyj-
um: Það er gaman að standa i
þessu, þó að litil reynsla sé
komin á þetta enn. Blaðiö hefur
aðeins komið út einu sinni en
það má segja aö viðtökurnar
hafi veriö ágætar og við höfum
fengið þó nokkuð af aðsendu
efni. Auglýsingarnar sem eru
um 1/3 hluti blaðsins bera
kostnaðinn við prentun blaðsins,
en það er prentað i 1400 eintök-
um og borið ókeypis i hús i Eyj-
um eins og reyndar hin bæjar-
blöðin —að ihaldsblaðinu Fylki
undanskildu. — Við ætlum að
halda eitthvað áfram með
blaðið allavega fram á haust en
þá fer ég liklega i skóla hérna i
Reykjavik sagði Jón Freyr.
— Og þú skrifar þá leiðara?
Nei, ég skrifa poppdálkinn
þetta er leiðaralaust blað og
ópólitiskt sagði Jón Freyr.
~m--------------------->-
Jón Freyr Jóhannsson