Tíminn - 05.04.1978, Page 6
6
Miövikudagur S. apríl 1978
Rekstur Álafoss h.f.
með óeðlilegum hætti
- sagði Þórarinn Þórarinsson
Þórarinn Þórarinsson
(F) mælti í gær á fundi
sameinaðs Alþingis
fyrir fyrirspurn um Ála-
foss og var henni beint
til Geirs Hallgrimssonar
forsætisráðherra. Kvað
Þórarinn fyrirspurnina
skýra sig nokkuð sjálfa,
en óskað væri upplýs-
inga um hálfopinbert
fyrirtæki sem upp-
lýsingar annars væru
mjög takmarkaðar um.
Forsætisráðherra Geir Hall-
grimsson svaraði fyrirspurn
Þórarins með þvi að lesa upp
greinargerð frá Framkvæmda-
stofnun rikisins þar sem fyrir-
spurninni er svarað lið fyrir lið.
Fer greinargerð þessi hér á eftir :
1. Af hverju er Álafoss
h.f. ríkisfyrirtæki?
Alafoss h.f. er ekki rikisfyrir-
tæki samkvæmt þeim skilningi
sem almennt er i það orð lagður.
Rikisfyrirtæki eru fyrirtæki hins
opinbera sem komið er á fót sam-
kvæmt sérstökum lögum. Þvi
teljast ekki rikisfyrirtæki þau
hlutafélög þarsem rikið eða opin-
berar stofnanir eru eigendur
hlutafjárins að meira eða minna
leyti. Hins vegar á Fram-
kvæmdasjóður tslands nú allt
hlutafé i Álafossi h.f. og hefir svo
verið siöan árið 1971, að hluta-
félagið keypti til sin hlutii fyrri
eigenda. Astæða þess að Fram-
kvæmdasjóður á nú hlutafé
félagsins verður rakin til eftir-
greindra atvika:
A árunum 1963-1965 lánaði
Framkvæmdabanki Islands
verulegt fé til uppbyggingar
ullarverksmiðjunnar á Alafossi.
Var byggt nýtt verksmiðjuhús og
keyptar nýjar kembi- og spuna-
vélar en bæði húsakostur og vélar
voru mjög úr sér gengin. Fram-
leiðsla verksmiöjunnar var mest-
megnis fyrir innlendan markað
en nokkuð var um sölu á teppa-
bandi til Danmerkur. Reksturinn
gekk erfiðlega á árunum eftir
endurnýjun verksmiðjunnar og
lágu til þess ýmsar orsakir bæði
innan fyrirtækisins og vegna
óhagstæöra ytri aöstæöna. A
árinu 1968 má segja að félagið
hafi verið komið i alger þrot og
blasti ekkert annaö við en stöðvun
rekstrar og gjaldþrot. Að frum-
kvæði Framkvæmdasjóðs var
skipuð sérstök framkvæmda-
nefnd, er starfaði i umboði stjórn-
ar félagsins um nokkurra
mánaða skeið að þvi að halda i
horfinu með rekstur fyrirtækisins
en i aprilmánuði 1969 ákvað
stjórn Framkvæmdasjóðs að
breyta skuldum að fjárhæð 28
millj. kr. i hlutafé i félaginu enda
var þess farið á leit af stjórn
félagsins. Ariö 1971 var 30 millj.
kr. skuld siðan breytt i hlutafé
meö sama hætti.
Það var skoöun stjórnar Fram-
kvæmdasjóðs á árinu 1969 þegar
séö var að fyrirtækið Alafoss h.f.
yröi að hætta rekstri og gjaldþrot
var á næstu grösum aö ekki væri
einvöröungu hagsmunir Fram-
kvæmdasjóðs i hættu heldur
mundu slik afdrif fyrirtækisins
verða mikið áfallf fyrir iðngrein-
ina sem slika og fjöldi fólks
mundi missa atvinnu sina.
Um þær mundir og siðar hefir
mikil áherzla veriö lögð á eflingu
iðnaðarins i landinu og töldu
stjórn Framkvæmdasjóðs og
bankastjórn Seðlabankans sem
þá hafði með rekstur Fram-
kvæmdasjóðs aö gera að stöðvun
ogupplausn fyrirtækisins Alafoss
væri stórt skref aftur á bak i sókn
fram á við til eflingar Islenzkum
iðnaði.
Þvi var ákveöiö aö freista þess
aðkoma fyrirtækinuá réttan kjöl
og efla það svo sem tök væru á.
Fengnir voru i byrjun erlendir
sérfræðingar i tæknilegum mál-
efnum ullariðnaðarins til að gera
úttekt á verksmiðjunni og fram-
leiðsluháttum og leggja á ráðin
um úrbætur. Fyrirtækinu var
fengin ný forysta og gagnger
endurskipulagning fór fram á
flestum sviðum rekstrarins. Leit-
azt var við að búa fyrirtækið
beztu skilyrðum nútimalegs
rekstrar og á það jöfnum höndum
við um endurskipulagningu fjár-
mála.stjórnun alla i fyrirtækinu,
bæðiyfirstjórnog i framleiðslu og
sölu,ef tirlitskerfi, framleiðslu,
kostnaðareftirlit, bókhald og
skýrslugerð og skipulagningu og
uppbyggingu markaðsmála.
Kostnaður þessu samfara var
greiddur af fyrirtækinu sjálfu.
Siðan árið 1969 hefir rekstur Ala-
foss h.f. skilað hagnaði að undan-
skildum árunum 1971 og 1973. Frá
árinu 1971, að endurskipulagning
fyrirtækisins fór fram hefir fyrir-
tækið fjármagnað frekari upp-
byggingu með fé úr eigin rekstri
að viðbættum stofnlánum er
fengizt hafa úr lánasjóðum
iðnaðarins og þá fyrst og fremst
Iðnþróunarsjóði.
Á árunum 1970 til 1976 að
báðum árunum meðtöldum námu
fjárfestíngar Alafoss h.f. 395.1
millj. króna og voru þær fjár-
magnaðar með eftirgreindum
hætti i milljónum króna.
Iðnlánasjóður (15.5),
Iðnþróunarsjóður (99.8),
Iðnrekstrarsjóöur (19.0),
Skandinavian Bank
(England) 35.5),
Banque Lambert (Belgia (15.8),
Landsbanki tslands (5.0),
Seljendur (25,1),
Nýlánalls (215.7),
Afborguneldri lána (109.8),
Lánnettó (105.9),
Hlutafé (30.0),
(Jrrekstri (259.2),
Eins og yfirlit þetta greinir
hefir fjárfesting félagsins á um-
ræddu 7 ára timabili verið fjár-
mögnuð að tveim þriöju hlutum
alþingi
með eigin fé fyrirtækisins sem
rdcsturinn hefir getað lagt af
mörkum til uppbyggingar.
2. Hverjir eru i stjórn
Álafoss h.f. hver kýs
hana og til hve langs
tima?
NUverandi stjórn Álafoss h.f.,
er þannig skipuð:
Hafsteinn Baldvinsson formaður,
Guðmundur B. Ólafsson,
Benedikt Antonsson,
Heimir Hannesson,
Ragnar Jónsson,
Varamenn:
Bjarni Björnsson,
Björn Guðmundsson
Stjórn félagsins er kjörin til
eins árs i senn af eiganda hluta-
fjárins, Framkvæmdasjóði
Islands.
3. Hvert er umboð
stjórnarinnar? — Hér er
átt við hvaða valdsvið
stjórnin hefur. — Getur
hún ákveðið án þess að
bera undir aðra fjár-
festingar og útflutning á
lopa i stórum stil?
Eins og lög um hlutafélög gera
ráö fyrir sem og samþykktir
félagsins hefir stjórnin æðsta vald
i málefnum félagsins milli aðal-
funda. Rétt er að taka fram að
lopi er ekki fluttur út nema i afar
litlum mæli.en hins vegar er flutt
út ullarband af .ýmsum gerðum.
Hitt er annað mál, að Alafoss h.f.
hefir aflað sér einkaleyfis á nafn-
inu LOPI og er ullarband selt
undir þvi merki.
I byrjun hvers árs eru gerðar
itarlegaráætlanirum framleiðslu.
sölu og rekstrarafkomu ársins og
með hliðsjón af þeim áætlunum
svo og af rekstrarárangri liðins
Þórarinn Þórarinsson
árs og lánamöguleikum hjá lána-
sjóðum iðnaðarins eru teknar
ákvarðanir um fjárfestingu árs-
ins innan ramma áætlunar um
fjárfestingar til lengri tima.
Samsetning sölunnar milli til-
búins fatnaðar, ullarbands, gólf-
teppa/dUka,værðarvoða og ann-
arra afurða innanlands og er-
lendis, ræðst af markaðsað-
stæðum og framleiðslukostnaði
hverju sinni.
4. Hvert er hlutafé Ála-
foss h.f.?
Hlutafé Alafoss h.f. .eftir þá
fjárhagslegu endurskipulagningu
er tokið var 1971,nam 60 millj.
króna en þar af voru hlutabréf i
eigu fyrirtækisins sjálfs 2 millj.
króna. A árinu 1976 og 1977 voru
gefin Ut jöfnunarhlutabréf i félag-
inu samkvæmt heimild i lögum að
fjárhæð 240 millj. króna og er
hlutafé félagsins I árslok 1977 þvi
300 millj. króna , en fjárútlát
Framkvæmdasjóðs hafa eins og
áður segir numið 58 millj. króna.
5. Hvaða fyrirgreiðslu
hefir rikið veitt Álafossi,
h.f. siðan rikið yfirtók
fyrirtækið?
Gerð hefir verið grein fyrir
hvernig og hvenær Fram-
kvæmdasjóöur Islands varð eig-
andi að hlutafé félagsins.
Rikið hefir ekki veitt fyrirtæk-
inu neina fyrirgreiöslu aðra en þá
sem aðrir ullarframleiðendur
hafa fengið.
Fyrirtækið hefir fengið styrki
frá Iðnrekstrarsjóði til markaðs-
öflunar með sama hætti og önnur
sambærileg fyrirtæki svo sem
Hilda h.f. og Gefjun og fé til
niðurgreiðslu ullar hefi fariö um
hendur fyrirtækisins eins og hjá
öðrum fyrirtækjum.
6. Greiðir Álafoss h.f.
vexti eða arð af hlutafé?
Skuldir Alafoss h.f. bera vexti
samkvæmt venjulegum lánskjör-
um og félaginu hefir tekizt að
standa við sinar skuldbindingar.
Félagið hefir ekki greitt út arð af
hlutafé en jöfnunarhlutabréf hafa
verið gefin Ut eins og áður er lýst.
Eigið fé úr rekstri hefir verið
notað til uppbyggingar i fyrirtæk-
inuenda er það forsenda þess, að
lánsfé fáist til nýrra fram-
kvæmda.
7. Standa fyrir dyrum
fjárfestingar til þess að
auka lopaútflutning?
Stjórn Alafoss h.f. telur eðlilegt
að vinna að áframhaldandi upp-
byggingu fýrirtækisins með fjár-
festingu og öðrum aðgerðum sem
treysta stöðu þess og þeirrar iðn-
greinarsem fyrirtækið er hluti af.
Hvað fært þykirhverju sinni fer
eftir þvi hver afkoman er og
hverjar eru markaðsaðstæður
innanlands og erlendis. Vélar
verksmiðju Alafoss h.f. eru enn
sumar hverjar i notkun þótt
orðnar séu allt að 30 ára gamlar.
Að þvi mun stefnt að; taka þær Ur
notkun og afla nýrra svo og að
auka hUsakost þannig að frekari
hagkvæmni verði náð.
Geir Hallgrimsson
8. Hver tók ákvörðun um
að flytja út verksmiðju-
lopa i stórum stil til að
endurvinna erlendis?
Rétt er að taka fram að Alafoss
h.f. stendur ekki að endurvinnslu
ullarbands á erlendum vettvangi.
Hins vegar hefir félagið allt frá
árinu 1964 eða i 13 ár selt ullar-
band til verksmiðja hérlendis. 1
þessu sambandi er þó rétt að taka
fram að meginhluti þess ullar-
bands sem Álafoss h.f. fly tur Ut er
til smásöludreifingar i hannyrða-
verzlunum erlendis.
Alafos h.f. hefir stuðlað að þvi
að stofnaðar hafa verið prjóna-
stofur og sumastofur viða um
landið og jafnan látið þær sitja i
fyrirrUmi um afgreiðslu ullar-
bands og ullarefna til framleiðsl-
unnar. A hinn bóginn hefir Ala-
foss h.f. flutt Ut band ef hagstæðir
samningar hafa náðst.
Félagið hefir ekki flutt út þá
tegund toðbands sem notað er af
islenzkum pr jónastofum.
Akvarðanir um einstakar sölur
innanlandsog erlendis eru ihönd-
um forstjóra fyrirtækisins i sam-
ráði við stjórn félagsins.
9. Hver fjármagnaði
kaup Álafoss h.f. á hús-
eigninni að Vesturgötu
2?
HUseignin Vesturgata 2 var i
eigu Framkvæmdasjóðs Islands.
A árinu 1976 keypti Álafoss h.f.
eignina þar eð félagið þurftí á
húsnæði að halda fyrir smá-
söluverzlun þá er fyrirtækið hefir
starfrækt um langt árabil i
Reykjavik. Kaupverðið var 40
millj. króna og var helmingur
þeirrar fjárhæðar greiddur i
reiðufé af Álafoss h.f., en
helmingur var lánaður til 5 ára
með 15% vöxtum.
10. Hvers vegna eru
reikningar Álafoss h.f.
ekki birtir i ársskýrslu
Framkvæmdasjóðs?
Alafoss h.f. er sjálfstætt hluta-
félag og starfar samkvæmt lög-
um um hlutafélög. Hlutafjáreign
Framkvæmdasjóðs i Alafossi h.f.
og öðrum fyrirtækum er að sjálf-
sögðu eignfært i reikningum
sjóðsins eins og hún er á hverjum
tima að jöfnunarhlutabréfum
meðtöldum. Það er hins vegar
ekki venja að birta reikninga
sjálfstæðra hlutafélaga með
reikningum þess er hlutaféð á og
gildir þá einu hvort sú hlutaf jár-
eign nær til alls hlutafjár viðkom-
andi félags eða ekki. Hlutabréf
eru i eðli sinu sú tegund við-
skiptabréfa sem auöveldlega geta
skipt um hendur, þótt hér á landi
séu slik viðskipti að visu ekki
stunduð i miklum mæli. Sami
háttur er hafður á um birtingu
reikninga ýmissa sameignar-
félaga sem rikissjóður eða aðrir
opinberir aðilar eiga að hluta.
11. Er Álafoss h.f. á lista
yfir rikisfyrirtæki sem
komið hefur til tals að
selja?
Stjórn Framkvæmdastofnunar
rikisins sem jafnframt fer meö
stjórnFramkvæmdasjóðs Islands
tekur ákvarönir um ráðstafanir
fjármuna sjóösins lögurn sam-
kvæmt.
Sala á hlutabréfum i Alafossi
h.f. hefir ekki komið tíl umræðu i
stjórn Framkvæmdastofnun-
arinnar.”
Að lokinni ræðu forsætis-
ráðherra tók Þórarinn Þórarins-
sonaftur til máls og þakkaði svör
ráðherra.en kvaðst álita að alltof
mikil leynd hefði óneitanlega
hvilt yfir rekstri. þessa fyrirtækis.
Alafoss h.f. væri rikisfyrirtæki
hvaðsemöðruliðiog að sinu mati
mjög óheppiiegt fyrirkomulag á
rikisrekstri. Rikisfyrirtæki ættu
fremur að byggjast á lögum frá
Alþingi en að einstakir sjóðir á
vegum rikisins önnuðust slikan
sjálfstæðán rekstur.
Þórarinn kvað þetta fyrir-
komulag hafa verið eðlilegt til
bráðabirgða á sinum tima en ekki
lengur viðeigandi. Þá kvað hann
það mál þarfnast nánariathugun-
ar hvernig háttað væri útflutningi
á lopa og bandi frá Alafossi. Mér
skilst sagði Þórarinn að Alafoss
heföi selt úr landi óunnin lopa til
verksmiðjuvinnslu i S-Kóreu.
Þaðan kæmi siðan fullunnin vara
Ur islenzku hráefni og keppti við
islenzka vöru á mörkuðum i
Evrópu og væri að jafnaði marg-
falt ódýrari vegna ódýrs vinnu-
afls i S-Kóreu. Kvaðst Þórarinn
vilja taka undir þá skoðun for-
sætisráðherra að allt þetta mál
þyrftinánariathugunarviðog sér
þætti það alvarlegt ihugunarefni
ef I ljós kæmi að rikisfyrirtæki
Framhald á bls. 19.
Tveir fundir voru hjá samein-
uðu Alþingi i gær. A fyrir-
spurnarfundi var sex fyrir-
spurnum svarað. Geir Hail-
grimsson forsætisráðherra
svaraði fyrirspurnum um hönn-
un nýs alþingishúss og rekstur
Alafoss h.f. Fjármáiaráðherra
svaraði fyrirspurn um risnu
fyrirtækja og landbúnaðar- og
samgöngumála ráðherra, Hall-
dór E. Sigurðsson, svaraði
, fyrirspurnum um lausaskuldir
bænda, markaðsmái landbún-
aðarins og gjaldtöku á fjölsótt-
um stöðum i umsjá rikisins.
Á síðari fundi sameinaðs Al-
i þingis sem stóð tii klukkan hálf
sjö i gærkveldi voru tekin fyrir
þrjú mál. Halldór E. Sigurðsson
samgöngumálaráðherra mælti
fyrir Hafnaráætlun og tóku
Helgi Seljan (Abl) og Karvel
Pálmason (Sfv) til máls.
Páll Pétursson (F) mælti
fyrir þingsályktunartillögu um
virkjun Hérðasvatna hjá Vill-
inganesi. Að lokum mælti Helgi
Seljan fyrir þingsályktunartil-
lögu um þjónustu- og úrvinnslu-
iðnað i sveitum.