Tíminn - 05.04.1978, Blaðsíða 7
Miðvikudagur 5. aprfl 1978
7
Útgefandi Framsóknarflokkurinn.
Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar:
Þórarinn Þórarinsson (ábm.), og Jón Heigason. Rit-
stjórnarfulltrúi: Jón Sigurðsson. Auglýsingastjóri: Stein-
grimur Gislason. Ritstjórnarskrifstofur, framkvæmda-
stjórn og augiýsingar Siðumúia 15. Simi 86300.
Kvöldsimar blaðamanna: 86562, 86495. Eftir kl. 20.00:
86387. Verð i lausasöiu kr. 90.00 Áskriftargjald kr. 1700 á
mánuði. ... . .. -
Blaðaprenth.f.
Stefna Framsóknar-
manna í atvinnumálum
I ályktun nýlokins flokksþings Framsóknar-
manna, þar sem stefna Framsóknarflokksins er
mörkuð i megindráttum, segir svo um atvinnu-
mál:
„Framsóknarflokkurinn telur að frelsi þegn-
anna sé bezt borgið með þvi að þeir séu efnalega
sjálfstæðir og styrkir þátttakendur i framþróun
atvinnu- og efnahagslifs. Flokkurinn er reiðubú-
inn að vikja frá skilyrðislausum kröfum um há-
marksarð og hámarksafköst til að ná sliku mark-
miði, sé þess þörf. Framsóknarflokkurinn vill
stefna að þvi að á íslandi verði lifskjör sambæri-
leg við það sem gerist með nágrannaþjóðunum,
án óhæfilegs vinnuálags. Atvinnuleysi er böl sem
koma ber i veg fyrir.
Framsóknarflokkurinn litur svo á, að það sé
grundvallarskylda stjórnvalda að standa vörð
um efnahagslegt sjálfstæði þjóðarinnar með fjár-
málastjórn sem stuðli að jafnvægi i þjóðarbú-
skap, hagkvæmni i fjárfestingu, innlendri hag-
þróun og traustri greiðslustöðu þjóðarbúsins.
Verkefnum verði raðað eftir mikilvægi fyrir
þjóðarheildina.
Framsóknarflokkurinn vill að á sem flestum
sviðum verði einstaklingum gert kleift að stunda
atvinnurekstur, en jafnframt verði sameiginleg
verkefni leyst á samvinnugrundvelli. Einstak-
lingsframtak og samvinnurekstur þróist þannig
hlið við hlið, en spornað verði gegn óhóflegum
vexti auðfélaga sem hafa gróðasjónarmið ein að
leiðarljósi. Flokkurinn leggur áherzlu á gildi
samvinnustefnunnar á sem flestum sviðum um-
fangsmikillar atvinnustarfsemi, þjónustu og
framleiðslu.
Atvinnuvegirnir verði efldir og framleiðsla
aukin. Stuðlað verði að skynsamlegri og skipu-
legri nýtingu fiskstofna innan fiskveiðilögsög-
unnar til hagsbóta fyrir alla landsmenn. Með fjöl-
breyttri framleiðslu landbúnaðarafurða verði
stefnt að þvi að þjóðin verði eftir föngum sjálfri
sér næg um þau matvæli sem unnt er að fram-
leiða hérlendis. Innlend hráefni verði nýtt eftir
megni i landinu sjálfu.
Nýting orkulinda landsins verði miðuð við þarf-
ir landsmanna sjálfra. Stefnt verði að þvi að inn-
lend orka leysi erlenda orkugjafa af hólmi, hvar
sem þvi verður við komið.
Framsóknarflokkurinn telur að smærri og fjöl-
breyttari rekstur henti betur islenzkum aðstæð-
um en stóriðja.
Samstarf við erlenda aðila um orkufrekan iðn-
að kemur aðeins til greina i einstökum tilfellum,
enda skal þess ætið gætt að meirihluti eignaraðild
ar sé i höndum Islendinga. Starfsemi slikra fél-
aga skal háð islenzkum lögum og dómsvaldi,
enda njóti þau ekki betri lögkjara en sambærileg
islenzk fyrirtæki.
Allur atvinnurekstur fullnægi ströngum skil-
yrðum um vinnuvernd og mengunarvarnir, jafnt
innap húss sem utan.”
Jafnframt þessu samþykkti flokksþingið sér-
stakar ályktanir um landbúnaðarmál, sjávarút-
vegsmál og iðnaðarmál, þar sem fleiri atriði eru
tilgreind og þau nánar rakin. Framangreind
ályktun sýnir einkum, hvernig flokkurinn telur
æskilegast, að rekstri atvinnuveganna sé hagað
til þess að framtak einstaklinganna og samvinna
þeirra nýtist sem bezt sjálfum þeim og þjóðinni
til hags.
Þ.Þ.
ERLENT YFIRLIT
Brésnjef og Kosygin
heimsækja Síberíu
Par eykst ótti við Kinverja
HINN tilgangurinn meö
feröalagi Brésnjefs,og raunar
Kosygins lika, er talinn sá, aö
þeir hafi viljað leggja áherzlu
á herstyrk Sovétrikjanna i Si-
beriu. Kinverjar hafi undir
forustu Hua og Tengs sýnt sig
enn ófúsari til samvinnu viö
Rússa en áður. beir hafa hafn-
að nýju tilboði Rússa um sam-
eiginlega yfirlýsingu um
bætta sambúð rikjanna, þar
sem tekið yrði tillit til hags-
muna beggja. Jafnframt þvi
að hafna þessu tilboði munu
Kinverjar hafa krafizt þess,
aðRússar flyttu herstyrk sinn
i meiri fjarlægð frá landa-
mærunum. í viðtölum við er-
lenda stjórnmálamenti hafa
leiðtogar Kina látið ótvirætt i
ljós, að styrjöld milli Kina og
Sovétrikjanna væri óhjá-
kvæmileg. Siðast 24. fyrra
mánaðar lýsti Teng þessari
skoðun sinni i viðtali við
Friedrich Zimmermann, for-
mann þingflokks kristilegra
demókrata i Vestur-Þýzka-
landi. Teng lýsti jafnframt
þeirri skoðun sinni, að Rússar
myndu ekki geta unnið striðið,
þótt þeir gætu lagt undir sig
norðausturhluta Kina. Þar
byggju að visu 200 milljónir
manna, en samt væru 700
milljónir Kinverja eftir ósigr-
aöir.
Ótvirætt er, að Siberiubúum
stendur nokkur ótti af kin-
verska stórveldinu I framtiö-
inni. Brésnjef hefur vafalitiö
viljað sýna þeim með heim-
sókn sinni, að Rússar væru viö
öllu búnir á þessum slóðum.
1 för með Brésnjef var Usti-
noff, varnarmálaráðherra
Sovétrikjanna, og þykir það
benda til, að tilgangur farar-
innar hafi ekki sizt veriö sá aö
vekja athygli á herstyrk Sovét
rikjanna á þessum slóðum og
efla þá trú hjá ibúunum, að
þeir þurfi ekki aö óttast. Tal
kínversku leiötoganna um
fyrirsjáanlega styrjöld milli
Rússa og Kinverja mun ekki
sizt sprottið af þvi, að þeir
vilja skjóta ibúum Siberiu
skelk i bringu og draga úr
fólksflutningum þangað. þ.þ.
Félagarnir Kosygin og Brésnjef
ÞAÐ hefur vakið nokkra at-
hygli erlendra fjölmiðla, að
nýlega hóf Brésnjef, leiðtogi
Sovétrikjanna, alllangt ferða-
lag um Siberiu. Skömmu áður
hafði Kosygin, forsætisráð-
herra Sovétrikjanna, ferðazt
um Siberiu og heimsótt iðju-
ver þar. Það ferðalag hafði
ekki vakið verulega athygli
fyrr en Brésnjef fór i slóð
hans. Það þótti sýna, að leið-
togar Sovétrikjanna leggja
sérstaka rækt við Siberiu um
þessar mundir. Rússneskir
fjölmiðlar hafa ekki rakiö it-
arlega hvaða slóðir Brésnjef
hafi aðallega heimsótt, en þó
þykir vist, að hann hafi heim-
sótt olíuvinnslu- og gas-
vinnslusvæðin i Vestur-SIberiu
og flutt þar ræður um mikil-
vægi þeirra og nauðsyn auk-
innar framleiðslu á þessum
orkugjöfum. Þá þykir einnig
vist, að hann hafi heimsótt
ýmsar flugskeytastöðvar, þar
sem kjarnorkuvopn eru
geymd, en þaðan mun mega
ná til flestra mikilvægra staða
i Kina. Það er einnig talið, að
Brésnjef hafi heimsótt herlið
Sovétrikjanna sem er staðsett
næst landamærum Kina bæði i
Austur-Siberiu og héruðunum
austan hennar allt til Kyrra-
hafs. Vist þykir, að Rússar
hafi mikið herlið á þessum
slóðum. Sumar heimildir
telja, að um milljón rúss-
neskra hermanna sé til jafn-
aðar á þessum slóðum, en aðr-
ir telja þetta lið enn fjölmenn-
ara. Ýmsar heimildir benda
til þess, að herbúnaður Rússa
sé sizt minni á austurlanda-
mærunum i Asiu en á vestur-
landamærunum i Evrópu.
ÞAÐ þykir liklegt, aö tilgang-
urinn með ferðalögum þeirra
Kosygins og Brésnjefs til Si-
beriu hafi verið tviþættur.
Annar tilgangurinn hafi verið
sá, að þeir vilja beina athygl-
inni að hinum miklu náttúru-
auðæfum Siberiu og mikilvægi
þess, að þau verði nýtt. Auð-
legð Siberiu er enn hvergi
nærri fullkönnuð, en margt
þykir benda til þess,aö þar sé
að finna mestu oliulindir
heims og þó kunni gasbirgðir,
sem þar eru fólgnar i jörðu, að
reynast enn meiri. Þá er vitað,
að þar er óhemjulega mikið af
kolum og járni I jörðu og
mörgum öðrum málmum. Þar
eru einhverjir mestu skógar i
heimi, sem biða eftir þvi að
vera nýttir. Yfirráð RÚssa yfir
Siberiu gerir þá að einni auö-
ugustu þjóð heimsins og þess
Brésnjef.
vegna þurfa þeir ekki vegna
skorts á náttúruauðæfum að
sælast eftir landvinningum,
likt og Hitler forðum. Hins
vegar er nýting þessara nátt-
úruauðæfa i Siberiu miklum
erfiðleikum bundin vegna
óhagstæðrar veðráttu, en
miklir kuldar og frost eru þar
víða meirihluta ársins. Af
þeim ástæðum hefur reynzt
talsverðum erfiðleikum bund-
ið að fá fólk til að fara þangað
og eru þeim, sem þangað
flytja, þvi boðin ýms vildar-
kjör. Sibetia er nú vafalitiö sá
hluti Sovétrikjanna, þar sem
lifskjör eru bezt og frjálsræði
mest. Fólki hefur þvi fjölgað
þar að undanförnu, en þó ekki
nægilega til að nýta landsgæö-
in til fulls. Þá tefur það upp-
bygginguna, að þar er þörf
fyrir meiri tækni og fjármagn
en Rússar sjálfir hafa aflögu.
Þess vegna hafa þeir sótt eftir
samstarfi við ýmsa aðila, t.d.
Japani i sambandi við upp-
bygginguna þar, en árangur
enn ekki oröiö verulegur.