Tíminn - 05.04.1978, Síða 15
Miðvikudagur 5. aprfl 1978
15
Skólastúlka sem meisturum
stendur ótti af
Til skamms tima hafa sovézkir listhlauparar á
skautum aðeins getað látið sig dreyma um að vinna
verðlaun i einstaklingskeppni kvenna á Evrópu-
eða heimsmeistaramótum. Þeir voru ánægðir, ef
þeir urðu meðal tiu efstu. En gamalgróin hefð
hlýtur að verða rofin einhvern daginn. Og það var 14
ára skólastúlka frá Moskvu, Jelena Vodorezova,
sem gerði það.
HUn kom fyrst fram á alþjóða-
vettvangi fyrir tveim árum á ár-
legri keppni i Moskvu, sem dag-
blaðiö Nouvelles de Moscou
gengst fyrir. Þá var hiin réttra 12
ára. Allir voru sammála um, að
llkurnar væru hinni 16 ára gömlu
Wendy Burge frá Bandarlkjunum
I hag, en þessi upprennandi
stjarna hafði náð fjórða sæti I
undirbúningskeppni undir heims-
meistarakeppnina. En þegar
Moskvumótinu lauk var það þó
hin 12 ára gamla stúlka sem stóð
á efsta þrepi verðlaunapallsins,
en bandariska skautastúlkan stóð
grátandi á öðru þrepi.
Vodorezova hafði i frjálsu
æfingunum skotizt fram úr
Burge, þótt hún væri henni lægri
að stigum eftir skylduæfingarnar.
Upp úr þessu vann Vodorezova
8. sæti á Evrópumeistaramótinu
1976, 12. sæti á Olympiuleikunum
I Innsbruck, 5. sæti á Evrópu-
meistaramótinu 1977 og loks 7.
sæti i heimsmeistarakeppninni i
Tokyo 1977. I Tokyo vann
Vodorezova silfurverðlaun fyrir
samanlagðan stigafjölda i frjáls-
um æfingum og stuttum, en I
frjálsum æfingum varð hún efst
og bar hún sigurorð af 20 bestu
listskautahlaupurum heims.
Hvað er það sem hefur gert
Jelenu Vodorezovu kleift að kom-
ast i fremstu röð á svo lágum
aldri? Tvimælalaust á hún vel-
gengni sina mikið að þakka þjálf-
MARGIR EFNILEGIR
á Reykjavikurmeistaramóti yngra
fólksins í frjálsum íþróttum
9,5
9,8
Margir efnilegir unglingar komu
fram á meistaramóti Reykjavik-
ur i frjálsum iþróttum.
Keppt var i pilta og telpna-
flokki, þ.e. þeir sem eru 13 og 14
ára og i stráka og stelpnaflokki
þ.e. 12 áraog yngri. I flokki 12ára
og yngri bar mest á þeim Þórði
Þórðarsypi Leikni og Antony Karl
Gregory Armanni i strákaflokki.
Birna Einarsdóttir Armanni,
Anna Birgisdóttir Leikni og
Bylgja Gunnlaugsdóttir Leikni
voru atkvæðamestar i stelpna-
flokki. t piltaflokki bar mest á
þeim Jóhanni M. Jóhannssyni
Leikni, Hafliða Maggasyni
Leikni, og Agnari Steinssyni 1R. I
telpnaflokki voru nokkrar efni-
legar stúlkur sem börðust um
fyrstu s ætin, það voru þ ær Inga B.
Úlfarsdóttir Leikni, Bryndis
Hólm IR og Svanhildur Gunnars-
dóttir Ármanni. Allir eru þessir
krakkar mjög efnilegir og mörg
fleiri góð iþróttamannsefni mátti
sjá á mótinu.
Úrslit á mótinu urðu þessi:
Telpnaflokkur.
50 m. hlaup.
sek.
1. Inga B.ÚlfarsdóttirL 6,9
2. Bryndis Hólm IR 7,2
3. Unnur Guðjónsdóttir L. 7,3
50m. grindahlaup. sek.
1. IngaB. ÚlfarsdóttirL. 9,4
2. Unnur Guðjónsdóttir L. 9,7
3. Brynja HarðardóttirL. 9,8
Langstökk.
1. Bryndis Hólm 1R 4,63 m
2. Svanhildur Gunnard., Arm 4,51
m.
3. IngaB. ÚlfarsdóttirL. 4,36m.
Hástökk.
1. Inga B. Úlfarsdóttir L. 1,50 m
2. Bryndis Hólm. 1 1,50 m
3. Brynja Harðardóttir L 1,40 m
Piltaflokkur.
50mhlaup. sek.
1. JóhannM. JóhannssonL. 6,8
2. Hafliði Maggason L. 7,2
3. AgnarSteinarsson IR 7,3
50 m grindahlaup. sek.
1. Hafliði Maggason L. 8,8
2. EdwardGuðmundssonL.
3. JóhannM. JóhannssonL.
Langstökk
1. Agnar Steinarsson IR 4,64 m
2. Hafliði Maggason L. 4,63 m
3. Bergþór GunnarssonL. 4,21 m
Hástökk.
1. HafliðiMaggasonL. l,65m
2. Agnar Steinarsson IR 1,45
3. JóhannM. JóhannssonL 1,35 m
Stelpnaflokkur.
50mhlaup. sek.
1. Bylgja Gunnlaugsdóttir, L 7,4
2. Auður Guðmundsdóttir,
Árm. 7,6
3. Anna Birgisdóttir, L. 7,7
Framhald á bls. 19.
FH og Þróttur áfram
í bikarkeppni HSl
FH og Þróttur tryggðu sér rétt
til þátttöku i undanúrslitum
bikarkeppni HSl á Akureyri um
siðustu helgi.
FH sigraði KA með 26-23 og
Þróttur sigraði Þór með 28 mörk-
um gegn 21. Fyrri leikurinn var
mjög jafn og spennandi, FH-ing-
ar komust i 6-3 i byrjun leiksins
en KA mönnum tókst að lagfæra
stöðuna i 10-6 sér i vil. 1 hálfleik
var staðan 12-10 fyrir KA. Seinni
hálfleikur var mjög jafn en
FH-ingar sigu framúr i lokin og
sigruðu 26-23.
Þróttarar sigruðu Þór og var
Konráð Jónsson Þórsurum erfið-
ur, þvi hann skoraði 14 af mörk-
um Þróttar.
Jafntefli var i hálfleik, en
Þróttarar sóttu sig i seinni hálf-
leik og unnu 28-21. RP —.
Handknatt
leikur i
Höllinni
Tveirleikir fara fram i tslands-
mótinu I handknattleik i kvöld.
Fyrri leikurinn er á milli Ar-
manns og Fram en sá siðari á
milli KR og FH.
Þetta verða örugglega miklir
baráttuleikir, þvi bæði Armann
og KR þurfaað vinna sina leiki ef
þau ætla að styrkja stöðu sina i
deildinni. Það má þvi búast við
þvi að stuðningsmenn beggja lið-
anna mæti og hvetji sfna menn.
Fyrrileikurinnhefstkl. 20. RP —.
ara sinum, Stanislav Zjuk, sem
m.a. gerði pariö Rodnina-Zaitzev
heimsfrægt. En það kemur fleira
til.
Lena er af mikilli
iþróttafjölskyldu komin
„Fjölskylda min og ég erum
miídir Iþróttaunnendur”, segir
Herman Vodorezov, faðir Lenu.
„Ég lauk prófi frá Likams-
ræktarstofnuninni og starfa nú
sem körfuknattleiksþjálfari.
Kona min er fimleikakennari.
Hún hefur meistaragráðu I fim-
leikum.
„Lena var 5 ára er hún fór I
skóla fyrir ungt skautafólk.
Iþróttaskólinn er starfræktur af
iþróttaklúbbi hersins og er einn
hinn besti I landinu. Raunar var
henni visað frá i fyrstu á sam-
keppnisprófi fyrir ungt skauta-
fólk. Hún var tekin inn I skólann
eftir aðra tilraun. Hún minntist
þess lengi að henni mistókst I
fyrstu og lagði sig alla fram við
þjálfunina.
Þrem árum siðar var Jelena
Vodorezova fyrir sakir elju og
ástundunarsemi orðin bezti nem-
andi iþróttaskólans. Það var þá
sem Stanislav Zjuk bauð henni
inngöngu I flokk sinn. I upphafi
setti hann hinni 10 ára gömlu
stúlku erfitt takmark:
Að vinna sér sess i
landsliðinu.
„Þrátt fy-ir allt tal”, segir
Stanislav Zjuk, „um að drengir
og stúlkur eigi ekki ið fá að taka
þátt I keppni á svo lágum aldri og
að aldurstakmörk skuli sett fyrir
keppendur, er ég þess fullviss, að
listhlauparar á skautum verða að
þjálfa með sér hraöa, frjálsræði I
hreyfingum og snerpu I stökkum
á meðan þeir eru enn á ungum
aldri. Fullvaxinn skautamaður er
eðlilega varkár. Hann hefur
þroskað með sér varnarviðbrögð.
En börn óttast ekki neitt — þeim
er allt leikur. Þótt þau detti og
meiði sig svolitið hugsa þau ekki
um það. Þau þjóta á fætur og
reyna nýjan snúning”.
Þótt undarlegt sé er þjálfari
Vodorezovu oft gagnrýndur fyrir
að æfingar hennar séu ákaflega
tæknilega erfiöar. Á heimsmeist-
aramótinu I Tokyo leysti
Vodorezova af höndum þrefalt
stökk þrisvar sinnum og fjögur
mjög flókin samfléttuð stökk, en
það er nokkuð sem ekki er á færi
allra listhlaupara I hópi karla.
Sumir telja að i æfingum
Vodorezovu sé þokka og fagur-
fræðilegum eiginleikum almennt
fórnað fyrir sakir glfurlega flók-
inna atriða.
„Ég heyri það stundum sagt”,
segir Stanislav Zjuk, „að
Vodorezova sé ekki nægilega
kvenleg, að hana skorti glæsileik
og þokka, að hún virki hálf-
klunnaleg á Isnum. Hvað get ég
sagt? I fyrsta lagi er hún enn svo
ung. I öðru lagi er þetta Iþrótt en
ekki fegurðarsamkeppni eða
ballett. Ég llt svo á að iþróttir hafi
sinn eiginn mælikvarða á glæsi-
leik og fegurð. Hnefaleikari
sveiflar hnefanum „óglæsilega”
og slær andstæðinginn niður, og
þá segjum við: „Þetta var fallegt
högg”. Markvörður hleypur
fram, kastar sér og gripur knött-
inn af tám sóknarmannsins, og
við hrópum: „Vel gert!” Giimu-
maður varpar andstæöingi sinum
flötúm og heldur honum niðri —
og enn köllum við það fallega
gllmt”.
„Jú, Lena er enn aðeins stelpu-
krakki. En þessi stúlka getur
farið þrefalt stökk þannig að
margar stúlkur, sem eiga yfir að
ráð nægum kvenleika og þokka,
geta aldrei leikið það eftir. I hin-
um frjálsu æfingum hennar á
skautum eru fimm þreföld stökk.
Og takið eftir þvi sem ég segi,
innan skamms mun hún gera enn
betur”.
Að sjálfsögðu þarf að æfa dag
hvern til þess að ná þessum
árangri. Fyrstu æfingar
Vodorezovu hefjast kl. 7.30 að
morgni. Slðan fer hún i skólann og
tekur svo stutta hvild. Þá hefst
önnur æfing og heimavinna. Hún
hefur einfaldlega engan tima til
skemmtunar og leikja. Sorgleg
staðreynd.
„Já”, viðurkennir þjálfarinn.
„Þess vegna geri ég það sem ég
get til þess að innifela skemmtun
o'i leik I þjálfun hennar. Ég skal
vora hreinskilinn: Þegar talað er
um Vodorezovu erum við að tala
um barn, sem er gætt afburða
hæfiieikum, barn sem á alla
möguleika á að verða i fremstu
röð I Iþrótt sinni á morgun. Fyrir
slikt takmark verður að fórna
einhverju”.
„En þetta er ekki allt fórn”,
heldur Stan slav Zjuk áfram.
„Lena ávinnur sér einnig mikið.
Listskautahiaupið, æfingapró-
grammið og tónlistin sem þvi
fylgja kenna henni að meta feg-
urð. Og keppnisíþróttir kenna
henni hugrekki, elju og þolgæði,
en allt mun það koma henni að
notum á fullorðinsárum”.
Vodorezova er nú i 8. bekk.
Uppáhaldsnámsgrein hennar er
rússneskar bókmenntir. Henni
finnst mjög gaman að sögum um
dýr og að æfintýrum. Uppáhalds-
höfundar hennar erlendir eru
Thomas Mayne Reide og Arthur
Conan Ðoyle. Þær fáu tómstundir
sem hún á finnst henni gaman ab
horfa á knattspyrnu i sjónvarp-
inu. Hún þekkir marga leikmenn
með nöfnum og uppáhald hennar
er brasiliska knattspyrnustjarn-
an Pele.
Við skulum ljúka þessari frá-
sögn með þvl að vitna i orð Toller
Cranston, kanadlska listskauta-
hlauparans sem gerðist atvinnu-
maður I iþróttum árið 1976:
„Ég viðurkenni aö þær tilfinn-
ingar, sem hún leggur I hreyfing-
ar si'nar i dag eru tilfinningar
barns. En haldi hún áfram að
leggja alla sál sina i hverja æf-
ingu, þá er ég þess fullviss, að
heimurinn mun eignast frábæran
listhlaupara....”
-V.V.V.V.V.V.V.WAW.,.V,
!■■■■■!
!
Landsliðið í júdó valið
10 islcnzkir jiídómenn hafa
verið valdir til keppni á Norður-
landameistaramótinu 1 júdó sem
fram fer i Helsinki um næstu
helgi. Judómennirnir sem valdir
hafa verið eru þessir:
60 kg Þórarinn Ólafsson UMFK
60 kg Rúnar Guðjónsson JFR
65 kg Sigurður Pálsson JFR
71 kg Halldór Guðbjörnsson JFR
71 kg Ómar Sigurðsson UMFK
78 kg Kári Jakobsson JFR
78 kg Garðar Skaptason Árm.
86 kg Jónas Jónasson Arm.
95 kg Gisli Þorsteinsson Arm.
95 kg Bjarni Friðriksson Arm.
Tveir þessara manna hafa
Norðurlandameistaratitil að
verja, þeir Gisli Þorsteinsson
Armanni og Halldór
Guðbjörnsson JFR. Eftir ein-
stakiingskeppnina verða valdir
þeir keppendur sem skipa is-
lenzka liðið i sveitakeppninni.
!■■■■■■■!