Tíminn - 20.04.1978, Blaðsíða 1
Fimmtudagur
20. apríl 1978
62. árgangur — 81. tölublað
Skattafrum-
varpið — bls. 6
Siðumúla 15 • Pósthólf 370 • Reykjavík • Ritstjórn 86300 • Auglýsingar 18300 • Afgreiðsla og áskrift 86300 • Kvöldsímar 86387 & 86392
ílyiSií, ' % '* - '
lillilillili
Óformlegur
fundur fulltrúa
............................................................. ........................................................................ ■.................................................. ■
Æska. Með þessari mynd, sem tekin var í gær, óskar
Tíminn öllum lesendum sínum góðs og gleðilegs sumars.
Stúlkan á myndinni heitir Hrefna, en nafn lambsins vit-
um við því miður ekki. En hvað sem nöfnum líður, eru
hér tveir góðir fulltrúar vorsins. — Tímamynd Gunnar.
Sandfok vegna nýja hafnargarðsins i Porlákshöfn:
Veldur íbúum miklum
óþægindum
úrbætur verða að koma til
hið bráðasta
VSI og forsætis-
ráðherra i gær
Ekkert
nýtt
JB —í gær var haldinn óformleg-
ur fundur fulltrúa úr fram-
kvæmdastjórn Vinnuveitenda-
sambands tslands og forsætis-
ráðherra, en VSÍ hefur haft sam-
band viö rikisstjórnina að undan-
förnu til aö kanna það, hvort ein-
hverjar breytingar frá rikis-
stjórninni og löggjafarvaldinu
væri hægt að gera, varöandi þær
efnahagsráðstafanir, sem gripið
var til i febrúar sl., sagði Jón H.
Bergs, formaður Vinnuveitenda-
sambands tslands i samtali við
blaðið i gær.
Sagði Jón, að það væri ekki
neitt nýtt að frétta, sem þýddi
það að aðilar hefðu ekki komiö
auga á neina leið i þvi sambandi
sem að framan greinir. Var fund-
urinn með forsætisráðherra I gær
haldinn með það fyrir augum, að
athuga hvort vinnuveitendur
gætu kynnt fyrir VMSI möguleg-
ar breytingar á efnahagslögunum
á fundinum sem ákveðinn hefur
verið á morgun með þessum aðil-
um.
Veitt undanþága
til útflutnings
frá Vestmanna
eyjum
GV — Undnaþágan miðast við að
menn hafi aðeins geymslurými i
frystihúsunum til að framleiða
næstu vikurnar, en það fer eftir
fiskerii hvort vikurnar verða ein
eða fleiri, sagði Jón Kjartansson,
formaður Verkalýðsfélagsins i
Vestmannaeyjum, i viðtali við
Timann i gær.
Von er á flutningaskipi til Eyja
um miðja næstu viku og verður þá
væntanlega farið að þrengjastum
geymslupláss i húsunum'.
Undanþága hefur einnig verið
veitt til útflutnings á 500 lestum af
vökva, sem framleiddur er úr
mögrum bræðslufiski. Vökvinn er
framleiddur um borð i danska
vinnsluskipinu Lumino, sem er nú
statt i Vestmannaeyjum, og landa
bátarnir aflanum um borð i
skipið. —Þetta er tilrauna vinnsla
og nýjung og vildum við ekki
setja fótinn fyrir það, sagði Jón
Kjartansson.
SSt — „Þegar nýi hafnargarður-
inn var byggður hér i Þorlákshöfn
’76 varð til straumlaus vik austan
við hann, þar sem léttur vikur-
framburður úr ölfusá hleðst nú
upp, sérstaklega i austan og norö-
austan átt og fýkur siðan yfir
plássið þegar fjarar og veldur i-
búum og aðallega saltfiskverk-
endum miklum óþægindum. Það
er núna um 100 metra breiður
sandfláki, sem stendur upp úr á
fjöru,” sagði Sigurður Jónsson,
hafnarstjóri i Þorlákshöfn i sam-
tali við Timann i gær.
Áður en hafnargarðurinn kom
til barst framburöurinn óhindrað
með sjávarstráumum meðfram
standlegnjunni og megniö af hon-
um síðan burt frá höfninni og olli
þvi ekki teljandi vandræðum hér
sagði Sigurður. — Sandfokið olli
strax vandræðum eftir að garður-
inn var byggður 1976 og i fyrra
þótti ástandiö svo slæmt, að ráð-
izt var i að setja upp fokgirðingu i
fjörunni og einnig grjótgarð til aö
verja girðinguna. Hann var þó
ekki nægjanlega traustur og gaf
sig i desember s.l.
Þaö er ljóst, að þegar verður aö
hefjast handa við byggingu nægi-
lega strausts grjótgarðs, sem
verja myndi fokgirðinguna fyrir
ágangi sjávar og gera mögulegt
að sá i fjöruna og hefta þar með
sandfokiö, sagði Sigurður einnig.
Sagði Sigurður, að hafnarmála-
stjórn hefði verið gerð grein fyrir
þessum vandræðum og hefði hún
málið nú til athugunar. Lauslega
áætlaöur kostnaður við að koma
upp fokgirðingu og traustum
grjótgaröi væri 15—20 milljónir,
en spurningin væri ekki um
kostnað heldur aö úrbætur kæmu
til hiö fyrsta, svo fokið bitnaði
ekki frekar á atvinnulifi og ibúum
i plássinu.
Sem dæmi um vandræði af
völdum foks úr fjörunni viö nýja
hafnargarðinn, nefndi hann, að
fyrir hefði komið, að þurft hefði
að umvaska fisk til að þrifa úr
honum sandinn. Oft tækist þaö, en
ef ekki, þýddi það, að fiskurinn
gæti lækkað um 1—2 gæðaflokka i
mati, sem aftur þýddi, að hvert
tonn af (salt) fiski lækkaði um
70—100 þús.
„Vinnumála sambandið
alltaf tilbúið til viðræðna”
Óþolandi að standa öllu
lengur i stöðugum
sandmokstri,
JB — ,,Við höfum gert Verka-
mannasambandinu orð um það,
aö við séum reiðubúnir til að setj-
ast að viðræðum. Er þetta i raun
svar við tilmæltim þeirra um að
viðræður verði teknar upp að nýju
og höfum við svarað þeim
játandi. Við erum alltaf tilbúnir
til að ræða málin”, sagði Bjarni
Thors hjá Vinnumálasambandi
Samvinnufélaganna i blaðinu i
gær. En eins og komið hefur fram
I fréttum munu aðilar vinnu-
markaðarins ræðast við á morg-
un eftir nokkurt hlé.
Bjarni sagði, að Vinnumála-
sambandið setti ekki neinn fyrir-
vara fyrir þessar viðræður enda
væru þetta upphafsviðræður aö
ósk VMSI og þyrfti ekki neinn
fyrirvara að setja. Hins vegar
myndu frekari fundir rSða úr um
á hvaða grundvelli yrði rætt sið-
ar. Um fyrirvara VSl, sagði
Bjarni að það þyrfti að koma bet-
ur fram hvað þeir ættu við en það
skýrðist sjálfsagt á fundinum á
morgun.
Sagðist hann lita svo á aö næstu
dagar yrðu þýðingarmiklir hvað
varðaði það að ráöa fram úr þess-
um málum. „Rikisstjórnin hefur
sett lög sem við förum eftir. En ef
hægt yrði að finna einhverja
lausn, þá reikna ég með að allir
vildu sættast á slikt”, sagði hann.
SSt —Það er ekki hægt að standa,
öllu lengur i eilifum sandmokstri
og reyndar alls konar fyrirbyggj-
andi aðgerðum vegna sandfoks-
ins frá nýja hafnargarðinum hér,
sagði Þorleifur Björgvinsson
framkvstj. Glettings i samtali við
Timann i gær.
Við þurfum að moka af hlöðum
hérna svona tvisvar i viku, auk
þess, sem við' veröum sifellt að
þétta rifur á fiskverkunarhúsum,
til að sandurinn sem er finn eins
og hveiti snjúgi ekki alls staðar
inn.og á heildina litið má segja að
þetta valdi okkur margs konar
aukakostnaði og fyrihöfn sagöi
Þorleifur.
Það er þvi bráðnauösynlegt
fyrir alla aöila hér, að ráðizt verði
strax i að hefta fokið. Við höfum
rætt málið við hafnarmálastjórn
og einnig-samgönguráðherra og
hefur óskum okkar um úrbætur
verið vel tekið sagði Þorleifur.