Tíminn - 20.04.1978, Blaðsíða 23
Fimmtudagur 20. april 1978
23
VALURISLANDSMEISTARI
— sigraði Viking 14-13 i
hörkuspennandi leik - gamla
mulningsvélin komst i gang
Knattspyrnufélagiö Valur varð
Islandsmeistari 1978. Valsmenn
sigruðu Viking i stórkostlegum
leik með 14 mörkum gegn 13.
Leikurinn varallan timann mjög
harður og varnir iiðanna góðar.
Vikingar byrjuðu leikinn vel og
skoruðu þrjfl fyrstu mörkin.
Viggó Sigurðsson tók forystuna
eftir rúmlega einnar minútu leik.
Ólafur Jónsson jók forystuna i tvö
mörk á 4 min. með fallegu marki
úr horninu. Valsmenn gerðu á
þessum tima mikið af mistökum,
áttu tvö skot i stöng og þrjú skot
framhjá marki. Vikingur komst i
3-0 á 7. mi'n. með marki ólafs
Jónssonar. Varnarleikur liðanna
var eins og áður segir, mjög góð-
ur og ekki var skorað fyrr en á 12.
min, að Jón Karlsson minnkar
muninn i 3-1 úr vitakasti.
Valsmenn náðu siðan að jafna á
20. min með marki Jóns Karls-
sonar úr vitakasti. A 21. min.
brýst Stefán Gunnarsson i gegn-
um vörn Vikings og kemur Val
yfir i' fyrsta skipti i leiknum 4-3.
Gisli Blöndal^ skoraði tvö næstu
mörk leiksins og kom Val i 6-3.
Loks á 24. min. ná Vikingar að
skora mark og höfðu þá ekki
skorað i 17 min. Vikingar minnk-
uðu siðan forystu Vals i 1 mark,
var Þorbergur þar að verki með
skoti, sem fór i vörn Vals og inn.
Bjarni Guðmundsson skoraði sið-
an siðasta mark hálfleiksins eftir
linusendingu Stefáns Gunnars-
sonar. Siðasta orðið i hálfleiknum
átti Brynjar Kvaran, er hann
varði vitakastPáls. Brynjar hafði
áður varið vitakast frá Arna
Indriðasyni. Staðan i hálfleik var
þvi 7-5 Val i hag.
Seinni hálfleikur var ekki nema
20 sek. gamall þegar Stefán
Gunnarsson læddi sér inn úr
horninu og jók forystu Vals i 8-5.
Á 3 min. ver Brynjar Kvaran
vitakast i þriðja sinn i leiknum.
Bjarni Guðmundsson fékk bolt-
ann eftir vitakastið, óð upp völl-
inn og skoraði 9. mark Vals. Jón
Karlsson jók muninn i 10-5 úr
vitakasti þegar 6 min voru búnar
af seinni hálfleik og héldu menn
nú að úrslit væru ráðin. En svo
var nú ekki. Viggó minnkaði
muninn i 10-6 með marki úr horn-
inu. Valsmenn komust siðan aftur
i 5 marka f orystu með marki Þor-
björns Guðmundssonar.
Nú hljóp allt i baklás hjá Val og
Vikingar skora næstu 4 mörk og
minnka muninn i 2 mörk. Spenn-
an var aftur komin i leikinn og
áhorfendur með á nótunum og
hvöttu sina menn óspart. 17 min
vorubúnar af leiknum og Viking-
ar fá tækifæri að minnka muninn i
1 mark þegar Björgvin fær bolt-
ann frir á linu, en Brynjar Kvar-
ann var ekki á þvi að lát'a skora
og varði skot Björgvins. Jón Pét-
ur Jónsson skoraði 12 mark Vals
úr hraðaupphlaupi og staðan 12-9
þegar 19 min voru búnar af hálf-
leiknum. ólafur Einarsson sem
nú spilaði aftur með Viking eftir
nokkra fjarveru minnkaði mun-
inn i 12-10 með góðu skoti. Vals-
menn hófu nú sókn og ætluðu sér
greinilega ekki að skjóta nema i
dauðafæri. Gisli Blöndal endaði
sóknina með skoti, en tekið var i
hendina á honum um leið og ekk-
ert dæmt. Viggó Sigurðsson
minnkaði muninn i 1 mark fyrir
Viking á 23 min hálfleiksins.
Björgvin Björgvinsson sem
hafði verið i strangri gæslu á lin-
unni allan leikinn jafnaði fyrir
Viking þegar 5 min voru til leiks-
loka með marki úr horninu 12-12.
Á 26 min hálfleiksins skoraði Gisli
Blöndal 13 mark Vals og voru
Valsmenn þá komnir með 1
marks forsytu aftur, 13-12.
Allt var á suðupunkti þegar
Björgvin jafnar aftur fyrir Viking
13-13. Tvær minútur eftir af leikn-
um og Valsmenn með boltann. Nú
var úr vöndu að ráða fyrir Vals-
menn, áttu þeir að halda boltan-
um og freista þess að skora sigur-
markið á lokamfnútunni?
Þorbjörn Guðmundsson var
ekki á þvi og skaut úr vonlausu
færi þegar 1 min var til leiksloka.
Vikingar fá boltann og þurftu að
halda honum til leiksloka til þess
Bj arni Guðmundsson hefur brotizt i gegn og skor ar.
Júgóslavía sigr-
aði England 2-1
Júgóslavar sigruðu Englend-
inga 2—1 i undanúrslitum
Evrópukeppninnar i knattspyrnu,
21 árs og yngri. Leikurinn var
háður i Júgóslavíu i gærkvöldi og
var staðan i hálfleik 1—1. Mörkin
skoruðu fyrir Júgóslava Halihod-
zic 2 og Andy King, Everton skor-
aði mark Englands.
I
63. Viðavangs- J
hlaup ÍR í dag |
I
I
KR- Ármann 22-20 |
I
Viðavangshlaup IR hið 63. i röð-
inni fer að venju fram i dag sum-
ardaginn fyrsta og hefst kl. 14.00.
Hlaupiðhefsteins og siðustu 20 ár
I Hljómskálagarðinum og endar i
Kirkjustræti við norðaustur horn
Alþingishússins. 99 hlauparar eru
skráðir til keppni, 21 kona og
78karlar Flestir beztu hlauparar
landsins eru meðal þátttakenda,
þar á meðal Jón Diðriksson, sem
er nýkominn heim frá Englandi.
KR-ingar sigruðu Armann i gær-
kvöldi með 22 mörkum gegn 20.
KR-ingar hafa þar með náð 12
stigum, eða jafnmörgum og
Fram og þurfa að fara fram tveir
aukaleikir þeirra á miíli um hvort
liðið keppir við HK um sæti i 1.
deild að ári.
Leikurinnvarfrekar jafn fram-
an af, en um miðjan fyrri hálfleik
náðu KR-ingar góðu forskoti og
komust i 8—4, en Ármenningar
minnkuðu muninn i 9—7 og sá
munur hélzt i hálfleik, en staðan
van þá 12—10.
Lm miðjan seinni hálfleik tókst
Armenningum að jafna 14—14, en
þá tóku KR-ingar góðan sprett og
komust i 19—15, en lokatölur urðu
22—20. Markhæstir hjá KR voru
Björn Pétursson 6(4) og Haukur
Ottesen með 5 mörk. Hjá Ár-
manni var Björn markakóngur
Jóhannesson markhæstur með 6
mörk og Friðrik Jóhannsson
skoraði 5 mörk.
RP
að sigra i mótinu þvi að þeim
nægði jafntefli. Valsmenn komust
inn í sendingu þeirra þegar 30 sek
1 voru eftir og kom Stefán Gunnars
son inn á um leið. Þetta var
happadrjúg skipting á siðasta
augnabliki. Stefán fékk boltann
og áttí gullfallega sendingu á
Þorbjörn Jenssonsem kastaði sér
inn i vitateiginn og skoraði glæsi-
lega. Vikingar fá boltann og hefja
sókn sem .endar með þvi að Vals-
menn brjóta á þeim og fá dæmt á
sig aukakast þegar leiktiminn er
runninn út. úr frákastinu tókst
Vikingum ekki að skora og voru
Valsmenn þvi orðnir Islands-
meistarar.
Leikurinn i gær var vel leikinn
ábáða bóga þá sérstaklega varn-
irnar. Beztu menn leiksins i gær
voru þeir Brynjar Kvaran mark-
vörður Vals og Stefán Gunnars-
son sem stjórnaði öllum leikVals
af röggsemi og mikilli kunnáttu.
Aðrir leikmenn Vals sem áttu
góðan leik voru Gisli Blöndal og
Steindór Gunnarsson, annars áttu
allir leikmenn góðan leik.
Af Vikingum áttu þeir Viggó
Sigurðsson og Þorbergur Aðal-
steinsson beztanleik, einnig varði
Kristján Sigmundsson vel, sér-
staklega á fyrstu minútum leiks-
ins. Úrslit leiksins voru sanngjörn
eftir gangi hans, munurinn lá
aðallega i þvi að Valsmenn héldu
haus, eins og sagt er á iþrótta-
máli, en Vikingar ekki.
Dómarar leiksins voru þeir
Gunnar Kjartansson og Óli Ólsen
og dæmdu þeir erfiðan leik vel.
Mörkin i leiknum skoruðu fyrir
Val: Gisli Blöndal 3, Jón Karlsson
3, allt úr vitum, Þorbjörn Guð-
mundsson 2, Stefán Gunnarsson
2, Bjarni Guðmundsson 2, Jón
Pétur Jónsson 1, og Þorbjörn
Jensson 1.
Fyrir Viking skoruðu: Viggó
Sigurðsson 4, Þorbergur Aðal-
steinsson 2, Björgvin Björgvins-
son 2, Ólafur Jónsson 2, Páll
Mynd Róbert
Bjrögvinsson 1, Árni Indriðason
1, og Ólafur Einarsson 1, SJó
Sagt eftir leikinn
Stcfán Gunnarsson Fvrirliði
V'a ls:
Þetta var týpiskur úrslitaleik-
ur. Eftir að Vikingar náðu forystu
3-0, var erfitt að leika, en við
héldum haus — og með góðum
varnarleik og sérstaklega góðri
markvörzlu náðum við að ná yfir-
tökunum i leiknum. Það sem réði
úrslitum i' þessum leik var góður
varnarleikur, mjög góð marka-
varzla og svo leikreynslan sem er
alltaf þung á metunum.
Gunnsteinn Skúlason þjálfari
Vals:
Við náðum að stemma okkur
mjög vel andlega fyrir þennan
leik; strákarnir fóru i þennan leik
sem ein heilJ. Frábær barátta og
fuáibær markvarzla Brynjars
Kvarans réðu úrslitum. Dómarar
leiksins fundust mér góðir. Þeir
voru ákveðnir og hvorugt liðið
hagnaðistá þeim . Ég vilað lokum
þakka stuðningsmönnum okkar
ómetanlegan stuðning.
Þorsteinn Einarsson liðsstióri
Vals :
Þetta var góður leikur og enda-
lokin bezt. Þetta er búið að vera
erfitt ár fyrir handknattleiks-
menn og handknattleiksunnendur
og þvi' gott að fásvona góðan leik i
lok timabilsins. Áhorfendur fengu
loks mikið fyrir peningana. Það
er blóðugt fyrir Viking að tapa
þessu móti þar sem þeir áttu i
byrjunmótsbezta liðið. Égálit að
skapið hafi orðið Viking að falli i
þessu móti. Við bvrjuðum þetta
mót illa, en eftir að við höfðum
rættmálin nðnar, skömmuðumst
við okkar og ákváðum að standa
undir nafni félagsins það sem eft-
ir væri af mótinu. Við áttum siðan
góðan endasprett og fengum 17
stig af 18 mögulegum seinni
partinn.
Karl Benediktsson þjálfari Vik-
ings:
Byrjunin hjá okkur var góð, en
við vorum of skotglaðir. Það var
gott hjá strákunum að ná þessu
upp eftir að Valsararnir höfðu yf-
ir 10-5 og vorum við þá óheppnir
að ná ekki yfirtökunum.
Þorbergur Aðalsteinsson.
Þeir voru betri, héldu haus, og
spiluðu eins og á að gera i svona
leik. Það var lika agalegt að mis-
nota þrjú viti. Ég óska þeim til
hamingju, en við tökum þá i Bik-
arnum.
Gunnar Kjartansson Dómari:
Þetta var harður og erfiður
leikur að dæma, miklar sveiflur á
báða bóga, alveg eins og úrslita-
leikur á að vera.
Vikingur-
Fylkir 2-0
Einn leikur fór fram i Reykja-
vikurmótinu i knattspyrnu i gær-
kvöldi. Vikingur sigraði Fylki
með tveimur mörkum gegn engu.
1 fyrri hálfleik skoraði Gunnar
Orn fallegt mark með viðstöðu-
lausu skoti i bláhorniö. A fvrstu
minútu siðari hálfleiks var Arnóri
Guðjónssyni brugðið innan vita-
teigs og dæmt viti. sem Gunnar
örn skoraði örugglega úr. Leikur-
inn var frekar leiðinlegur á að
horfa og litið um knattspyrnu.
Einn leikur verður i Revkjavikur-
mótinu i dag og leika þá KR og
Fram. Leikurinn hefst kl. 16.