Tíminn - 20.04.1978, Blaðsíða 21
Fimmtudagur 20. april 1978
21
*^g—♦
willl
Nýkomnar
BOC
logskurðar-
vélar
ms%125p
Allt þetta fyrir
Til öryrkja 1.365.000
Station 1.930.000
Til öryrkja 1.510.000
— Hámarkshraði 155 km — Bensíneyðsla um 10 lítr
ar per 100 km — Kraftbremsur með diskum á öllun
hjólum — Radial-dekk — Tvöföld framljós me*
stillingu— Læst bensínlok— Bakkljós— Rautt Ijós
öllum hurðum — Teppalagður — Loftræstikerfi -
Öryggisgler-2ja hraða miðstöð — 2ja hraða rúðú
þurrkur— Rafmagnsrúðusprauta — Hanzkahólf o<
hilla — Kveikjari — Litaður baksýnisspegill -
Verkfærataska — Gljábrennt lakk — Ljós í farang
ursgeymslu — 2ja hólfa kaborator — Synkronester
aður girkassi — Hituð afturrúða — Hallanleg sætis
bök — Höfuðpúðar.
FIAT EINKAUAABOD Á ISLANDI
Davíð Sigurðsson h.f.
Síðumúlo 35 Simar 38845 — 38888
Umboðsmaður okkar á Akureyri er
VAGNINN S.F. Furuvöllum 9, sími (96) 1-14-67
Keflavík
Vantar blaðbera strax i vesturbæinn.
Upplýsingar i sima 1373.
Dagana 14. til 16. aprfl fór fram
nemendamðt i Skálholti. Að þvi
stóð Nemendasamband Skál-
holtsskóla, en samtök þessi voru
stofnuð fyrir nær einu ári. Sam-
kvæmt lögum Nemendasam-
bandsins eru markmið þess svo-
hljóðandi:
a) Að efla samskipti Skálhyltinga
að loknu námi og halda við
samfélagi þeirra sin á milli.
b) Að varðveita tengsl nemenda
við Skálholtsskóla.
c) Að styðja Skálholtsskóla með
ráðum og dáð.
Nemdnamót hófst að kvöldi
föstudagsins I4.april,enþá komu
eldri nemendur i Skálholt, og var
unað við arineld og gamanmál
fram eftir nóttu. Klukkan 14.00 á
laugardag var aðalfundur Nem-
endasambandsins settur i
kennsluálmu skólans. Á fundin-
um urðu miklar umræður um
hlutverk og framtið Nemenda-
sambandsSkálholtsskóla, og rikti
þar i senn eining og áhugi. Stjórn
Nemendasambandsins var
endurkjörin, en i henni eiga eftir-
taldir menn sæti:
Steinarr Þór Þórðarson,
formaður
Asgrimur Grétar Jörundsson,
féhirðir.
Rúnar Kolbeinn Oskarsson, rit-
ari
Eyþór Árnason
Óskar Bjartmarz, — með-
stjðrnendur.
Að kvöldi laugardags hófst
mannfagnaður, og sáu þar hvorir
tveggja um dagskráratriði, nú-
verandi nemendur og hinir eldri.
Lauk þeirri skemmtan með þvi,
aðdansað var i dagstofu skólans.
Á sunnudag söfnuðust menn
saman til hádegisverðar, en að
svo búnu var gengið til guðsþjón-
ustu i Skálholtskirkju. Nemenda-
móti var siðan slitið að loknu sið-
degiskaffi.
Skálholtsskóli hefur nú starfað
sex vetur samfleytt. Með eflingu
Einn þekktasti
brúðuleikhús-
maður til íslands
Þ.
ÞORGRIMSSON & CO
'Armúla 16 sími 38640
Nemendasambandsins er lagður
mikilsverður hornsteinn að þvi
varanlega samfélagi eldri nem-
enda, sem er grundvöllur að vexti
og viðgangi lýðháskóla hér á
landi sem annars staðar. Lýðhá-
skóli á sér mörg sérkenni, en eitt
þeirra er þetta, að tengsl fyrrver-
andi nemenda við skólann eruná-
in og lifandi. Með þeim hætti
verða allir þeir, sem stundað hafa
nám við lýðháskóla ellegar starf-
að þar, að einni fjölskyldu, sem á
sér lýðháskólahugmyndina að
sameiningartákni. Nemenda-
mótið i Skálholti varð þýðingar-
mikill áfangi á þeirri braut, er
liggur að þessu marki. Mótið
sýndi það og sannaði, að lýðhá-
skóli er i raun orðinn til á Islandi
að nýju, ekki aðeins sem mennta-
stofnun, er hlotið hefur opinbera
viðurkenningu, heldur einnig sem
bræðralag karla og kvenna viðs
vegar um land.
Þann 22. april er væntanlegur
til landsins einn þekktasti brúðu-
leikhusmaður heimsins um þess-
ar mundir. Þjóðverjinn Albrecht
Roser. Roser er fæddur árið 1922.
29 ára gamali snýr hann heim úr
striðinu og tekur að fást við ýms-
ar listgreinar. Meðal annars fær
hann það verkefni að skera út
leikbrúður, og verður svo hrifinn
af þvi og þeim möguleikum, sem
það býður upp á, að hann heldur
áfram að leita fyrir sér á þessu
sviöi og hittir þá kennara sinn i
leikbrúðusmiði, F.H. Bross.
Með „trúðnum Gústaf” leggur
Roser i fyrsta sinn út á eigin
brautir. Með þvi að æfa sig fyrir
framan spegilinn nærhann tökum
á „persónuleika” Gústafs og sin-
um eigin leikhæfileikum. Smám
saman verða „Gústaf og félagar
hans” til, sem fylgja honum siðar
á ferðum hans um heiminn.
Arum saman vinnur hann að
nýjum tæknilegum atriðum og
lausnum. Fyrir Roser er leik-
brúðan tæknilega háþróað, list-
rænt og ofurviökvæmt tæki.
Atriðin verða til hægt og hægt, í
andstöðu við flýti og hraða nútim-
ans. 1 leiknum er, eins og i jass
bryddað upp á nýju þema i hver ju
atriði, og haldið áframmeðþaði
margs konar tilbrigðum.
SýningRoserssamanstendur af
skopátælingu og látbragðsleik, en
þó einkum af dansi, sem öllum er
skiljanlegt. Hann hefur sérstakt
dálæti á hinum grátbroslega
heimi fif lsins og loddarans. Roser
notar engin leiktjöld eða annan
leiksviðsútbúnað: nokkur borð
eða upphækkaður pallur er allt og
sumt. Hér er ekki um að ræða
leikrit, heldur einstök atriði með
leikbrúðum. Sýningarnar eru þvi
ekki háðar neinu tungumáli.
Fyrsta sýning hans utan
heimalandsins var i Grikklandi
árið 1956. Sama árið vann hann
gullverðlaunin á fyrstu alþjóð-
legu hátið brúðuleikara i Búka-
rest. Roserhefur ferðazt viða um
heim, og oft á vegum Goethe-
stofnunarinnar. Meðal annars
hefur hann fariö 3 sýnQarferöir
til Suður- og Norður—Ameriku, 3
ferðir um Asiu og eina ferð til
Astratiu. Á heimssýningunni i
Montreal, 1967, hélt hann sýning-
ar i hálfan mánuð i sýningarskála
Sambandslýðveldisins Þýzka-
land. Arið 1976 tók hann þátt i
alþjóðlegri hátið brúðuleikara i
Moskvu.
Fyrsti aðstoðarleikari Rosers
var Ina von Vacano (1954-1968).
Frá og með árinu 1969 hefur Ing-
rid Höfer tilheyrt „flokknum”.
Hún er blaðamaður, ljósmyndari
og iðjuþjálfi að menntun. Eftir
margar utanlandsferðir, þar sem
hún meðal annars lagði stund á
málanám bættist hún i hópinn.
Hún tekur nú i æ rikari mæli þátt i
sjónvarps- og leikhússýningm
Rosers.
Þótt undarlegt megi virðast,
eru sýningar Rosers aðeins fýrir
fullorðna. Börn innan 15 ára ald-
urs fá ekki aðgang, þar eð sýning
hans er mjög viðkvæm fyrir trufl-
unum.
Roser kemur hingað á vegum
Goethe-stofnunarinnar/þýzka
bókasafnsins i Reykjavik og
UNIMA á tslandi. Hér á landi
verður aðeins efnt til einnar
sýningar, sem verður haldin
sunnudaginn, 23. april i Hátiðasal
Hagaskólans (við Hagatorg) og
hefst kl. 20.00.
msM125p
Skálholtsskóli í
raun lýðháskóli