Tíminn - 20.04.1978, Blaðsíða 10

Tíminn - 20.04.1978, Blaðsíða 10
10 Fimmtudag'ur 20. april 1978 Dagur er aö kvöldi kominn. Vilhjálmur Kjartansson, bóndinn ungi ab Kirkjubóli i Skutulsfiröi, tekur rauöu plastfötuna og licldur i fjósiö. Kýrnar vita, hvaö timanum liöur, þó aö ekki þekki þær á klukku, og þaö fer bezt á þvi aö gæta stundvisinnar. Og innan litillar stundar bylur mjólkurboginn á fötubotninum hjá mjaltamanninum. Kvöld í sveit Ljósmyndir: Heiðar Guðbrandsson, Súðavík: En seppi lítur á þetta eins og hvert annaö grin. Hann kuölar kettinum á milli framlapp- anna og sperrir sig allan meö góölátlegum yfirburöum hins sterka. Hann lætur ekki svo litiö aö fyrtast, þó aö kisa slæmi lltilli klónni I munnvikiö á honum. Rólegur bíöur hann sins færis: Spyrjum aö leikslokum, en ekki vopnaviöskiptum. Vilhjálmur fer ekki einn sins liös i fjósiö. Seppi er á ferli, hann veit lika, livaö klukkan slær. Og hann hefur sinna hagsmuna aö gæta. Gamall pottur á sinum staö, og þaö eru réttindi seppa aö fá volga mjólkurlögg I þennan pott. Han blöur þolinmóöur I fullu trausti þess, aö hann fái sinn skammt. Og nú fer honum aö þykja nóg um þófiö. Kisa hefur gefiö höggstaö á sér, og seppi neytir þess. Hann bitur kjaftfyili sina i hnakkadrambiö á kisu, sem reyndar viröist ekki kveinka sér til muna. Þetta hefur kannski gerzt áöur nokkuö oft. En nú er samt sýnt, hvort muni hafa betur, og seppi leyfir sér aö njóta þess andartak. Og fleiri koma á vettvang. Kisa lætur sig ekki vanta. En seppi styttir sér biöina meö aö glettast viö kattarsneypuna. Hann slæmir annarri framlöppinni á bakiö á henni. En hún Itorgar fyrir sig. Hún hvæsir framan i dólginn og gerir sig grimma i framan. Kannski hann láti sér segjast, þegar hann sér hvassar tennurnar i kattargininu? Svo rekur hann endahnútinn á leikinn. Meö ósköp sakleysislegum tilburöum rekur hann köttinn á trýniö niöur I pottinn: Til hvers*rar hann aö sniglast þarna? Sleiktu nú, af- styrmiö þitt, úr þvi aö þú gazt ekki beöiö meö tilhljkilegri kurteisi. Geröu þér gott af þvl, sem ipottinum kann aö vcra, og hana nú!

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.