Tíminn - 20.04.1978, Qupperneq 7

Tíminn - 20.04.1978, Qupperneq 7
Fimmtudagur 20. april 1978 7 Útgefandi Framsóknarflokkurinn Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson (ábm), og Jón Helgason. Ritstjórn- arfulltrúi: Jón Sigurösson, Auglýsingastjóri: Steingrlmur Gislason, Ritstjórnarskrifstofur, framkvæmdastjórn og auglýsingar Siöimúla 15. Simi 86300. Kvöldslmar blaöamanna: 86562, 86495. Eftir kl. 20.00: 86387. Verö I lausasölu kr. 100.00. Askriftargjald kr. 2.000 á mánuöi. Blaöaprent h.f. Við sumarkomu Það verður vafalitið viðburðarikt sumar sem hefst i dag, að minnsta kosti á sviði opinberra mála. Nú snemmsumars verður efnt bæði til sveitarstjórnakosninga um land allt og mánuði siðar til Alþingiskosninga. Á þessu sama sumri eru launa- og kjaramálin enn komin i brenni- depil alþjóðarathygli, og án nokkurs vafa eru erfiðar ákvarðanir fram undan vegna þeirra að- stæðna sem atvinnulifið stendur frammi fyrir i verðbólguþjóðfélaginu. 1 sveitarstjórnarkosningunum verður vitan- lega tekizt á um staðbundin viðfangsefni og sér- mál einstakra byggða. En það má þó ekki gleymast að meginlinur stjórnmálanna skerast um allar byggðir, og byggðarlögin og sveitarfé lögin eru i senn hinn eðlilegi heimavöllur byggðastefnunnar og jafnframt er verkefnum þeirra þannig farið að þar á félagshyggjan brýnt erindi á öllum sviðum. í Alþingiskosningunum verður ekki hvað sizt tekizt á um það hvort þjóðin á að njóta áfram úrslitaáhrifa félagshyggjumanna i stjórnar- störfum. Andstæðingar Framsóknarmanna munu reyna að veifa þvi, frekar en engu, að Framsóknarmenn hafi á undan förnu kjörtima- bili átt samstarf við höfuðandstæðinga sina til hægri. Reyndin hefur þó orðið sú að rikisstjórnin hefur verið farsæl i störfum sinum. Komið hefur verið i veg fyrir atvinnuleysi og byggðaflótta og fjölmörgum umbótum komið fram. Hins vegar dettur stjórnarliðum það ekki i hug að gera litið úr þeim verðbólguvanda sem enn steðjar að þjóðarbúinu og kallar á róttækar aðgerðir. Andspænis verðbólgudraugnum verða allir að sameinast undir forystu stjórnarvaldanna. í þeim átökum munar mest um samtök atvinnu- veganna og launþegasamtökin i landinu. Það sem brugðizt hefur á undan förnum árum er þessi samstaða um almannahag þvi að i frjálsu þjóðskipulagi er máttur almannasamtaka slik- ur að til þeirra verður leitað um samfylgd að sliku meginmáli. Mjög mikið af þeim vanda sem atvinnulifið á við að striða um þessar mundir verður rakið beint til verðbólgunnar. Munar þar verulega um ört hækkandi f jármagnskostnað i kjölfar þeirr- ar uppbyggingar sem átt hefur sér stað að und- an förnu. Þessi vandamál eru i reynd skýrt dæmi þess að vinnuveitendur, launþegar og stjórnvöld eiga sameiginlegra hagsmuna að gæta um það að verðbólgudraugurinn verði sett- ur i bönd. Að baki þessum timabundnu vandamálum verða menn að minnast þess að það skiptir máli, svo að úrslitum ræður, hvort þau verða leyst i anda velmegunar, velferðar og félagshyggju eða ekki. Og það er aðalatriðið i upphafi þessa sumars sem jafnan að áfram verði haldið á framsóknarbr autinni. JS. Siglingin á sefbáti Thors Heyerdahls: Ófriðurinn hættulegri en veður og haf Thor Heyerdahl hyggst nú helga sig ritstörfum og vísindalegum athugunum Þetta eru orð dansks eðlisfræði- og stærðfræði- stúdents, sem var í fjóra mán- uði á sefbáti Thors Heyerdahls á siglingu um Indlandshaf, næstyngstur þeirra félaga, 21 árs. Hann segir fullum hálsi, að þeir félagar hafi mikinn hug á þvi að efna sér i nýjan sefbát til langsiglinga. ,,Á slikum ferðum eru engir tveir dagar eins og ég leyfi mér að segja, að við nutum lifsins I rikum mæli, þótt á sefbáti væri úti á reginhafi. Alskeggjaðir og koparbrúnir á hörund komu þeir i land úr ævintýraferð sinni — og verða aldrei aftur sömu menn eftir þá lifsreynslu, er þeir hafa öðlazt. ,,Við vorum ellefu mánuöi á sefbáti. Einhver kann aö ætla , að við höfum átt i stöö- ugum illdeilum. En þvi fór fjarri. Að visu bar við, aö upp á vinskapinn slettist, en ekki svo dýpri ristien þaö, aö fáein afsökunarorð nægöu til þess aö jafna ágreininginn. Sjálfur get ég meö sanni sagt aö þessir tiu menn, sem meö mér voru á bátnum, veröa vinir minir alia tíö”. Thor Heyerdahl er eins og allir vita heimsfrægur maður af siglingum sinum á bátum af fornaldargerðum vitt um höf. Með eigin dæmi hefur hann sannað, að fornaldarþjóðir gátu stundað siglingar langt umfram það, sem áður var talið, og komizt til eyja og landa langt utan þess svæðis, er vfsindamenn töldu til skamms tima, að þær hefðu getað farið um á bátum sin- um. Þessi siðasta ferð Heyer- dahls og félaga hans endaði með snöggum og óvæntum hætti, svo sem menn muna úr fréttum. Mánudag einn á Persaflóa kveiktu Thor Heyerdahl og áhöfn hans i sef- bátnum og var það gert til að mótmæla á fréttnæman hátt ófriðarástandi i Afriku. Þetta gerðist við litla eyju út af Dji- búti, höfuðborg samnefnds smárikis, grannlands Eþiópiu. „Við afre'ðum að ljúka sigl- ingu okkar á þennan hátt til þess að láta eftirminnilega i ljós andúð okkar á styrjöldum i Austur-Afriku og sendum um það skeyti til höfuðstöðva Sameinuðu þjóðanna i New York”, sagði danski stúdent- inn, Asbjörn Damhus, við heimkomuna. „Við höfðum fengið um það skeyti frá stjórnvöldum i Sómaliu, Eþiópiú, Súdan, Suður-Jemen og Norður-Jemen, að þau þyrðu ekki að leyfa okkur landtöku vegna styrjaldar og óeiröa, þar eð þau treystu sér ekki til þess að ábyrgjast öryggi okkar. Og þá var þetta svarið af okkar hálfu”. Það er eftirtektarvert, að sefbáturinn var ekki i teljandi hættu vegna storma og sjó- gangs, enda þóttsústund hlyti aðkoma, að sefið drykki i sig svo mikinn sjó, að þaö flyti ekkilengur. Enhúnvarekki komin, og unnt hefði verið að halda siglingunni áfram.” Það var ófriðurinn, sem alls staðar geisaði, sem var langmesta hættan, þvi að yfir vofði að einhverjir þeirra, sem þessar styr jaldir heyja, héldu, að við værum úr liði óvinanna, vörp- uðu að okkur sprengjum úr flugvélum eða skytu á okkur. Það kom margsinnis fyrir, að skotvopnum var beitt i grennd við okkur”, sögðu bátverjar, bátverjinn meö efúrlikingu af rauninni aldrei nein teljandi hætta á, að báturinn sykki. Helzta óhappið var, að siglu- tré brotnaði, svo aö bátnum miðaði minna en ella i nokkra daga. Fullvist má telja, að hann hefði haldizt á floti I fimm mánuði til viðbótar.” Þeirfélagarsegjaað i næsta báti verði kjölurinn með nokk- uð öðru lagi, sefið betur varið gegn vatni og káeturnar léttari. Þá hafa þeir mikinn hug á þvi að leggja á höfin með blandaða áhöfn, þvi að þeim finnst fjögurra mánaða kvenmannslaus sigling helzt til löng. Thor Heyerdahl óttast samt, að af þvi sprytti af- brýðissemi, ef kvenfólk væri i slikri áhöfn, en aðrir telja, að hjá þvi megi sneiða. Fornmenn, sem fóru i lang- siglingar, hafa varlá hafnað kvenfólkinu ævinlega, og auð- vitað alls ekki, þegar þeir voru i landnámshug. Sumir þeirra, sem voru i þessari siðustu langsiglingu Thors Heyerdahls, gátu hvorki matazt né unnið fyrstu dagana vegna sjósóttar. Þeir lágu fyrir langtimum saman, sárkvaldir, og gátu ekki sinnt skyldustörfum sinum. En þeir hresstust eftir nokkra daga, og meginhluta ferðarinnar voru allir hinir hraustustu, nema hvað niðurgangur þjáði þá á köflum. Thor Heyerdahl var að sjálfsögðu skipherrann. En bátverjar segja, að hann hafi verið mildur skipherra og á engan hátt látið þess gæta, að hann væri annaö en félagi og samverkamaður, nema þegar til úrskurðar og ákvarðana þurfti að koma. Hann stóð við stýrieins ogaðrir,ogtókþátt i uppþvotti til jafns við hina. Þeir af áhöfninni, sem hafa hug á að koma sér upp nýjum báti og hefja aðra siglingu sakna þess þvi, að Thor Heyerdahl hyggst ekki verða með i hópnum. Hann mun nú um sinn helga sig visindaleg- um störfum og ritmennsku. Ásbjörn Damhus, næstyngsti sefbátnum. er þeir hittu blaðamenn að máíi. Sefbátnum var fórnað til þess að segja heiminum, að það er i meira lagi ámælis- vert, að vopnasalar, og enda margar íikisstjórnir, skuli standa i vopnaútvegunum og vopnagjöfum, sem næstum þvi sjálfkrafa kalla á blóðsút- hellingar og hvers konar hörmungar. Þeir félagar á sefbátnum sáu hvarvetna frönsk herskip og þyrlur og bandariskar sprengjuflugvél- ar, sem óspart var beitt. Það vakti einkennilega tilfinningu að sigla um höfin á sefbáti af sömu gerð og Fönikiumenn notuðu á ferðum sinum um fljót og vötn og haf fyrir fimm þúsund árum, og verða vitni að þeim hrellingum og ógnar- verkum, sem valdamiklir, grimmlyndir og samvizku- snauðir landsfeður á tuttug- ustu öld ýta undir viða um heim. Það var andspænis þessu, sem Thor Heyerdahl tók loks ákvörðun sfna. ,,A land gengum við samt með ævintýralegar minning- ar. Það reyndi á ellefu ein- staklinga frá átta þjóðum að vera svo lengi saman á þess- ari fleytu. Þetta voru tveir Norðmenn, tveir Bandarikja- menn, einn Rússi, einn Dani, einn Þjóðverji, einn Japani, einn Arabi og einn Itali auk Heyerdahls sjálfs. Framan af notuðum viö allir flókaskó svo að skóhljóðið erti ekki neinn, en þegar frá leið, gátum við hent gaman hver að öörum eins ogokkur sýndist. Lentum við i stælum, var það út af einhverju svo hversdagslegu sem hugsazt gat. Reyndar var ekki þröngt um okkur, þvi að báturinn var átján metra langur og sex metra breiður, svo að menn gátu verið einir út af fyrir sig, ef þeir vildu.” Þannig komst Asbjörn Damhus að orði. ,, Eins og áður sagði var i \

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.