Tíminn - 20.04.1978, Page 28

Tíminn - 20.04.1978, Page 28
GISTING MORGUNVERDUR Sýrð eik er sígild eign &C.ÖC.I1 TRÉSMIÐJAN MEIDUR SÍÐUMÚLA 30 - SÍMI: 86822 Fimmtudagur 20. apríl 1978 —62. árgangur —81. tölublað Póstur og sími hækka Póst- og simamálstjórnin hefur fengið heimild fyrir 14% hækkun gjaldskrár póst- og simaþjónustu og hækkar gjaldskrá fyrir sima- þjónustu20. april nk.en gjaldskrá fyrir póstþjónustu 1. maí n.k. Við simagjöldin bætist 20% söluskatt- ur. Helztu breytingar á gjaldskrá fyrir simaþjónustu eru, að af- notagjald sima og sjálfvirka símakerfinu hajkkar úr kr. 5.200.- (meö söluskatti kr. 6.240.-) á árs- fjórðungi i kr. 6.000,- (með sölu- skatti kr. 7.200.-) Gjald fyrir um- framsimtöl hækkar úr kr. 11.30 (með söluskatti kr. 13.50) i kr. 13.00 (með söluskatti kr. 15.60) fyrir hvert teljaraskref. Fjöldi teljaraskrefa, sem innifalin eru i afnotagjaldinu er óbreyttur. Almennt gjald fyrir flutning á sima hækkar úr kr. 18.000,- (með söluskatti kr. 21.600.-) i kr. 20.500.- (með söluskatti kr. 24.600.-). Stofngjald fyrir sima, sem tengdur er við sjálfvirka # Framhald á bls. 28 Ólöf Þráinsdóttir, sigurvegari i kvennaflokki annaö áriö i röö. Skákþingi i kvennaflokki lokið: Ólöf varði titil sinn SSt — ólöf Þráinsdóttir varð sigurvegari á Skákþingi Islands í kvennaflokki, sem lauk um helg- ina. Hún sigraði i fyrra og hafði þvi titil að verja. Keppendur voru fimm og urðu úrsljt sem hér segir: 1. Ólöf Þráinsdóttir 31/2v. 2. -3. Birna Norðdahl 2v. 2.-3. Svana Samúelsdóttir 2v. 4.Sigurlaug Friöþjófsdóttir 11/2 v. 5. Asfaug Kristinsdóttir lv. Teflt var eftir nýju timamörk- unum i kvennaflokki eins og reyndar i öðrum llokkum á Skák- þingi. SJ-Í gær var slöastí kennsludagur hjá þeim nemendum Ármúlaskóla sem I vor ljúka svonefndu stú- dentsprófsgildi á nattúrufræöi og félagsfræöisviöum. Nemendur geröu sér dagamun kvöddu skólasystkini isin og kennara, meö blómum, málsháttum og glensi og fóru siöan og geröu sér glaöan dag. Siöan taka prófannir viö. Timamynd: Róbert. Ný reglugerð fjármálaráðuneytisins: Stórlækkar verð á vörubifreiðum — eykur jafnframt tekjur ríkisins .IB — Fjármálaráðuneytið gaf i gær út nýja reglugerð um inn- flutningsgjald af bifreiðum og bifhjólum. Er i reglugerð þessari kveöið á um, að 25% innflutnings- gjald af veröi almenningsbifreiða fyrir 18 farþega og fleiri,dráttar« bifreiða svo og vörubifreiða með burðarþol 6 tonn og þar yfir falli niður. Þýðir þetta verulega lækk- un á verði viðkomandi bifreiða frá þvieftir að gengisfellingin tók gildi fyrr á þessu ári. Að öðru leyti en um getur, eru ákvæði reglugerðarinnar óbreytt frá eldri reglugerð um sama efni. Agúst Hafberg forstjóri sem var i nefnd, sem vann að þessu með fjármálaráðuneytinu tjáði Timanum það, að þetta gjald hefði ekki verið á öllum bifreiðum og ekki innifalið i tolli. Það var sett á i kringum 1972 og var þá fyrst 15%, en var siðan hækkað. Sagði hann að niðurfelling þess væri tilkomin að ósk Bílgreina- sambandsins og Félags sérleyfjs- hafa, sökum þess að þetta auk annars hefði orsakað mjög hátt verð á bifreiðum i þessum flokki og valdið þvi að innflutningur á þeim minnkaði. „Samkvæmt könnum sem gerö hefur verið eru um 2800 vörubi'lar i landinu, en aðeins hafa verið fluttir inn 63—70 árlega sem þykir óeðlilega litið. Og ef reiknað væri með að svip- aöur innflutningur héldist áfram, tæki það 40 ár, að endumýja um- ræddan bi'laflota íslendinga. Meðalaldurvörubifreiðai landinu er 13 ár og 60% þeirra er eldri en tiu ára. Til að eðlileg endurnýjun yrði á þessum bilum þyrfti að flytja inn 200—250 bila árlega”, sagði hann. Að sögn Agústs, þá hafa tekjur rikisins af innflutningi þessara bifreiða i formi tolla, söluskatts og aðflutningsgjalds numið 6.767.000 miðað við bifreið sem kostaði tæpar sextán milljónir. En með niðurfellingu þess gjalds lækkaði hlutur rikissins um tvær milljónir. Þrátt fyrir það, væri gert réð fyrir þvi, að um tekju- aukningu verði að ræða fyrir rik- ið, þar eð aukin sala yrði á þess- um bifreiðum. Hjá bilgreinasambandinu feng- um við tölulegt dæmi um það hvað þetta þýddi varðandi verð bifreiða. Ef tekin er t.d. bifreið sem kostaði kr. 15.007.000 fyrir gengislækkun, sem dæmi, þá hækkaði hún i kr. 17.920.000 eftir gengisfellinguna. Þegar svo inn- flutningsgjaldið er fellt niður nú, lækkar bifreiðin aftur i kr. 15.520.000 kr. og er þannig um 2.400.000 kr. lækkun að ræða. Ef svo er tekin bifreið i lægri verð- flokki, sem kostaði 7.230.000 fyrir gengisfellinguna hækkaði hún i kr. 8.890.000 er krónan var felld. Nú lækkar hún i kr. 7.765.000. Reiknast meðaltalslækkun á þessum bifreiðum um 1.940.000. Hattahengi tilbúin og vegurinn heflaður Starfsmenn við Sigöldu mótmæla ferð stjórnar og fylgdarliðs á staðinn JB — „Stjórn Landsvirkjunar hefur efnt til þessarar kynnis- ferðpr til Sigöldu og að Hraun- eyjarfossi i dag, i þvi skyni að gefa fulltrúum eigenda, þ.e. rikis- ins og Reykjavikurborgar, kost á aö kynna sér framkvæmdir á vegum Landsvirkjunar þar. En framkvæmdir viö Sigöldu eru komnar á lokastig og fyrirhugað- ar framkvæmdir við Hrauneyjar- fossvirkjun hefjast væntanlega i sumar. Ferðir sem þessi hafa oft verið farnar áður s.s. árið 1971 er farið var til Búrfells. Þetta er dagsferð og verður snætt i mötu- neytinu i Sigöldu. Um eitt hundr- I að manns taka þátt i heinni, þing- menn, og embættismenn borgar- innar auk maka, en fjöldinn er ekki fullákveðinn ennþá. Varö- andi kostnað þá er hann ekki ljós ennþá, hann fer eftir þátttak- endafjölda og vil ég ekki láta hafa eftir mér neinar tölur i þvi sam- bandi”. Framangreindar upplýsingar komu fram hjá Halldóri Jónatanssyni, aðstoðarfram- kvæmdastjóra Landsvirkjunar, er Tfminn hafði samband viö hann vegna framkominna mót- mæla starfsmanna Sigölduvirkj- unar vegna ferðar þeirra er um er rætt. En er Halldór var spurður álits á þessum mótmælum kvað hann stjórn Landsvirkjunar ekki hafa borizt nein mótmæli, og gæti hann þvi ekki tjáð sig neitt um þau. Er Timinn hafði samband upp i Sigöldu i gær, var blm. tjáð að andi starfsmánna þar væri mjög á móti ferð þessari, og hafa þeir sem áður segir sent frá sér mót- mæli gegn henni. Það sem þeir sjá ferð þessari til foráttu er það, að þeim finnst að verið sé að sóa milljónum i sk. fSmennan forréttindahóp. Mót- mæla þeir þvi að standa undir kostnaði af sliku, og segja þessa menn geta staðið straum af Framhald á bls.28 Framboðslisti Framsóknar- manna í Garðabæ Framsóknarmenn i Garðabæ hafa gengið frá lista sinum viö bæjarstjórnarkosningarnar i vor og er hann skipaður eftirtöldum mönnum: 1. Einar Geir Þorsteinsson 2. Svava P. Bernhöft, 3. Stefán Vilhelmsson 4. Ólafur Vilhjálmsson 5. Ingibjörg Pétursdóttir 6. Hrafnkell Heigason 7. Gunnsteinn Karlsson 8. Hörður Rögnvaldsson 9. Helgi Valdimarsson 10. Sigrún Löve 11. Ingibjartur Þorsteinsson 12. Edda Guðmundsdóttir 13. Höröur Vilhjálmsson 14. Kristleifur Jónsson vi« : • R>itbu«dið *tiliftg á allar matargotur nú þegar. f 0 LokM v«r6l uppbyggingu miöb»|- artn«, austan Hatnarfiarðarvegar • KópsvogsöOar aíljí fyrlr við tóðaúthluUnír. • Aframhatdandi öra atvlnnu- uppbyggíngu. • Bygglng skólahútnatðis ; dís.t í hendurvið I6tk$ljölg- unina I tuenum. 0 iþróttahúsið v*ð Digranesskdta vtsrði tuttgart á kJörtímabíHnu. : • Dagvistunarstotnanir vsrðl byggðar, or einkum þjðnl veaturbaj, mlðb» og 6fsf*■ tamJshvertl. KJðrortJ oMtarer. A8VROÐ — STJÓRNUN- FRAMFARIR Ör atvinnuupp- bygging 1 Kópavogi HEI — „A meðan aðrir flokkar hér i bænum loga i illindum og sundrungu göngum við fram- sóknarmenn sameinaðir til kosn- ingabaráttunnar”, segir i for- ystugrein nýjasta tölublaös Framsýnar, blaðs framsóknarfé- laganna i Kópavogi, sem nýlega er komið út og vonast er til að komi út vikulega á næstunni. Meðal efnis i blaðinu er st.efnu- skrá framsóknarmanna um bæj- armálefni Kópavogs, þvi að mörgu er að hyggja sem fram- kvæma þarf i svo ungum bæ. Viö- tal er viö Jóhann H. Jónsson, sem skipar fyrsta sæti á lista flokks- ins. Segir hann af sem áður var þegar litið var á sem Kópavog sem svefnbæ. Nú sé Kópavogur orðinn öflugur iðnaðarbær og hilli undir, að um þrir fjórðu útivinn- andi Kópavogsbúa geti starfað i bænum. lársbyrjun 1977 voru 110 iðnfyrirtæki i Kópavogi og mörg eru f byggingu. Þá eru einnig við- töl við Skúla Sigurgrimsson, um gatnagerð bæjarins, við Magnús Bjarnfreðsson, sem stefnir að þvl að vinna 3. sætið fyrir Framsókn- arflokkinn i bæjarstjórn, og við Hjört Hjartarson, sem segir að félagshyggjuna og samhjálpina verði hver og einn að hafa að leið- arljósi. Á bilasýning- unnií dag ESE — Að sögn Vilhjálms Kjart- anssoar hjá AUTO 78 verður mik- ,ið um að vera á bilasýningunni i dag. Von væri á 30 þúsundasta gestinum og fær hann hljómflutn- ingstæki frá Pioneer að gjöf, Þá verður maður dagsins valinn eins og venjulega og hlýtur hann sól- arlandaferð fyrir vikið. Þá munu félagar úr Fornbilaklúbbnum efna til hópaksturs um Reykjavlk með gamlan slökkvibil i farar- broddi. Vilhjálmur benti á, að sérstök ástæða væri til að taka börnin með á sýninguna, en það hefði sýnt sig að þau hefðu ekki sýnt hvað minnstan áhuga á syning- unni.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.