Tíminn - 19.05.1978, Page 8
8
Föstudagur 19. maí 1978
LA:
Fj ölskyldusýning á Galdra-
IqtiHÍ — ^ Húsavík, Vopnafirði, Þórshöfn
14111111 og Raufarhöfn
Leikfélag Akureyrar er aö
leggja af stað meö leikritiö
Galdraland eftir Baldur Georgs
til fjögurra staða á Noröur- og
Noröausturlandi. Sunnudaginn
21. mai verður sýning á Húsavik
og hefst hún kl. 16. Næst veröur
sýnt á Vopnafiröi, mánudaginn
22. mai. Sú sýning veröur kl.
20.30. Þriöjudaginn 23. mai verð-
ur sýnt á Þórshöfn kl. 21 og mið-
vikudaginn 24. mai á Raufarhöfn
kl. 20.30. Leikstjóri er Erlingur
Gislason. Baldur og Konni eru
með i ferðinni, enda er þetta fjöl-
skyldusýning og þvi bæöi fyrir
fulloröna og börn.
Leikfélag Akureyrar fer aðeins
á þessa fjóra staði en heldur siðan
til Akureyrar þar sem verða
nokkrar sýningar á Hunangsilmi
undir leikstjórn Jill Brooke Arna-
son.
1 leikförinni verða fastráðnir
leikarar Leikfélags Akureyrar og
leikhússtjórinn, Brynja Bene-
diktsdottir. Allur hópurinn skiptir
með sér verkum. Þeir sem ekki
leika i Galdralandi sjá um ljós,
leikmuni, leikhljóð og miðasölu.
Félag löggiltra rafverktaka:
Óþarfi að styrkja erlendar
Norðurlandamótið
í bridge í Reykjavík
■ , 'i
. . yyv > y<
'• ' -'■ ' ' ■* . * .i 1 <J .
Samkór Trésmiöafélagsins á söngferöalagi I OslÓ.
Samkór Trésmiðafélagsins heldur hljómleika
Norðurlandamót i bridge fer
fram i Reykjavik dagana 10.-15.
júni n.k. Lið Islands verða þannig
skipuð:
Opinn flokkur:
Jón Hjaltason, fyrirliði
Guölaugur R. Jóhannsson —
Orn Arnþórsson
Guðmundur Pétursson —
Karl Sigurhjartarson
Jón Asbjörnsson —
Simon SlmdnarsönT
Kvennaflokkur:
Vilhjálmur Sigurðsson, fyrirliði
Halla Bergþórsdóttir —
Kristjana Steingrimsdóttir
Ester Jakobsdóttir —
Ragna ölafsdóttir
Guðriður Guðmundsdóttir —
Kristin Þórðardóttir.
Unglingaflokkur:
Sverrir Armannsson fyrirliði
Guðmundur P. Arnarson —
Egill Guðjohnsen
Þorlákur Jónsson —
Haukur Ingason
Sigriður Sverrisson —
•SkúliEinarsson.
Samkór Trésmiðaf élags
Reykjavikur býður velunnurum
sinum nú til hljómleika i annað
sinn. Starfsemi kórsins hefur
aukizt mjög og eflst þessi sex ár
sem kórinn hefur starfað.
Stofnendur voru 15 talsins en nú
eru kórfélagar nær 50. I fyrstu
var starfsemin eingöngu bundin
við félagsstarf Trésmiðafélags-
ins, en með árunum hefur kór-
starfið orðið umfangsmeira.
S.l. vor og sumar var mikið um
að verahjá kórnum. Þá hélt kór-
inn sina fyrstu sjálfstæðu tón-
leika, tók þátt i samnorrænni út-
varpsdagskrá 1. mai, og var þátt-
takandi I 7. norræna alþýðutón-
listarmótinu sem haldið var i
Oslð, svo eitthvað sé nefnt.
Þessi ferð var kórnum bæði
lærdómsrik og ánægjuleg. Þarna
var fjöldi kóra og hljómsveita frá
Norðurlöndunum, um 6000 þátt-
takendur. Þetta var i fyrsta sinn
sem íslendingar hafa tekið þátt i
þessu norræna samstarfi, sem
staðið hefur i 20 ár. Islendingun-
um var afar vel fagnað i þessum
hópi og fengu hinar ágætustu
undirtektir.
A þvi starfsári, sem nú er að
ljúka, ber hæst af viðfangsefnum
kórsins, þátttöku I afmælishátið
Landssambands blandaðra kóra i
siðasta mánuði og svo vortónleika
kórsins sem nú standa fyrir dyr-
um.
Á tónleikunum verður fjöl-
breyttefnisskrá,semsegjamá að
skiptist i þrjá meginkafla:
I islenzk kórlög
II þjóðlög frá ýmsum löndum
III útlend klassisk kórlög.
Guðjón Böðvar Jónsson stjórn-
ar kórnum eins og .undanfarin ár
og undirleikarar eru Agnes Löve
pianóleikari og Jósef Magnússon
flautuleikari.
Vortónleikar kórsins verða n.k.
sunnudag 21. mai kl. 16.00 i
Hamrahliðarskóla.
Rithöfundaráð skipað
Stjórn Rithöfundasambands Is-
lands og Rithöfundaráð hafa nú
haldiðfyrstufundi sina eftir nýaf-
staðnar kosningar og skipt með
sér verkum.
Stjórn Rithöfundasambandsins
er þannig skipuð: Njörður P.
Njarðvik formaður, Vilborg Dag-
bjartsdóttir varaformaöur, Krist-
inn Reyr gjaldkeri, Pétur
Gunnarsson ritari og Þorvarður
Helgason meðstjórnandi. Vara-
menn: Asa Sólveig og Baldur
Ragnarsson.
Stjórn Rithöfundaráösins er
þannig skipaö: Stefán Júliusson
formaður, ólafur Haukur
Simonarson gjaldkeri og Asi i Bæ
ritari, en alls sitja 12 menn i ráð-
inu.
skipasmiðar
Aðalfundur Félags löggiltra
rafverktaka varhaldinn að Hótel
Esju 12. mai sl.
Stjórn félagsins var endurkjör-
in, en hana skipa:
Gunnar Guðmundsson
formaður
Hannes Vigfússon
varaformaður
Guðjón A. Ottósson ritari
Þórarinn Helgason gjaldkeri
Böðvar Valtýsson
meðstjórnandi
Á fundinum voru rædd ýmis
hagsmunamál rafverktaka og
gerðar samþykktir m.a. þessar:
1. Fundurinn fagnar nýrri verð-
lagslöggjöf, en beinir jafnframt
þeim tilmælum til stjórnvalda
að á grundvelli hinnar nýju lög-
Sýning á verkum amerisks
naívista
Myndin hér að ofan er eftir ameriskan naivista, Mary Bruce Sharon
að nafni, en myndir eftir hana munu verða til sýnis i Menningarstofnun
Bandarikjanna frá laugardeginum 20. mai til 9. juni. Mary Bruce Shar-
on vakti strax athygli, þegar hún fór að mála — þá komin yfir sjötugt—
og telja gagnrýnendur hana með eindæmum nákvæma i list sinni.
Mary Bruce lézt árið 1961, en sýningar á verkum hennar hafa fariö vftt
um evrópskar höfuðborgir. Opnunartimar sýningarinnar eru frá 13-19
virka daga og 13-18 um helgar.
gjaíar veröi komið á fót raun-
hæfu verðlagseftirliti byggðu á
þekkingu en úrelt vinnubrögð
hafta og vanþekkingar verði
lögð niður. 1 þvi sambandi
hvetur fundurinn til þess að
kannanir, sem gerðar hafa
verið á rekstri fyrirtækja i
nokkrum starfsgreinum, verði
notaðar til viðmiðunar, en ekki
látnar rykfalla i skápum við-
komandi embætta.
Þá hvetur fundurinn til meiri
almennrar fræðslu um verð-
myndunog viðskiptahætti til að
fyrirbyggja hleypidóma og tor-
tryggni gagnvart viðskiptum.
2. Fundurinn beinir þeim tilmæl-
um til fjármálaráðherra og
annarra opinberra aöila að þeir
láti fara fram athugun á raun-
verulegu og endanlegu verði
tilboðsverka og tryggi að slikar
upplýsingar séu handbærar
fyrir viðkomandi aðila i verk-
lok til að tryggja að útboð séu
ekki viðhöfð i blekkingarskyni
og/eða til að sýnast.
3. Fundurinn lýsir eindregnum
stuðningi við íslenzkan skipa-
iðnað og vekur athygli á þvi að
þróun framleiðslu og viðgeröa
skipa á Islandi er mikilvægari,
en stuðningur við uppbyggingu
erlendra skipasmiða sem við-
gengizt hefur um áraraðir.
Fundurinn minnir á að með
minnkandi afla eykst þörfin á
nýtni þeirra atvinnutækja og
vinnuafls sem til eru i landinu.
Félag löggiltra rafverktaka
i Reykjavlk.
Evan Parker
Parker af fingr-
umfraxn
Um þessar mundir er staddur
hér á landi brezki saxófónleikar-
inn EvaiT Parker i boði Galleri
Suðurgötu 7. Hann mun halda
tvenna einleikstónleika hérlendis
og verða hinir fyrri i Norræna
húsinu laugardaginn 20. mai en
þeir siðari daginn eftir á Kjar-
valsstöðum og hefjast þeir kl. 21.
Evan Parker er brautryðjandi
ásviði svonefndrar frjálsrar tón-
listar sem byggist algjörlega á
leik af fingrum fram eða spuna
eins og fýrirbæriþetta hefur verið
nefnt á islenzku. Þessi tónlistar-
stefna á ýmislegt að sækja til
bandariska freejazzins en er þó
ólik honum um margt. Tónlistin
er ekki fyrirfram ákveðin eða
samin heldur verða flytjendurnir
að spinna hana á staðnum.
Tónlistin einkennist af sifelldri
tilraunastarfeemi og nýsköpun og
veltur mikið á sambandiflytjend-
anna innbyrðis svo og viðbrögð-
um áhorfenda.
Parker notar sér til hins ýtrasta
möguleika hljóðfæris sins sópran-
saxófónsins. Hann hefur m.a.
þjálfað með sér sérstaka
öndunartækni sem gerir honum
kleift að nýta sér yfirtóna hverrar
nótu á alveg nýjan hátt. Hann
hefúr leikið með fjölda þekktra
spunamanna og má þar nefna
Bandarikjamanninn Anthony
Braxton, Hollendinginn Han
Bennik og þýzka „big bandið”
Globe Unity Orchestra. Auk þess
hefur hann leikið inn á fjölda
hljómplatna bæði undir eigin
nafniog með öðrum. A siðasta ári
var Parker valinn bezti sópran-
saxófónleikari heims af brezkum
gagnrýnendum.
Forsala aðgöngumiða er i
verzluninni Faco.