Tíminn - 19.05.1978, Side 9

Tíminn - 19.05.1978, Side 9
Föstudagur 19. mal 1978 9 á víðavangi 1 framfarátt Fyrir nokkru var fjallað um skattamálin og hin nýju skattalög i forystugrein Austra, málgagns Fram- sóknarmanna á Austurlandi. 1 þessari forystugrein er fjallað um helztu efnisatriði hinna nýju laga og gerð grein fyrir félagslegu inntaki þeirra. Austri segir: „Á undanförnum árum hef- ur mikið verið rætt um skatta- mál. Þessiumræða hefur mót- azt af afleiðingum verðbólgu og þeim mismun sem hún skapar. Auk þess verða breyttar þjóðfélagsaðstæður ávallt tilefni til breytinga á skattalögum. Mikið starf hefur verið unn- ið við undirbúning frumvarpa til laga um skattalög. Þessi undirbúningur hefur nú loks komið fram i frumvarpi til laga um tekjuskatt og eigna- skatt og staðgreiðslu skatta. Með því að lögfesta frv. til laga um tekjuskatt og eigna- skatt erlagður grundvöllur að mikilsverðum umbótum i skattamálum. i þessu sam- bandi má nefna eftirfarandi: Frádráttarliðum sem hafa skapað mismun manna i milli er fækkað og öllum heimilað að draga a.m.k. 10% frá laun- um sinum. Söluhagnaður af eignum i atvinnurekstri verður ekki lengur skattfrjáls og fyrningarákvæðum er gjör- breytt. Tekin er upp sérsköttun hjóna. Með þeim er viður- kenndur réttur hvers ein- staklings til sjálfstæðs mats á tekjum sinum og f járhagslegri stöðu við skattlagningu. Hins vegar verður heimilt að milli- færa persónufrádrátt miili hjóna ef hann nýtist ekki. Með þessu er lögð áherzla á að þrátt fyrir rétt til sjálfstæðs mats á tekjum verður að taka tillit til fjölskyldunnar I heild við skattlagninguna. Sérstakar barnabætur að upphæð kr. 25.000 vegna ungra barna eru teknar upp. 1 þeim felst nokkur bót til handa fólki með ung börn sem hefur mestu byrðina við aðkoma sér fyrir og skapa sér traustan grundvöll I lifinu. Með þessu er viðurkennt og mörkuð stefna sem tekur tillit til þess- ara aðstæðna, þótt ljóst sé að upphæð þessa þurfi að hækka i framtiðinni. Gert er ráð fyr- ir margvislegum öðrum breytingum, en aðalatriðið er það að lögin munu hafa veru- leg áhrif á tekjuskiptingu og eignaskiptingu i landinu. Skattar munu lækka á lág- launamönnum en hækka á há- launamönnum. Aukið tillit er tekið til barnmargra fjöl- skyldna og aðila með lltinn frádrátt. Verðbólgugróði verður skattlagður. Að sjálfsögðu er frumvarp þetta ekki gallalaust og vart hægt að hugsa sér breytingar á skattalögum án ágreinings. Hins vegar eru I þvi það veigamiklar umbætur, að sjálfsagt er að lögfesta það og vinnna siðan áfram á þeim grunni að frekari umbótum, sérstaklega á framkvæmda- sviðinu, svo sem aðhalds og eftirlits. Skattalög verða að byggja á þeim megingrunni að þau miði að jöfnuði I þjóðfélaginu, bæði að þvi er varðar tekjuskipt- ingu og eignaskiptingu. Framsóknarflokkurinn hlýtur sem félagshyggjuflokk- ur að styðja löggjöf sem miðar að þessu marki. í tilefni þessara orða Austra er vertað menn velti þvi fyrir sér nú að það hlýtur að teljast einkennilegt að stjórnarand- stæðingar margir hverjir vildu ekki styðja frumvarp sem fól beinlinis I sér að bætt yrði úr ýmsu því misrétti i skattamálum sem hvað allra mest hefur veriö deilt um á siðari árum. Menn hefðu satt að segja frekar vænzt þess að gagn- rýnisraddar heyrðust frá hægri vegna þeirra nýmæla sem erað finna I lögunum, t.d. um tekjuskatt þeirra sem stunda eigin atvinnurekstur, um skattskyldu söluhagnaðar og skatt af verðbólgugróða. Um það verður ekki deilt með rökum að nýju lögin um tekju- og eignarskatt eru ein- dregið framfaraskref og I rétt- lætisátt. Hitt er þó ljóst að nú er eftir að fylgja þeim fram i verki og i skattamálum er framkvæmdin bæði mjög flók- ið mál, þarfnast góðs undir- búnings og skipulagningar og hefur mjög afdrifarik áhrif á allt þjóðfélagið. Það er full ástæða að almenningur fylgist náið með öllu þvi starfi nú á næstu mánuðum. JS Eigum fyrirliggjandi frá DUALMATIC f Bandaríkjunum: Driflokur — Stýrisdempara — Hjólbogahiif- ar — Tilsniðin teppi á gólf — Varahjóls og bensinbrúsagrindur — Bensinbrúsa — Hett- ur yfir bensinbrúsa og varahjól — Blæjuhús á Willysjeppa, hvit og svört. Getum útvegað blæjuhús á flestar gerðir annarra fjögradrifabila. Póstsendum. Einkaumboð á Islandi: VÉLVANGUR HF. Hamraborg 7 * Kópavogi Sfmar 42233 - 42257 PÓST- OG SÍMAMÁLA STOFNUNIN óskar að ráða Loftskeytamann/simritara hjá Pósti og sima á ísafirði. Nánari upplýsingar verða veittar hjá starfsmannadeild og umdæmisstjóra á ísafirði. Auglýsing Yfirkjörstjórn Austurlandskjördæmis mun hafa aðsetur á skrifstofu formanns, Erlends Björnssonar, sýslumanns á Seyðisfirði, við alþingiskosningar sem fram eiga að fara sunnudaginn 25. júni næstkomandi. Framboðslistum ber að skila til formanns yfirkjörstjórnar ekki siðar en miðviku- daginn 24. mai næstkomandi klukkan 24. Yfirkjörstjórnin kemur saman á skrif- stofu formanns fimmtudaginn 25. þ.m. klukkan 14 til að úrskurða um framboðs- lista, sem borizt hafa og gefst umboðs- mönnum listanna kostur á að vera við- staddir. F.h. yfirkjörstjórnar Austurlandskjör- dæmis. Seyðisfirði 18. mai 1978 Erlendur Björnsson.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.