Tíminn - 19.05.1978, Síða 10
10
Föstudagur 19. mai 1978
Sameining kaupfélaga
í V.-Barð.
rætt við Svavar Júliusson kaupf
1 framhaldi af þvi að Kaupfé-
lag Patreksfjarðar er oröið stór
hluthafi i fiskvinnslunni á Bildu-
dal og rekur þar einnig verzlun-
arútibú, er rætt um að sameina
kaupfélögin á þessum tveimur
stöðum, enda hefur Kaupfélag
Arnfirðinga á Bildudal hætt
starfsemi sinni. Jafnframt er
fyrirhugað, að Kaupfélag
Rauðasandshrepps sameinist
þessu félagi. Þessar upplýsing-
ar komu fram þegar blaðamað-
ur ræddi við Svavar Júliusson,
kaupfélagsstjóra á Patreks-
firði, nýlega.
Svavar sagði, að þessi sam-
eining ætti aö veröa til mikilla
hagsbóta fyrir samvinnuverzl-
un i Vestur-Baröastrandarsýslu
og auka þjónustu við ibúana i
héraðinu.
— Til þess að þessi sameining
geti orðið að veruleika verða
stærri staðirnir að styðja
smærri staðina i sinni uppbygg-
ingu, sagði Svavar. Áherzlu
verður að leggja á greiðar og
góðar samgöngur, þvi án þess
geta stærri staðirnir ekki sinnt
hlutverki sinu sem þjónustu-
miðstöðvar.
Svavar lagði á það áherzlu, að
allar sveitir og byggðakjarnar
sýslunnar yrðu efldir jafnt, og
ekki mætti láta einn staðinn efl-
ast á kostnað annars. A þann
hátt einan gætu allir staðirnir
staðið saman út á viö.
Kaupfélagiö á Patreksfirði
rekur alhliða verzlun og þjón-
ustu við ibúana á Patreksfirði
og Barðaströnd. Einnig er þaö
með útibú á Bildudal, eins og
áður sagði. Þá rekur félagið
Bátar f höfn á Patreksfiröi. Frystihús I eigu kaupfélagsins og fleiri I baksýn. Timamynd Mó.
sláturhús á Skjaldvararfossi á
Barðaströnd og sitthvað fleira.
Auk þessa er kaupfélagið
stærsti hluthafinn i Vélsmiðj-
unni Loga á Patreksfiröi og
Hraðfrystihús Patreksfjarðar
er eign Kaupfélagsins og nokk-
urraannarra aðila. Þá er kaup-
félagið með stærri hluthöfum I
fiskvinnslunni á Bildudal, en
hlut i þvi fyrirtæki keypti félag-
ið, til þess að rétta starfsemi
þess fyrirtækis við, þegar erfið-
lega gekk fyrir nokkru.
MÓ.
Vaxandi áhugi
á framhaldsnámi
— rætt við Kolbrúnu
Ingólfsdóttur
skólastjóra
Reykhólum
1 vetur eru 40 börn i Barna- og
unglingaskólanum að Reykhól-
um. Þangað sækja nám ungl-
ingar úr öllum hreppum Aust-
ur-Baröastrandarsýslu, en
yngstu börnunum er kennt
heima i hverri sveit. t vetur er
nokkru færra i skólanum en
verið hefur aö undanförnu,
vegna þess að þar er ekki niundi
bekkur. Hins vegar er fyrirhug-
að að næsta vetur veröi niundi
bekkur I skólanum og munu þá
tveir árgangar sækja nám i
þeim bekk.
Kolbrún Ingólfsdóttir skóla-
stjóri sagði i viðtali við Timann,
að sér þætti vera vaxandi áhugi
hjáforeldrum til að hvetja börn
sintil framhaldsnáms. Fram að
þessu hefði sér ekki fundist
nægjanlega mikið um það, að
unglingar úr sýslunni færu i
framhaldsnám. En menntun
væri undirstaða alls og mikils
um vert fyrir ungt fólk að afla
sér staðgóðrar menntunar,
burtséð frá þvi að hverju það
hyggðist starfa I framtiðinni.
Kolbrún sagði, að Aust-
ur-Barðstrendingar væru i
fræðsluumdæmi með öðrum
Vestfirðingum og er fræðslu-
skrifstofan á ísafirði. Þetta er
mjög erfitt, enda á sýslan 'miklu
auðveldara með að hafa sam-
skipti við Vesturland. Þangað er
miklu auðveldara að sækja
hvers konar þjónustu,en til ísa-
fjaröar er ófært langtimum
saman, nema með þvi að fara
um Reykjavik!
Að lokum var Kolbrún spurð
hvernig henni likaði að búa út á
landi. Kvað hún það gott að
mörgu leyti.
Fólk væri þar afslappað og
rólegt, en hún kvaðst sakna
margs úr þéttbýlinu. En við
sækjum margt tá Reykjavikur
Kolbrún Ingólfsdóttir
og förum þangað oft, sagöi
Kolbrún að lokum. Mó.
— og bjargaði þar með heyskapn
Rætt við ungan bónda á Ingunna
stöðum i Geiradalshreppi
Ég hef veriö aö taka við bú-
skap hér smátt og smátt af
foreldrum minum,sagði Daniel
Heiðar Jónsson bóndi á Ingunn-
arstöðum i viðtali við Tímann.
Ég hef starfaö að búskapnum
héralla tið utan þess tima, sem
ég var burtu vegna minnar
skólagöngu og hef eignazt
skepnur smátt og smátt. Þetta
hefur þvi ekki verið neitt átak,
enn sem komið er, en nú verð
ég að fara að byggja hér upp
eigi ég aö geta búiö áfram.
— Þeir segja það sumir, að
fjárhúsin standi vegna þess að
þau vita ekki i hvora áttina þau
eiga að detta. Þá er hlöðupláss
mjög litið og lélegt og engan
veginn nægjanlegt fyrir það
hey, sem ég þarf.
Daniel kvaðst hafa gert m<
það tilraun rigningasumar:
1976, að grafa gryfju i mel v
túnið og verka allt hey sem vc
hey i þessari gryfju. Með þesí
móti sá hann borgið heyskap
um og fékk ágæta verkun á he;
inu. En verkið er mikið að veb -
inum við að moka öllu heyinu
upp úr gryfjunni á vagn og aka
heim aðhúsum. Siðan þarf hann
að bera það i körfu inn á garð-
ann.
— Þetta er allt i lagi þegar
veður er gott, sagði Daniel, en
það er kalsamt að standa við að
moka tvö hundruð göfflum af
votheyi á vagn i norðan stór-
hrió. 1 fyrra vetur var gott veð-
ur allan veturinn, og þvi réðist
égi að fylla gryfjuna aftur, en i
Daniel Helðar I votheysgryfjnnni, sem hann gróf. I þessari gryfju hefur hann verkað allt sitt hey tvö
undanfarin sumur og ekiö þvi siðan heim að húsum á vetrum. Þetta er mikið verk og erfitt, og nú hyggst
Daniel byggja sér flatgryfju til þess að verka votheyið I. Timamynd MÓ.
vetur hefur verið mikil ótið og
tel ég ófært að leggja i það einn
vetur enn að verka hey i gryfj-
unni. Þvi verð ég að ráðast i að
býggja votheyshlöðu ef ég á að
geta búið áfram. t framhaldi af
þvi verð ég siöan að byggja ný
fjárhús.
Daniel sagði að hann legði
áherzlu á að fá sem mestan arð
af hverri kind. Eitt árið hefði
hann fengið 80% af ánum með
tveimur lömbum og væri það
takmarkið.
MÓ.
gna
W Útboð
Tilboð óskast I ljósaperur (220 V.) og ræsa fyrir skóla
Reykjavikurborgar.
Ctboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri, Frikirkjuvegi 3,
Revkjavik.
Tilboðin verða opnuð á sama stað, þriðjudaginn 6. júni
1978 kl. 11 f.h.
INNKAUPASTOFNU^ REYKJAVÍKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 — Sími 25800
Kór Langholtskirkju
heldur hljómleika
Um helgina heldur Kór Lang-
holtskirkju tvenna tónleika i
Reykjavik. Efnisskráin verður
fjölbreytt og meðal verka verður
mótettan „Jesu meine Freude”
eftir Johan Sebastian Bach. Þá
mun kórinn frumflytja verk sem
tónskáldin Þorkell Sigurbjörns-
son og Jón Asgeirsson sömdu sér-
staklega fýrir hann i vetur. Þau
verðameðal verka sem hann flyt-
ur á Norræna kirkjutónlistarmót-
inu I Helsinki i sumar en þar
veröur kórinn i annaðsinn fulltrúi
íslands á sliku móti. Tónleikarnir
um helgina verða lokatónleikar
kórsins á þessu starfsári en i vet-
ur hélt hann þrenna tónleika auk
þess að taka þátt i hátiðarhljóm-
leikum Landssambands bland-
aðra kóra.
Fyrri tónleikarnir verða i
Langholtskirkju föstudagskvöldið
19. mai og hefjast klukkan 21:00
og siðari tónleikarnir I Háteigs-
kirkju laugardaginn 20. mai
klukkan 17:00. Miðar verða seldir
við innganginn, en styrktarfélag-
ar fá að venju ókeypis aðgang.
Stjórnandi kórs Langholts-
kirkju'er Jón Stefánsson.