Tíminn - 19.05.1978, Síða 11
Föstudagur 19. mai 1978
11
Ur sjónvarpsræðu Kristjáns Benediktssonar:
Virkur útivinnutími hjá
Hitaveitunni er aðeins 27%
1 ræðu þeirri, sem Kristján
Benediktsson borgarfulltrúi
flutti i sjónvarpsumræðunum i
fyrrakvöld, skýrði hann frá
athyglisverðri niðurstööu
athugunar, sem gerð hefur
verið á útivinnu hjá Hitaveitu
Reykjavikur. Fer hér á eftir sá
kafli ræðunnar, sem fjallaði um
þetta atriði:
Oft heyrist gagnrýnt hvernig
útvinna hjá borginni og stofnun-
um hennar er skipulögð og
framkvæmd. Góðir skattborg-
arar fyllast stundum réttlátri
reiði og vandlætingu, þegar þeir
sjá út um gluggann hjá sér,
hvernig fariðer meðpeningana,
sem þeir greiða skilvislega til
gjaldheimtunnar i mánuði
hverjum.
Nú er þessi útivinna, sem
einkum er á vegum gatnamála-
stjóra, garðyrkjustjóra og veitu-
stofnana ekki nema hluti af
kerfinu i heild, en þó verulegur
hluti. Framsóknarmenn i borg-
arstjórn hafa sinn eftir sinn lagt
til, að fengnir yrðu sérfræðingar
i hagræðingarmálum tilað gera
úttekt á rekstri borgarinnar og
tillögur um endurbætur. Betít
hefur verið á, að stjórnkerfið
þenjist sifellt út, þótt ibúafjöldi
standi i stað, starfsmönnum
fjölgi og kostnaður við að halda
þessu öllu gangandi verði með
hverju ári stærri hluti heildar-
tekna borgarinnar. Borgar-
stjórnarmeirihlutinn hefur hins
vegar ekki mátt heyra minnzt á
breytingar á þvi skipulagi, sem
hann hefur komið sér upp á und-
anförnum áratugum og þvi vis-
að snarlega frá öllum tillögum i
þá átt meðþeim skýringum, að
bezt sé að hafa þetta eins og það
er og hver og einn eigi að annast
sina hagræðingu sjálfur. Þannig
er nú þetta og þannig verður
þetta meðan núverandi meiri-
hluti ræður.
Þeir hjá Hitaveitunni brutust
af einhverjum ástæðum út úr
kerfinu á s.l. ári og fengu
Ingimar Hansson rekstrarverk-
fræðing til að gera athugun á
skipulagi útivinnuflokkanna og
hvernig vinnutlminn nýttist.
Verkfræðingurinn skilaði niður-
stöðum i desember s.l.
Árangur reyndist þessi:
Virkur vinnutimi..........27%
Bið — akstur — annað.......31%
Upphaf og lok verks — sótt efni
— bið eftir efni, tækjum,
verkstjóra og viðtöl við verk-
stjóra....................22%
Aðgerðalaus — kemst ekki að —
sést ekki —persónulegur
timi......................20%
Verkfræðingurinn taldi, að
með breyttu skipulagi mætti
auka virkan vinnutima úr 27% i
51% og jafnvel I 63%. Þetta litla
dæmi frá Hitaveitunni ætti aö
sýna, hve brýnt er að fá utanað-
komandi aðila til að endur-
skipuleggja alla starfshætti hjá
borginni, ekki aðeins útivinn-
una, heldur og ekki siður ýmsa
aðra þætti. Borgarstjóri virðist
hins vegar ekkert yfir sig hrif-
inn af framtaki hitaveitustjóra.
Hvergi hef ég heyrt hann minn-
ast á þetta og enginn blaða-
mannafundur hefur verið hald-
inn til að skýra borgarbúum frá
þessum athyglisverðu niður-
stööum. Hefurþó stundum verið
haldinn blaðamannafundur að
minna tilefni.
Ég er þess fullviss, að það
sem mestu máli skiptir fyrir
Reykvikinga núna er að efla
undirstöðugreinar atvinnulifs-
ins, sjávarútveg og iðnað, og
endurbæta stjórnkerfið og gera
þaðódýrara, einfaldara og jafn-
framt virkara. Takist þetta
tvennt á ekki að vera neitt
vandamálfyrirborgina, án þess
að auka skattheimtu, að hafa
nægilegt fjármagn aflögu til að
sinna félagslegum verkefnum,
svo sem byggingu
dagvistarheimila, stofnana fyr-
ir aldraða, skóla og sjúkrahús.
Þá á einnig að vera mögulegt að
styrkja á myndarlegan hátt
fr jálst félagsstarf áhugafólks og
styðja listir og aðra menning-
arstarfsemi, en án slikrar
starfsemi getur engin höfuð-
borgleyft sér að vera. Á grund-
velli þess, sem hér hefur veriö
sagt, munu borgarfulltrúar
Framátíknarflokksins vinna.
Kristján Benediktsson.
Sýnir í Hamragörðum
„Skemmtun
ársins”
— til styrktar
Slysasjóði
Kás — Starfsmannafélag Sin-
fóníuhljómsveitarinnar og Félag
islenzkra leikara gangast fyrir
miðnæturskemmtun I kvöld I Há-
skólabió til styrktar Slysasjóði.
Fjölmargir leikarar og
skemmtikraftar koma þar fram,
en allir listamennirnir og
aðstandendur sýningarinnar láta
vinnu sina i té endurgjaldslaust,
en en allur ágóði rennur beint i
Slysasjóð, eins og fyrr er getið.
Meðal þeirra sem koma fram
má nefna Sinfóniuhljómsveit
íslands sem Heimskfrægur
hljómsveitarstjóri ætlar að
stjórna, Gisli Halldórsson og
Guðmundur Pálsson flytja
gamanmál, Grænjaxlar Þjóðleik-
hússins koma i heimsókn,
Islenzki Dansflokkurinn deuisar,
leiklistarnemar og kór Mennta-
skólans i Hamrahlið syngja laga-
syrpu úr Túskildingsóperunni. Þá
ætla Jón Gunnarsson, Herdis
Þorvaldsdóttir og Guðrún Step-
hensen að bregða á leik ásamt
fleirum.
Margt fleira verður til skemmt-
unar.
Slysasjóður var stofnaður fyrir
5 árum af Starfsmannafélagi
Sinfóníunnar og Félagi islenzkra
leikara, en hann hefur það að
markmiði að rétta þvi fólki hjálp-
arhönd sem á i erfiðleikum vegna
slysa. Einkum eru þeir hafðir i
huga sem ekki njóta trygginga
hjá tryggingastofnunum.
Aðgöngumiðar eru til sölu i
bókabúð Lárusar Blöndals og
Bókaverzlun Sigfúsar Eymunds-
sonar, svo og i Háskólabiói.
Sumardvöl
Níu ára telpa óskar
eftir sumardvöl á góðu
heimili í sveit.
Upplýsingar í síma 5-
39-21, frá kl. 5-8.
Snorri D. Halldórsson sýnirum
þessar mundir að Hamragörð-
um við Hávallagötu. Á sýning-
unni verða um 50 verk máluð i
oliu- og vatnslitum. Snorri var
einn af stofnendum Fristunda-
málarafélags Islands á fjórða
áratugnum en sá félagsskapur
setti á laggirnar myndlistarskóla
að Laugavegi 166 og réði til
kennslustarfa þekktan skozkan
málara Dr. Weitzel að nafni. Á
þeim fáu árum sem félagið starf-
aði, voru haldnar margar sýning-
ar á þess vegum. Siöan þá hefur
Snorri haldið margar einkasýn-
ingar I Reykjavik og Vestmanna-
eyjum.
Islenzkt landslag er aðalvið-
fangsefni Snorra en auk hefð-
bundinna aðferða treður hann
nýjar slóðir með notkun ýmissa
steinategunda i verkum sínum.
Sýningin verður opin frá kl. 16
til 22 alla daga en henni lýkur
á sunnudagskvöld. Aðgangur er
ókeypis.
Húseigendur
og forráða-
menn
húseigna
í Hveragerði — á Selfossi — i Þorlákshöfn — á
Stokkseyri — á Eyrarbakka og nágrenni.
Þéttum sprungur i steyptum veggjum og þök-
um með Þan-þéttiefni, áralöng reynsla i með-
ferð og þéttingum með Þan-þéttiefni. Látið
þétta húseign yðar áður en þér málið og verjið
hana fyrir frekari skemmdum.
Leitið upplýsinga i síma 3863 Þorlákshöfn.
Gera má ráð fyrir að könnunin á dagvistun i Vesturbæ sé að meira eða
minna leyti algild fyrir alia borgina, nema Breiðholtshverfin, sem eru
þurftafrekari.
Úrslit könnunar á dagvistun í
Vesturbæ:
Dagheimili o g
leikskólar
framtíðin
— Einkavistun neyðarbrauð nema
fyrir þau allra yngstu
fyrir þau börn en 46% kjósa dag-
heimili eða leikskóla heldur.
Könnunin lætur einnig til sin
taka þróun i skólamálum i
Vesturbæ með tilliti til barna-
fjölda noröan og sunnan Túngötu.
Sé athugað hvar á svæðinu börnin
eru einkum búsett, kemur I ljós
að af börnum á aldrinum 7-10 ára
(skólabörn) búa 57% norðan Tún-
götu en 43% sunnan hennar. Sé
hins vegar athugaður yngri
hópurinn þ.e. börn frá 0-6 ára eru
63% norðan Túngötu en aöeins
37% sunnan hennar.
Þar eð þessi börn eru að
miklum meiri hluta eða tvö af
hverjum þremur búsett norðan
Túngötu, er látin i ljós sú skoðun
að Vesturbæjarskóli verði oröinn
þéttsetinn þegar þar að kemur
eigi hann að taka við þessum
fjölda en hann sé nú tvisetinn
fyrir og taki þó aðeins um 50%
barna á svæðinu. Ekki verði með
nokkru móti séð hvernig unnt sé
að leysa þann vanda nema með
þvi að auka þégar I stað verulega
við húsnæði skólans. Vitnað er i
Árbók Reykjavikur þessu til
stuðnings en þar kemur fram
fólksfækkun i öllum hverfum i
Reykjavik að undanskildum
Breiðholtshverfum og gamla
Vesturbænum.
Um framkvæmd könnunarinn-
ar sáu: Anna Kristjánsdóttir,
Guðný Eiriksdóttir, Kristin
Sætran og Þórunn Benjamins-
dóttir.
Þjónusta
fyrir landsbyggðina
Sendíö okkur (i ábyrgð) þá skartgripi sem þér
þurfið að láta gera við, ásamt smálýsingu á
því sem gera þarf, heimilisfangi og síma-
númeri. Að af lokinni viðgerö, sem verður inn-
an 5 daga f rá sendingu, sendum við ykkur við-
gerðina í póstkröfu. Allar viðgerðir eru verð-
lagðar eftir viðgerðaskrá Félags ísl. gull-
smiða.
Stækkum og minnkum hringi (sendum mál-
spjöld), gerum við armbönd, nælur, hálsmen,
þræðum perlufestar.
Gyllum. Hreinsum.
Sendum einnig í póstkröfu allar gerðir skart-
gripa.
Fljót, góð og örugg þjónusta. Hringið og leitið
upplýsinga.
GULL HÖLLIN
Verzlunarhöllin — Laugaveg 26
101 Reykjavík
Símar (91) 1-50-07 & 1-77-42
FI — 1 könnun á dagvistun barna
sem tbúasamtök Vesturbæjar og
Dagvistarsamtökin efndu til fyrir
skömmu, kcmur fram, að dag-
hcimilisþörf og leikskólaþörf i
Vesturbæ er um 89% og skóladag-
heimilisþörf um 34%. Þcssum
þörfum er nú aðeins mætt að 51%
hvað dagheimili og leikskóla
varðar og 8% hvað skóladag-
heimili varðar. Könnunin sem er
hin fyrsta sinnar tegundar i
Reykjavik er talin gefa algildar
tölur fyrir borgina i heild, nema
Breiðholtshverfin, þar sem
barnafjöldi er sérstakiega mikill.
Er næsta verkefni Dagvistarsam-
takanna að finna ráð til úrbóta nú
þegar tölur um ástand og óskir i
dagvistun iiggja fyrir.
Fleira kemur fram i þessari
könnun en beinharðar tölur. Þaö
er t.d. athyglisvert, að flestir for-
eldrar i gamla Vesturbænum,
sem eiga börn fædd árið 1976 og
hafa þau i einkavistum, myndu
heldur kjósa dagheimili börnum
sinum til handa. Af 49 aðstand-
endum barna óskaði 41 eftir dag-
heimili eða leikskóla. Þetta sýnir
m.a. að foreldrar telja ekki
einkavistun framtiðarlausn i dag-
vistarmálum, þegar um er að
ræða börn frá eins til tveggja ára.
Hins vegar er svolitið annað
uppi á teningnum, þegar um
kornabörn er að ræða eða smá-
börn um eins árs. Þá kemur
fram, að 52% viljaheimavistun