Tíminn - 06.06.1978, Síða 3

Tíminn - 06.06.1978, Síða 3
Þriöjudagur 6. júni 1978 3 Launaj öfnunarstefna dauðadæmd meti launþega- samtökin einskis aðgerðir ríkisstjórnarinnar — sagði Olafur Jóhannesson við húsfylli á fundi i Valaskjálf KEJ — Efnahagsráðstafanir rikisstjórnarinnar og nýsett bráðabirgðalög voru nauðsyn- leg til að koma i veg fyrir at- vinnuröskun og kaupmáttar- rýrnun af völdum óðaverðbólgu, sagði Ólafur Jóhannesson dóms- og viðskiptaráðherra á fundi i Valaskjálf á Egilstöðum fyrir helgina þar sem hann ræddi um stjórnmálaviöhorfið nú. Hann benti einnig á, að kaupmáttar- rýrnunin hefði aö óbrey ttu orðið meiri, þar sem horfur voru á slikri óðaverðbólgu. að fullar verðbætur á laun eftir á.heföu ekki komið að sama gagni og aðgerðir rikisstjórnarinnar munu tryggja þegar á liður. Ólafur sagði ennfremur orð- rétt: „Við teljum að við höfum stigið skref i réttáátt.sanng jarnt skref og við bfðum og sjáum hvernig því veröur tekið af fyrirsvarsmönnum launþega- samtakanna. Ég held, að ef t.d. forsvarsmenn launþegasam- takanna vilja einskis meta þessa tilraun til þess að koma á launajöfnun, þá sé launajöfn- unarstefna alveg dauðadæmd og maður verður bara að horf- ast i augu við þá staöreynd”. Ólafur benti á að efnahags- málin yrðu vandamál hverrar þeirrar rikisstjórnar er mynduð yrði eftir kosningar og það væri hreinlega mikil blekking að lofa fólki gulli og grænum skógum i þvi efni. Gleymum ekki góðu verkunum Dómsmálaráðherra minnti á það i ræðu sinni að þessi rikis- stjórn hefði unnið mörg góð verk sem gjarnan vildu gleym- ast og falla i skugga hins sem miður tækist. Hann minnti á landhelgismálið, eitthvert hið stærsta mál er þjóðin hefði tek- izt á við og hversu farsællega það hefði verið af hendi leyst á stjórnartimabilinu, og að menn þyrftu að vera áfram á varð- bergiiþeim efnum. Ráðherrann benti á, að f landinu hefði tekizt að tryggja atvinnuöryggi á sama tima og atvinnuleysi væri hið mesta böl í nær öllum ná- grannarikjum okkar. Þá sagöi Ólafur, að menn mættuekki lita á það sem sjálf- sagðan hlut hversu vel hefði veriðunniðað atvinnuuppbygg- ingu og byggðaþróun út um aUt land. TU þeirra verka væri ekki öllum að treysta og ekki mætti slaka á i þessum efnum ef ekki ætti að sækja i sama horfið og áður en Framsóknarflokkurinn gekk til stjórnarsamstarfs i upphafi þessa áratugs. Höfnum jafnt trúnni á Marx sem Adam Smith Velmegun hefur aldrei veriö meiri á íslandi en í dag, en lifs- hamingja virðist ekki vera sam- stiga, sagöi Ólafur Jóhannesson á einum stað i ræðu sinni, og bætti þvi við, að menn mættu ekki missa sjónar á þvi sem raunveruiega gUti. Hann varaði við þvi, aö i fjölmiðlum ýmsum værijafnvel grafið undan rótum lýöræðisins meö vantrausts- árásum á grundvallarstoð þess, sjálft Alþingi, og það stjórnar- far sem lýðræðinu fylgdi. Við framsóknarmenn. sagöi Ólafur, trúum þvi ekki aö Adam Smith á annan veginn eða Karl Marx á hinn hafi fýrir nokkrum öldum leyst öll mannleg vanda- mál með kenningum sinum um kapitalisma eða kommúnisma. Við viljum vera leitandi, sagði ráðherrann, og reyna að leysa vanda samtimans hverju sinni öfgalaust á félagslegum grund- veUi. Við vUjum taka þátt i aö breyta þjóðfélaginu eftir þvi sem horfir tU velfarnaðar, meö þróun og ekki byltingu. Lifeyris- sjóður SÍS 70% verð- tryggingu eftirlaun SJ — Stjórn iifeyrissjóða Sambands islenzkra samvimiu- félaga ákvað á fundi I siðustu viku, að eftirlaun til Iifeyrisþega skyldu verðtryggð að 7/10 hlut- um. Llfeyrissjóður Sambandsins nær tU starfsmanna kaupfélag- annaog samstarfsfyrirtækja auk starfsmanna SIS. Erlendur Einarsson forstjóri Sambands islenzkra samvinnu- félaga sagði Timanum, aö ákvörðun þessi hefði verið tekin i samráöi við tryggingafræðing lifeyrissjóðsins. Astæöuna til að þetta er nú kleift.sagði hann vera þá, að hluti af ávöxtunarfé lff- eyrissjóðsins hefði verið ávaxtað I verðtryggðum skuldabréfum. Nokkur verðtrygging eftirlauna hófst hjá lifeyrissjóði SIS fyrir 1 1/2 ári. — Ég hef áður látið þá skoðun i ljós, sagði Erlendur Einarsson, að allir þegnar þjóðfélagsins eigi að sitja við sama borð hvað varðar verðtryggingu lifeyris. Fram að þessu hafa hinir frjálsu lifeyrissjóöir ekki getað boðið sjóðfélögum sinum þá verðtrygg- ingu, sem opinberir starfsmenn njóta, en eins og kunnugt er þá er I fjárlögum gert ráö fyrir háum fjárhæðum til greiöslu á verð- tryggingu lífeyris til opinberra starfsmanna. nokkurrar leiðsagnar frá Reykjavik til Kefiavikur. Feröin endaði illa og dugði heyrnin honum skammt. Kennarafélag M.H. ályktar A fundi i Kennarafélagi Menntaskólans viö Hamrahlið 26. mai 8.1. var eftirfarandi ályktun samþykkt með öllum greiddum atkvæðum: „Kennarafélag M.H. vill beina þeirri fyrirspurn til menntamála- ráðuneytisins, hvort með ákvörð- un þess um embætti skólameist- ara á Egilsstöðum sé ætlunin að hefja til vegs þá stefnu, að til skólastjórnar utan höfuðborgar- svæðisins skuli helzt valinn sá umsækjandinn sem minnsta hefur háskólamenntunina, einkum ef hann hefur ekki full réttindi til kennslu á viökomandi skólastigi. Félagið lýsir megnri vanþókn- un sinni á þeim viðhorfum sem meta skólastjórn i menntaskóla i dreifbýli svo litils sem þessi ákvörðun ber vitni um.” Aragrúi fólks fylgdist meö þýzka stultuleikhúsinu á Lækjartorgi á sunnudaginn. Þetta leikhús flytur táknræn ádeiluverk og eru lcikendur sminkaðir eins og i hringleika- húsi. önnur ádeilan sýndi presta katólsku kirkjunnar seija mönnum aflátsbréf svo aðklingdi i peningakössum. A sama tima þjónuðu hinir frómu menn syndinni lævisri og lipurri I þeim skilningi, að syndakvittanirnar hvöttu menn frekar en löttu til dáða á syndsamlega sviðinu. 1 hinni ádeilunni beindist athyglin að blindum manni, sem ætlaöi án 14-1800 bðrn í siglingu á Hafnarf jarðarskipnm á sj ómannadegi GV — Sjómannadagsins var minnzt um allt land meö hátiða- höldum sl. sunnudag. 1 Reykjavik fóru aðalhátiðahöldin fram i Nauthólsvik og voru aldraðir sjó- menn heiðraðir. 1 Hafnarfirði fóru hátiöahöldin fram með liku sniði og venjulega og var mjög góð þátttaka i hátiöahöldunum. Hápunktur sjómannadagsins i Hafnarfirði var um morguninn þegar um 14-1800 börnum var boðið i' siglingu á fjórum bátum og einum togara Jón Dan frá Hafnarfirði. Mikil þátttaka vai- ihátiðahöld- um iVestmannaeyjum á laugar- dag og sunnudag, enda var veður meðafbrigðum gott. Aldraðir sjó- menn og aflakóngar voru heiðr- aðii- og sú nýbreytni var tekin upp á þessu kosningavori, að efstu menn á hverjum iista kepptu i boðhlaupi.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.