Tíminn - 06.06.1978, Blaðsíða 13

Tíminn - 06.06.1978, Blaðsíða 13
lliM'lí Þri&judagur 6. júnl 1978 Þri&judagur 6. júni 1978 13 Bretum veitt stöðvunarvald Árin 1961-1971 eru dapurlegur timi f sögu landhelgismálsins. Sókninni i landhelgismálinu sem var hafin meö landgrunnslögun- um frá 1948 og uppsögn brezka samningsins frá 1901 hafði veriö fylgt eftir meö útfærslu fiskveiöi- lögsögunnar i 4 mílur áriö 1952 og i 12 milur árið 1958. tJtfærslurnar 1952og 1958 höfðu veriö mikilvæg- ir áfangar en allar staðreyndir sýndu hins vegar aö þar mátti ekki láta staöar numiö. Meö upp- gjaf arsam ningnum , sem viðreisnarstjórningerði við Breta 1961 var sóknin stöðvuö. Sam- kvæmt honum var ekki hægt aö færa fiskveiðilögsöguna út nema með samþykki Breta. Ef þeir voruandvigirhenni gátu þeir lagt hana undir Urskurö Alþjóöadóm- stólsins en vitanlegt var, að þar réði mjög ihaldssamt mat á haf- réttarlögum og að málskot þangað væri sama og bein eða óbein ógilding eins og lika sýndi sig siðar. Með landhelgis- samningnum frá 1961 var Bretum þannig raunverulega afhent stöðvunarvald i landhelgismálum íslendinga. Viöreisnarstjórnin aðhafðist heldur ekki neitt aö gagni i landhelgismálinu á árun- um 1961-1971. Það var ekkiheldur hægt meðan þjóöin var i fjötrum samningsins frá 1961. Skrif Tímans haustið 1970 Það var ljóst af þvi sem er rak- ið hér á undan að fyrsta sporið sem stiga þurfti ef halda ætti áfram sókninni i landhelgismál- inu var aö ryðja Ur vegi samningnum frá 1961. Haustið 1970 hóf Timinn því baráttu fyrir þvi að uppsögn hans með einum eða öörum hætti yrði aðalmál kosningabaráttunnar 1971. Hinn 27. september 1970 var fjallað itarlega um þetta i ritstjörnar- grein i Timanum. í upphafi var það rakið aö út- færslan 1958 hefði borið góðan árangur. Siöan sagði: „Hins vegar sýnir fjöldi er- lendra togara sem stunda veiðar á landgrunninu nú að sókninni i landhelgismálinu heföi þurft aö halda áfram. SU sókn var stöövuö af nUverandi rikisstjórn er hún gerði nauðungarsamninginn við Breta 1961.” Greininni lauk s vo með þessum orðum: „Meö útfærslu fiskveiðiland- helginnar 1. sept. 1958 var vissu- lega stigið stórt spor sem hefur reynzt sjávarútveginum hiö mikil vægasta. En reynslan sýnir samt orðiðótvírættaðbeturmáef duga skal. Þess vegna þarf að hefjast kröftuglega handa um nýja sókn i landhelgismálinu og sigrast með einum eða öðrum hætti á þeirri torfæru sem nauöungar- samningurinn frá 1961 er.” Þessum málflutningi var siðan haldið áfram i Timanum næstu mánuði. Landhelgisnefnd klofnar Fljótlega eftir aö Alþingi kom saman haustið 1970 hófust viö- ræður milli þingmanna úr Fram- sóknarflokknum og Alþýöu- bandalaginu um samræmda stefnu i landhelgismálinu en þessir flokkar höfðu staðiö að Ut- færslunni 1958 ásamt Alþýðu- flokknum. Jafnframt ræddu Framsóknarmenn einnig við þá Hannibal Valdimarsson og Björn Jónsson sem voru þá gengnir Ur Alþýðubandalaginu og höfðu stofnað Samtök frjálslyndra og vinstri manna. Ljóst var af þess- um viðræðum aö þessir þrir flokkar voru sammála um tvö meginatriði. 1 fyrsta lagi aö ís- lendingar losuðu sig undan bind- ingarákvæði samningsins frá 1961 og i öðru lagi yrði ráðizt i nýja út- færslu fiskveiðilögsögunnar inn- an ákveðins tima. Aður en formlega yröi gengið frá samkomulagi þessara þriggja stjórnarandstöðuflokka þótti rétt Sóknin í landhelgismálinu 1970-1977 að ræða það i landhelgisnefnd, sem viðreisnarstjórnin hafði skipað,hvort ekki gæti náöst sam- komulag milli þingflokkanna allra. Þar kom strax i ljós að Sjálfstæðisflokkurinn og Alþýðu- flokkurinn vildu ekki fallast á uppsögn samningsins frá 1961, enda höfðu þeir gengið þannig frá honum að hann hafði ekki. aö geyma neitt uppsagnarákvæði og var þvi nánast sagt óuppsegjar legur, enda varð það siöar niður- staða Alþjóðadómstólsins. Þaö er með fádæmum að samningur sé ekki með uppsagnarákvæðum og var það lika höfuðgalli samnings- ins 1961. Af þeim ástæðum, að stjórnarflokkarnir höfðustaöiö að samningnum og töldu sig bundna af honum vildu þeir ekki fallast á kvæmd þessarar þingsályktun- ar. Þá felur Alþingi rikisstjórninni að hafa á alþjóðlegum vettvangi sem nánast samstarf við þær þjóðir sem lengst vilja ganga og miða vilja mörk fiskveiðiland- helgi viö landfræðilegar, jarð- fræöilegar, liffræðilegar og félags- og efnahagslegar að- stæöur og þarfir ibúa viðkomandi strandrikis. Alþingi felur rikisstjórninni að vinna sem kappsamlegast að þvi að kynna öðrum þjóðum framan- greinda stefnu og fyrirætlun Is- lendinga i landhelgismálunum..” Með tillögu þessari var mörkuð ný sóknarstefna i landhelgismál- inu. Tillaga þessi mun siðar talin merkur þáttur i þingsögunni. þjóðir um Utfærslu fiskveiðilög- sögunnar og biða beri með ein- hliða aðgeröir, þar til séð verður hvort samkomulag tekst eða ekki á fyrirhugaðri hafréttarráðstefnu Sameinuöu þjóðanna um hver rétt ur þjóða skuli vera um víðáttu fiskveiðilögsögu.” Fyrstir eða siðastir Landhelgismálið setti mjög svip á kosningabaráttuna 1971. Einkum var deilt um tvö megin- atriði eða hvort lýsa ætti samninginn frá 1961 úr gildi fali- inn og hvort ákveða ætti Utfærslu i 50 milna fiskveiðiiögsögu innan ákveöins tima. Stjórnarand- stuðningsflokkar hennar höfðu lagt fram á vorþinginu og áður er skýrt frá. Tillögunni var visað til utanrikisnefndar sem vann kapp- samlega að þvi að ná samkomu- lagi allra flokka um stefnuna I landhelgismálinu. Þetta tókst eftir allmikið samningaþóf. Um miðjan febrúar 1972 hafði utan- rikisnefnd náð samkomulagi um svohljóðandi tillögur: „Alþingi itrekar þá grund- vallarstefnu Islendinga aö land- grunn Islands og hafsvæðið yfir þvi sé hluti af islenzku yfirráða- svæði og ályktar eftirfarandi: 1. Að fiskveiðilandhelgin verði stækkuð þannig að hún verði 50 sjómilur frá grunnlinum allt i kringum landiðog komi stækkun- intil framkvæmda eigisiðar en 1. fiskveiðiréttindi þeim til handa innan hinnar nýju fiskveiöi- lögsögu. Þessar viðræður hófust nokkru siðar, en báru engan ár- angur, þvi að Bretar héldu fast við, að samningurinn frá 1961 væri i gildi og íslendingum þvi óheimilt að færa Ut fiskveiðilög- söguna einhliða. t stað þess að semjaákváðu þeir að visa málinu til Alþjóðadómstóisins og reyna að fá Urskurð hans áður en reglu- gerðin frá 14. júli tæki gildi. Hinn 17. ágúst 1972 felldi Alþjóöadóm- stóllinn þann bráðabirgða- úrskurð, þ.e. 14 dögum áöur en reglugerðin um útfærsluna tók gildi, að haldast skyldi óbreytt ástand varðandi fiskveiðar Breta við ísland, unz dómstóllinn hefði kveðið upp endanlegan Urskurð. Sameinaða konungsrfkis frá svæðum milli fiskveiðimarka þeirra, sem samið var um i er- indaskiptunum frá 11. marz 1961, og marka þeirra,sem tiltekin eru i islenzku reglugerðinni frá 14. júlí 1972, né einhliða setja hömlur á athafnir þessara skipa á slikum svæðum.” Jafnframt gaf dómstóllinn rikisstjórnum Islands og Bret- lands fýrirmæli um aö hefja viö- ræður á þessum grundvelli um veiðar Breta við tsland. Islend- ingar skyldu hafa vissan for- gangsrétt, en mættu þó ekki Uti- loka fiskveiðar Breta. Af þessum Urskurði Alþjóöa- dómstólsins geta menn bezt séð hvilikir fjötrar samningurinn frá 1%1 hefði getað reynzt íslending- nota til að undirbúa nýja sókn, enda vann Framsóknarflokkur- inn óspart að því. Þegar fúlltrúi flokksins í sendinefnd Islands, sem tók þátt i undirbúningsnefnd hafréttarráðstefnunnar, kom heim af fundi nefndarinnar i Genf sumarið 1973, lýsti hann yfir þvi, að timabært væri orðið að hefjast handa um útfærslu efnahagslög- sögu Islands i 200 milur. Nokkru siðar samþykkti þingflokkur Sjálfstæðisflokksins að vinna að þvi að fiskveiðilögsagan yrði færö út I 200 milur fyrir árslok 1974. Flokkurinn hugðist þannig bæta fyrri stöðu sina i landhelgismál- inu. Þegar núverandi rikisstjórn var mynduð sumarið 1974, kom þetta mál að s jálfsögðu á dagskrá og var ákveðið i stjórnarsáttmál- m.a. hefur haft i för með sér, að öll riki, sem liggja að Norður-At- lantshafi, hafa nú 200 milna fisk- veiöilögsögu. Þorskastríðið 1972 -1973 En þetta gekk ekki fram bar- áttulaust. Sú barátta hvildi mest á Islendingum. Bretar svöruðu útfærslunni i 200 mllur næstum strax með þvi að hefja þorska- strið og töldu sig enn hafa rétt til þess i samræmi við úrskurð Al- þjóðadómstólsins, sem tslending- ar hefðu ekki viljað hlita. Þaö má þykja eftirminnilegt, að sSium samningsins frá 1961 og úrskurða Alþjóðadómstólsins á gundvelli hans, hafa Bretar getað haldið Dráttarbátarnir brezku voru árásargjarnir á tslandsmi&um I land- helgisdeilunni siöustu og sættu oft færis, eins og á þessari mynd, aö sigla á varöskipin islenzku, einkum hin minni. < Timamynd: Róbert.) -- -- -----------------------r ” ' ' - "C.". ~ <•%".- ■■- - JSISÍW-.* - .; ••-< •. •-■“ - . -'.■■■ : - ■ -:- Skemmdir á varöskipinu Ver eftir ásiglingar brezkra (Timamynd: G.E.) Dráttarbáturinn Othello reynir aö stugga varöskipi meö klippurnar úti frá brezkum togurum. Oftast kom þaö þó fyrir ekki. Brezka freigátan Scyila I kjölfari Islenzks varöskips. uppsögn. Þeir vildu heldur ekki að tekin yrði ákvörðun um næstu útfærslu á fiskveiðilögsögunni sem yrði framkvæmd fyrir ákveðinn tima. Afstaða þeirra varsúað ekki værihægtað ráðast i útfærslu fyrr en „við teljum að einhver sú réttarheimild sé fyrir hendi, sem Alþjóðadómurinn viðurkennir”, eins og Bjarni Benediktsson hafði orðað það 1961. Stefnan mörkuð Þegar ljóst var orðiö i marz- mánuði 1971 að ekki næðist sam- komulag i landhelgisnefnd, ákváðu Framsóknarflokkurinn, Alþýðubandalagið og Samtök frjálslyndra og vinstri manna aö leggja fram þingsályktunartil- lögu um landhelgismálið. Sam- kvæmt henni fól Alþingi rikis- stjórninni aö gera eftirgreindar ráðstafanir: „l.Að gera stjórnum Bretlands og Vestur-Þýzkalands grein fyrir þvi að vegna lifshags- muna þjóðarinnar og vegna breyttra aðstæðna geti samningar þeir um landhelgis- mál sem gerðir voru við þessi riki á árinu 1961 ekki talizt bindandi fyrir tsland og verði þeim sagt upp. 2. Að hefjast nú þegar handa um að stækka fiskveiðilandhelgina þannig að hún verði 50sjómllur frá grunnlinum allt i kringum landið og komi stækkun til framkvæmda eigi siöar en 1. september 1972. 3. Aö tilkynna öörum þjóöum, aö Alþingi hafi ákveðið að islenzk lögsaga nái 100 sjómilur út fyrir núgildandi grunnlinur að þvi er varðar hvers konar ráðstafanir til aö koma i veg fyrir hættulega mengun sjávarins á þvi hafsvæði. 4. Að skipa nefnd þingmanna er i eigi sæti einn maöur frá hverj- um þingflokki til að vinna ásamt stjórninni að fram- Brigzl um siðleysi Viðbrögð rikisstjórnarinnar við ‘ þessari tillögu urðu þau aö hún lagöi fram aðra tillögu um land- helgismáliö þar sem lagt var til að undirbúið yröi frumvarp um útfærslu á fiskveiðilögsögunni, en ekkert minnzt á hvenær hún ætti aö koma til framkvæmda. Ekkert var heldur minnzt á samninginn við Bretland. Þessi tillaga var samþykkt á Alþingi af stjórnar- liðinu. I umræðum sem urðu um til- lögurnar deildu stjórnarsinnar mjög hart á tillögu stjórnarand- stæðinga og brigzluöu þeim um að þeir vildu svikja samninga. Nokkurt dæmi um málflutning er eftirfarandi niðurlag á forustu- grein Aiþýðublaðsins 2. april 1971 (ritstjóri blaðsins var þá Sighvat- ur Björgvinsson): „Og hvaö vill stjórnarandstaöan i þessum efnum? Hún vill, eins og Emil Jónsson benti á i útvarps- umræðunum i gærkvöldi að Is- lendingar beiti þeirri siðlausu ævintýrapólitik að boða fýrst til alþjóðaráöstefnu til aö reyna aö semja um málin en ákveða siðan einhliða^áður en sú ráöstefna svo mikið sem kemur saman,hvernig málið skuli leyst án þess að leitað sé samkomulags við einn eða neinn. Hún vill að íslendingar gefi fordæmi að siðleysi i millirikja- viöskiptum sem engum gæti staðið meiri hætta af en smáþjóð- um, efþvilikaraöferðiryrðu látn- ar giida i samskiptum þjóða al- mennt.” Morgunblaðið var öllu hógvær- ara en Alþýðublaöið. I forustu- grein þess 4. april 1971 er vitnaö i samþykkt stjórnar Landssam- bands Islenzkra útgerðarmanna sem dæmi um hina réttu stefnu i málinu. lumræddri ályktun sagöi m.a. á þessa leið: „Stjórn LIO telur að leita eigi eftir samkomulagi við aörar stæðingar lögðu megináherzlu á þetta tvennt. Stjórnarflokkarnir voru andvigir uppsögn samnings- ins og vilduaf þeim ástæðum ekki timabinda næstu útfærslu. Þeir héldu þvi fram að uppsögnin væri siðleysi, eins og kemur fram i áðurgreindum ummælum Al- þýðublaðsins ogað rangt væri aö færa út fiskveiðilögsöguna áður en hafréttarráðstefnan kæmi saman og vitað væri um niöur- stööuhennar, sbr. ályktun stjórn- ar LtíT.” Stjórnarandstæöingar lögðu hins vegar áherzlu á, að hvort tveggja yröi gert áður en hafréttarráðstefnan kæmi saman. tslendingar gætu á þann hátt haft mikil áhrif á þróunina. Að hika gæti veriö hið sama og tapa. tslendingar ættu að stefna að þvi að vera meðal forustuþjóöa i landhelgismálum en samkvæmt stefnu viöreisnarstjórnarinnar yrðu þeir meðal hinna siðustu. Úrslit þingkosninganna uröu þau að stjórnarandstæöingar fengu meirihluta. Þeir mynduöu rikisstjórn eftir kosningarnar undir forustu Ólafs Jóhannesson- ar. Margt bar á milli flokkanna og vafasamt er að þeir heföu myndað stjórn ef hin sameigin- lega stefna i landhelgismálinu hefði ekki tengt þá saman. Meginverkefni stjórnarinnar var að koma fram stefnunni sem flokkarnir höfðu markað i land- helgismálinu fyrir kosningarnar. 1 framhaldi af þvi varö það eitt fyrsta verk hins nýja utanrikis- ráðherra Einars Agústssonar að fara til London og Bonn og kynna stjórnvöldum þar fyrirætlanir Is- lendinga um uppsögn samning- anna frá 1961. Samstaða Strax og hiö nýk jörna þing kom saman haustið 1971 lagði rikis- stjórnin fram tillögu til þings- ályktunar samhljóða þeim sem sqitember 1972. 2. Að rikisstjórnum Bretlands og Sambandslýðsveldisins Þýzkalands verði enn á ný gerð grein fyrir þvi aö vegna llfshags- muna þjóðarinnar og vegna breyttra aðstæðna geti samning- ar þeir um landhelgismál sem gerðir voruvið þessiriki 1961 ekki lengur átt við og séu tslendingar ekki bundnir af ákvæðum þeirra. 3. Að haldið verði áfram sam- komulagstilraunum við rikis- stjórnir Bretlands og Sambands- lýðveldisins Þýzkalands um þau vandamál sem skapast vegna út- færslunnar. 4. Að unnið veröi áfram I sam- ráöi við fiskifræðinga að ströngu eftirliti með fiskistofnum við landið og settar eftir þvi sem nauðsynlegt reynist reglur um friðun þeirra og einstakra fiski- miða til þess að koma i veg fyrir ofveiði. 5. Að haldið verði áfram sam- starfi við aðrar þjóðir um nauðsynlegar ráðstafanir til þess að koma i' veg fyrir mengun sjávar og heimilar rikisstjórninni að lýsa einhliða yfir sérstakri mengunarlögsögu á hafinu um- hverfis Island.” Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Alþýðuflokksins höföu fyrir- vara um 1 og 2 lið tillögunnar en hún var samþykkt samhljóða á Alþingi. Málskot Breta 1 framhaldi af ályktun Alþingis 15. febrúar 1972 gaf rikisstjórnin út reglugerð 14. júli 1972, þar sem ákveðið var að fiskveiðilögsaga tslands yrði 50milur frá og meö 1. september 1972. Strax i ágúst 1971 hafði rikisstjórnin tilkynnt Bret- um með árs fyrirvara, að hún teldi samninginn frá 1961 ekki lengur bindandi fyrir Island og myndi hún færa fiskveiðilögsög- una út einhiiða i samræmi viö það. Jafnframt væri hún reiðubú- in til að semja við Breta um viss Þó mætti ársafli Breta ekki vera meiri en 170 þús. smálestir. Is- lenzka rikisstjórnin ákvað að hafa þennan úrskurð að engu, þar sem hún teldi samninginn niður fallinn. Reglugerðin frá 14. júli kom þvi til framkvæmda 1. sept- ember 1972, eins og áður hafði verið ákveöiö. Fiskveiðilögsaga Islands var orðin 50 milur og meö þvi stigið þýöingarmesta skrefið i landhelgisbaráttunni, þar sem fiskveiðiiögsagan náði orðið til alira helztu fiskimiða og uppeld- isstööva við landið. Úrskurður Alþjóðadóm- stólsins Islendingar tóku strax þá af- stöðueftir að Bretar visuðu mál- inu til Alþjóðadómstólsins að mæta þar ekki og taka ekki þátt i málflutningi. Ákvörðun þessi var byggð á þvi, að þeir teldu samninginn frá 1961 niður fallinn og þvi hefði dómstóllinn ekki lengur dómsögu i málinu. Þann 2. febrúar 1973 úrskurðaði dómstóli- inn samt að hann hefði dómsögu i málinu. Hinn 24. júli 1974 felldi hann svo endanlegan úrskurð. Niðurstaðadómstólsins varsú, að hann ógilti ekki úrfærsluna, en taldi hana ekki ná til Breta sökum samkomulagsins frá 1961. Megin- atriði úrskurðarins voru þessi: „Samkvæmt þeim rökstuðningi sem aðframan er rakinn, dæmir dómstóilinn með tiu atkvæðum gegn fjórum: 1. Að reglugerð umfiskveiði- landhelgi Islands, sem sett var hinn 14. júli 1972 af ríkisstjórn Is- lands og kveður á um einhliða út- færslu algerra fiskveiðiréttinda Islands 50 sjómflur frá grunnlin- um þeim, sem þar eru greindar, verði ekki beitt gagnvart rikis- stjórn hins Sameinaða konungs- rikis. 2. Áð rikisstjórn Islands sé af nefndum ástæðum ekki heimilt að útiloka einhliða fiskiskip hins um, ef vinstri stjórnin hefði ekki tekiö þá ákvörðun að lýsa hann úr gildi fallinn og haga sér sam- kvæmt þvi. Án þess væri samn- ingurinn enn i fullu gildi og Bret- ar ættu þvi rétt til veiöa innan fiskveiðilögsögu Islands sam- kvæmt úrskuröi Alþjóðadóm- stólsins frá 24. júli 1974. Samningurinn 1973 Þegar Bretar sáu, aö málskotið til Alþjóðadómstólsins myndi engan árangur bera, gripu þeir til þess að láta herskip torvelda Is- lenzku varðskipunum gæzlustörf þeirra. Þeir töldu sig nú hafa meiri rétt til þorskastriðs en 1958, þar sem þeir gátu vitnaö i bráða- birgðaúrskurð Alþjóðadðmstóls- ins frá 17. ágúst 1972 sér til stuðn- ings.Bretar sóttu þorskastriðið af miklu kappi. Þrátt fyrir það var af Islands hálfu aldrei látið leið- ast til samninga. Ýmsar þátt- tökuþjóðir i Atlantshafsbanda- laginu hvöttu Breta til undan- halds, þvi að annað gæti haft óheppileg áhrif á afstöðu Islands til bandalagsins. Heath forsætis- ráðherra ákvaö þvi haustið 1973 að bjóða Ólafi Jóhannessyni for- sætisráðherra til viðræðna og náðist sá áranguraf fundi þeirra, að i nóvember 1973 var gengið frá bráðabirgðasamkomulagi, sem gilti til tveggja ára. Samkvæmt þvi drógu Bretar miklu meira úr veiðum sinum hér viðland en þeir höfðu áður viljað fallast á. Bæöi fækkuöu þeir skipum, sem sðttu á íslandsmið, og hættu veiðum á stórum svæðum utan tólf milna markanna. Samningur þessi var þvi stór áfangi i landhelgisbarátt- unni, enda stóðu allir þingflokkar að samþykkt hans. 200 milurnar ákveðnar Eins og áöur segir, giiti samn- ingurinn frá 1973 aðeins til tveggja ára. Þann tima þurfti að anum, að fiskveiöilögsagan skyldi færð út i 200 milur fyrir árslok 1975. Þaö var ráö Fram- sóknarmanna að fresta útfærsl- unni til ársins 1975, þar sem vænta mátti að lagður yröi fram texti til nýrra hafréttarlaga á þriðja fundi hafréttarráðstefn- unnar, sem koma átti saman i Genf vorið 1975. Sú varð llka raunin.Samkvæmt þessum texta sem var lagður fram af nefndar- formönnum á ráðstefnunni, var gertráð fyrir, að strandriki mætti taka sér allt að 200 milna efna- hagslögsögu og gæti einhliða ákveðið hámarksafla innanhenn- ar og hvað mikiö það gæti sjálft hagnýtt af honum. tslenzka nefndin haföi undir forustu Hans G. Andersen átt góðan þátt i, að textinn varð jafn hagstæður fyrir Island og raun bar vitni. Sterk andstaða Óhætterað fullyrða að útfærsla fiskveiöilögsögu íslandsi 50 miiur og deilur þær, sem risu i sam- bandi við hana og vakið höfðu al- heimsathygli, höfðu mjög ýtt undir hraða þróun i landhelgis- málunum og styrkt 200 milna-stefnuna, sem Suður-Amerikurikin höfðu beitt sér fyrir. En þótt200milna reglan um efnahagslögsögu hefði komizt inn i texta hafréttarráðstefnunn- ar, átti hún enn mikilli andspyrnu aðmæta. Hún sætti enn mótstööu risavelda eins og Bandarikjanna og Sovétrikjanna, m.a. af hern- aðarlegum ástæðum, þvi aö þau óttuöust, að hún yrði upphaf að útfærslu sjálfrar landhelginnar i 200 milur. Efnahagsbandalags- rikin voru einnig á móti henni. Sama gilti um flest landlukt riki og svokölluð afskipt riki. Hér þurfti þvi enn að höggva á hnút til að hraða þróuninni. Það var gert með reglugerðinni, sem núver- andi rikisstjðrn gaf út 15. júli 1975 um að fiskveiðilögsaga tslands skyldi vera 200 milur frá og meö 15. október 1975. Með henni var hleypt af stað þeirri skriðu, sem því fram, aö þeir hafi háö þorska- striðin 1972-1973 og 1975-1976 i samræmi við dóma Alþjóðadóm- stóisins. Það bætti ekki stöðu ís- lands. Vaskieg framganga is- lenzkra varðskipsmanna og mál- flutningur Islendinga á erlendum vettvangi reyndist samt sigur- sælli en ofbeldi Breta. Meö Osló- arsamningnum sem gerður var vorið 1976, náðist fullur sigur i landhelgisbaráttunni. Tvö hundr- uðmilna fiskvei&ilögsaga Islands hefúr siöan verið staðreynd. Barátta innan- lands og utan Þorskastriðið var aðeins einn þáttur baráttunnar á þessum tima. Baráttan var háð bæði inn- anlands og utan. Rikisstjórnin taldi þaö vænlegt til sigurs aö ein- angra deiluna sem mest við Breta Þess vegna var samiö við Belgiu- menn, Færeyinga og Vestur-Þjoöverja. Þetta reyndust rétt og giftusamleg vinnubrögð. Stjórnarandstaðan kappkostaði samt að tortryggja þau og reyndi með margvislegu æsingastarfi undir forustu Péturs Guðjonsson- ar að vekja mótspyrnu gegn þeim. Erfitt var að fá samstarfs- þjóðir okkar i Atlantshafsbanda- iaginu tilað styðja okkur, sökum samvinnu þeirra við Breta. Það var fyrst eftir að Ólafur Jó- hannesson hafði látið fara fram á það við Bandarlkin aö þau létu okkur i té skip til gæzlustarfa, að eitthvað munaði um stuðning þeirra. Þeim var ljóst að það gæti haft óhagstæð áhrif á tengsl okk- ar við Atlantshafsbandalagið, ef beiðninni væri neitað og ekkert gert Islendingumtil stuðnings. Það var stuttu eftir þetta, sem sá skriður komst á málið, er leiddi til samkomulagsins i Osló. Sögulegir þingflokksfundir Þaðvoruekki heldur allir innan stjórnarliðsins, sem vildu glima viö Breta til þrautar. Enn munu menn vafalaust minnast ýmissa forustugreina Mbl., þar sem ákaft var hvatt til samninga við þá. Skrif Timans voru á aðraleið. Þá munu áreiðanlega margir minnast þess,að brezkir f jölmiöl- ar felldu þann dóm að Ólafur Jó- hannesson væri harði maðurinn i stjórninni og samkomulag strandaði mest á honum. Tveir þingflokksfundir mættu einnig verða minnisstæöir. Þegar þeir Einar Agústsson og Geir Hallgrimsson komu heim af Natófundi i Osló meö uppkast að Oslóarsamkomulaginu, voru haldnir um þaö fundir i þingflokk- um stjórnarflokkanna. Fundur var örstuttur hjá Sjálfstæðis- flokknum og menn þar sammála um uppkastið. Hjá Framsóknar- flokknum var fundurinn langur og það mjög gagnrýnt að ekkert var aðfinnaiuppkastinu um það, sem ætti að taka við eftir að samningurinn rynni út 1. desem- ber 1976. Þetta leiddi til þess, að það ákvæði fékkst inn i samning- inn, að Bretar hétu þvi að þeir myndu ekki eftir þann tima veiða innan islenzku fiskveiðilögsög- unnar nema með samþykki Is- lendinga. Þetta varð mikilvæg- asta ákvæöi Oslóarsamningsins. Nokkrar niðurstöður I samræmi við það, sem hér er rakið, skulu aö lokum dregnar fram nokkrar mikilsverðar niðurstööur: 1. Rikisstjórn Alþýðuflokksins og Sjálfstæðisflokksins geröi i ársbyrjun 1961 landhelgis- samning við Breta, sem veitti þeim stöðvunarvald varðandi frekari útfærslu á fiskveiðilög- sögunnLEkkert uppsagnarákvæði var I samningnum. Ekkert var aöhafzt til frekari útfærslu á fisk- veiðilögsögunni i þann rúma ára- tug, sem þessi rikisstjórn fór með völd. Úrskurður Alþjóðadóm- stólsins 24. júli 1974 sýnir, að Bretar ættu enn rétt til veiöa inn- an fiskveiöilögsögu íslands, ef vinstri stjórnin heföi ekki brotið þá fjötra af Islandi, sem þessi samningur var, meö þvi aö lýsa hann ógildan. 2. Framsóknarflokkurinn hafði forustu um það fyrir kosningarn- ar 1971, aö þáverandi stjórnar- andstöðuflokkar birtu sameigin- lega stefnuyfirlýsingu i landhelg- ismálinu, sem fól það i sér, að samningurinn við Breta frá 1961 yrði lýstur úr gildi failinn og að fiskveiöilögsagan yrði færð út i 50 mílur. Vinstri stjórnin var mynd- uð á grundvelli þessa samkomu- lags og hratt áðurgreindri stefnu- yfirlýsingu i framkvæmd. 3. Framsóknarflokkurinn og Sjálfstæöisflokkurinn urðu sam- mála um það við stjórnar- myndunina 1974 að vinna að út- færslu fiskveiðilögsögunnar i 200 milur. Útfærslan i 200 milur kost- aði nýtt þorskastriö viö Breta, þar sem þeir beittu meiri hörku en nokkru sinni fyrr. Stjórnar- andstaðan sýndi ekki neinn áhuga fyrir útfærslunni I 200 milur held- ur reyndi aö vekja æsingar gegn rikisstjórninni vegna þeirra hyggilegu vinnubragöa hennar aö einangra Breta með þvi aö semja við Belgiumenn og Vestur-Þjóö- verja. Innan stjórnarflokkanna gætti talsvert ólikra sjónarmiða um hversu langt skyldi gengið i samningum við Breta, eins og ráða mátti af ólikum skrifum Mbl. og Timans á þessum tima og þeim ummælum brezkra fjöl- miðla að Ólafur Jóhannesson væri harði maöurinn i rikis- stjórninni. Vegna þess, aö íslend- ingar létu hvorki undan siga á fiskimiöunum eða við samninga- boröið, náðist fram Oslóarsamn- ingurinn vorið 1976, sem tryggöi Islendingum full yfirráö yfir 200 milna fiskveiöilögsögu. 4. Bæði i sambandi viö útfærslu fiskveiðilögsögunnar i 50 milur og útfærsluna i 200 milur mæddi mest á tveimur ráðherrum eöa þeim Ólafi Jóhannessyni sem fór með yfirstjórn landhelgisgæzl- unnar, og Einar Agústssyni, sem fór með utanrikismálin. Að öðr- um ráðherrum ólöstuðum eiga þeir mestan þátt i þvi, að Islend- ingarhafa nú 200 milna fiskveiði- lögsögu. Þ.Þ.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.